Morgunblaðið - 16.02.2019, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
1. janúar voru liðin 100 ár frá því að
Vestmannaeyjabær fékk kaupstað-
arréttindi. Tímamótanna verður
minnst með ýmsum hætti í ár.
Sérstakur hátíðarfundur sem op-
inn var bæjarbúum var haldinn 14.
febrúar. Í gær var boðað til bæjar-
stjórnarfundar þar sem ungt fólk
tók við hlutverki bæjarfulltrúa. Á
vel sóttum fundi komu ungu bæjar-
fulltrúarnir með tillögur um for-
gang heimamanna að Herjólfi,
skólaafslátt með flugi. Bæjarstjórn
var hvött til þess að skoða mögu-
leika á móttöku flóttafólks. Óskað
var eftir mini golfi, lazer tag, paint
ball og keilu fyrir ungt fólk og
auknu framboði á íþróttum auk
betri stóla og borða fyrir nemendur
grunnskóla.
Nú stendur yfir myndlistarsýn-
ing nemenda við Grunnskóla Vest-
mannaeyja og á morgun verður op-
ið málþing um Vestmannaeyjar í
100 ár. Kvikmyndahátíð verður í
apríl og október. Veglegt afmæl-
isrit verður gefið út í sumar og mik-
ið verður um dýrðir á goslokahátíð
í byrjun júlí.
Hátíðhöldunum lýkur á safnanótt
fyrstu helgina í nóvember.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Hátíðarfundur Bæjarstjórn Vestmannaeyja bauð til opins hátíðarfundar vegna þess að 100 ár eru liðin frá því að
fyrsti fundur var haldinn í bæjarstjórn 14. febrúar 1919. Sýndur var annáll í myndum af sögu Vestmannaeyjabæjar.
Vest-
mannaeyja-
bær orðinn
100 ára
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Framtíðin Bæjarstjórn Unga fólksins í Vestmannaeyjum fundaði í gær og
lagði fram tillögur um önnur málefni en kjörnum bæjarfulltrúum er tamt.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
Kvikmyndabærinn Stykkis-
hólmur iðar af mannlífi þessa dag-
ana. Sagafilm, í samstarfi við sænska
fyrirtækið Yellowbird, er að taka
upp átta þátta sjónvarpsseríu. Þætt-
irnir verða að stærstum hluta teknir
upp í Hólminum. Upptökur hófust
27. janúar sl. og munu standa fram í
miðjan mars. Leikmyndin gefur til
kynna að atriðin sem hér eru tekin
upp eiga að gerast á Grænlandi.
Bærinn hefur víða fengið grænlenskt
yfirbragð. Það er þá ekki í fyrsta
sinn sem Stykkishólmur er valinn til
að líkjast grænlenskum bæ, en það
var árið 2012, er kvikmyndin Secret
Life of Walter Mitty var tekin upp.
Mikill fjöldi fólks fylgir kvik-
myndatökunni. Þegar mest er um að
vera er talið að 100 manns komi að
kvikmyndagerðinni. Allt þetta fólk
þarf þjónustu og eru flest gistirými
bæjarins fullbókuð á meðan á tökum
stendur. Á þessum tíma árs er heim-
sóknin góð viðbót í ferðaþjónustuna.
Hólmarar taka gestunum vel og
sýna kvikmyndaverkefninu skilning
og umburðarlyndi. Þeir hafa einnig
gaman af að fylgjast með upptökum
og tímabundnum breytingum á hús-
um og umhverfi í bænum.
Eins og áður hefur komið fram
hafa tvö fyrirtæki sýnt áhuga á að
koma á fót þörungavinnslu í Hólm-
inum. Um er að ræða Íslenska kalk-
þörungafélagið og Acadian Sea-
plants sem er kanadískt fyrirtæki.
Bæjarstjórn hefur ekki tekið afstöðu
til beiðni félaganna. Í desember skip-
aði hún 10 manna ráðgjafanefnd
heimamanna sem hafa víðtæka
þekkingu og reynslu á málefninu.
Nefndin á m.a. að fara yfir og meta
fyrirliggjandi gögn, leggja mat á
kosti og galla sem snúa að starfsem-
inni og koma með tillögur að við-
miðun Stykkishólmsbæjar í áfram-
haldandi viðræðum um leyfis-
veitingu Niðurstöður eiga að liggja
fyrir í lok mars.
Ákveðið er að sameina St.
Fransisskusspítala og hjúkrunar-
deild dvalarheimilisins og fjármagn
tryggt til að ráðast í þessa brýnu
framkvæmd. Hönnun húsnæðisins
er langt komin. En það er ekki allt
komið með því. Í haust var skipuð
samstarfsnefnd með fulltrúum frá
Stykkishólmsbæ, Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, Framkvæmdasýslu
ríkisins, Velferðarráðuneytinu og
Ríkiseignum til að fylgja eftir fram-
kvæmdum. Illa gengur að funda hjá
nefndinni, því enn hefur ekki frést
hver verða næstu skref. Á meðan
bíða bæjarbúar eftir úrbótum og er
biðin orðin löng
Skák er skemmtileg. Það fá
nemendur í grunnskólanum að kynn-
ast í næstu viku. Þá kemur Bragi
Þorgrímsson skákmeistari og kennir
skák í öllum bekkjum skólans. Um er
að ræða samstarf Skáksambands Ís-
lands og Stykkishólmsbæjar í fram-
haldi af atskákmóti sem fram fór hér
í bæ í nóvember s.l.
Góð heilsa er dýrmætasta eign
hvers einstaklings. Eftir því sem fólk
eldist þarf það að hugsa að heilsunni.
Öll hreyfing er góð til að viðhalda og
styrkja líkamlega hreysti. Stykkis-
hólmsbær hefur í vetur boðið öllum
þeim íbúum sem eru 60 ára og eldri
upp á fjölbreytta heilsurækt í
íþróttahúsinu fjóra daga í viku. Tvo
daga er hópleikfimi í sal og aðra tvo
daga er farið í þrek í tækjasal.
Íþróttakennararnir Gísli Pálsson og
Gunnhildur Gunnarsdóttir halda ut-
an um hópinn og veita leiðsögn. Góð
mæting hefur verið í tímana og hefur
fjöldinn farið upp í 30 manns á æf-
ingu. Þátttakendur taka þessu fram-
taki bæjaryfirvalda fagnandi og vona
að framhald verði á.
Rólegt hefur verið við höfnina
frá áramótum. Landaður afli er um
150 tonn sem ekki þykir mikið magn
á þessum árstíma. En aflatölur eru
athyglisverðar og þar gætir mikillar
fjölbreytni: Ígulker 97 tonn, hörpu-
diskur 27,7 tonn, þorskur 12, 6 tonn,
beitukóngur 9,6 tonn og loks grjót-
krabbi 248 kg. Það er oft sem þess-
um nýja landnema er landað á vigt.
Í Stykkishólmi eru starfandi
tvær öflugar saltfisksvinnslur, Ag-
ustson ehf og Þórsnes ehf. Bátar á
þeirra vegum stunda veiðar frá Snæ-
fellsbæ og er aflanum ekið inn í
Hólminn til vinnslu.
Lóð Grunnskólans verður
stærsta verkefni bæjarins á þessu
ári. Búið er að hanna skólalóðina og
er áætlaður kostnaður 100-120 millj-
ónir króna. Verktími skiptist niður á
næstu fjögur ár. Í vor verður farið í
fyrsta áfanga sem eru jarðvegs-
framkvæmdir og eru 55 milljónir
króna áætlaðar í þann áfanga.
Stykkishólmsbær hefur sam-
þykkt áætlun um fjárfestingar og
framkvæmdir árin 2019-2022. Fram-
kvæmt verður á tímabilinu fyrir 500
milljónir. Eigið fé mun standa undir
stærstum hluta kostnaðar, en lán-
tökur eru áætlaðar að upphæð 55
milljónir króna.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmur Norræn þáttaröð verður til. Upptökur fara fram víða í bænum þessa dagana.
Bíóbærinn
iðar af mannlífi