Morgunblaðið - 16.02.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 16.02.2019, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Pedro Sanchez,forsætisráð-herra Spán- ar, tilkynnti í gær, að hann myndi boða til nýrra þingkosn- inga hinn 28. apríl næstkomandi, eftir að fjárlagafrumvarp ríkis- stjórnar hans var fellt fyrr í vik- unni. Þetta verða þriðju kosning- arnar á fjórum árum á Spáni og það sem reið baggamuninn um örlög Sanchez-stjórnarinnar var að í sömu viku og greidd voru at- kvæði um fjárlögin hófust um- deild réttarhöld yfir tólf for- svarsmönnum sjálfstæðis- hreyfingar Katalóníuhéraðs. Sakborningarnir hafa mátt dúsa í fangelsi í rúmlega ár fyrir stuðn- ing sinn annars vegar við um- deilda þjóðaratkvæðagreiðslu í október 2016 og hins vegar við sjálfstæðisyfirlýsingu héraðsins sem fylgdi skömmu síðar. Sakborningunum er meðal annars gefið að sök að hafa ætlað að stuðla að stjórnarbyltingu, sem samkvæmt spænskum lög- um felur í sér beitingu ofbeldis. Stuðningsmenn sakborninganna hafa hins vegar bent réttilega á, að ofbeldið í tengslum við sjálf- stæðisbaráttu Katalóna hafi að mestu eða öllu leyti stafað af of- stopa spænskra ríkislögreglu- manna, sem reyndu allt hvað þeir gátu til þess að meina Katalónum að kjósa. Minnihlutastjórn Sanchez hef- ur hingað til þurft að treysta á stuðning katalónskra aðskiln- aðarsinna, sem settu ýmis skilyrði fyrir þeim stuðn- ingi. Meðal þeirra var að ríkisstjórn Spánar myndi hefja viðræður við Katalóna um aukna sjálfstjórn héraðsins, en spænsk- ir íhaldsmenn hafa lagst alfarið gegn því, með þeim rökum að þar með sé verið gefa eftir gagnvart óbilgjörnum og ólöglegum kröf- um aðskilnaðarsinna. Viðræðurnar hafa enda ekki skilað miklum árangri, og sú staðreynd ásamt réttarhöldunum varð til þess að aðskilnaðarsinn- ar ákváðu að slíta stuðningi sín- um við Sanchez, sem var þar með stillt upp við vegg. Þingrof og kosningar voru eina ráðið fyrir Sanchez, en ekkert er víst um niðurstöðu kosninganna. Kannanir benda þannig til þess að spænsku hægriflokk- arnir fái meirihluta þingsæta en að Sósíalistaflokkur Sanchez verði stærsti flokkurinn á þingi. Þá er einnig talið mögulegt að engin fylking fái meirihluta þing- sæta eftir kosningarnar, sem væri í takti við annað. Augljóst er þó að langstærsta kosningamálið verður Katalóníudeilan og það hvernig leysa má hana. Fátt bendir þó til að ásættanleg lausn náist í þeirri deilu og líkur eru á að stjórnvöld á Spáni haldi áfram eftir kosningar að beita kata- lónska sjálfsstæðissinna harð- ræði. Allar líkur eru sömuleiðis á því að Evrópusambandið haldi áfram að horfa ákaft í aðrar áttir. Katalóníumálið yfirgnæfir Spán og Sanchez} Réttarhöld fella ríkisstjórn Indverjar hótuðuþví í gær að ein- angra Pakistana á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, eftir að hræðileg sprengjuárás í Kasmír-héraði felldi á fimmta tug manna á fimmtudag. Segja indversk stjórnvöld að ábyrgðin á ódæðinu hvíli meðal annars á herðum Pak- istana sem hafi skotið skjólshúsi yfir ýmis hryðjuverkasamtök sem starfi óáreitt í Kasmír- héraði, bitbeini ríkjanna tveggja frá því að þau fengu sjálfstæði. Skiljanlegt er að indversk stjórnvöld vilji refsa hinum seku, og ljóst er að þrátt fyrir mótbár- ur Pakistana hafa þeir ekki gert nærri því nóg til að koma í veg fyrir að öfgamenn geti athafnað sig innan eigin landamæra eða í grannríkjunum. Hefur sá grunur raunar verið lengi uppi að í besta falli hafi pakistönsk stjórnvöld sett kíkinn fyrir blinda augað, og í versta falli að þau hafi veitt samtökum vígamanna virkan stuðning í formi vopna og fjár- magns. Saga þessara grannríkja hefur ekki beinlínis verið friðsöm, og sú staðreynd að bæði ráða yfir kjarnorkuvopnum þýðir að ríkis- stjórnir beggja verða að stíga var- lega til jarðar, svo að ástandið fari ekki á versta veg. Yfirlýsing Indverja um að þeir vilji einangra Pakist- an er því þeirra aðferð til þess að reyna að knýja stjórnvöld þar til að breyta um stefnu án þess að hætta um of á frekari átök, en engu að síður er ástandið eld- fimt. Þá er spurning hvort Indverj- ar hafi afl eða stuðning til þess að ná fram markmiðum sínum í þessari deilu. Bandaríkjastjórn hefur á síðustu misserum reynt að nálgast Pakistana og fá aðstoð þeirra við að binda enda á stríðið í Afganistan, og Kínverjar, sem eru nágrannar hvorra tveggja, telja sig einnig hafa hag af Pak- istan sem mótvægi við Indland. Refsiaðgerðir Indverja gætu því hæglega misst marks, sem væri miður, því að full ástæða er til þess að Pakistanar, sem fréttu aldrei af því að eftirlýstasti mað- ur heims byggi í næsta húsi við eina af herstöðvum þeirra, taki sig saman í andlitinu þegar slíkir menn eru annars vegar. Hryðjuverk ógna samskiptum Ind- verja og Pakistana} Ódæði í Kasmír H á laun bankastjóra ríkisbank- anna og sérstaklega hækkun launanna að undanförnu vekja úlfúð. Heppilegast er að laun séu ákveðin í frjálsum samn- ingum og það er sannarlega ekki markmið að laun séu almennt lág. Þaðan af síður hef ég ástæðu til þess að efast um hæfni þeirra sem nú eru í æðstu stöðum bankanna. Um mörg störf gildir lögmál framboðs og eftirspurnar. Geta fyrirtækja til þess að greiða laun fer eftir afkomu. Oft þurfa þau að keppa við erlenda markaði, t.d. vegna heil- brigðisstarfsmanna, iðnaðar- og tæknimanna. Ef laun þeirra verða of lág leita þeir einfald- lega og auðveldlega annað. Um bankamenn gilda þeirra eigin lögmál. Frank Partnoy, prófessor í lögum og fjármálum hjá Há- skólanum í San Diego, skrifaði bókina Infectious Greed. Hann var spurður um himinháa starfslokasamninga tveggja erlendra bankastjóra fyrir um 15 árum. Svarið kom á óvart: „Hið raunverulega hneyksli er ekki of há laun þessara tveggja manna, heldur of há laun næstum allra annarra. Ef hluthafar veltu viðskiptalíkani banka- starfsemi rækilega fyrir sér myndu þeir reyna að telja bankaráðin á að fækka starfsmönnum eða borga þeim að minnsta kosti minna.“ Skilvirk bankastarfsemi er stórmál. En á Íslandi er hún dýr. Vextir á bankabókum eru lágir og vextir á lán- um háir. Þjónustugjöld eru há og svo flókin að doktors- gráða nægir ekki til þess að skilja þau. Há laun bankastjórnenda eru ekkert nýtt á Íslandi. Árið 2008 voru 40 íslenskir bankastarfsmenn með yfir 5 milljónir króna á mánuði, um 7,5 milljónir að núvirði. Bankastjórarnir vísuðu til mikillar ábyrgðar, árangurs og alþjóð- legrar samkeppni um bankamenn, þegar rætt var um laun þeirra. Í október 2008 svaraði einn þeirra blaðamanni: „Ég vil ekki tala um þessa hluti“. En við þurfum að tala um þessa hluti. Bankakerfið á Íslandi er ekki í alþjóðlegri samkeppni, engir bankar úti í heimi bíða eft- ir því að snillingar frá Íslandi verði á lausu. Þegar talað er um samkeppnishæf laun er eina samkeppnin launamarkaður sem banka- menn skapa sjálfir. Bankastjórnendur geta aukið þrýsting á hækkun eigin launa með framsækinni hækkun launa næstráðenda. Dettur einhverjum í hug að ekki sé hægt að fá góðan bankastjóra fyrir þrjár milljónir á mánuði? Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri nefndi nauðsyn fjárhagslegs sjálfstæðis bankastjóra: „[Að] það komi einhver spillingarmál þar sem bankastjórinn er að fá einhverjar þóknanir eða að liðka fyrir einhverjum viðskiptum sem annars hefðu ekki komið í gegn.“ Bendir fjöldi dóma yfir bankamönnum eftir hrun til þess að há laun tryggi að bankamenn eða aðrir séu heiðarlegir? Þeir sem taka við þóknunum eða öðrum greiðum til þess að liðka fyrir viðskiptum gera það líka þó að launin séu há. Ágirnd vex með eyri hverjum, segir máltækið. Benedikt Jóhannesson Pistill Land allra bankamanna Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Alls nam kostnaður vegnaflutnings Fiskistofu tilAkureyrar árið 2016 tæp-lega 180 milljónum króna. Stærstu einstöku liðirnir eru vegna starfslokakostnaðar upp á 45 millj- ónir og flugkostnaður innanlands, dagpeningar og annar ferða- og dvalarkostnaður nam samtals um 42 milljónum. Þá greiddi Fiskistofa leigu í tvö ár í húsnæði við Dals- hraun í Hafnarfirði fyrir húsnæði sem stofnunin þurfti ekki á að halda. Nam þessi kostnaður alls tæplega 50 milljónum frá miðju ári 2016, en um mitt síðasta ár tók Matvælastofnun yfir samninga á þeim hluta húsnæð- isins sem Fiskistofa þurfti ekki á að halda. Framlag ríkisins vegna flutn- inganna nam 130 milljónum, en stofnunin hefur þurft að mæta kostnaði upp á tæplega 50 milljónir. Að sögn Eyþórs Björnssonar, fiski- stofustjóra, hættu allmargir starfs- menn og var rekstrarafgangur m.a. nýttur til að mæta þessum kostnaði. Auk þess hefur Fiskistofa fengið vil- yrði fyrir fjármagni út næsta ár vegna aukins ferðakostnaðar. Árleg- ur kostnaðarauki vegna ferðakostn- aðar innanlands er talinn nema níu milljónum króna. 60 starfsmenn víða um land Eyþór fiskistofustjóri var eini starfsmaður Fiskistofu, sem flutti til Akureyrar þegar höfuðstöðvarnar voru fluttar norður. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að alls störfuðu nú 60 starfsmenn hjá Fiskistofu. Á Akureyri starfar 21 starfsmaður, þar af 5 veiðieftirlits- menn, í Hafnarfirði eru alls 27 starfsmenn að meðtöldum átta veiði- eftirlitsmönnum. Tólf starfsmenn Fiskistofu starfa síðan víða um land við eftirlit og önnur störf, fjórir í Stykkishólmi, fjórir á Hornafirði, tveir á Ísafirði og tveir í Vest- mannaeyjum. Áform eða ákvörðun um að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar voru kynnt í júní 2014. Starfsmönnum var brugðið við þessar fréttir og í kjöl- farið fylgdu ólga og uppsagnir. Á heimasíðu Fiskistofu birtist í vik- unni skýrsla fiskistofustjóra um flutningana. Skýrslan var tilbúin fyrir mitt ár 2018 en þar sem hún var hluti þeirra gagna sem Ríkisend- urskoðun voru fengin frá stofnun- inni vegna vinnslu á skýrslu um eft- irlitsstarfsemi Fiskistofu var beðið með birtingu skýrslunnar. Þar er ferlinu lýst frá því að ráðherra til- kynnti um áformin og fram á árið 2018 þegar flestir þættir málsins lágu skýrt fyrir. Starfsemin í uppnám Fram kemur í skýrslu Eyþórs að það hefði hugsanlega sparað mikla vinnu og haft minni kostnað í för með sér hefði flutningurinn verið undirbúinn betur, s.s. með samráði við fiskistofustjóra, mannauðsstjóra og með ráðgjöf fagaðila. Þá hafi markmið stjórnvalda með flutning- unum ekki verið fyrirliggjandi með skýrum hætti. „Langur óvissutími frá því að tilkynnt var um flutning höfuðstöðv- anna þangað til formleg ákvörðun lá fyrir setti starfsemi stofnunarinnar í uppnám þar sem mikill mannauður og þekking tapaðist,“ segir í skýrsl- unni. Og ennfremur: „Læra þarf af þessu ferli og undirbúa þarf sam- bærileg verkefni mun betur en gert var í tilviki Fiskistofu, út frá mann- auði, kostnaði, verkefnum og verk- ferlum. Sú umræða sem spannst í kringum flutninga Fiskistofu er til þess fallin að draga upp mjög nei- kvæða mynd af flutningi verkefna út á land og um leið draga úr tiltrú á slík verkefni.“ Fram kemur í skýrslunni að nýtt starfsfólk hafi komið inn með nýja sýn, sem gefi einstakt tækifæri til að hafa stefnumiðuð áhrif á vinnu- staðarmenninguna. Betri undirbúningur hefði sparað vinnu og fé Úr skýrslu fiskistofustjóra, sem var unnin fyrri hluta síðasta árs: „Kostnaður við flutninginn er umtalsverður og hefur verið ákveðinn baggi á stofnuninni og óljóst hvort fjárframlög fáist að fullu vegna þess kostnaðarauka sem orðinn er og er fyrirsjáanlegur. Viðbúið er að slíkt geti ekki gengið lengi án þess að koma niður á starfsemi stofnunar- innar. Ef horft er til langtíma kostnaðarauka má segja að Fiskistofa þurfi að fórna einu til tveimur stöðugildum til þess að standa undir auknum kostnaði vegna breyttrar staðsetningar höfuðstöðvanna komi ekki til varanlegt viðbótarfjármagn til að mæta því.“ Eitt til tvö stöðugildi AUKINN KOSTNAÐUR Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Á Akureyri Eyþór Björnsson, fiskistofustjóri, í húsnæði Fiskistofu í Borg- um. Hann var eini starfsmaðurinn sem flutti norður með stofnuninni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.