Morgunblaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 33
Saga Konrad
Maurers og Íslend-
inga hefur eignast
nýtt líf eftir að hand-
rit Maurers að Ís-
landsferð hans 1858
fannst í Augsburg
1972.
Ferðasaga þessi
var þýdd á íslensku
og gefin út 1997 af
Ferðafélagi Íslands
og einnig gefin út á frummálinu,
þýsku, af norrænudeild Ludwig
Maximilian háskólans í München
árið 2017.
Árið 2016 var stofnað Konrad
Maurer-félag í München af niðjum
Maurers, menntamönnum og fleir-
um þar í borg. Þetta félag hélt
upp á 100 ára afmæli fullveldis Ís-
lands með glæsilegu málþingi í
Köln 16. og 17. nóvember 2018.
Nú stendur til að stofna Konrad
Maurer-félag á Íslandi 21. febrúar
nk.
Stofnfundurinn verður í sal
Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6,
108 Reykjavík og hefst klukkan
17.
Auk venjulegra fundarstarfa
flytur Vilhjálmur Bjarnason erindi
um Jón Árnason þjóðsagnasafnara
og Sigurjón Pétursson verður með
myndasýningu úr ferðum Maur-
ers.
Ferðafélag Ísland hefur boðist
til að sjá um rekstur félagsins,
sem verður til húsa í húsnæði þess
að Mörkinni 6 í Reykjavík.
Ýmis starfsemi hefur farið fram
í tengslum við Konrad Maurer eft-
ir 1972. Má þar nefna
útgáfu ferðasögunnar
á íslensku og þýsku.
Mest hefur borið á
umfjöllun um þátt
Maurers í að bjarga
þjóðsagnaarfi Íslend-
inga, en Maurer ann-
aðist eða sá um útgáfu
á þjóðsögum Jóns
Árnasonar, sem voru
prentaðar í tveimur
bindum í Leipzig 1862
og 1864.
Sigrún Gylfadóttir ritaði, 2015,
120 bls. ritgerð um aðkomu Mau-
rers að íslenskri þjóðsagnasöfnun
á árunum 1858-1864.
Sama ár gaf Háskólaútgáfan út
þýðingu Steinars Matthiassonar á
íslenskum þjóðsögum, sem Maur-
er hafði safnað í Íslandsferð sinni
1858 og gaf út í Leipzig 1860 og
nefndi „Isländische Volkssagen
der Gegenwart“. Í þessu verki
skipulagði Maurer þá flokkun ís-
lenskra þjóðsagna, sem haldist
hefur lítt breytt síðan. Þessi
ágæta þýðing, sem ber titilinn „Ís-
lenskar alþýðusögur á okkar tím-
um“ er gott framlag eftir 155 ára
bið. Árlegar ferðir í fótspor Kon-
rads Maurers sem farnar hafa
verið á vegum Ferðafélags Íslands
njóta vaxandi vinsælda. Alls hafa
verið farnar fimm ferðir og sú
sjötta er í undirbúningi. Farið
verður 8. september í haust til
Stykkishólms og Helgafellssveitar.
Alls verða þessar ferðir tíu talsins
og verða endurteknar ef vinsældir
haldast.
Eftir Jóhann J.
Ólafsson
Jóhann J. Ólafsson
Höfundur er stórkaupmaður.
Konrad Heinrich von Maurer.
Maurer-félag
»Nú stendur til að
stofna Konrad Maur-
er-félag á Íslandi þann
21. febrúar nk.
Stofnfundurinn verður í
sal Ferðafélags Íslands,
Mörkinni 6, 108 Reykja-
vík og hefst klukkan 17.
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019
4ra herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýli
í Dalshverfi. Mjög vönduð eign.
Staðsett við nýja Stapaskóla.
Stærð 111 m2
Verð kr. 41.500.000
Efri hæð í þríbýlishúsi við Hringbraut í Keflavík.
Eign með mikla möguleika
Stærð 225,5 m2
Verð kr. 39.900.000
Þriggja herbergja íbúð á annarri hæð
í vel staðsettu fjölbýli.
Stærð 83,7 m2
Verð kr. 23.500.000
3ja herbergja íbúð á annarri hæð í nýbyggingu
í Dalshverfi Reykjanesbæ.
Mjög vönduð og glæsileg íbúð.
Stærð 90,2 m2
Verð kr. 36.000.000
4ra herbergja nýlegt parhús með bílskúr
við Grímsholt í Garði.
Rólegt og barnvænt umhverfi.
Stærð 146,6 m2
Verð kr. 36.900.000
Góð 3ja herbergja neðri hæð
ásamt 49,8 m2 bílskúr.
Stærð 143 m2
Verð kr. 35.900.000
Bjarkardalur 2, 260 Reykjanesbæ Hringbraut 46, 230 Reykjanesbæ Fífumói 3, 260 Reykjanesbæ
Trönudalur 9, 260 ReykjanesbæGrímsholt 9, 250 GarðiSólvallagata 24, 230 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Full ástæða er til
að hrósa Sigurði
Inga Jóhannssyni
samgönguráðherra
og fleiri þingmönn-
um fyrir stórhuga
áform um löngu
tímabærar úrbætur á
umferðarmestu þjóð-
vegum landsins til og
frá höfuðborgar-
svæðinu. Það er rétt
hjá Sigurði Inga að
við getum ekki beðið lengur eftir
því að auka öryggi á þessum leið-
um og bæta afkastagetu þeirra.
Fullyrða má að allir séu því sam-
mála.
Fjármögnun framkvæmdanna
með vegtollum hefur hins vegar
farið öfugt ofan í meirihluta
landsmanna. Fólki finnst skatt-
lagning á bíla og umferð nógu
mikil nú þegar og aðeins hluti
þess fjár skilar sér til vegamála.
Vegtollar eru dýr og röng leið til
að skattleggja umferðina.
Þess vegna er fagnaðarefni að
samgönguráðherra hefur vakið
máls á annarri og skynsamlegri
fjármögnunarleið en vegtollum,
sem sé að nýta arð af opinberum
fyrirtækjum. Það er alltaf virð-
ingarvert þegar stjórnmálamenn
kunna að bakka frá fyrri hug-
myndum til að finna
betri lausnir.
Rætt hefur verið
um að ávaxta arð af
Landsvirkjun í út-
löndum til seinni tíma
nota. Margfalt betri
ávöxtun fæst af því að
nota fjármunina nú
þegar í úrbætur í
vegakerfinu eins og
samgönguráðherra
hefur vakið máls á.
Öruggari vegir og
greiðari samgöngur
skila sér í minni slysakostnaði og
hagvexti. Reynslan af tvöföldun
Reykjanesbrautar er besta dæmið
um þennan ávinning.
Við erum öll í sama liði og öll
notendur samgöngumannvirkja á
einn eða annan hátt. Umferðarör-
yggi er okkar hjartans mál því
slysin tengjast okkur öllum. Finn-
um leið til framkvæmda – saman.
Skynsamlegar
hugmyndir sam-
gönguráðherra
Eftir Steinþór
Jónsson
Steinþór
Jónsson
» Fólki finnst skatt-
lagning á bíla og um-
ferð nógu mikil nú þeg-
ar og aðeins hluti þess
fjár skilar sér til vega-
mála.
Höfundur er formaður FÍB.