Morgunblaðið - 16.02.2019, Page 35

Morgunblaðið - 16.02.2019, Page 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 þá ætíð tilbúin að rétta hjálpar- hönd. Þau eru mörg líknarmálin sem hún hefur lagt lið. Að auki var hún mikil fjölskyldumann- eskja og hélt vel utan um börnin sín, Stephen og Samönthu, og síð- ar barnabörn og tengdabörn. Hún uppskar ríkulega í veikindum sín- um ást og umhyggju barna sinna, sem hún sjálf veitti svo rausnar- lega af í gegnum lífið. Það er mikill gæfa að eiga sam- leið með góðu fólki í lífinu. Fyrir rúmum þremur áratugum lágu leiðir okkar Karólínu saman og varð úr mjög góð vinátta. Við urð- um mjög góðar vinkonur og átt- um margar góðar og skemmtileg- ar stundir með fjölskyldum okkar, bæði hér heima sem og í Bretlandi, á Spáni og í Frakk- landi. Myndir horfinna daga renna í gegnum hugann á kveðju- stund sem þessari en eftir standa góðar minningar. Nú er þessari sameiginlegu vegferð með henni lokið í bili en við munum hittast síðar á annarri strönd. Far þú í friði kæra vinkona. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert ein af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannsdóttir) Elsku Stephen, Samantha, börn og tengdabörn. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð vegna fráfalls elskulegrar móður, ömmu og tengdamóður. Hrafnhildur B. Sigurðardóttir. Sérstök kona, hún Karólína. Jafnvel eftir næstum 60 ára sam- fylgd er erfitt að staðsetja hana í mannflórunni. Heimskona með skinnkraga sem málaði stórar myndir af skrýtnu fólki í sérís- lenskum aðstæðum. Hárbeittur húmoristi í miðju hópsins, en á sama tíma eins og utangátta, upp- tekin af eigin hugsunum. Við stelpurnar í 6. bekk A, MR 1964, vorum kallaðar „málverkið“ og það var ekki vegna listakon- unnar í hópnum, heldur vegna ásýndarinnar þegar við skunduð- um stífmálaðar á Skalla, Mokka, Borgina eða í Sjálfstæðishúsið, partíglaðar og skellihlæjandi, ekki síst Karólína, sem kynnti okkur fyrir Bítlunum, „strákar frá Liverpool sem eru að gera allt brjálað í Englandi“ . Og þar með dró hún upp 78 snúninga plötu úr veskinu sínu og spilaði She loves you ye ye ye í Íþöku þegar söng- tíminn var að byrja. Hún var á vissan hátt „petite“ eins og við slettum á mennta- skólafrönskunni, en líka sú hug- rakkasta, sem hélt ein út í heim og skapaði sér listamannsnafn, kannski þvert á allar væntingar. Hún tjáði sig í margræðu mynd- máli úr lífi fjölskyldunnar, en lítt um eigin tilfinningar. Þjóðin tók henni vel, sýningar vel sóttar, myndir rokseldust, of mikið þótti sumum. Það skapaði öfund ein- hverra kollega á listabrautinni. Karólínu sárnaði þegar hennar verka var ekki getið á 1.400 blað- síðum Listasögu Íslands frá 2011. Þó hafði hún komið með ferska vinda inn í íslenska menningu, eftirtektarverður listamaður. Þessi sérkennilegheit voru ekki frekar rædd, heldur haldið áfram. Þetta var einkennismerki Karól- ínu. Ferill Karólínu einkenndist af skýrri sýn, metnaði og ósérhlífni. Vatnslitir, steinþrykk og olía, allt þetta lék í höndunum á henni. En berjast þurfti hún fyrir sínu alla tíð. Börnin tvö hjartkæru, Steph- en og Samönthu, eignaðist hún með fyrri eiginmanni sínum, Clive Percival. Allnokkru eftir skilnað þeirra giftist hún Fred Roberts. Hann lést árið 2002. Upp úr því dvaldi hún æ meir á Íslandi og var orðin heimilisföst hér 2007. Þá urðu tengsl okkar í saumó aftur nánari. Þrátt fyrir hlé- drægnina var eins og Karólína væri í miðju hópsins. Það kom skýrt fram þegar við ákváðum að ferðast saman til útlanda. Skoðanir á áfangastað voru fleiri en við stelpurnar í hópnum. Kar- ólína hjó á hnútinn og skipulagði frábæra ferð til Cambridge þar sem við bjuggum í einu af húsum hennar. Hún leiddi okkur um töfra borgarinnar, rifjandi upp gamlar minningar og skapandi nýjar. Mikil gleði. En alvara undir niðri. Á sama hátt varð hún sú sem hélt hópnum saman eftir að heilsu fór að hraka. Saumó hélt áfram að hittast við sjúkrabeð hennar í Sóltúni, sama gæskan og frásagnargleðin. Lítill varð saumaskapurinn eftir puðið í hálfa öld. En tryggðabönd ofin sem héldu. Það dró smám saman af Karól- ínu þar til hún fékk hægt andlát 7. febrúar. Karólína lifir áfram með þjóðinni í myndum sínum. Og með okkur í perlum minninganna. Blessuð sé minning Karólínu. Saumó, Aðalheiður, Guðrún, Gyða, Hrafnhildur, Ingunn, Sigríður Ella, Sigríður Ragna og Svala. Postulín og silfur, kaffi, kökur og hljóðfæraleik má gjarnan sjá í myndum Karólínu Lárusdóttur og þannig var það líka í hennar eigin lífi. Ekkert var til sparað þegar von var á gestum. Upp í hugann kemur lítill fundur sem hún hélt þegar verið var að leggja drög að bókinni sem Aðalsteinn Ingólfsson skrifaði um verk henn- ar fyrir nokkrum árum. Þvílíkar veitingar, snittur og kökur á fín- um diskum, innan um ókláruð ol- íuverk sem voru að taka á sig mynd inni í miðri stofu. Strengja- kvartettinn sem spilaði í sjötugs- afmælinu hennar skapaði líka stemningu sem seint gleymist. Glæsileiki, gómsæti og gott fjör, hún gat alltaf sprengt öll viðmið, frumleg og hvatvís, einlæg og við- kvæm. Hún var líka spaugsöm og einkar hnyttinn textasmiður eins og þeir sem þekkja nöfn verka hennar geta vitnað til um. Örlæti hennar var einnig einstakt, við hjónin nutum þess sannarlega þegar hún bauð okkur afnot af íbúð sinni við Russel Square í miðborg London og vorum varla snúin aftur heim þegar hún var búin að ganga frá tímasetningu næstu heimsóknar. Hún var góð- ur vinur, glettin, gestrisin og gjaf- mild. Okkur hjónunum þótti mjög vænt um hana og við vottum fjöl- skyldu hennar okkar innilegustu samúð. Bryndís Loftsdóttir og Arnbjörn Ólafsson. Við Karólína áttum samleið í Menntaskólanum í Reykjavík og tengsl okkar rofnuðu aldrei. Þau mótuðust að sjálfsögðu af því að eftir að við lukum stúdentsprófi árið 1964 bjó hún erlendis. Alltaf þegar við hittumst var þó eins og það hefði síðast gerst í gær. Ein- lægni hennar og gleði yfir lífinu var fölskvalaus. Fyrir tæpum 35 árum heim- sótti fjölskylda mín Karólínu og Fred, eiginmann hennar, í Bishop’s Stortford, fallegum smábæ milli London og Cam- bridge. Hún fór með okkur til há- skólaborgarinnar og meðal ann- ars í galleríið þar sem myndir hennar voru eftirsóttar. Vinnusemi Karólínu var mikil. Féll það vel að vinsældunum sem hún og verk hennar nutu. Þegar hún sýndi fyrst á Kjarvalsstöðum árið 1982 voru verkin 176. Bið- raðir mynduðust áður en sýning- arsalir voru opnaðir. Seldust öll verkin upp á fyrsta degi. Þegar litið er til baka voru þetta skemmtilegir og líflegir tímar. Karólína varð þjóðsagna- persóna. Ég átti hlut að því að leiða þær saman Karólínu og Jón- ínu Michaelsdóttur sem skráði ævisögu hennar (útgefin 1993). Síðar ritaði Aðalsteinn Ingólfsson listaverkabók um Karólínu að frumkvæði Jóhanns Valdimars- sonar, forstjóra Forlagsins. Ein- mitt þegar útgáfu hennar var fagnað 27. nóvember 2013 bárust okkur fréttir um alvarleg veikindi Karólínu. Listamenn sem vinna mikið einir eins og Karólína kynnast auðveldlega sársaukanum. Hann brýst fram samhliða gleðinni við listsköpunina og getur tekið á sig mynd biturleika yfir að vera ekki metinn að verðleikum. Ýmsir álitsgjafar litu list Karólínu öðr- um augum en þeir fjölmörgu sem nutu þess að eiga verk eftir hana. Við sem áttum því láni að fagna að eignast vináttu Karólínu og listaverk höfum hana ávallt ná- lægt okkur, gleði litanna og sög- unnar sem hún sagði okkur. Blessuð sé minning Karólínu Lárusdóttur. Björn Bjarnason. „Glöggt er gests augað“ er gott íslenskt máltæki yfir fyrirbæri sem bestu menn hafa eytt ómæld- um tíma í að útlista, það sem við getum nefnt „nauðsynlegan fram- andleikann“ sem listamenn verða að hafa til að bera til að vera dóm- bærir á aðstæður í því þjóðfélagi sem þeir eru hluti af. Sem þýðir að þeir mega ekki vera „heimsk- ir“, heldur nógu fjarlægir í lund til að koma auga á gildi þess sem stendur þeim næst. Íslensk myndlist er ekki rík af mannlífslýsingum. Átakalínur í ís- lenskri myndlist lágu fyrst og fremst um sjálfan vettvang mann- lífsins, sveitina eða „mölina“, ekki innviði þess, hið einkanlega og félagslega svipmót sem þar þró- aðist. Því skal engan undra þótt myndlist Karólínu Lárusdóttur hafi komið flatt upp á margan Ís- lendinginn snemma á níunda ára- tugnum. Hér var mætt til leiks ís- lensk kona sem alist hafði upp við næsta ævintýralegar aðstæður, dótturdóttir hins þjóðþekkta Jó- hannesar á Borg, og vílaði ekki fyrir sér að gera ævi sína að um- fjöllunarefni. Hér voru menn óvanir sjálfsævisögum í myndlist, þótt íslenskur bókamarkaður væri uppfullur með slíkt efni. Þá var nýjabragð að vinnu- brögðum Karólínu. Í tvo áratugi hafði hún dvalið í Bretlandi, þar sem hún var mótuð af megin- straumum breskrar myndlistar- hefðar, sem Íslendingar þekktu varla nema af verkum Barböru Árnason. Þessi hefð er býsna ólík þeirri norrænu; gott handverk, einkum og sérílagi teiknikunn- átta, er þar í fyrirrúmi. Í Bret- landi er einnig mikið lagt upp úr myndlist sem lýsir blæbrigðum mannlegra samskipta. Með þessa menntun í farteskinu tók Karól- ína til við að gera það sem hana hafði alltaf langað að gera, að mála venjulegt íslenskt fólk við venjulegar kringumstæður. Í fjöldamörgum mannlífs- myndum listakonunnar, olíumál- verkum og grafíkmyndum, er dregin upp ógleymanleg mynd af lífinu á Íslandi á uppgangsárum eftirstríðsáranna, þegar lands- menn höfðu loksins komist í álnir og vildu sýna af sér heims- mennsku. Karólína fylgir eftir löndum sínum fyrstu klunnalegu skrefin út á dansgólfið á Hótel Borg, upp í sumarbústaðalöndin þangað sem efnaðar fjölskyldur fóru til að slaka á, hún lýsir áhlaupum þeirra á útsölumarkaði, eða heimkomum þeirra úr árleg- um reisum með Gullfossi, klyfjuð- um Mackintosh-dunkum. Lista- konan gleymir ekki heldur þeim sem eru baksviðs við þessar nýju aðstæður, þjónustufólki í verslun- um og á veitingastöðum. Það er ekkert hlutlaust eða yfirborðslegt við þessar lýsingar; þvert á móti eru þær gegnsýrðar ísmeygilegri kímni og fjarstæðukennd, auk þess sem sár persónuleg reynsla listakonunnar sjálfrar síast inn í nokkrar þeirra. Úr þessum efniviði verða til tímalausar dæmisögur, mannlífs- stúdíur sem eiga sér helst hlið- stæður í sögum Balzacs, þar sem við sjáum fólk á öllum stigum þjóðfélagsins leika, nauðugt vilj- ugt, þau hlutverk sem því hefur verið úthlutað í samræmi við við- teknar siðareglur og tíðaranda. Höfundur kveður mæta lista- konu með stórt hjarta og vottar öllu hennar fólki innilega samúð. Aðalsteinn Ingólfsson. Nú er hún fallin frá listakonan sem svo ótrúlega margir dáðu fyr- ir listsköpun sína. Hún sótti efni- við í minningar úr æsku og dag- legu lífi. Fólk að störfum, fólk að leik, fólk að tala saman. Stundum á Hótel Borg, stundum á farþega- skipinu Gullfossi, stundum í laut- arferðum eða bátsferðum, eða í garðinum heima hjá sér eða við sumarhúsið. Hljóðfæraleikarar, og skemmtikraftar prýddu verk hennar og ekki má gleyma engl- unum sem héldu verndarhendi yf- ir fólkinu. Allt þetta skildi fólk og kunni svo vel að meta. Ekkert var verið að flækja hlutina. Allt var þetta svo eðlilegt. Karólína Lárusdóttir hafði ein- stakt lag á að segja sögur og að setja efnið fram á þann hátt að tekið var eftir. Hún vann jöfnum höndum að grafíkverkum og í vatnslit og olíu. Margir töldu hana besta í vatnslitaverkunum og sumir héldu því fram að þar ætti hún sér fáa líka. Skrifari er á þeirri skoðun. Karólína var vel menntuð myndlistarkona. Hún hlaut fjölda verðlauna og viður- kenninga fyrir störf sín, bæði hér- lendis, en mun fleiri erlendis. Verk hennar eru ekki aðeins vel metin á Íslandi eða í Bretlandi þar sem hún bjó og starfaði lungann úr starfsævi sinni. Þau prýða veggi víðsvegar um heim. Hér heima mætti hún stundum mótlæti frá sjálfskipuðum fræð- ingum, en ávallt hélt fólkið tryggð við hana. Karólína var afskaplega þægi- leg manneskja í viðkynningu, þótt vissulega væri hún ekki skaplaus. Fjölskyldan var henni afar hug- stæð og oft ræddi hún um barna- börnin af mikilli umhyggju. Hún var glaðvær og skemmtileg og lagði mikla áherslu á að halda góðu sambandi við vini og kunn- ingja. Það var gaman að heim- sækja hana og fá hana í heimsókn. Síðasta heimsókn hennar í Gallerí Fold var síðsumars í fyrra. Erind- ið var að skoða upphengi af verk- um eftir hana sem sýnd voru á Menningarnótt í galleríinu. Heimsóknin var jákvæð og skemmtileg eins og ávallt og fyllti okkur ánægju. Fyrir okkur og fjölda fólks var Karólína ómetan- leg. Sennilega á enginn íslenskur myndlistarmaður verk á fleiri heimilum en Karólína Lárus- dóttir. Víðast eru þessi verk órjúfanlegur hluti af heimilisp- rýðinni. Það segir sína sögu. Nú þegar leiðir skilja er okkur þakklæti og virðing efst í huga. Fjölskyldunni sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd fólksins í Galleríi Fold, Tryggvi P. Friðriksson. Karólína Lárusdóttir listmál- ari verður jarðsett í dag. Við kynntumst þegar Karólína setti upp sýningu á Kjarvalsstöðum á níunda áratugnum, ég hafði aldrei upplifað önnur eins læti kringum einn listamann, Karólína var samt alveg sallaróleg, keypti vínar- brauð fyrir okkur og við skemmt- um okkur vel við undirbúning sýningarinnar. Ég held að Karól- ína hafi endanlega slegið alveg í gegn á þessari sýningu, opnunin var eins og hjá Erró eða Kjarval. Karólína talaði til þjóðarinnar í gegnum verk sín; sagði sögur sem fólk hafði áhuga á; hún hafði góða tækni en myndirnar voru gjarnan minningar hennar úr æsku; sjálf- sagt einn anginn af svo kölluðu töfraraunsæi, en það er einmitt það sem togast svo mikið á í okkur öllum, töfrarnir og hinn óumflýj- anlegi raunveruleiki. Innilegar samúðarkveðjur til ættingja og vina. Daði Guðbjörnsson. Elsku ljúfa bróð- urdóttir mín, Tinna Mjöll, er látin aðeins 26 ára gömul. Þegar veikindi ber að dyrum og maðurinn með ljáinn birtist er ekki spurt um aldur. Það eru svo margar minningar sem þjóta um hugann allt frá því að þessi fallega stelpa kom í heiminn og þær mun ég geyma í hjarta mér. Á svona stundu er oft erfitt að finna orð. Fallegt kvæði við fallegt lag lýsir tilfinningum oft betur. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt. Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson) Tinna varð altalandi einungis eins og hálfs árs. Þegar eins og hálfsárs barn er orðið altalandi er það oft þannig að ekki gengur alltaf að bera fram öll hljóð og þannig var það að Tinna mín kom gjarnan að heimsækja Frebbnu frænku. Það nafn á mér varð síðar, þegar hún gat sagt Hrefna, að gríni okkar á milli og í stórfjölskyldunni. Ljúft var að fá að hafa hana stund og stund þegar hún var lítil og ekki síðra þegar hún var komin á unglingsár og alltaf var fyrsta spurningin þegar hún kom til okk- Tinna Mjöll Snæ- land Halldórsdóttir ✝ Tinna MjöllSnæland Hall- dórsdóttir fæddist 14. desember 1992. Hún lést 5. febrúar 2019. Jarðarförin fór fram 15. febrúar 2019. ar: „Get ég ekki hjálpað þér eitt- hvað?“ Nú er þessi fal- lega, hæfileikaríka stúlka farin frá okkur en minning hennar mun lifa með okkur. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (K.N.) Elsku þið, Dóri bróðir, Unnu mágkona og strákarnir, við vottum ykkur okkar innilegustu samúð. Hrefna, Gauti, Hrafnhildur (Habbý) og Magnús Torfi. Elsku fallega og hæfileikaríka frænka mín er látin, langt fyrir ald- ur fram. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Tinna okkar var barngóða og hjartahlýja frænkan sem prjónaði bangsa, 10 ára gömul, þegar von var á lítilli frænku. Hún var líka yndisleg brúðarmey, hæfileikarík- ur fiðluleikari og svo ótal margt fleira. Innilegar samúðarkveðjur, elsku Dóri, Unnur og synir. Hrefna Gunnhildur (Gunný), Hallgrímur og börn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR JÓNÍNA VALDIMARSDÓTTIR, Kirkjuvegi 1, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu Nesvöllum, þriðjudaginn 12. febrúar. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 21. febrúar klukkan 13. Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Valdimar Þorgeirsson Margrét S. Karlsdóttir Þorgeir Þorgeirsson Hulda K. Jóhannesdóttir Ólöf Karlsdóttir ömmu- og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL SIGURGEIRSSON, Fróðengi 3, Reykjavík, frá Hlíð, A-Eyjafjöllum, lést í faðmi fjölskyldunnar föstudaginn 15. febrúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 21. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Landsbjörg njóta þess. Þórhildur Margrét Guðmundsdóttir Guðjón Þór Pálsson Dolores Mary Foley Sigurgeir Pálsson Sus Kirk Holbech Anna Dóra Pálsdóttir Hrafn Sveinbjarnarson barnabörn og barnabarnabörn HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.