Morgunblaðið - 16.02.2019, Side 37

Morgunblaðið - 16.02.2019, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Elsku hjartans amma mín, takk fyr- ir ástina, umhyggj- una, kærleikann og allar góðu stundirnar. Þú varst heimsins besta amma, alltaf svo ljúf, góð, umhyggjusöm og já- kvæð, það var alltaf svo gott að koma og vera hjá þér. Þú varst ekki bara amma heldur líka kær vinkona sem alltaf var hægt að leita til og fá góð ráð, og þú varst alltaf til staðar með traustan og hlýjan faðminn. Þú kenndir mér náungakærleik og að maður yrði að bera virðingu fyrir fólki og að það væri mikil- vægt að taka tillit til annarra. Lífsviðhorf þitt var einstakt og þú sást alltaf það besta í fólki, varst glaðlynd og einstaklega hjálpsöm. Margar af mínum bestu stund- um voru í Hraunbænum, þar sem bakaðar voru pönnukökur og ann- að góðgæti, þú sagðir mér sögur frá Suðureyri þar sem rætur þín- ar lágu, mér þótti alltaf svo vænt um að koma til Suðureyrar og var ég einstaklega glöð að fá að fara með alla fjölskylduna mína þang- að með þér sumarið 2014, þar sem þú sagðir börnunum mínum sömu sögur og þú sagðir mér, þar feng- um við að upplifa þína paradís, fara með þér í göngutúra út að fossi og niður í fjöru og upplifa einstaka náttúrufegurð Suðureyr- ar. Þú sagðir mér líka frá ævintýr- um þínum í Boston þar sem þú varst au pair, og frá ferðalögum þínum um heiminn. Þú kenndir mér að spila og oft var það maríus eða kleppari sem varð fyrir val- inu. Ömmubíó var í uppáhaldi, þar sem þú sýndir mér slides-myndir frá því að mamma og Bjarni voru með þér á ferðalagi um Þýska- land. Þú gafst mér líka leyfi til að máta alla fallegu kjólana þína sem ég bar stolt á árshátíðum síðar. Við fórum oft í bíó og á Árbæj- arsafnið, og ég fékk að fara með þér í skemmtilegar heimsóknir, sérstaklega var gaman að koma til Siggu og Þóris, þar sem var fjör og mikill hlátur. En umfram allt var best að vera bara með þér og fá að kúra í ömmufangi og hlusta á þig syngja vísur. Ferðin okkar til Bournemouth í Englandi, þar sem við fórum sam- an í enskuskóla, var ógleymanleg, þú 64 ára og ég 16 ára sem lýsir vel hvaða karakter þú hafðir að geyma, allt var hægt og að sjálf- sögðu myndir þú bara skella þér í enskuskólann með mér. Þegar Birta Karen mín kom í heiminn varstu mér innan handar með pössun á meðan ég kláraði menntaskólann og Garðyrkju- skólann. Á milli ykkar voru ávallt ástrík og sterk bönd, og er ég þér einstaklega þakklát fyrir alla þá hjálp. Öll mín börn hafa notið góðs af prjónaskap þínum í formi ull- arsokka og vettlinga, vandvirk varstu fram í fingurgóma, elsku amma mín. Það hefur verið erfitt að vera svo langt frá þér síðustu ár, þó svo að við höfum verið duglegar að heimsækja hvor aðra á milli landa, og heyrst reglulega í síma, þá er það aldrei það sama og að geta kíkt til ömmu Gógóar þegar mann langar til. Það var mér ómetanlegt að geta fagnað og ver- ið með þér á 90 ára afmælisdaginn þinn í nóvember sl. þar sem við áttum yndislegan tíma saman, þetta var sérstaklega skemmti- legur dagur, mikið hlegið og mikil gleði. Gróa Jóna Bjarnadóttir ✝ Gróa JónaBjarnadóttir fæddist 12. nóvem- ber 1928. Hún lést 27. janúar 2019. Útför Gróu fór fram 15. febrúar 2019. Elsku besta amma, ég mun geyma allar okkar minningar í hjarta mínu um ókomna tíð. Ég mun syngja vísurnar sem þú kenndir mér fyrir börnin mín. Takk fyrir allt, elsku amma. Ég kveð þig með kvöld- bæninni okkar: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Sofðu rótt, elsku besta amma mín. Þín ömmustelpa, Katharína. Gógó, eins og Gróa var alltaf kölluð, var mín helsta fyrirmynd. Ég dáðist alltaf að góðmennsk- unni í ömmu Gógó þar sem að hún talaði aldrei illa um neinn og vildi alltaf gefa fólki séns. Amma Gógó var alltaf í góðu skapi og var hún ein af jákvæðustu mann- eskjum sem ég hef nokkurn tíma kynnst. Ein af mínum bestu minning- um með ömmu Gógó var að fá að gista hjá henni. Ég man að maður vaknaði við ilminn af nýbökuðum pönnukökum og útvarpið sem var alltaf í gangi. Við spiluðum marí- as og í hvert skipti sem maður kom í heimsókn til hennar sat hún alltaf í stólnum sínum að leggja kapal. Amma Gógó passaði mig oft þegar ég var lítil og ég er svo þakklát fyrir allar góðu minning- arnar sem við eigum saman. Hún var mjög opin fyrir öllum um- ræðum og maður sat alltaf lengi hjá henni að spjalla um lífið og til- veruna. Amma Gógó var frá Suðureyri og elskaði að vera úti í nátt- úrunni. Hún talaði mikið um hvernig það var að alast upp í sveitinni. Við fjölskyldan fórum þangað í nokkur skipti og það gladdi hana mjög mikið. Henni þótti gaman að ferðast og fékk hún einnig verðlaun fyrir að hafa tekið þátt í öllum ferðalögum hjá Eimskip. Eitt af hennar síðustu ferðalögum í lifanda lífi var á Suðureyri. Hún talaði mikið um húsmæðraskólann sem hún var í og var mjög stolt af því. Hún var metnaðarfull og studdi mig einn- ig til þess að mennta mig. Amma Gógó ferðaðist alltaf ístrætó og fórum við í margar strætóferðir og við fórum sér- staklega oft niður á Hlemm og inn í Hafnarfjörð að fá okkur ís. Hún var mikill lestrarhestur og ein af mörgum ferðum með henni var á bókasafnið á Garðatorgi. Hún var einnig mikill gestgjafi og fannst alltaf gaman að fá heim- sókn. Hún kenndi mér að koma vel fram við aðra og að taka ekki lífinu of alvarlega. Einnig kenndi hún mér að hræðast ekki neitt og treysta á sjálfa mig. Ég vil þakka ömmu Gógó fyrir að hafa haft stór áhrif á líf mitt og fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir mig í gegnum erfiða tíma. Hennar verður sárt saknað, minning hennar mun lifa. Megi heilladísirnar umvefja þig að ei- lífu, elsku amma Gógó. Birta Karen Haraldsdóttir. Ég kveð hér kæra konu, hana Gróu mína, mömmu hennar Kar- enar vinkonu. Yndisleg kona sem öllum þótti vænt um, sem henni kynntust. Hún trúði aldrei að það væri vont í neinum, allir voru góðir en sumir áttu bara erfitt. Ætíð að hrósa manni. Alltaf jákvæð þessi yndislega kona. Sátt við alla og fannst kominn tími til að kveðja. Hér með fylgja nokkur erindi til hennar sem föðurbróðir minn orti til móður minnar árið 1977: Góða nótt þér gefi og frið Guð úr sínu hjarta sem gull í huga geymum við um góða konu og bjarta. Þetta er allra endir vor enginn fær við snúið sífellt gengin sömu spor sem enginn getur flúið. (Grímur Aðalbjörnsson) Anna Björg Stefánsdóttir. Látin er elskuleg frænka mín, Gróa Jóna Bjarnadóttir frá Suð- ureyri við Tálknafjörð. Við vorum báðar fæddar á Suðureyri og ól- umst þar upp fram á unglingsár. Gógó, eins og hún var oftast kölluð, var 12 árum eldri en ég. Gógó gætti okkar systkinanna og var okkur afar góð, glöð og skemmtileg og góð fyrirmynd. Sama var með systkini hennar. Eldri systkini mín tvö sem voru nær þeim í aldri náðu fyrr að verða þeim sem félagar og þarna myndaðist vinátta sem alltaf varði. Á Suðureyri voru þá tvö íveru- hús, stórt timburhús, hús ömmu okkar og afa, og svo hús foreldra minna, lítið steinhús sem þau byggðu sér. Heimilin voru mis- mörg og íbúarnir líka. Þá var allt- af unnið að öllum verkum eins og um eitt heimili væri að ræða og allir hjálpuðust að, bæði til lands og sjávar. Þetta var því yndislegt samfélag að alast upp í. Veturinn 1945 var Gógó komin til Reykjavíkur í skóla. Þá gerðist sá hörmulegi atburður að faðir hennar, Bjarni E. Kristjánsson, fórst í sjóslysi við strönd Amer- íku. Þó að ég væri bara fimm ára gömul man ég þá miklu hryggð sem færðist yfir fólk og heimili. Eftir þetta flutti Jóna frænka með börnin sín til Reykjavíkur. Nokkru seinna fór Gógó til dvalar hjá frænda sínum í Ameríku. En hún kom aftur og færði öllum gjafir við heimkomuna. Það var nú ekki lítið fínt að eiga frænku sem farið hafði til Ameríku. Vet- urinn 1959-60 dvaldi ég í Reykja- vík í skóla. Gógó bjó þá „vestast í Vesturbænum“ ásamt Harrý og börnunum, Bjarna og Karen. Leið mín lá oft þangað og til þeirra var gott að koma. Seinna var ég sjálf komin með mann og börn og bjó líka í Vest- urbænum. Þá var gott að geta leitað til góðrar frænku og fengið aðstoð og ráð. Margt gerðum við saman síðar, hittumst í Austur- brún hjá frænku okkar beggja, sem hún kallaði Rúnu en ég frænku. Við fórum í Norræna húsið þrjár saman og dönsuðum þar á Jónsmessu. Við Gógó sam- an í Gerðubergi á tónleikaröð. Á ættarmótum á Suðureyri og á Eyrarhúsum hjá elsku Steinu. Við Gógó og Lóló þrjár saman í berjaferð á Suðureyri, með Lóló í matarboðum hjá yndislegum heimakonum, þar sem grilluð grásleppa var aðalréttur. Daginn eftir við þrjár á náttfötum í sól og grasi fyrir ofan litla „Pölluhúsið“ okkar fjölskyldunnar, horfandi yfir tjörnina, brekkuna og fjöllin, komnar út fyrir tímann. Síðan gönguferð um brekkuna og skoð- aðar allar gömlu minjarnar sem á Suðureyri eru. Þónokkru síðar, við systurnar hjá Gógó í Garða- bænum, ýmist tvær eða fleiri, endalaus umræðuefni og alltaf gaman. Seinast við Gunna systir hjá henni á Ísafold í vistlega her- berginu hennar, þar sem við sát- um saman yfir kaffi og súkkulaði, sóttum enn í minningafjársjóðinn okkar. Og ekki má gleyma að nefna þegar Suðureyrarfrænkur hitt- ast, þökk sé yngri frænkunum, sem vonandi halda áfram að sjá til þess. Elsku Gógó mín, endalausar þakkir til þín frá mér og fjöl- skyldu minni. Vertu Guði falin. Elsku Karen, Bjarni og fjöl- skyldur. Innilega samúð vottum við ykkur og biðjum Guð að vera með ykkur öllum. Kristín Lára Þórarinsdóttir. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir afi og langafi, HALLDÓR G. BJÖRNSSON, fyrrverandi verkalýðsleiðtogi, sem lést föstudaginn 8. febrúar á Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju mánudaginn 18. febrúar klukkan 15. Grímur Halldórsson Hildur M. Blumenstein Guðrún Ellen Halldórsdóttir Guðmundur Kr. Jóhannesson Ketill Arnar Halldórsson Jóhanna H. Oddsdóttir Hrafnhildur Halldórsdóttir Smári Ríkarðsson og fjölskyldur. Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, RAGNHEIÐUR KLEMENZDÓTTIR frá Görðum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 10. febrúar. Útför hennar fer fram frá Reyniskirkju í Mýrdal föstudaginn 22. febrúar klukkan 14. Kristín Elínborg Þorsteinsdóttir, Sigurður Sigurjónsson Gunnheiður Guðlaug Þorsteinsd., Ólafur Pálmi Baldurss. og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA JÓHANNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, þriðjudaginn 12. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 22. febrúar klukkan 13. Hallfríður Ólafsdóttir Jón Frímann Ágústsson Heimir Ólafsson Kristín Jónsdóttir Anna Ólafsdóttir Páll Hermannsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR AXELSDÓTTIR, Hlíðarvegi 11, Kópavogi, lést 14. febrúar á hjartadeild Landspítalans. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 21. febrúar klukkan 13. Stefanía Hjartardóttir Sveinn Hjörtur Hjartarson Sigurveig H. Sigurðardóttir Þórunn Ingibjörg Hjartard. Sveinn B. Larsson Axel Garðar Hjartarson Rannveig Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Faðir minn, tengdafaðir, afi og vinur, FINNUR BERGSVEINSSON rafvirkjameistari frá Gufudal, Laugarnesvegi 90, lést á líknardeild LSH í Kópavogi mánudaginn 11. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. febrúar klukkan 11. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg. Martha V. L. Finnsdóttir Sigurður K. Gíslason Finnur Marteinn Sigurðsson Ágústa B. K. Kristjánsdóttir Elínborg Guðjónsdóttir Faðir minn, JÚLÍUS KRISTINN MAGNÚSSON, Bylgjubyggð 67, Ólafsfirði, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Siglufirði, laugardaginn 9. febrúar. Jarðarförin fer fram í Laugarneskirkju fimmtudaginn 21. febrúar klukkan 15. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Norðurlands í Fjallabyggð og Sjúkrahússins á Akureyri fyrir hlýhug og góða umönnun. Vera Júlíusdóttir og fjölskylda Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÁSTÞÓR RAGNARSSON iðnhönnuður, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 22. febrúar klukkan 13. Elísabet Harpa Steinarsdóttir Gauti Þór Ástþórsson Ágústa M. Þorsteinsdóttir Erna Ástþórsdóttir Þorsteinn Jón Gautason Ástþór Ragnar Gautason Ásta Þórunn Ólafsdóttir Elskuleg föðursystir mín, INGER IDSÖE læknir, andaðist föstudaginn 25. janúar síðastliðinn á Tasta Sykehjem í Stavanger, Noregi. Fyrir hönd aðstandenda, Thormod Idsöe Jörgens vei 2 1386 Asker, Noregi Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, INGVARS PÁLS SVEINSSONAR, Lækjasmára 4. Sigurlína Stella Árnadóttir Árni Sveinn Pálsson Stefanía Dögg Hauksdóttir Ómar Örn Pálsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.