Morgunblaðið - 16.02.2019, Page 45

Morgunblaðið - 16.02.2019, Page 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Grasið er ekkert grænna handan girðingarinnar þó einhver haldi því fram við þig. Taktu mark á þinni innri rödd. 20. apríl - 20. maí  Naut Vandræðaleg augnablik, sem þú ósk- ar þess að geta þurrkað út skipta ekki neinu einasta máli þegar upp er staðið. Gakktu ekki fram af þér í vinnu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það hefnir sín að slá slöku við í vinnunni og eyða þar tíma í vangaveltur um persónuleg mál. Sýndu lit og bjóddu ástinni í óvissuferð, þó ekki væri nema út í ísbúð. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt það sé stundum gott að fá at- hygli skaltu gæta þess að það sé ekki á annarra kostnað. Brettu upp ermarnar og taktu til við að losa þig við óþarfa.. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vinsældir þínar í einkalífi og starfi eru miklar um þessar mundir. Mundu að það sem þú gefur frá þér færðu til baka. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það léttir lífið að slá á létta strengi en mundu að öllu gamni fylgir nokkur al- vara. Líttu í eigin barm og leggðu spilin á borðið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er úr vöndu að ráða svo þú skalt ekki skrifa undir neitt fyrr en þú hefur kynnt þér alla málavöxtu. Taktu djarfar ákvarðanir. Annað er tímaeyðsla. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft ekki að réttlæta allar þínar gerðir. Taktu aftur gleði þína því næstu mánuðir munu verða góðir hvað varðar ferðalög og vinnu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt þér finnist einhver hafa haft þig að fífli með því að segja bara hálf- an sannleikann er ekki víst að það sé vilj- andi gert. Að hugsa um sjálfan sig felst í fleiru en að mæta grunnþörfunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þig langar svo að njóta athygli vinnufélaga þinna að þú ert reiðubúin/n að leggja ýmislegt á þig hennar vegna. Láttu þó ekki tækifæri um stöðuhækkun yfirtaka hugann. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Taktu mark á ráðleggingum þeirra sem þykir vænt um þig og settu þær ofar öllu öðru. Góður vinur er allt sem þú þarft þessar vikurnar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ákveðinn léttir þegar búið er að taka ákvörðun um hvert skal halda. Mundu að þú hefur fullan rétt á því að verja hagsmuni þína. Haltu dagbók ef þú getur. Víkverji er ekki duglegur að takatil. Hann leyfir bókum að hlað- ast upp á borðinu hjá sér. Honum finnst einnig ágætt að stinga hlutum inn í skáp þegar hann veit ekki alveg hvað hann á að gera við þá. Svo lokar hann skápnum og vandamálið er úr sögunni. Í það minnsta þar til hann opnar skápinn næst. x x x Nýlega sá Víkverji þátt með jap-anska tiltektarsérfræðingnum Marie Kondo. Hann átti reyndar ekki frumkvæði að því að kveikt var á þessum þætti, en fylgdist þó með því sem fram fór á skjánum. Senni- lega kom Víkverja mest á óvart að þáttur með stjórnanda, sem talar að mestu japönsku, skuli hafa slegið í gegn í Bandaríkjunum. Þar eru menn ekki vanir textuðu efni og leggja til dæmis frekar á sig að end- urgera heilu bíómyndirnar ef þar er töluð útlenska en að setja texta. x x x Condo kynnti fræði sín fyrst í bók,sem selst hefur í bílförmum og hefur meðal annars verið þýdd á ís- lensku. Svo mikið þykir í hana spunnið að samningurinn um hennar næstu bók mun hljóða upp á sjö stafa tölu í dollurum. Það liggur við að Víkverji ákveði að leggja fyrir sig að kenna fólki að taka til, en hann er ekki viss um að lögmál framboðs og eftirspurnar verði honum í hag. x x x Þátturinn varð hins vegar til þessað Víkverji ákvað að opna einn af skápunum sem hann hefur notað til að geyma hluti. Skápurinn var fullur af snúrum. Snúrurnar voru eins og ormar í bendu. Þegar hann tók út eina snúru fylgdu tíu aðrar með. Snúrurnar voru af ýmsum toga. Þarna mátti rekja sögu far- símaeignar Víkverja með því að skoða hleðslusnúrur. Loftnetssnúr- ur báru vitni fyrri aðferðum til að taka á móti sjónvarpsútsendingum. Víkverji velti fyrir sér hvort sú tækni ætti sér von um endurkomu og komst að raun um að það væri hæpið. Á endanum sat hann uppi með heilan sekk af snúrum sem hann hefur ekkert við að gera. Sekkurinn er enn á leið í Sorpu. vikverji@mbl.is Víkverji Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. (Sálm: 86.5) Krókháls 1 • 110 Reykjavík • S. 567 8888 • www.pmt.is Allt til merkinga & pökkunar PRENTARAR & VOGIR • LÍMMIÐAPRENTARAR - Godex, Zebra, Quicklabel og Videojet • LÍMMIÐAHUGBÚNAÐUR - Nicelabel • LÍMMIÐAVOGIR - Ishida, Dibal • MIÐAÁLÍMINGARVÉLAR • VERÐMERKIVÉLAR Allar stærðir af prenturum Úrval af aukabúnaði og varahlutum Gátan er sem endranær eftir Guð-mund Arnfinnsson: Fjallsins brún oss blasir við. Beitt hún löngum klýfur við. Má það kalla matarbúr. Maðurinn því kemur úr. „Þá er það lausnin,“ segir Harpa á Hjarðarfelli: Í ferð ég legg að fjallsins egg. Flugbeitt egg á sláttuljá Mér ég egg til munns oft legg. Í móðurlífi egg má sjá. Guðrún Bjarnadóttir á þessa lausn: Á fjallseggina fer í túr, með fínni hnífsegg kexið myl og svartbaksegg, það „sæta“ búr. Úr sæði og eggi varð ég til. Böðvar Björgvinsson á þessa lausn: Fjallsegg gnæfir firna hvöss. Fleygar viðinn skeggju egg. Eggið nærir aldinn segg. Úr eggi kemur Páll „gordjöss“. Böðvar gaf þessa skýringu á síð- ustu hendingunni: „Páll „gordjöss“, er það ekki hinn fullkomni maður? Sumum finnst það víst. ;-)“ Sigmar Ingason svarar: Fjallsegg oft ber heiðan himin við Hárbeitt axareggin klýfur við Egg er fæða af ágætustu sort Að eggi smáu rekjum upphaf vort. Þessi er lausn Helga Seljan: Egg á fjallstindi fögur er, flott klýfur viðinn axarblað. Hænueggjunum hampa ber, en heiðra konuegg, víst um það. Bogi Sigurðsson svarar: Niður leystan sá ég segg sá var að míga upp við vegg. En nú má ég þola hrím og hregg og hripa skýringuna EGG. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna svona: Fjallsins egg vér eygjum þar. Egg er beitt við smíðarnar. Fullt hús matar eggið er. Úr eggi kemur maður hver. Og ný gáta eftir Guðmund: Napur bítur kári kinn, kom ég mér í skjólið inn, penna greip og gulnað blað, gátu párað hef á það: Þessi maður aumur er. Í hann skírnarvatnið fer. Blóð úr þessu beni rann. Í búri súrmat geymir hann. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Allflest munu eggin með freknum Í klípu „þetta er ekki í fyrsta sinn sem þú hefur veriÐ ákærÐUR FYRIR AÐ GERA BÓTAKRÖFU VEGNA UPPLOGINS LÍKAMSTJÓNS, EKKI SATT?” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ó elskan! fyrsti sjúklingurinn þinn.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar þið hættið bara að kyssast til þess að ná andanum! JÓN BRENNDI HAMBORGARANA AFTUR SKELL! SKELL! SKELL! SKELL! FÉLAGAR, MÉR SKILST AÐ ÞIÐ VILJIÐ LEGGJA FRAM SKRIFLEGAR KVARTANIR! ÉG HEF FENGIÐ HEPPNA EDDA ÞAÐ HLUTVERK AÐ LESA ÞÆR YFIR! OG ÉG LEGG TIL SÖFNUNAR KASSANN!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.