Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 47
Pollapönk, Lúðrasveit Hafnar- fjarðar og Kór Öldutúnsskóla efna til tónleika í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í dag, laugardag, kl. 14. „Sambræðingur þessara ólíku hópa verður án efa gríðarlega spennandi en á efnis- skránni verður úrval laga Polla- pönkaranna í splunkunýjum útsetn- ingum. Í tilefni tónleikanna frumflytja Pollapönkarar lagið, Garðar rannsakar, sem fjallar um Garðar sem rannsakar hver stal stuðinu,“ segir í tilkynningu. Miðar eru seldir á midi.is. Ókeyp- is er fyrir börn yngri en 7 ára í fylgd með fullorðnum, en allir þurfa bókaða miða. Pollalúðrapönk í Hafnarfirði í dag Stuð Pollapönkarar bregða á leik. Anna Hrund Másdóttir og Helen Svava Helgadóttir opna samsýn- inguna No Happy Nonsense // Ekk- ert happy neitt neitt í galleríinu Harbinger í kvöld kl. 19 en galleríið er að Freyjugötu 1. Anna og Helen vinna báðar með tilviljanakenndan en hversdagslegan efnivið, efni sem þær kryfja, taka í sundur og endur- raða, eins og því er lýst í tilkynn- ingu. Skúlptúrar þeirra hafa verið myndaðir úr ólíkum efnum sem hafa vaxið saman og mynda fram- andi blendinga, eins og því er lýst. Sýningin er önnur í röðinni Rólegt og rómantískt. Ekkert happy neitt neitt í Harbinger Samstarf Helen og Anna. Tónverkið „Hver vill hugga krílið?“ verður flutt í fyrsta sinn hér á landi á morgun í Langholtskirkju kl. 14 en höfundur þess er Olivier Manoury. Hann þekkja Íslendingar einna helst fyrir bandoneon-leik. Verkið samdi Olivier fyrir Barna- kór franska útvarpsins og var það frumflutt á tónleikum í París fyrir tveimur árum en texti verksins er fenginn úr einni af sögum Tove Jans- son um Múmínálfana sem hefur ekki verið gefin út á íslensku. Það var Þór- arinn Eldjárn sem tók að sér að þýða hana fyrir tónverkið. Tónlistin í verk- inu er í tilkynningu sögð í fjölbreytt- um stíl, í því megi finna klassík, djass- skotna tónlist og suðurameríska latínótónlist. Verkið samdi Olivier fyrir barnakór, sögumann og fá- menna hljómsveit og verður það flutt á morgun af 80 börnum úr fjórum barna- og unglingakórum þjóðkirkj- unnar, Egill Ólafsson verður sögu- maður og hljómsveitina skipa Olivier Manoury á bandoneon, Edda Er- lendsdóttir á píanó, Birgir Bragason á kontrabassa og Pétur Grétarsson á slagverk en Guðmundur Óli Gunnars- son stjórnar flutningnum. Morgunblaðið/Sigurgeir Tónskáld Olivier Manoury, bandoneon-leikari og tónskáld.  Tónverk Olivier Manoury flutt í Langholtskirkju Hver vill hugga krílið? Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari halda tónleika í Hömrum í Hofi á Akureyri á morgun, sunnudag, kl 17. „Þau leika verk frá barokktímanum til dagsins í dag, m.a. eftir Chaminade, Chopin, Paganini og John Williams. Verkið Samtvinna eftir John Speight verður flutt en það er samið sérstaklega fyrir þau og var frum- flutt í júlí. Laufey og Páll hafa starfað saman frá árinu 1986 og haldið tónleika víðs vegar um Ísland sem og erlendis. Einnig hafa þau gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp og geisladiskur- inn Ítölsk tónlist með leik þeirra kom út árið 1996,“ segir í tilkynn- ingu. Það er Tónlistarfélag Akureyr- ar sem stendur fyrir þessum tón- leikum í samstarfi við Menningar- félag Akureyrar og Félag íslenskra tónlistarmanna. Miðar eru seldir á mak.is og í miðasölu Hofs. Dúett Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyjólfsson leika í Hömrum. Barokkverk hljóma í Hofi Grikklandsvina- félagið Hellas efnir til fræða- fundar í Þjóðar- bókhlöðu í dag, laugardag, kl. 14 þar sem flutt verða tvö erindi. Hinar mörgu ásýndir Ódys- seifs nefnist er- indi Guðmundar J. Guðmundssonar. „Hetjan Ódys- seifur er ekki bara persóna í kvið- um Hómers heldur kemur hann við sögu í bókmenntaverkum frá ýms- um tímum. Í þessu erindi verður drepið á nokkrar mismunandi túlk- anir höfunda á hetjunni og gerðum hennar,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Guðmundur sé sagnfræðingur að mennt og kenn- ari við MR. Penelópa, eiginkona Ódysseifs, verð ég alltaf nefnist erindi Kol- brúnar Elfu Sigurðardóttur. „Á meðan Ódysseifur kemur sér í og úr vandræðum á ferðum sínum, bíð- ur Penelópa heima sígrátandi eig- inmann sinn og örlög. Í þessum fyr- irlestri verður rifjuð upp staðal- ímynd hinnar tryggu Penelópu eins og hún birtist í Ódysseifskviðu og hún borin saman við Penelópu Rómverjans Óvidíusar frá 1. öld f. Kr. (Heroides I) og aðalpersónu Pe- nelópukviðu eftir Margaret Atwo- od (2005).“ Kolbrún er fornfræð- ingur frá HÍ og Albert Ludwig Universität í Freiburg. Hún kennir fornfræði við MR og er formaður Grikklandsvinafélagsins Hellas. Tvö erindi flutt á vegum Hellas í dag Kolbrún Elfa Sigurðardóttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 MENNING 47 JFDR heldur tónleika í Mengi í kvöld kl. 20.30 en þar er á ferðinni tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir og sólóverkefni hennar. Hún hefur frá árinu 2008 verið virkur þátttak- andi í íslensku tónlistarlífi sem með- limur hljómsveitanna Pascal Pinon, Samaris og Gangly og gaf út sína fyrstu sólóplötu, Brazil, árið 2017 og undanfarið ár hefur hún unnið að nýrri plötu og gefið út tvær smáskíf- ur, sú fyrri endurútgáfa á áður- útgefnum verkum með strengjasveit og sú seinni sérstök útgáfa í formi súkkulaðiplötu í samstarfi við súkkulaðiframleiðandann Omnom. JFDR mun í kvöld flytja gamalt efni og nýtt, fyrir alla dreymna og sveimhuga, eins og því er lýst í til- kynningu og er miðaverð 2.500 kr. Tónlist fyrir sveimhuga JFDR Jófríður Ákadóttir. Triangular Mat- rix nefnist sýn- ing myndlistar- konunnar Ásdísar Spanó sem opnuð verð- ur í Grafíksaln- um, Tryggva- götu 17, í dag kl. 16. Ásdís vinnur að þessu sinni með þríhyrnings- formið og beinir athyglinni að breytileika þess og ólíkum birt- ingarmyndum í náttúrunni og hinum manngerða heimi, að því er fram kemur í tilkynningu. Þar segir m.a. að list Ásdísar rambi á mörkum tjástefnu og naumhyggjulistar, finni jafnvægi á milli ólíkra þátta og sameini í upphafinni fagurfræði. Ásdís not- ar ólík efni í málverk sín og víkk- ar þannig út möguleika málverks- ins. Sýningunni lýkur 3. mars. Ásdís Spanó Vinnur með þrí- hyrningsformið Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas. Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 Aukas. Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 23/3 kl. 19:39 Fös 22/2 kl. 19:30 Auka Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn Fös 29/3 kl. 19:30 Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 Auka Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Sun 24/3 kl. 15:00 18.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 17:00 19.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 20.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Sun 17/3 kl. 17:00 Auka Sun 31/3 kl. 15:00 21.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 22.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Lau 16/3 kl. 19:30 Frums Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Velkomin heim (Kassinn) Lau 16/2 kl. 19:30 6.sýn Sun 17/2 kl. 19:30 7.sýn Sun 24/2 kl. 19:30 8.sýn Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 20/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 16/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 22:00 Mán 25/2 kl. 22:00 Lau 16/2 kl. 22:00 Lau 23/2 kl. 19:30 Fim 28/2 kl. 19:30 Fim 21/2 kl. 19:30 Lau 23/2 kl. 22:00 Fös 22/2 kl. 19:30 Sun 24/2 kl. 21:00 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 17/2 kl. 20:00 Sun 3/3 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Miðasalan er hafin! Elly (Stóra sviðið) Lau 16/2 kl. 20:00 202. s Fös 1/3 kl. 20:00 205. s Lau 9/3 kl. 20:00 208. s Fös 22/2 kl. 20:00 203. s Lau 2/3 kl. 20:00 206. s Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Lau 23/2 kl. 20:00 204. s Fös 8/3 kl. 20:00 207. s Síðustu sýningar komnar í sölu. Ríkharður III (Stóra sviðið) Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Fim 21/2 kl. 20:00 13. s Sun 3/3 kl. 20:00 14. s 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Athugið, takmarkaður sýningafjöldi. Kvenfólk (Nýja sviðið) Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 38. s Fös 8/3 kl. 20:00 41. s Sun 17/2 kl. 20:00 33. s Fös 1/3 kl. 20:00 39. s Lau 9/3 kl. 20:00 42. s Fös 22/2 kl. 20:00 37. s Lau 2/3 kl. 20:00 40. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 aukas. Aukasýning komin í sölu. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.