Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 52
Falleg, rómantísk, þekkt klassísk
lög verða á boðstólum á hádegis-
tónleikum í Hannesarholti á morg-
un, sunnudag, kl. 12.15 í flutningi
Tríó Grande. Tríóið skipa Rúnar Þór
Guðmundsson tenór, Alexandra
Chernyshova sópran og Helgi Hann-
esson á píanó.
Hádegistónleikar Tríó
Grande á morgun
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 47. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.108 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í dag ráðast úrslitin í bikarkeppni
KKÍ, Geysisbikarnum í körfuknatt-
leik, þegar úrslitaleikirnir fara fram
í Laugardalshöllinni. Ljóst er að
nýtt nafn fer á bikarinn í kvenna-
flokki en Stjarnan og Valur leika
til úrslita. Stjarnan er í úrslitum
hjá báðum kynjum. Leikur
gegn gamla stórveldinu Njarð-
vík í karlaflokki. »1
Nýtt nafn fer á bikar-
inn hjá konunum
Myndlistarmaðurinn Þrándur Þór-
arinsson opnar myndlistarsýn-
ingu í menningarhúsinu Hofi á
Akureyri í dag kl. 16. Þrándur
fæddist þar í bæ árið 1978,
stundaði nám um tíma í Listahá-
skóla Íslands og Myndlistaskól-
anum á Akureyri og gerðist lær-
lingur norska listmálarans Odd
Nedrum. Þránd-
ur sækir
innblástur
meðal ann-
ars í ís-
lenskar þjóð-
sögur og forn-
an sagnaarf.
Sýningin
stendur
yfir til 7.
apríl.
Þrándur opnar mynd-
listarsýningu í Hofi
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fyrst var leyfilegt að selja bjór hér-
lendis 1. mars 1989 og allar götur
síðan hefur Lionsklúbburinn Ás-
björn í Hafnarfirði minnst þessara
tímamóta. „Þessi árlega bjórhátíð
okkar verður því haldin í 31. sinn
föstudaginn 1. mars næstkomandi,“
segir Skúli Gunnar Böðvarsson, einn
stofnfélaga klúbbsins, fyrrverandi
formaður og nú formaður fjáröfl-
unarnefndar.
Fyrsta bjórhátíð Ásbjarnar var
haldin 3. mars 1989. „Við höfum
haldið uppteknum hætti fyrsta
föstudag í mars og erum, að sögn,
eina félagið sem hefur haldið svona
hátíð óslitið á hverju ári síðan bjór-
inn var leyfður,“ segir Skúli. „Þetta
er okkar helsta fjáröflun til líknar-
mála.“
Lionsklúbburinn Ásbjörn var
stofnaður í mars 1973 og nokkrum
dögum fyrir „Bjórdaginn“ ákváðu
félagsmenn að blása til bjórhátíðar í
fjáröflunarskyni. „Guðmundur Árni
Stefánsson, þáverandi bæjarstjóri í
Hafnarfirði, var sá fyrsti og hélt er-
indi um grenndargáma og endur-
vinnslu,“ rifjar Skúli upp. „Arthur
Björgvin Bollason var síðan ræðu-
maður á ársafmæli bjórsins og fór
yfir hefðir og venjur við bjórdrykkju
enda þekkti hann vel til þýskrar
bjórmenningar.“
Pítsur í neyð
Fyrsta Bjórhátíðin var haldin í
húsi Fiskakletts, deildar
Slysavarnafélagsins í Hafnarfirði.
„Það var húsfyllir og rúmlega það,“
segir Skúli. Hann minnir á að mikil
ásókn hafi verið í bjórinn eftir að
hann fór í sölu og tegundir selst upp.
„Við urðum að fara bakdyramegin til
þess að útvega okkur bjór fyrir há-
tíðina og sluppum fyrir horn.“ Ann-
ars segir hann að hátíðin hafi gengið
vel fyrir sig og án vandræða. „Einu
sinni komu reyndar mun fleiri en
voru bókaðir, fiskréttahlaðborðið
nægði ekki og við urðum að útvega
pítsur í skyndi fyrir um 40 manns.“
Bjórhátíðin hefur alla tíð verið
karlakvöld og segir Skúli að færri
hafi komist að en vildu. Því veiti ekk-
ert af Kaplakrika og í tilefni tíma-
mótanna verður hátíðin veglegri en
venjulega. Lederhosensveit Lúðra-
sveitar Hafnarfjarðar tekur á móti
gestum með lögum frá Bæjaralandi
og gengur inn með formanni félags-
ins og Bjarna töframanni veislu-
stjóra. Eyþór Ingi skemmtir með
eftirhermum og söng og Ari Eldjárn
verður með uppistand. Uppboð
verður á málverkum eftir Tolla og
boðið verður upp á happdrætti í
tombólustíl. „Þegar klúbburinn var
stofnaður héldum við tombólu og
það var fyrsta fjáröflun okkar til
líknarmála,“ segir Skúli og bætir við
að Jón Guðlaugsson, fyrsti formaður
Ásbjarnar, hafi þá verið um tvítugt,
sem hafi ekki verið staðalímynd
Lions á þeim tíma.
Fyrsta bjórhátíðin Gestir kunnu vel að meta kræsingarnar.
Úr tombólu í árlega
bjórhátíð í þrjá áratugi
Lionsklúbburinn Ásbjörn í Hafnarfirði heldur í hefðina