Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Side 2
Hvernig er að vera
einn á sviðinu í svona
langan tíma?
Að standa einn á sviði og tala
í klukkutíma er í senn ógn-
vekjandi og frelsandi. Það er
ekki á neinn að treysta nema
sjálfan sig ef eitthvað klikkar,
en um leið er ég algjörlega við
stjórn og ræð mér sjálfur. Það er
enginn annar leikari að bíða eftir að
grípa boltann. Svo fæ ég líka allt klappið
fyrir sjálfan mig, það er fátt betra en að
láta klappa fyrir sér.
Hvernig tilfinning er að tak-
ast á við glænýtt íslenskt leik-
rit?
Vanalega með svona ný verk þá eru
þau í mótun á æfingaferlinu þar sem
texti og karakter breytist og þróast.
Það er mjög skapandi og gefandi að
taka þátt í því og þ.a.l. finnst manni
maður eiga meira í því. Þetta ferli var
einstaklega ánægjulegt, samstarfið gekk
eins og í sögu og ekki sakar hvað leikritið er
fyndið, sorglegt og umhugsunarvert. Hann Matti
(skáldið og leikstjórinn) er rosa klár sko.
Griðastaður gerist í IKEA. Kanntu
vel við þig í versluninni?
Bæði og. Ég á alls konar minningar úr IKEA.
Það er staður sem maður heimsækir á tíma-
mótum lífs síns. Þegar maður flytur í nýja
íbúð, byrjar í sambúð, endar sambúð o.fl. Ég
hef rifist í IKEA, ég hef hlegið í IKEA, ég hef
verið sorgmæddur í IKEA. Flestir eiga minn-
ingar eða einhverja tengingu við IKEA og það
er líka það sem gerir verkið svona áhugavert.
Hver er þinn griðastaður?
Hugsa að minn mesti griðastaður sé heima hjá
mér. Svo eru líka nánast allar sundlaugar ein-
hvers konar griðastaður fyrir mér.
Hvað er fram undan hjá þér?
Næst á dagskránni er að sýna einleikinn Griða-
stað. Ég er að vinna að nokkrum kvikmynda-
verkefnum sem verða vonandi að veruleika
í framtíðinni og er í alls konar lausa-
mennsku, t.d. sem leiðsögumaður
og svo auðvitað leikari. Annars er
ég mest að sinna föðurhlutverk-
inu og njóta lífsins eins og ég mögu-
lega get.
JÖRUNDUR RAGNARSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2019
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Það verður að viðurkennast að viðtal Orra Páls Orrasonar við SævarÞór Jónsson lögmann í blaðinu í dag er ekki auðveld lesning, eðaeins og blaðamaður kemst svo réttilega að orði: Það fellur á feg-
urstu hluti þegar sögur sem þessar eru sagðar.
Í ljósi þess að lesturinn einn er eins og ákveðið högg má rétt ímynda
sér að það að segja frá; deila þessari reynslu, sé stórt og ekki létt skref.
Enda íhugaði Sævar Þór, eins og hann segir sjálfur, í heilt ár hvort saga
hans, af alvarlegu kynferðisbroti sem hann varð fyrir sem barn, ætti er-
indi við lesendur.
Hann komst að þeirri niðurstöðu
að hún ætti það. Bæði var það
ákveðið skref í vinnu hans með
sjálfan sig og um leið ber hann þá
von í brjósti að sagan verði öðrum
sem standa í sömu sporum og hann
hvatning til að vinna í sínum mál-
um.
Maður efar að nokkur fari í
gegnum þennan lestur án þess að
setja hljóðan. Ekki bara yfir því
sem gerðist, heldur yfir því órétt-
læti að sá sem síst skyldi, barn
sem brotið var á, sitji uppi með
sektarkennd, upplifi sig skemmt,
og hvernig sú tilfinning getur elt
barnið út lífið.
En þótt lesturinn veki alls kyns tilfinningar, reiði og áleitnar hugsanir,
er það þó þakklætistaugin sem tifar hvað ákafast og trónir yfir öllu eftir
lesturinn.
Sævari Þór verður seint fullþakkað fyrir frásögn sína. Hún er saga af
því að það er sama hvað við höfum gengið í gegnum og reynt; við eigum
möguleika á að staldra við og hætta að vera á flótta. Það skiptir þá ekki
máli hversu lengi við höfum hlaupið undan því sem við viljum ekki mæta,
það er ekkert lögmál að sá flótti þurfi að standa inn í eilífðina.
Þegar manneskja er tilbúin til að opna hjarta sitt, teygja sig í sára lífs-
reynslu og deila með annarri manneskju geta töfrar gerst. Hjörtu opnast
og fleiri teygja sig eftir sinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flóttinn getur
tekið enda
Pistill
Júla Margrét
Alexandersdóttir
julia@mbl.is
’Þegar manneskja ertilbúin til að opnahjarta sitt, teygja sig ísára lífsreynslu og deila
með annarri manneskju
geta töfrar gerst. Hjörtu
opnast og fleiri teygja sig
eftir sinni.
Erla Scheving Halldórsdóttir
Nei, aldrei. Ég bý ekki í Bandaríkj-
unum. Íslenskt, já, takk!
SPURNING
DAGSINS
Heldur þú
upp á
Valentínus-
ardaginn?
Sigurbjörg Guttormsdóttir
Ég man eftir þessum degi en held
ekki sérstaklega upp á hann.
Guðfinna Elsa Haraldsdóttir
Ég hef ekki gert það. Samt aldrei að
vita nema ég kaupi blóm.
Hilmar Þorkelsson
Nei, hvað heldurðu að ég haldi hann
hátíðlegan?
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon
Aukasýningar verða á
einleiknum Griðastað
eftir Matthías Tryggva
Haraldsson með Jör-
undi Ragnarssyni í
Tjarnarbíói 22. og 28.
febrúar. Nánar á tix.is.
Sundlaugar eru
griðastaður
Morgunblaðið/Eggert