Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Side 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2019 morguninn eftir á barnaheimili í Laugarnesinu með það fyrir augum að við tækjum hann að okkur. Við þurftum því að taka ákvörðun strax og þar sem okkur fannst við vera tilbúnir lét- um við slag standa. Drengurinn hafði að von- um átt erfitt uppdráttar, var vanræktur og sárvantaði heimili, ást og umhyggju. Hann bræddi okkur strax þar sem hann var bros- mildur að leik við starfsmann barnaheimilis- ins. Maður klökknaði.“ Lenti á vegg Andri Jón Lárusson Sævarsson hefur haft djúpstæð áhrif á föður sinn en til að byrja með var Sævar alls ekki sannfærður um að hann réði við hlutverkið – að bera ábyrgð á barni. „Við Lárus höfðum farið á námskeið og töldum okkur vera ágætlega undirbúna þegar við fengum drenginn. Þegar hann var síðan kom- inn inn á heimilið lenti ég hins vegar á vegg. Ég kem til með að hafa mótandi áhrif á þetta barn! hugsaði ég með mér. Í því er fólgin gríð- arleg ábyrgð sem ég vissi ekki hvort ég myndi rísa undir. Lárus var hins vegar eins og klett- ur við hliðina á mér og dró mig áfram. Án hans hefði þetta aldrei gengið upp.“ Þetta nýja fjölskyldumynstur knúði á um uppgjör við fortíðina. „Til að ala son minn upp þarf ég að vera heilsteyptur karakter. Eigi hann að vera ærlegur og opinn gagnvart mér þarf ég að geta verið það á móti. Þess vegna þurfti ég að vinna í mínum málum og tryggja að ég yrði ekki röng fyrirmynd.“ Hin ástæðan fyrir því að Sævar fór að vinna í sínum málum var að skjólstæðingur leitaði til hans. Ungur maður sem orðið hafði fyrir kynferðislegri misnotkun sem barn. „Málið vakti strax áhuga minn, var sláandi. Ég stóð með drengnum og undirbjó málið vel enda er ég alltaf 100% á bak við mína skjól- stæðinga.“ Áhrifin af þeirri vinnu urðu á hinn bóginn ekki bara fagleg, heldur einnig persónuleg. „Við skýrslutöku hjá lögreglu fór hann að lýsa misnotkuninni sem hann sætti og við það vöknuðu hjá mér gróteskar minningar úr eigin bernsku. Ég man eftir að hafa setið þarna og horft á hann: Rosalega er hann duglegur að stíga svona fram og tala um þetta. Það kom róti á mínar eigin tilfinn- ingar.“ Ríghélt í ermina á honum Sjálfsskoðunin leiddi til þess að Sævar hætti að drekka árið 2017 og segir hann það hafa greitt fyrir ferlinu. Hann fór í viðtalsmeðferð, ekki hefðbundna áfengismeðferð. „Eftir á að hyggja var ég mjög illa settur. Var farinn að drekka ótæpilega. Ég áttaði mig bara ekki á því. Vann bara og vann.“ Uppgjörið hefur gjörbreytt lífi Sævars. „Maður nær aldrei almennilegu jafnvægi í líf- inu hafi maður ekki gert upp við fortíðina. Maður nær heldur ekki fram sínum mark- miðum sem faðir, maki, vinur og lögmaður. Nær ekki að vera 100% til staðar. Gegnum tíð- ina var alltaf lítill átta ára gamall logandi hræddur strákur við hlið mér – sem ríghélt í ermina á mér. Og ég hafði aldrei burði til að taka utan um hann, hugga hann og segja hon- um að ekkert væri að óttast. Þess í stað ýtti ég honum bara frá mér.“ – Er litli drengurinn horfinn í dag? „Nei, hann mun fylgja mér alla tíð. En í stað þess að hann hangi í mér, þá leiðumst við núna í gegnum lífið.“ – Hvernig hugsarðu til fólksins sem misnot- aði þig? „Ég er búinn að fyrirgefa því. Í dag er hvorki til hatur né beiskja í mér. Og það sem hjálpaði mér mest var að fyrirgefa. Fyrirgefningin er ekki síður mikilvægt atriði á þessari vegferð en uppgjörið sjálft. Væri ég ennþá fullur af reiði væri ég ekki á góðum stað í lífinu og gæti örugglega ekki sinnt mínu starfi og verið góður maki og faðir. Ég var svo lánsamur að hafa yndislegar eldri konur í kringum mig þegar ég var að vaxa úr grasi og þær kenndu mér að fátt væri eins mikilvægt í lífinu og fyrirgefningin.“ Trúin veitti styrk – Þetta hljómar eins og þú sért trúaður? „Já, ég er það og hef alltaf verið. Trúin hefur „Við eigum mjög vel skap saman, feðgarnir, erum báðir stríðnir og kappsamir og húmorinn liggur á áþekku sviði. Ég er þakklátur fyrir hverja einustu stund með syni mín- um,“ segir Sævar Þór um son sinn, Andra Jón Lárusson Sævarsson. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.