Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Page 35
Fred MacMurray og Barbara
Stanwyck í hlutverkum sín-
um í Double Indemnity.
Ljósmynd/Paramount Pictures
ÍMorgunblaðinu í október 1977var getið um fráfall bandarískarithöfundarins James M. Cain,
sem lést 28. október það ár, 85 ára
gamall. Í fréttinni, sem er ekki nema
nokkrar línur, segir svo: „Albert Ca-
mus sagði, að hann hefði lært að
skrifa skáldsögur af lestri bóka eftir
Cain. Cain hefur verið kallaður fyr-
irrennari nútímahöfunda eins og
Ross MacDonalds. Ritstíl hans var
líkt við stíl Ernest Hemingways.“
Því er þetta rifjað upp hér að ný-
verið kom eitt þekktasta verk Cains,
stuttsagan Double Indemnity, út á
íslensku öðru sinni, heitir Tvöfaldar
tjónabætur í þýðingu Þórdísar Bach-
mann (fyrri útgáfa nefndist Tvöfald-
ar skaðabætur í þýðingu Sölva Blön-
dal frá 1948). Á blaðsíðu ellefu er
þetta textabrot:
„Skyndilega leit hún þó framan í
mig og ég fann hroll skríða eftir bak-
inu og alveg upp í hársrætur. „Ertu
líka með slysatryggingar?“
Kannski leggið þið ekki sama
skilning í þessa spurningu og ég geri.
Sjáðu til, í fyrsta lagi eru slysatrygg-
ingar seldar, en ekki keyptar. Maður
er spurður um aðrar tegundir trygg-
inga, bruna, innbrota, jafnvel líf-
tryggingar, en aldrei um slysatrygg-
ingar.
Þær eru einungis seldar þegar
tryggingasalinn selur þær og það er
mjög undarlegt að vera spurður um
þær. Í öðru lagi er það þannig, að
þegar einhver myrkraverk eru í
gangi, er slysatrygging það fyrsta
sem þeim dettur í hug.“
Tvöfaldar tjónabætur kom fyrst út
í tímaritinu Liberty, sagan birtist
þar í átta hlutum á árinu 1936. Í bók-
inni segir frá tryggingasölumann-
inum Walter Huff sem kynnist
Phyllis Nirdlinger sem vill kaupa
slysatryggingu fyrir eiginmann sinn.
Fljótlega kemur í ljós að hún vill
gjarnan að Huff komi eiginmanni
hennar fyrir kattarnef og þar sem
honum finnst hún heillandi tekur
hann verkið að sér með hörmulegum
afleiðingum fyrir þau bæði.
Cain starfaði sem blaðamaður og
kveikjan að bókinni var morðmál í
New York sem hann fylgdist með
starfs síns vegna. Málið snerist um
gifta konu, Ruth Snyder, sem vélaði
mann sinn til að tryggja sig rækilega
með sérstöku ákvæði um tvöfaldar
tjónabætur (ef viðkomandi ferst af
slysförum) áður en hún myrti hann
með aðstoð elskhuga síns. Þau voru
bæði dæmd til dauða og þess má
geta að ljósmynd af Ruth Snyder í
rafmagnsstólnum hefur verið kölluð
frægasta ljósmynd þriðja áratugar
síðustu aldar.
Dónaleg og siðlaus
Árið áður en Tvöfaldar tjónabætur
kom út hafði Cain slegið í gegn með
skáldsögunni Pósturinn hringir allt-
af tvisvar, eins og hún heitir í ís-
lenskum búningi Maju Baldvins frá
1944, og því fannst mönnum líklegt
að eitthvert kvikmyndaver myndi
vilja gera úr sögunni stórmynd. Þar
á bæ leist mönnum líka vel á söguna,
sendu tilboð, en drógu þau snarlega
til baka þegar ritskoðunarstofa kvik-
myndahúsanna gerði alvarlegar at-
hugasemdir við söguna sem væri
bæði dónaleg og siðlaus og mynd
sem gerð væri eftir henni myndi
spilla ungmennum og forherða full-
orðna.
Átta árum síðar komst sagan aftur
á kreik og var aftur hafnað, en að
þessu sinni ákváðu forráðamenn Pa-
ramount að fela leikstjóranum kunna
Billy Wilder að gera mynd eftir sög-
unni og það varð úr. Billy Wilder og
Raymond Chandler, annar meistari
bandarískra glæpasagan, skrifuðu
handritið og kvikmyndin er ein
þekktasta mynd bandarískrar kvik-
myndasögu með þau Fred MacM-
urray og Barbara Stanwyck í aðal-
hlutverkum.
Kvikmyndirnar sem gerðar hafa
verið eftir sögum Cains hafa haldið
nafni hans á lofti, en þær eru þó frá-
brugðnar bókum hans að mörgu leyti
eins og vill vera með kvikmyndir sem
gerðar eru eftir bókum. Þannig var
það skilyrði sett til að mynda mætti
söguna að afdrif skötuhjúanna yrðu í
samræmi við siðareglur um makleg
málagjöld illþýðis í kvikmyndum
þess tíma. Það er því meira myrkur í
sögunni og lok hennar rökréttari.
Fyrirrennara minnst
Double Indemnity er ein af upphafsmyndum „noir“ kvikmyndahefðarinn-
ar. Skáldsagan sem myndin byggist á kom út á íslensku fyrir stuttu.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
James M. Cain
10.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA Í JANÚAR
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 KetoGunnar Már Sigfússon
2 LKL 2Gunnar Már Sigfússon
3 Á eigin skinniSölvi Tryggvason
4 Að vetrarlagiIsabel Allende
5 Taktu til í lífi þínu!Marie Kondo
6 HeltekinFlynn Berry
7 EldrauninJørn Lier Horst
8 BrúðanYrsa Sigurðardóttir
9
Rauður maður/svartur
maður
Kim Leine
10
Afbrot og íslenskt
samfélag
Helgi Gunnlaugsson
11 Ungfrú ÍslandAuður Ava Ólafsdóttir
12 Stúlkan hjá brúnniArnaldur Indriðason
13 30 dagar – leiðir til betri lífsDavíð Kristinsson
14 Dagbók Kidda klaufa 10Jeff Kinney
15 Tíminn minn 2019 Björg Þórhallsdóttir
16 Bókasafn föður míns Ragnar Helgi Ólafsson
17
Átta vikna
blóðsykurkúrinn
Dr. Michael Mosley
18 Hið heilaga orð Sigríður Hagalín Björnsdóttir
19
Brandarar handa
byssumönnunum
Mazen Maarouf
20
Risasyrpa – sögur úr
Andabæ
Walt Disney
Allar bækur
Undanfarið hef ég mest verið að
lesa bækur sem komu út fyrir jólin
og ein af þeim er Stúlkan hjá
brúnni eftir Arnald
Indriðason sem ég er
að klára. Hún fór
hægt af stað en svo
allt í einu fór allt að
gerast þannig að ég
er orðin mjög
spennt.
Svo var ég að lesa Geðveikt
með köflum eftir Sigurstein Más-
son. Hún er mjög forvitnileg,
margt áhugavert í
henni, bæði út frá
þessu faglega og líka
að heyra hans
reynslu og upplifun,
að lesa hans upp-
lifun af því hvernig
tekið er á málum
eins og hans í Danmörku og hér
heima. Svo fer hann líka um víðan
völl í öllu öðru sem
hann hefur verið að
gera.
Svo las ég fyrir jól
bókina Svik eftir Lilju
Sigurðardóttur og
varð mjög hrifin af
henni. Tempóið í
henni var hratt, en ekki of hratt,
kaflarnir voru nákvæmlega eins
langir og þeir þurftu að vera. Mest
spennandi bók sem ég hef lesið
undanfarið.
ÉG ER AÐ LESA
Árný Ingv-
arsdóttir
Árný Ingvarsdóttir er sálfræðingur.
„Nú vakna ég útsofinn og hv
Skúli Sigurðsson
Minnkar óþægindi við þvaglát
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Brizo™ er fæðubótarefni sérhannað
fyrir karlmenn sem þjást af
einkennum góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli.
Rannsóknir hafa sýnt að með
þriggja mánaða inntöku á Brizo™ hefur
blöðruhálskirtill minnkað töluvert.
™
íldur“