Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Page 40
SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2019
TRATTO model 2811
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
L 145 cm Leður ct. 10 Verð 319.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
SAVOY model V458
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 310.000,-
L 223 cm Leður ct. 10 Verð 435.000,-
ESTRO model 3042
L 164 cm Áklæði ct. 70 Verð 229.000,-
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 249.000,-
RELEVE model 2572
L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 315.000,-
L 250 cm Leður ct. 15 Verð 459.000,-
MENTORE model 3052
L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 335.000,-
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 365.000,-
Alls fylgdust um tíu milljónir manna með tónleikum
Marshmello sem voru haldnir í tölvuleiknum Fortnite
um síðustu helgi. 20 milljónir til viðbótar hafa síðan horft
á streymið af þessum tíu mínútna tónleikum sem hlaðið
var upp á YouTube. Minecraft og Second Life hafa áður
haldið tónleika innan tölvuleikjaheims en áhorfendur
voru ekki nærri svo margir. Epic Games, sem framleiðir
Fortnite, hafði þann háttinn á að ekki var hægt að nota
nein vopn meðan á tónleikunum stóð.
Marshmello, sem er hinn 26 ára Christopher Com-
stock, tísti: „Fyrstu sýndarveruleikatónleikarnir í beinni
í Fortnite og milljónir fylgdust með,“ skrifaði Marsh-
mello og bætti við: „Það sem gerir mig svo glaðan með
daginn er að margir sáu sína fyrstu tónleika nokkru
sinni. Ég er búinn að horfa á svo mörg myndbönd af fólki
hlæja og brosa meðan á tónleikunum stóð.“
Þessir sýndarveruleikatónleikar eru því þeir stærstu
sem hafa verið haldnir miðað við áhorfendafjölda. Fjöl-
mennustu tónleikarnir í raunheimum eru samkvæmt
Mixmag tónleikar Rods Stewarts í Brasilíu 1994 og
Jeans Michels Jarres í Moskvu 1997 en hvora tveggja
þessa tónleika sóttu um 3,5 milljónir manna.
Marshmello er vinsæll tónlistarmaður en
t.d. hefur verið horft á myndband við lagið
„Alone“ 1,1 milljarðs sinnum á YouTube.
Tónleikar í tölvuleik
Tíu milljónir manna fylgdust með Marshmello halda tónleika í
tölvuleiknum Fortnite um síðustu helgi.
Útvarpshlustandi skrifaði til
Velvakanda Morgunblaðsins 25.
maí 1960 og hafði þá hlustað á
þátt þar sem rætt var hvort
eðlilegt væri að giftar konur
tækju þátt í stjórnmálum og
fleira í sambandi við verksvið
konunnar utan og innan heim-
ilanna. Taldi hlustandinn eðli-
legt að stinga niður penna um
þetta efni.
„Þetta er mjög umfangs-
mikið mál … Í fyrsta lagi er
eðlilegt að hjón hjálpist að við
það eftir beztu getu að afla
tekna. í öðru lagi er heimili
hverri meðalgreindri konu og
þar yfir of þröngur vinnustaður,
þegar til lengdar lætur. Hún
blátt áfram forpokast á því að
hafa ekki samband við neina
vinnufélaga utan heimilisins.
Þess vegna er eðlilegt, að
giftar konur vinni utan heimilis
stutta stund á degi hverjum,
jafnvel þótt þær þurfi þess ekki
með peninganna vegna.
Konunni verða 3-4 vinnu-
stundir í samfélagi við aðra á
vissan hátt hvíld frá heim-
ilisstörfunum. Manninum, sem
hefur unnið 7-10 tíma utan
heimilis, er hvíld í því að delja
heima hjá börnum sinum.“
GAMLA FRÉTTIN
„Hún blátt
áfram
forpokast“
Velvakandi í Morgunblaðinu var lengi vinsæll vettvangur fyrir ýmislegt
markvert (og ómarkvert) sem fólki þótti rétt að kæmist á prent.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Kim Leine
rithöfundur
Gunnar Lárus Hjálmarsson
tónlistarmaður
Vandráður
prófessor