Morgunblaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. M A R S 2 0 1 9 Stofnað 1913  55. tölublað  107. árgangur  SÖGUSÝNING UM FANGA Á LITLA- HRAUNI Í 90 ÁR STARFSVENJUR, GILDI OG SKILNINGUR EINAR TEKUR VIÐ MEISTARALIÐI H71 Í FÆREYJUM ÍSLENSKT LÝÐRÆÐI 30 HANDBOLTI ÍÞRÓTTIRHÚSIÐ Á EYRARBAKKA 12 A ct av is 9 11 01 3 91 10 13 Omeprazol Actavis 20 mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Börn og foreldrar hafa undanfarna daga búið sig undir ösku- daginn sem er í dag. Ef til vill ekki með því að sauma ösku- poka til að hengja aftan á fólk eins og í „gamla daga“ heldur útbúa sem flottasta búninga til að geta náð árangri í heim- sóknum í hús og fyrirtæki til að safna sælgæti í poka. Ekki hefur verið kveðinn upp úrskurður um vinsælasta búninginn í ár en leðurgrímur eins og Hatara-piltarnir skrýðast hljóta að njóta hylli. Það voru þó einfaldari og litskrúðugri grímur sem eiturhress börn keyptu í Partýbúðinni í Faxafeni í gær. Börnin fá sér grímubúninga fyrir öskudaginn Morgunblaðið/Eggert Helgi Bjarnason Þorgerður Anna Gunnarsdóttir „Staðan er óljós en við búumst við röskun, hvort sem það verður með beinum eða óbeinum hætti,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmda- stjóri vöruþróunar-, sölu- og mark- aðssviðs Bláa Lónsins þegar leitað er viðbragða hennar við ákvörðun Verkalýðsfélags Grindavíkur um verkfallsaðgerðir sem beinast munu gegn ferðaþjónustufyrirtækjum í aprílmánuði, ef samningar hafa ekki tekist. Stjórn Verkalýðsfélags Grinda- víkur samþykkti aðgerðaáætlun í gærkvöldi en hún verður ekki birt að svo stöddu, að sögn Harðar Guð- brandssonar, formanns félagsins. Hann segir að atkvæðagreiðsla um aðgerðirnar sé í undirbúningi og verði kynnt þegar að henni kemur. „Ég heyri ekki annað á mínum fé- lagsmönnum en að þeir séu tilbúnir í að gera það sem þarf,“ segir Hörður. Verkalýðsfélag Grindavíkur er í samfloti með Eflingu, VR og Verka- lýðsfélagi Akraness í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Félögin slitu viðræðum fyrir tæpum hálfum mán- uði og hafa verið að birta aðgerða- áætlanir sínar og hrinda þeim í framkvæmd með atkvæðagreiðslum. Aðgerðir Eflingar og VR eru „skæruverkföll“ sem beinast gegn fyrirtækjum í hópferðaakstri og til- greindum hótelum í síðari hluta þessa mánaðar og í apríl og síðan verður ótímabundin vinnustöðvun frá og með 1. maí. Aðgerðirnar sem Verkalýðsfélag Akraness hyggst efna til eru víðtækari, ná einnig til veitingaþjónustu og afþreyingarfyr- irtækja en felast eingöngu í ótíma- bundnu verkfalli frá 12. apríl. Röskun í ferðaþjónustu Félögin fjögur segja að aðgerð- irnar séu hluti af sömu aðgerðaáætl- un. Hvort sem aðgerðir Verkalýðs- félags Grindavíkur eru í líkingu við það sem stendur til á Akranesi eða í Reykjavík verður röskun á ferða- þjónustu í Grindavík, þar á meðal hjá Bláa Lóninu sem rekur baðstað, veitingasölu, hótel og hópferðir auk annars. Stefna að verkfalli í Grindavík í apríl  Búumst við röskun, segir framkvæmdastjóri hjá Bláa Lóninu Verkföll » Atkvæðagreiðslur eru hafn- ar í Eflingu stéttarfélagi og VR um verkfallsaðgerðir gagnvart hótelum og hópferðafyrir- tækjum í mars og apríl og ótímabundna vinnustöðvun frá og með 1. maí. » Eins dags verkfall Eflingar á hótelum og gististöðum er boðað nk. föstudag. Í dag er von á niðurstöðu Félagsdóms í máli SA gegn Eflingu. MÓlíkar leikreglur … »18 Spennandi verkefni bjóðast Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta Íslands, víða um heim. Hann hefur verið á stanslausum ferðalög- um síðan í desember, m.a. ráð- stefnum í Kóreu og Peking, fundum í Hong Kong og í gær lá leiðin til Rómar þar sem hann mun sitja fund í Vatíkaninu um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Vegna þessara tíðu ferðalaga gekk erfiðlega að finna tíma fyrir vígsluathöfn brjóstmyndar af Ólafi, sem afhjúpuð var á Bessastöðum í fyrradag. Ólafur segist ánægður með myndina sem Helgi Gíslason gerði. „Mér finnst vel hafa tekist til að ná svipmóti mínu frá ýmsum hliðum,“ segir Ólafur um brjóst- myndina. »11 Ólafur Ragnar á fund páfa Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon Á Bessastöðum Frá afhjúpun brjóstmyndarinnar af Ólafi.  Túr Sólbergs ÓF-1 í Barentshafið er að ljúka, það er einn stærsti túr sem íslenskt skip hefur farið í á þessar slóðir en alls er afli úr sjó orðinn um 1.760 tonn. Þar af er þorskur að nálgast 1.600 tonn. Sig- þór Kjartansson skipstjóri segir túrinn hafa gengið vel með góðum mannskap á öflugu og góðu skipi. »10 Einn stærsti túrinn í Barentshafið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.