Morgunblaðið - 06.03.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
var alvarlegt. Vanalega eru slík verk
unnin utan háannatíma.
„Það er flókið tæknilegt úrlausn-
arefni að bregðast við svifryki. Núna
er til dæmis norðaustanátt og tals-
vert frost við jörð. Við svoleiðis að-
stæður getum við ekki sent út sópa
vegna þess að þá kemur raki í ryk-
sugubarkana. Svo frýs og þetta get-
ur eyðilagt þá. Við getum heldur
ekki sett vatn á göturnar eins og
gert er við vorhreinsun,“ segir Hjalti
þegar hann er spurður hvort borgin
hefði ekki getað sópað götur í síð-
ustu viku eins og Vegagerðin. „Jú,
við hefðum getað sópað götur en þar
sem meirihluti svifryks er á stofn-
brautunum hefði það ekki skipt
miklu máli í stóra samhenginu.“
braut frá Reykjanesbraut og út að
ljósum við Kringlumýrarbraut,
Reykjanesbraut, Hringbraut, Mikla-
braut og upp fyrir Ártúnsbrekku og
Kringlumýrarbraut. Í gær var hafist
handa við að rykbinda umræddar
götur en einnig stóð til að rykbinda
Suðurlandsbraut og Bústaðaveg,
sem eru á forræði borgarinnar.
Það voru sérfræðingar á vegum
Hreinsitækni sem byrjuðu að ryk-
binda um miðjan dag í gær. Fyrst
var farin ein umferð þar sem ryk-
bindiefni var úðað í kanta. Síðan stóð
til að fara aðra umferð á göturnar
sjálfar í gærkvöld og í nótt. Hjalti
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að ákveðið hefði verið að byrja
strax í gær vegna þess hve ástandið
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Borgarlandið er að koma undan
vetri og þá vill svifrykið láta á sér
kræla. Við gerum allt sem við getum
til að bregðast við því,“ segir Hjalti
J. Guðmundsson, skrifstofustjóri
reksturs og umhirðu borgarlands
hjá Reykjavíkurborg.
Varað hefur verið við styrk svif-
ryks í höfuðborginni síðustu tvo
daga. Hægur vindur hefur verið í
Reykjavík, kuldi og þurrar götur.
Þetta eru kallaðir „gráir dagar“
enda eru allar líkur á að loftmengun
fari yfir heilsuverndarmörk þegar
svona viðrar. Fólk sem er viðkvæmt
fyrir í öndunarfærum og börn hafa
verið hvött til að forðast útiveru í ná-
grenni stórra umferðargatna.
Klukkan 14 í gær var klukkutíma-
gildi svifryks við Grensásveg 120
míkrógrömm á rúmmetra en sólar-
hringsheilsuverndarmörk fyrir svif-
ryk eru 50 míkrógrömm á rúm-
metra. Klukkan 14 í gær var
svifryksstyrkurinn kominn í 123
míkrógrömm á rúmmetra.
„Svifrykið á uppruna sinn að
mestu að rekja til stofnbrautanna
þar sem er þung og hröð umferð.
Þegar aðstæður eru með þessum
hætti vinnur viðbragðsteymi okkar
með Vegagerðinni og nú reynum við
að rykbinda stofnbrautirnar,“ segir
Hjalti.
Þær upplýsingar fengust hjá
Vegagerðinni í gær að allir vegir
sem eru á hennar forræði hafi verið
sópaðir í síðustu viku. Þetta eru Sæ-
Morgunblaðið/Hari
Rykbinding Starfsmenn Hreinsitækni voru önnum kafnir við að úða rykbindiefni á götur borgarinnar í gær.
Bregðast við hættu
af völdum svifryks
Rykbindiefni borið á stofnbrautir á höfuðborgarsvæðinu
Magn svifryks* við Grensásveg í Reykjavík
Míkrógrömm á rúmmetra (μg/m2), frá 4.2. kl. 15 til 5.2. kl. 15
*Magn PM10 svifyks (10 μm og minna)
150
125
100
75
50
25
0
mánudagur 4. febrúar þriðjudagur 5. febrúar
Heimild: Umhverfi sstofnun
/loftgæði.is
Heilsu-
verndarmörk
fyrir svifryk
eru 50 μg/m2
123 μg/m2 kl. 11
15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 01 02 03 04 05 06 07 08 09 10 11 12 16 14 15
Vonir manna um að loðnukvóti verði
gefinn út í vetur hafa ekki aukist síð-
ustu daga, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Í yfirferð tveggja
skipa með suðurströndinni mun
engin viðbót hafa mælst frá fyrri
mælingum. Loðna er hins vegar víða
á ferð á hefðbundinni gönguslóð við
suðurströndina til hrygningar fyrir
vestan land.
Búist var við að leitarskipin Polar
Amaroq og Ásgrímur Halldórsson,
lykju yfirferð sinni meðfram suður-
ströndinni í gærkvöldi. Þá var fyrir-
hugað að Ásgrímur kannaði hvort
loðna væri á ferð í Hávadýpi og
djúpunum þar austur af á leið sinni
til Hafnar. Í kjölfarið fara sérfræð-
ingar Hafrannsóknastofnunar og
hópur útgerðarmanna uppsjávar-
skipa yfir stöðuna.
Áratugur er liðinn síðan loðnuleið-
angrar vetrarins gáfu ekki tilefni til
að heimila upphafskvóta, en vetur-
inn 2009 var eigi að síður heimilað að
veiða 15 þúsund tonn, sem voru nýtt
til hrognavinnslu. Þetta var mikið
áfall og sambærilegt við árið 1983
þegar engin loðnuveiði var leyfð.
44 þúsund tonn af kolmunna
Í stað loðnuvertíðar hafa uppsjáv-
arskipin verið á kolmunna á alþjóð-
legu hafsvæði vestur af Írlandi. Vel
hefur gengið þegar veður hefur ekki
hindrað veiðar.
Samkvæmt yfirliti á vef Fiski-
stofu er búið að landa 44 þúsund
tonnum af kolmunna. Í gær kom
fram á vef Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað að verksmiðjur fyrirtæk-
isins hafa tekið á móti tæplega 23
þúsund tonnum af kolmunna á
árinu. aij@mbl.is
Vonir um loðnu-
vertíð hafa ekki
aukist síðustu daga
Loðnumælingar fyrir sunnan land
Heimild: hafro.is
Polar
Amaroq
Ásgrímur
Halldórsson
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir segir að nokkur tilfelli til við-
bótar varðandi mislingasmit hér á
landi gætu komið upp á næstunni,
en óttast ekki að faraldur muni
breiðast út. Fjögur mislingasmit
hafa komið upp að undanförnu hér
á landi og hann segir að huga þurfi
að mörgu vegna þeirrar stöðu sem
komin er upp. Tvö börn eru meðal
þessara fjögurra, en bæði börnin
smituðust í flugi Icelandair frá
London til Íslands 14. febrúar. Ann-
að barnanna er á leikskólanum
Hnoðraholti í Garðabæ og óbólu-
settum börnum þar hefur verið
gert að dvelja heima hjá sér næstu
tvær og hálfa vikuna.
Fleiri gætu smitast
af mislingum, segir
sóttvarnalæknir
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þegar Norðurgarður var síðast
lengdur, fyrir hátt í 20 árum, sáu
menn þessa stækkun ekki endilega
fyrir sér. En eftir því sem árin líða,
aðstæður breytast og skipin stækka
skapast þessi þörf,“ segir Björg
Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundar-
fjarðarbæjar, í samtali við Morgun-
blaðið og vísar í máli sínu til fyrir-
hugaðrar lengingar á Norðurgarði
Grundarfjarðarhafnar.
Greint var frá áformum þessum í
Morgunblaðinu í gær, en í fyrradag
var skrifað undir samning við Björg-
un ehf. um fyrsta áfanga fram-
kvæmdanna. Áfanginn felst í dæl-
ingu púða undir 130 metra lengingu
garðsins, en verkið var boðið út í jan-
úar síðastliðnum. Við framkvæmd-
ina skapast einnig tæplega 5.000 fer-
metra nýtt athafnasvæði, til viðbótar
við um 4.200 fermetra athafnasvæði
Norðurgarðs.
Björg segir aðstæður til stækkun-
ar vera mjög góðar og að innsigling
inn í Grundarfjarðarhöfn sé eins og
best verður á kosið.
„Það eru afskaplega góðar að-
stæður til stækkunar hér. En þar að
auki er aðdjúpt þannig að við getum
auðveldlega stækkað Norðurgarð og
boðið um leið djúpristum skipum að
leggjast að bryggju í framtíðinni.“
Aðspurð segist Björg meðal ann-
ars vera að vísa til komu erlendra
skemmtiferðaskipa. „Í sumar erum
við nú komin með 53 skemmtiferða-
skip sem hafa boðað komu sína en
þau voru 27 í fyrra,“ segir hún.
Opnað fyrir stærri skip
Norðurgarður Grundarfjarðarhafnar stækkaður Alls hafa nú 53 skemmti-
ferðarskip boðað komu sína þangað í sumar Aðstæður til stækkunar eru góðar
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður Mörg skemmti-
ferðaskip sækja bæinn heim í ár.