Morgunblaðið - 06.03.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019
Flutningaskipið Rolldock Sea lagði
af stað frá Hafnarfjarðarhöfn í gær-
morgun með sementsskipið Fjord-
vik um borð, sem strandaði í Helgu-
vík í vetur.
Verður Fjordvik siglt í sína hinstu
ferð þar sem það fer í niðurrif í
Belgíu. Umfangsmiklar aðgerðir
hafa staðið yfir við höfnina við að
komaskipinu í flotkví Rolldock Sea.
Fjordvik strandaði við hafnar-
garðinn í Helguvík aðfaranótt 3.
nóvember sl. Áhöfn á þyrlu Land-
helgisgæslunnar, TF-GNA, tókst að
bjarga 15 manns frá borði við erfiðar
aðstæður, en skipið lamdist við stór-
grýttan hafnargarðinn meðan á að-
gerðum stóð. Tæpri viku síðar tókst
að draga skipið af strandstað og inn
til Keflavíkur.
Þaðan var það síðan dregið yfir til
Hafnarfjarðar þar sem það fór í
þurrkví til að gera það flothelt til
flutninga burtu af landinu.
Fjordvik af stað í
sína hinstu ferð
Lagði úr Hafnarfjarðarhöfn í gær
Ljósmynd/Víkurfréttir-Hilmar Bragi
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
• Bolir
• Peysur
• Jakkar
• Pils
• Buxur
• Kjólar
Ný sending
VINSÆLU
VELÚRGALLARNIR
alltaf til í mörgum litum
og í stærðum S-4XL
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég hef fylgst lengi með Helga og
dáðst að hans listaverkum og það var
þess vegna heiður fyrir mig að hann
skyldi taka að sér að gera þessa
brjóstmynd,“ segir Ólafur Ragnar
Grímsson, fyrrverandi forseti Ís-
lands.
Brjóstmynd af Ólafi Ragnari eftir
Helga Gíslason var afhjúpuð á
Bessastöðum á mánudagskvöld.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra afhjúpaði myndina og flutti
ávarp. Guðni Th. Jóhannesson, for-
seti Íslands, flutti sömuleiðis ávarp,
rétt eins og Ólafur og höfundur
verksins. Myndinni verður komið
fyrir á efri hæð Bessastaðastofu þar
sem eru brjóstmyndir af öllum fyrri
forsetum lýðveldisins.
„Það var skemmtilegt að fylgjast
með því hve fagmannlega hann stóð
að því að ná svipmóti mínu, kunnáttu
hans í að móta leirhöfuðið á þann
hátt að það myndi síðan endurspegl-
ast með skemmtilegum hætti þegar
búið var að færa það í brons. Helgi
sagði oft við mig að þessi brjóstmynd
væri hans listræna túlkun en mér
finnst vel hafa tekist til að ná svip-
móti mínu frá ýmsum hliðum, hvort
sem það er frá vinstri, hægri eða að
framan. Myndin ber líka með
skemmtilegum hætti höfund-
areinkenni Helga,“ segir Ólafur í
samtali við Morgunblaðið.
Fundar í Vatíkaninu
Nokkrir mánuðir eru síðan verk-
inu lauk en erfiðlega gekk að finna
hentugan tíma fyrir vígsluathöfnina.
Í samtali við Ólaf Ragnar kemur
fram að hann hefur verið á stans-
lausum ferðalögum síðan í desember.
Hann sótti fyrst ráðstefnu í Kóreu og
hélt þaðan til Peking og talaði á ráð-
stefnu um hreina orku. Þá var haldið
til Hong Kong til fundahalds. Því
næst flaug Ólafur til New York, Los
Angeles og fleiri borga í Bandaríkj-
unum áður en hann hélt til Mið-
Austurlanda þar sem hann sótti
margvíslega fundi. Þaðan fór hann til
Davos og síðast til München. Í gær
flaug hann svo af landi brott og var
förinni heitið til Rómar þar sem hann
mun sitja fund í Vatíkaninu.
„Ég er að fara að sækja fund um
þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóð-
anna þar sem rædd verður þróun
sjálfbærni og loftslagsmála frá sjón-
arhóli ýmissa trúarbragða og þeirra
sem láta sig umræðuna varða,“ segir
hann. Fundur þessi er skipulagður af
Turkson kardínála sem þykir einn af
helstu áhrifamönnum innan Páfa-
garðs. Turkson flutti einmitt ræðu
sem fulltrúi páfa á fyrstu Arctic
Circle-ráðstefnunni hér árið 2013.
„Þessi fundur stendur í tvo daga
og á öðrum degi munu þátttakendur
eiga fund með páfa. Það sýnir hversu
mikla áherslu Páfagarður leggur á
þennan fund, að hann skuli gefa sér
tíma í sinni þétt setnu dagskrá til að
funda með okkur,“ segir Ólafur en
þetta verður í þriðja sinn sem hann
hittir páfa.
Mikilvægur samráðsvettvangur
Ólafur segir að ásamt þessum
fundahöldum og ferðalögum séu
miklar annir við Hringborð norður-
slóða - Arctic Circle. Verið sé að
skipuleggja mikla alþjóðlega ráð-
stefnu í Sjanghæ í Kína í maí. Um-
fjöllunarefnið er Kína og norður-
slóðir og er þetta fyrsta slíka
ráðstefnan í Kína og unnin meðal
annars í samvinnu við þarlend
stjórnvöld.
Þá hafi hann átt fundi með emb-
ættismönnum í bandaríska utanrík-
isráðuneytinu, öldungadeildar-
þingmönnum og fleirum um þátttöku
Bandaríkjamanna í málefnum
norðurslóða. „Okkur hefur tekist að
gera Hringborð norðurslóða að
mikilvægasta samráðsvettvangi um
þetta svæði. Þetta snýst ekki lengur
bara um þetta stóra alþjóðlega þing
hér á landi, þar sem saman koma yfir
tvö þúsund þátttakendur frá yfir 60
löndum, heldur er mikil ásókn stjórn-
valda í öðrum löndum að halda þing
hjá sér. Skriðþunginn á þessum vexti
er mjög mikill.“
- Þú hefur ekkert í hyggju að fara
að hægja á þér?
„Góð spurning. Dætur mínar og
Dorrit eru alltaf að spyrja að því
sama. Það er nokkur vandi vegna
þess að eftirspurnin eftir þátttöku
minni í margvíslegum fundum og
verkefnum virðist vera vaxandi.
Þetta eru spennandi verkefni sem
bjóðast og fróðlegur vettvangur. Það
er erfitt að segja nei meðan maður
hefur orku og skynjar bæði efnislega
hvað þessi þróun er spennandi og
hvað hún er hröð. Meðan ég geri
gagn og finnst þetta skemmtilegt
hugsa ég að ég haldi þessu áfram.“
Orkuríkur Ólafur Ragnar á ferð og flugi
Fundar með páfa síðar í vikunni Spennandi verkefni bjóðast víða um heim Hringborð norð-
urslóða vindur upp á sig Ánægður með brjóstmynd sem afhjúpuð var á Bessastöðum í vikunni
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson ásamt fjölskyldu sinni við afhjúpun brjóstmyndar af sér á Bessastöðum á mánudagskvöld.