Morgunblaðið - 06.03.2019, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019
6. mars 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.76 120.34 120.05
Sterlingspund 158.44 159.22 158.83
Kanadadalur 89.97 90.49 90.23
Dönsk króna 18.188 18.294 18.241
Norsk króna 13.904 13.986 13.945
Sænsk króna 12.879 12.955 12.917
Svissn. franki 119.62 120.28 119.95
Japanskt jen 1.0699 1.0761 1.073
SDR 166.71 167.71 167.21
Evra 135.72 136.48 136.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.2977
Hrávöruverð
Gull 1287.45 ($/únsa)
Ál 1890.0 ($/tonn) LME
Hráolía 64.97 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Vilhelm Már
Þorsteinsson, ný-
ráðinn forstjóri
Eimskipafélagsins,
keypti í gærdag
hlutabréf í félaginu
fyrir 12,5 milljónir
króna. Á þáverandi
gengi jafngilti það
ríflega 66 þúsund
hlutum í félaginu.
Hann átti engin
bréf í félaginu fram að þeim tíma. Fé-
lagið tilkynnti afkomu sína fyrir árið
2018 á fimmtudag í liðinni viku og
sagði Vilhelm af því tilefni að rekstur
nýliðins árs hefði valdið vonbrigðum.
Hagnaður félagsins nam um milljarði
króna og dróst saman um 56% milli
ára.
Bréf Eimskipafélagsins hækkuðu
nokkuð í Kauphöll í gær eða um tæp
3% í ríflega 45,7 milljóna króna við-
skiptum.
Forstjórinn kaupir fyrir
12,5 milljónir í Eimskipi
Vilhelm
Þorsteinsson,
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Atvinnurekendum er ekki mögu-
legt að aðgreina mótframlag sitt og
iðgjaldagreiðslur launþega í upp-
gjöri sínu við lífeyrissjóði. Þannig
gera samþykktir helstu lífeyris-
sjóða landsins ekki ráð fyrir því að
launagreiðendum sé kleift að
standa skil á iðgjaldagreiðslum
þeim sem þeir draga af launum
starfsmanna sinna á sama tíma og
þeir draga að greiða lögbundið
mótframlag sitt á sama tíma. Þann-
ig byggjast kröfur lífeyrissjóða á
hendur launagreiðendum á skila-
greinum og enginn aðskilnaður við
innheimtuna gerður á mótframlag-
inu og iðgjaldagreiðslum launþega.
Elsta skilagrein í forgangi
Morgunblaðið grennslaðist fyrir
um hvaða reglur gilda í þessum
efnum eftir að greint var frá því í
Fréttablaðinu að WOW air hefði á
undanförnum þremur mánuðum
frestað greiðslu mótframlags síns
til þeirra lífeyrissjóða sem starfs-
menn þeirra greiða til, bæði hvað
varðar skylduiðgjald og séreignar-
sparnað.
Í samþykktum helstu sjóða,
þ.m.t. Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, Gildis lífeyrissjóðs og
Frjáls lífeyrissjóðsins er kveðið á
um að skilagreinar frá launagreið-
endum teljist í vanskilum uns full
greiðsla hennar, ásamt áföllnum
vanskilavöxtum séu inntar af hendi.
Þá gilda almennt þær reglur að
þegar iðgjaldagreiðslur berast frá
launagreiðanda, ganga þær upp í
elstu áföllnu skuld viðkomandi.
„Öllum innborgunum launagreið-
anda, hvort heldur sem þær berast
með nýrri skilagrein eða öðrum
hætti, skal ráðstafa til greiðslu
elstu ógreiddra iðgjalda og van-
skilavaxta launagreiðanda og skapa
réttindi samkvæmt því,“ segir í
samþykktum Gildis lífeyrissjóðs en
samsvarandi grein er að finna í
samþykktum Lífeyrissjóðs verzlun-
armanna, Frjálsa lífeyrissjóðsins
og Birtu lífeyrissjóðs, svo dæmi séu
tekin.
Í fyrrnefndri frétt Fréttablaðsins
var haft eftir Svanhvíti Friðriks-
dóttur að fyrirtækið ætti í góðum
samskiptum við lífeyris- og sér-
eignarsjóði er tengdust vanskilum
fyrirtækisins. Morgunblaðið leitaði
upplýsinga hjá fyrirtækinu um
hvaða sjóðir ættu þar í hlut.
„við getu mekki tjáð okkur um
samskipti við einstaka lífeyris-
sjóði,“ sagði Svanhvít er hún brást
við fyrirspurninni skriflega.
Ábyrgist allt í 18 mánuði
Þegar dráttur verður á iðgjalda-
greiðslum til lífeyrissjóða stofnast
til vaxtakröfu sem miðast við drátt-
arvexti á hverjum tíma. Skv. upp-
lýsingum frá Seðlabankanum eru
dráttarvextir í dag 12,25%. Skv.
upplýsingum sem Morgunblaðið
hefur aflað grípa lífeyrissjóðir til
ákveðinna innheimtuaðgerða þegar
lífeyrisiðgjöld eru komin í 90 daga
vanskil. Það er m.a. gert þar sem
Ábyrgðarsjóður launa (ÁL) ábyrg-
ist kröfur lífeyrissjóða um lífeyr-
issjóðsiðgjöld til 18 mánaða. Ekk-
ert þak er á þeirri ábyrgð og
sjóðurinn gerir ekki greinarmun á
vangoldnu mótframlagi atvinnurek-
anda og iðgjaldi launamanna. Þetta
staðfestir Halldór Oddsson, lög-
fræðingur hjá ASÍ sem einnig á
sæti í stjórn ÁL.Ábyrgð ÁL gagn-
vart iðgjaldagreiðslum yfir fyrr-
nefnt 18 mánaða tímabil er án tak-
markana og að því marki gildir
önnur ábyrgð um iðgjaldagreiðsl-
urnar en laun almennt. Þannig
kemur fram á heimasíðu ÁL að há-
marksábyrgð sjóðsins vegna van-
goldinna launa nemur 633 þúsund
krónum á mánuði.
Ekki heimilt að aðgreina
framlög til lífeyrissjóðs
Morgunblaðið/Eggert
Lausafjárstaða WOW air tókst ekki að greiða starfsmönnum laun síðasta dag febrúarmánaðar eins og hefð er fyrir.
Skilagreinar launagreiðenda í vanskilum bera 12,25% dráttarvexti
Ríkislögmaður hefur móttekið rúm-
lega 10 bréf þar sem krafist er
greiðslu miskabóta upp á 500 þúsund
krónur í hverju máli. Miskabótanna
er krafist á grundvelli hlerana
skömmu fyrir eða eftir að aðilar sem
höfðu réttarstöðu sakbornings,
höfðu verið hleraðir. Þetta herma
heimildir Morgunblaðsins en málin
tengjast öll svokölluðum hrunmál-
um.
Nýlegt fordæmi
Grundvöllur kröfunnar er annars
vegar með vísan í ákvæði í lög um
meðferð sakamála, nánar tiltekið
246. grein þeirra, sem kveður á um
að maður sem hefur verið borinn
sökum í sakamáli eigi rétt til bóta ef
mál hans hefur verið fellt niður eða
hann verið sýknaður með endanleg-
um dómi. Hins vegar með vísan til
þeirra röksemda og fordæmis sem
liggur fyrir úr dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur í máli Hreiðars Más
Sigurðssonar gegn íslenska ríkinu
frá 30. apríl 2018. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins gæti fjöldi
svipaðra mála legið á bilinu 50-100.
Í frétt Morgunblaðsins frá 15.
febrúar kom fram að ríkislögmaður
hefði boðið einstaklingi sem sætti
símhlerunum eftir skýrslutöku hjá
lögreglu 500 þúsund krónur í miska-
bætur auk greiðslu lögfræðikostnað-
ar. Að sögn Einars Karls Hallvarðs-
sonar ríkislögmanns, í fyrrnefndri
frétt, kom fram að embættið brygð-
ist aðeins við ef bótakrafa væri gerð,
eins og í tilvikunum sem um ræddi í
þessari frétt, en reynt væri að semja
um bætur þegar það ætti við.
peturhreins@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Hleranir Rúmlega 10 mál hafa ný-
lega verið send ríkislögmanni.
Fleiri hleranir á
borð ríkislögmanns
Mál þessarar
tegundar gætu
orðið 50-100
W W W. S I G N . I S
Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is