Morgunblaðið - 06.03.2019, Side 17

Morgunblaðið - 06.03.2019, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 Moskvu. AFP. | Lýst var yfir neyðar- ástandi á Novaja Semlja-eyjum í Norður-Íshafi í síðasta mánuði vegna hvítabjarna sem leituðu þangað í fæðuleit. Var það einkum rakið til hlýnunar jarðar en slíkar heimsóknir gætu einnig orðið al- gengari vegna aukinna umsvifa Rússa á norðurslóðum, að sögn vís- indamanna. Í febrúar höfðu meira en fimmtíu hvítabirnir komið til bæjarins Bel- úshja Gúba frá því í byrjun desem- ber. Allt að tíu bjarnanna gengu um göturnar og fóru inn í hús. Yfirvöld í bænum lýstu yfir neyðarástandi í viku og óskuðu eftir aðstoð rúss- neskra stjórnvalda. Gátu ekki veitt seli Myndir af hvítabjörnum í Bel- úshja Gúba vöktu mikla athygli á netinu og yfirvöld í bænum voru gagnrýnd fyrir að hafa ekki reynt að koma í veg fyrir að dýrin leituðu í sorphauga bæjarins í leit að matarafgöngum. Sérfræðingar í hvítabjörnum segja þó að megin- ástæða þess að birnirnir fóru í bæ- inn sé sú að hafísinn hafi myndast seinna en áður í Barentshafi og þeir hafi því ekki getað veitt seli. Sér- fræðingarnir telja einnig líklegt að hvítabirnir komist oftar í návígi við menn á næstu árum vegna aukinna umsvifa Rússa á norðurslóðum, meðal annars vegna olíuleitar, byggingarframkvæmda rússneska hersins á Novaja Semlja og aukinna siglinga flutningaskipa. Samtökin Polar Bears Inter- national segja að hafístímabilið hafi styst um allt að 20 vikur á ári í Bar- entshafi á síðustu áratugum. „Haf- ísvöktun hefur leitt í ljós að haf- ísinn myndaðist áður í desember nálægt Belúshja Gúba,“ sagði Ilja Mordvíntsev, vísindamaður við Se- vertsov-vistfræðistofnunina í Moskvu. „Hvítabirnirnir hafa í þús- undir ára farið á milli staða á þess- um árstíma til að veiða seli. Í þetta sinn komu þeir að ströndinni og þar var enginn ís.“ Gætu flutt sig til norðurhluta Kanada Mordvíntsev sagði að hafísinn hefði myndast síðar og hvítabirn- irnir hefðu þá farið frá ströndinni til að veiða seli. „En ekki er hægt að útiloka að þetta ástand skapist aft- ur á næstu árum.“ Haldi hafístímabilið áfram að styttast í Barentshafi er talið lík- legt að hvítabirnirnir fari þaðan til norðurhluta Kanada þar sem breyt- ingarnar hafa verið minni. Sovéski herinn notaði Novaja Semlja til kjarnorkutilrauna fyrir hrun Sovétríkjanna. Her Rússa hef- ur reist nýjar byggingar á eyjunum á síðustu árum og lagt þar nýjan flugvöll. Ennfremur hafa verið hafnar framkvæmdir við nýja höfn vegna áforma um námuvinnslu. Barentshaf Norður- Íshaf Karahaf Novaja Semlja- eyjar Belúshja Gúba Lýst var yfir neyðarástandi þar í byrjun febrúar eftir að hvítabirnir komu þangað í fæðuleit vegna þess að hafís myndaðist seinna en áður og þeir gátu því ekki veitt seli. Frá því í desember hafa 52 hvítabirnir komið til bæjarins. Hvítabirnir leita oftar í manna- byggðir vegna hlýnunar R Ú S S L A N D 100 km Heimild: Maps4news.com . Hvítabirnir oftar í návígi við menn  Rakið til hlýnunar og umsvifa Rússa Stokkhólmi. AFP. | Þau ólust upp í Sýrlandi, Afganistan og Sómalíu og vita hvar Ísrael er á landakortinu en margir ungu flóttamannanna í Sví- þjóð höfðu aldrei heyrt um helförina, útrýmingarherferð nasista gegn gyð- ingum. Algengt er að þessi ungmenni hafi fyrst heyrt af helförinni í námi sínu í skólastofunni og stundum í samtölum við kennara úr röðum gyðinga. „Einn kennara minna varð fyrir áreitni ann- arra nemenda. Hann er gyðingur og þeir gerðu alltaf grín að honum,“ sagði Nergis Resner, nítján ára stúlka sem fæddist í Svíþjóð og er af tyrknesku og makedónsku bergi brotin. Seinna gekk hún í hreyf- inguna Ungt fólk gegn gyðinga- og útlendingahatri sem Siavosh De- rakthi stofnaði í Malmö, þriðju stærstu borg Svíþjóðar. Um þriðj- ungur íbúa hennar fæddist í öðru landi. Hreyfingar og stofnun, sem rithöf- undurinn Stieg Larsson kom á fót, hafa tekið höndum saman um að að- stoða nemendur og kennara í barátt- unni gegn gyðingahatri. Þótt Derakthi hafi fengið hótanir á netinu vegna baráttu sinnar hefur hann skipulagt námskeið í skólum, hópsamræður og fræðsluferðir á staði þar sem nasistar komu upp út- rýmingarbúðum. Markmiðið er að fræða ungmenni um fjöldamorðin á gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni og nauðsyn þess að fyrirbyggja slíkar útrýmingarherferðir. „Sum þeirra koma frá einræðisríkjum, stríðs- svæðum þar sem hatur á gyðingum, hommum og konum er landlægt,“ sagði Derakthi sem fæddist í Svíþjóð og er sonur innflytjenda frá Íran. Framtak hans varð til þess að árið 2013 var hann sæmdur verðlaunum sem kennd eru við Raoul Wallenberg, sænska sendifulltrúann sem bjargaði þúsundum gyðinga í stríðinu. Gegn áróðri þjóðernissinna og íslamista Þeir sem taka þátt í fræðslunni segja að falsfréttir og samsæris- kenningar á samfélagsmiðlum geri þeim stundum erfitt fyrir. „Vinsæl- astur þeirra er eflaust YouTube þar sem áróður hægriöfgamanna skarast stundum við áróður róttækra íslam- ista,“ sagði Jonathan Leman, fræði- maður við Expo-stofnunina sem Stieg Larsson kom á fót. Stofnunin gaf út sérstakan bækling eftir að 90 af 100 kennurum, sem hún hafði samband við árið 2016, sögðu að nemendur sín- ir tryðu samsæriskenningum um að helförin hefði annaðhvort aldrei átt sér stað eða að röng mynd væri gefin af henni í sögubókum. Vissu ekkert um Önnu Frank Ingrid Lomfors tekur á móti þús- undum nemenda á hverju ári í sögu- safninu Forum for levande historia í miðborg Stokkhólms þar sem þeir eru fræddir um helförina og fleiri glæpi gegn mannkyninu. „Í fyrra átti ég dásamlegt samtal við þrjár ungar múslímastúlkur um Önnu Frank,“ sagði Lomfors sem fræddi þær um gyðingastúlkuna sem neyddist til að fara í felur í Amsterdam vegna of- sókna nasista gegn gyðingum og dó síðar í útrýmingarbúðum. „Þær vissu ekkert um Önnu Frank. Þær gengu um sýningarsalinn og tvær þeirra sögðu síðan við mig að þær sæju sjálf- ar sig í henni, vegna einangrunar- innar, stöðugrar ógnar, ofsóknanna og óvissu um hvort þær yrðu á lífi daginn eftir.“ Ímaminn Salahuddin Barakat og rabbíninn Moshe-David HaCohen í Malmö hafa stofnað sameiginlega hreyfingu sem hefur það að markmiði að stuðla að friðsamlegri sambúð gyðinga og múslíma með hátíðum, námskeiðum og fyrirlestrum. Gyðingar eru um 15.000 til 20.000 af tíu milljónum íbúa Svíþjóðar. Í skýrslu Glæpavarnastofnunar Sví- þjóðar frá árinu 2016 um glæpi, sem beindust gegn ákveðnum hópum eða einstaklingum vegna trúar, þjóðernis, stjórnmálaskoðana eða kynhneigðar, er talið að rekja megi 3% þeirra til gyðingahaturs. Um 7% glæpanna voru rakin til haturs á múslímum. Sænska lögreglan segist ekki hafa séð nein merki um að glæpum, sem raktir eru til gyðingahaturs, hafi fjölgað verulega í Svíþjóð frá árinu 2014 þótt landið hafi tekið á móti um 400.000 innflytjendum síðan þá. Fræða „nýja Svía“ um fjöldamorðin á gyðingum  Margir ungir flóttamenn höfðu aldrei heyrt um helförina AFP Gegn hatri Siavosh Derakhti (2. frá vinstri), stofnandi hreyfingar gegn gyðingahatri, ræðir við ungmenni í Malmö. Voltaren Gel er bæði verkjastilland og bólgueyðandi Vöðva eða liðverkir? Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. i va dlega upplýsingar á umbúðum . 15% afslátturaf 100g og 150gVoltaren Gel

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.