Morgunblaðið - 06.03.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.03.2019, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær frændi okkar og vinur, MARGEIR SIGURÐUR VERNHARÐSSON, Grundarstíg 10, Hvammstanga, lést á heimili sínu fimmtudaginn 28. febrúar. Útför hans verður frá Hofsóskirkju laugardaginn 9. mars klukkan 15. Fyrir hönd aðstandenda, Birna Dýrfjörð Þeir Þorkell og Árni Bergur voru fádæma húmoristar hvor með sínu móti. Ég heyri í huga mér hvellu hlátrasköllin í systrunum, Rúnu og Rannveigu, og henni ömmu þegar þeir fóru á kostun- um. Einar stóð þeim vel á sporði; leiftrandi og lágstemmd kímni- gáfan, næmi á tilsvör og takta fólks, og eftirhermurnar, maður lifandi! Björn, sem var tveimur árum yngri en ég, varð líka sagnameistari af Guðs náð svo allt varð að sögum og ævintýrum hjá honum. Við Gunnar, yngsti bróðirinn, vorum einatt í hlut- verki hlustandans og áhorfand- ans, þakklátir aðdáendur. Nú er- um við tveir eftir af þessum stóra bræðrahópi. Það er svo margs að minnast og margt að þakka. Því fá engin orð lýst. Öðrum fremur var það hann Einar sem kveikti í mér áhugann á guðfræði og hefðum og iðkun kirkjunnar og einhvern veginn varð sjálfsagt að feta í fótspor hans. Köllun hans var svo ein- læg, áhuginn svo smitandi og þekking hans snemma svo maka- laust yfirgripsmikil og djúp. Allt fram undir hið síðasta var hægt að fletta upp í honum um hvað- eina og fá greið svör og traust. Ég sakna samtala okkar. Það var alltaf gott að leita til hans um hvaðeina, fræðin og sögu, pólitík, skáldskap, tónlist, sálma og trúarkveðskap og bænamál kristninnar, allt vissi Einar og mundi manna best, og um móðurmálið og latínu og grísku, já og flugvélar – nú eða bara til að hlæja, rifja upp gamlar minn- ingar eða skiptast á sögum og at- hugasemdum um líðandi stund. Einari var hvíldin kærkomin og hann átti góða heimvon. En hjá okkur er tómarúmið mikið, missirinn sár. Við Kristín biðjum Guð að leggja líkn sína og bless- un yfir það allt og umvefja ykk- ur, Guðrún Edda og börn og barnabörn, náð sinni og friði. Ég kveð kæran bróður og bið með orðum Einars afa Sigur- finnssonar: Nú er bráðum lokið leið til landsins dýrðar bjarta. Ljómar bak við dapran deyð Drottins náðarsólin heið. Lofi Drottin hugur, tunga og hjarta. Karl Sigurbjörnsson. Senn við sólarlag hnígur síðasti geisli við haf, birtist sem afturelding allt það er lífið gaf. Líttu litbrigðin fögur, ljósberans handaverk góð, vefari lífsins vefur vonar- og ástaróð. Minningar mínar um föður- bróður minn eru baðaðar sólskini. Segir allt um hvernig hann var og reyndist mér alla tíð. Minning sem leitar oft á hugann er lýsandi fyrir glettni hans, hvern- ig hann setti hlutina í samhengi á sinn skemmtilega hátt. Hann heim- sótti mig í glaða sólskini á Bæ í Skagafirði í júní fyrir níu árum, þar sem ég átti vinnustofudvöl í mánuð. Hann var á leiðinni í Svarfaðardal á kært sveitasetur þeirra Guðrúnar Eddu. Bústörfin biðu, sláttur í nánd og tilhlökkun geislaði af hon- um sólbrúnum og sællegum. Er hann spurði hvernig mér liði í Skagafirði, sem ég hafði aldrei aug- um litið áður, lyftist hann upp, er ég svaraði að mér liði eins og ég hefði verið þar áður og fyndist ég svíkja lit að segja hann fegurstan á Ís- landi, verandi Arnfirðingur. Það er ekki nema von – þú ert ættuð héðan! Svo hló hann sínum milda hlátri og skemmti sér yfir undrun minni. – Eldpresturinn fæddist hér og þú ert afkomandi hans! Eins undrandi og ég var á Drangey allan þennan tíma, var þessi heimsókn Einars mér önnur opinberun. Nokkru síðar heimsótti ég þau Guðrúnu Eddu í Svarfaðarsæluna. Iðandi hvolpakös í kassa og yndis- kúturinn Rökkvi í faðmi Magneu. Sól í sál og sinni. Hugurinn leitar langar leiðir. Komið við hjá þeim í Kjós í bernsku á leið vestur til Ólafsvíkur. Kaffi drukkið, ótal gamansögur flugu. Þeir voru óborganlegir húmoristar bræðurnir. Í einni heimsókninni laumaði ég sígarettusprengju í vindil Einars með fullu samþykki foreldra minna, er sjálf höfðu lent í tilræði dóttur sinnar á viðkvæmum augnablikum, með ókunnuga áhorfendur úti í bæ. Einar tók flug- eldasýningunni úr vindlingnum með hláturskasti eins og hans var von og vísa. Mér óx því ásmegin. Næsta fórnarlamb varð sr. Rögn- valdur á Staðastað. Húmor, glettni, gæska. Þannig minnist ég Einars alla tíð. Þeir voru perluvinir þeir pabbi, áttu skap saman. Einar leysti pabba iðulega af í prestsverk- um í Áskirkju. Í veikindum hans einnig í kennslu í guðfræðideildinni og í þýðingarnefnd biblíunnar. Ómetanlegur stuðningur við föður minn og ófá sporin átti hann heim til foreldra minna vegna þess alls og alls hins sem hann var bróður sínum. Eftir lát föður míns 2005 leitaði ég oft til Einars með skrifin mín. Hann var hafsjór af fróðleik, upp- örvandi og bóngóður. Mikið var gott að eiga hann að. Eitt sinn var sagt við mig í Sví- þjóð að ég hefði fæðst inn í sam- hengi. Áttaði mig þá á því að hafa tekið því sem sjálfsögðu að vera rík að frændgarði. Samhengið, þessi skemmtilegi, stóri hópur föður- og móðursystkina. Þessi umfaðmandi áhugi og hlýja um mig og okkur öll. Gæfa að hafa fæðst inn í þetta góða, sterka, samheldna samhengi. Það kvarnast úr, ég finn tilfinnanlega fyrir því. Ég kveð frænda minn með trega og djúpu þakklæti fyrir allt. Guð blessi fjölskyldu hans og gefi þeim styrk. Blessuð sé minning elsku Einars föðurbróður míns. Harpa Árnadóttir. Þau verða þung sporin til kirkj- unnar í dag, þegar ég kveð minn ágæta lærimeistara, vin og frænda, Einar Sigurbjörnsson. Feður okkar voru fjórmenning- ar, og ég þakka mínu sæla fyrir að hafa ekki uppgötvað það fyrr en eftir að ég var löngu útskrifuð, þar sem spurning hefði verið, hvort þau Guðrún Edda svo og Árni Bergur hefðu fengið að prófa mig í sínum greinum vegna ættartengsla. Einar var skemmtilegur kennari og kenndi okkur raunar miklu meira en bara trúfræðina. Hann gat verið afar gamansamur og kryddaði oft fyrirlestra sína með gamansögum. Ég fékk líka að kynnast því betur síðar, hversu spaugsamur hann gat verið. Hann var líka ævinlega uppörvandi og hvetjandi, ekki síst þegar við vor- um að skrifa ritgerðir. Líkt og aðrir kennarar guðfræðideildar, þá lét hann okkur yfirleitt lesa íslenskt efni, oftast efni frá sjálfum sér, enda kenndi hann okkur líka játn- ingafræðina og trúfræðina eftir þá nýútkomnum bókum sínum. Þetta átti að auðvelda okkur skilninginn á námsefninu. Guðfræði hans var skýr og hann hafði sínar ákveðnu skoðanir á mönnum og málefnum, og lét þær oft í ljós. Þegar ég fór í það að búa til bók upp úr BA-ritgerð minni um Brynj- ólf biskup þá bað ég Einar um að lesa handritið yfir og treysti honum best til þess. Hann gerði það með ánægju og benti mér á margt, sem mátti betur fara og miðlaði af kirkjusöguþekkingu sinni, en hann var heill fræðasjór líkt og faðir hans, enda kom maður aldrei að tómum kofunum hjá honum, ef maður leitaði til hans með einhver álitamál eða var í vafa um eitthvað í játninga- eða trúfræðinni. Allt varð það skýrara eftir útskýringarnar hjá honum. Það vantaði ekki. Og alltaf var hann jafn uppörvandi sem forðum. Eftir að ég komst að því hversu náskyld við vorum þá kynntist ég frændrækninni í honum. Við höfð- um oft samband í gegnum tölvu- póstinn. Ég sendi honum stundum athyglisverðar greinar úr norræn- um blöðum, helst dönskum, sem mér fannst umræðuverðar, og við skiptumst á skoðunum um þær, og spaugsemin var sjaldnast langt undan. Hvenær sem greinar eftir mig birtust í Morgunblaðinu leið ekki langur tími þangað til ég fékk póst frá honum, þar sem hann þakkaði fyrir þær og lét álit sitt í ljós á efn- inu um leið og hann hvatti mig til frekari skrifa. Við vorum líka oftast sammála um ýmis málefni. Eftir að hann veiktist og minna varð um tölvupósta okkar í milli og kveðjur af ýmsum tilefnum, þá saknaði ég þess. Sá söknuður verð- ur ekki minni nú þegar ég kveð hann hinstu kveðju. Á þeim tíma- mótum er efst í huga mér ómælt og innilegt þakklæti fyrir góða, skemmtilega og stórfróðlega upp- fræðslu og leiðbeiningar í deildinni og æ síðan, þegar ég hef þurft á því að halda, svo og góða og trygga við- kynningu og vináttu gegnum árin og frændræknina sömuleiðis, um leið og ég bið honum allrar bless- unar Guðs í ríki ljóss og friðar. Guð- rúnu Eddu og öðrum aðstandend- um votta ég mína innilegustu samúð. Blessuð sé minning míns kæra frænda og lærimeistara. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Margt lífslánið hefur mér hlotn- ast sem ég má vera og er þakklátur fyrir. Eitt slíkt er að hafa fengið að kynnast Einari Sigurbjörnssyni og mega eignast hann að vini. Kynnin hófust í Guðfræðideild HÍ. Minnist ég hans frá þeim dög- um, eins og allar götur síðan, fyrir hlýtt viðmót hans, hógværð en einnig glaðværð hans og spaug- semi. Þar fór heldur ekki framhjá neinum hvílíkur afburðanámsmað- ur hann var. Nánir vinir urðum við hins vegar ekki fyrr en við urðum nágrannaprestar á Hálsi og Stað- arfelli í Þingeyjarprófastsdæmi, eins og það hét þá. Þó að samvist- irnar þar væru stuttar mynduðust engu að síður með okkur vináttu- tengsl sem aldrei rofnuðu né nokk- urn skugga bar á. Á Lundúnaárum mínum urðu samskiptin eðlilega ekki mikil en eftir að heim til Hóla kom hófust þau að nýju. Þá var gott að eiga þau hjónin Einar og Guð- rúnu Eddu að. Um árabil voru þau ómissandi á Hólahátíð, en þá leiddu þau pílagríma úr Svarfaðardal yfir Heljardalsheiði heim að Hólum við miklar vinsældir. Eftir að þau tóku að þreytast á göngunni lögðu þau göngufólki engu að síður lið með leiðbeiningum og fararblessun heima á Atlastöðum, sem var sælu- reitur þeirra hjóna í sveitinni, en frá þeim bæ er lagt á heiðina. Á þessum árum var Einar fulltrúi Háskóla Íslands í stjórn Guðbrandsstofnunar á Hólum. Gott var að geta leitað til hans við stofnun þeirrar merku mennta- og menningarstofnunar, sem er sam- starfsverkefni Hóladómkirkju, Há- skólans á Hólum og Háskóla Ís- lands. Lagði Einar margt gott og gagnlegt til stofnunarinnar, eins og raunar til alls þess sem hann lagði huga og hönd að. Ætíð var hann boðinn og búinn að leggja ráð- stefnuhaldi á Hólum lið með fyrir- lestrum og ýmiss konar aðstoð sem að gagni mátti koma. Ógleyman- legt er einnig þegar hann á síðustu stundu steig inn í hlutverk föður síns, Sigurbjörns heitins biskups, sem tekið hafði að sér að prédika á Hólahátíð en veiktist skyndilega. Hafði Sigurbjörn lagt grunn að prédikun sinni sem Einar spann síðan við og flutti við mikinn orðs- tír. Fyrir hið mikla framlag Einars og Guðrúnar Eddu til Hólastaðar á mínum árum þar er ég óendanlega þakklátur. Við hjónin minnumst Einars með virðingu og mikilli þökk og biðjum honum og ástvinum hans öllum blessunar Guðs. Blessuð sé minning Einars Sigurbjörnssonar. Jón Aðalsteinn Baldvinsson. Við hjónin áttum því láni að fagna að þekkja og eiga samskipti við Einar Sigurbjörnsson og fjöl- skyldu hans bæði í einkalífi og starfi. Kynni okkar hófust fyrir al- vöru þegar við Guðrún Edda vor- um á tímabili í stjórn Sumarbúða KFUK í Vindáshlíð. Það hlutverk reyndi ekki síður á eiginmenn okk- ar og hæfileika þeirra. Einar og Guðbjörn fengu það verkefni að setja saman dúkkuhús sem voru vinsæl þegar stelpurnar sem dvöldu í sumarbúðunum fóru í búðarleik. Þeir náðu vel saman og alltaf var Einar með gamanyrði á vör og sagði sögur. Stundum gleymdu dúkkuhúsasmiðir stund og stað og mikið hló Einar dátt einu sinni þegar í ljós kom að þeir höfðu skrúfað stærra húsið vitlaust sam- an og þurftu að byrja upp á nýtt. Við tengdumst nýjum böndum þegar við eignuðumst dætur sama árið, 1986. Þær urðu vinkonur og bekkjarsystur, bæði í grunnskóla og í Tónlistarskólanum í Reykja- vík. Einar tók að sér að keyra þær í Tónlistarskólann og stundum þurfti hann að bíða fyrir utan húsið hjá okkur vegna þess að Hildur dóttir okkar var ekki tilbúin. Einu sinni sem oftar komu þær Magnea of seint og fengu skömm í hattinn. Dóttur okkar varð þá að orði: „Þetta er allt pabba hennar Magn- eu að kenna.“ Þetta var auðvitað fjarri sanni en tilraun til þess að bjarga sér fyrir horn. Enginn hafði meira gaman af þessari sögu en Einar sjálfur. Hann var skemmti- legur pabbi sem leyfði þeim fúslega að klæðast gömlum fötum af hon- um þegar þær ákváðu að setja upp leikrit. Þegar þær urðu eldri nutu þær oft góðs af greiðvikni Einars. Enda sagði Hildur dóttir okkar þegar hún frétti andlát hans: „Ein- ar var yndislegur og góður maður og hjálpaði til við að ala mig upp, ég er þakklát fyrir að hafa þekkt hann.“ Hún er núna erlendis en sendir hlýjar kveðjur. Sem samstarfsmenn við Há- skóla Íslands áttum við Einar mörg sameiginleg áhugamál. Við tókum bæði þátt í Nordhymn, norrænu samstarfi um rannsóknir á sálmum og sálmalögum, og fórum stundum saman á fundi og ráðstefnur. Þar sást greinilega hve vel Einar var metinn og hve mikil virðing var borin fyrir þekkingu hans og rann- sóknum. Stundum urðu fundirnir langir og þreytandi eins og gerist. Þá var ekki slæmt að sitja við hlið- ina á Einari, sem lumaði oft á fynd- inni athugasemd sem hann hvíslaði að mér, eða hann kastaði fram fyrriparti enda var hann mjög hag- mæltur. Loks áttum við Einar sam- starf í sálmabókarnefnd íslensku þjóðkirkjunnar, þar sem hann var formaður. Í stuttu máli féll aldrei neinn skuggi á samstarf okkar. Það var alltaf gott að leita til hans, þægilegt að vera nálægt honum, öruggt að treysta á framlag hans. Einar Sigurbjörnsson var greindur maður, góðviljaður og greiðvikinn. Hann var vissulega ljúfur en gat staðið fast á skoðun- um sínum og var alltaf trúr sann- færingu sinni. Að leiðarlokum er okkur efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að eiga samleið svo lengi með Einari. Við vottum fjöl- skyldu hans innilega samúð og biðj- um Guð að blessa minningu Einars Sigurbjörnssonar. Margrét Eggertsdóttir Guðbjörn Sigurmundsson. Hún er ógleymanleg stundin sem við áttum með Einari og Guðrúnu Eddu ásamt nokkrum ferðafélögum á fjallinu Tabor í Ísrael haustið 1984 þegar guð- fræðinemar sóttu Landið helga heim. Sú stund með vinum okkar var sveipuð gleði og birtu sem tengdi við fornar kristnar heim- ildir sem greina frá því að þar hafi Jesús íklæðst himneskri dýrð sem vinir hans urðu vitni að. Það var mikið hlegið þegar við, þá unga parið, sem vorum klædd í stuttbuxur þurftum að hjúpa okkur handklæðum til þess að geta skoðað kirkjuna á tindi fjallsins og stundin var fest í minningunni. Þegar við giftum okkur tæpu ári síðar var það Einar sem ann- aðist athöfnina. Í ræðu sinni fór hann með okkur að stundinni á Tabor sem við áttum sameigin- lega í minningunni. Fjallsins þar sem vinir Jesú höfðu fengið að reyna einstakan atburð sem þeir vildu varðveita og stöðva tímans rás til að njóta að eilífu. Einar minnti okkur á að brúðkaups- dagurinn væri slík stund sem við vildum gera eilífa en hann myndi renna sitt skeið líkt og aðrar stundir. Minningin um daginn og inntak hans væri sá auður sem við gætum ætíð sótt í og horft í gleði til. Þessi minning hefur sótt á hugann í aðdraganda andláts okkar góða vinar sem var um leið presturinn okkar, kennari og leiðbeinandi í doktorsnámi. Fyrstu kynni okkar af Einari voru þegar hann var deildarforseti guðfræðideildar og Guðlaug Helga lagði leið sína í aðalbyggingu Há- skóla Íslands til að kanna með nám í guðfræði. Sú alúð, hlýja og virðing sem mætti henni hjá Einari hafði þau úrslitaáhrif að hún hóf nám við guðfræðideildina. Þessi ákvörðun átti eftir að leiða til margs góðs, m.a. þess að eignast vináttu þeirra hjóna Einars og Guðrúnar Eddu. Vináttu sem hefur verið óslitin og einkennst af gagnkvæmri um- hyggju. Hann skírði elsta son okk- ar og þau hjón fylgdust með börn- um okkar og nú síðast barna- börnum. Við minnumst þess þegar bókakassarnir hans Einars voru fluttir af Ásvallagötunni í Bauga- nes, þeir þyngstu sem Lárus man eftir að hafa borið. Einnig vegferð- arinnar í doktorsnámi Guðlaugar Helgu þar sem við stóðum öll sam- an sem eitt og glöddumst þegar settum áfanga var náð. Þá hefðum við einnig viljað stöðva tímans rás um stundarsakir. Einar var einstakur leiðbein- andi, auðmjúkur, mildur en ákveð- inn. Hann lagði sig fram um að miðla og læra með doktorsnem- anda sínum um líknandi meðferð og reynslu fólks sem haldið er lífs- ógnandi sjúkdómum. Hann hvatti til dáða og uppörvaði nemanda sinn sem sveiflaðist fram og til baka eins og tilheyrir í slíku námi. Blessuð mín, voru jafnan orðin hans sem virtust hafa þann töframátt að það sást til sólar í doktorsverkefninu og Guðrún Edda stóð þar þétt við hlið. Nú erum við í þeim sporum að stundirnar með Einari verða ekki fleiri. Við getum ekki stöðvað gang tímans en allt sem þær gáfu okkur er vel geymt og varðveitt. Elsku Guðrún Edda, Sigur- björn, Guðný, Magnea og fjölskyld- ur. Við biðjum algóðan Guð að vera með ykkur, hugga og styrkja í sorginni. Við þökkum Guði fyrir Einar og vinastundirnar með honum. Megi hann ávallt vera Guði falinn. Guðlaug Helga, Lárus og fjölskylda. Andlát vinar míns Einars Sigur- björnssonar kom mér ekki á óvart en þó fannst mér erfitt að trúa að hann væri fallinn frá. Við höfðum þekkst lengi, hist á göngum háskól- ans óteljandi sinnum þegar ég var á leið á fund í þýðingarnefnd Gamla testamentisins, en kynnin urðu enn nánari þegar við fórum saman yfir Nýja testamentið fyrir nýja biblíu- útgáfu. Ógleymanlegir eru vinnu- fundir okkar á Atlastöðum í Svarf- aðardal og á Þingeyri þar sem Guðrún Edda, kona hans, sá um að sem best færi um okkur, gaf okkur að borða, og lét okkur taka hlé reglulega, þegar við gleymdum okkur, og njóta staða og veðurs. Við Jakob maðurinn minn ókum á fallegum sumardegi fyrir hvatn- ingu Einars norður í Svarfaðardal til að ganga með þeim hjónum yfir Heljardalsheiði ásamt hópi fólks, nutum þekkingar þeirra beggja og fundum vel hve kært var með þeim. Einar var óvenjulega hlýr maður. Stutt var í brosið og það náði til augnanna, sem alls ekki er sjálfsagt. Hann var víðlesinn og fróður og alltaf tilbúinn að gefa góð ráð í fræðunum ef ég leitaði til hans en hann var ekki síður reiðubúinn að veita styrk með fallegum, hlýj- um orðum þegar ég mest þurfti á að halda. Við Jakob sendum Guðrúnu Eddu, börnum þeirra Einars, tengdabörnum og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guðrún Kvaran. Kveðja úr B-bekknum. Sumt samferðafólk er þeim hæfileika gætt að það fær sæti í vinaminninu og á það sæti síðan al- veg óháð því hvort samfundir verða margir eða fáir. Þannig maður var Einar Sigurbjörnsson. Hann var ekki hávaðasamur félagi í Einar Sigurbjörnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.