Morgunblaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 Mig langar til að segja nokkur orð til minningar um afa minn hjartkæran. Ég er kannski ekki nógu gömul til að segja frá mörgu á hans löngu ævi, en það sem afi minn gaf mér af hlýju og ástúð var engu öðru líkt, svo yndislegur og góður var hann. Hann var alltaf svo hjálp- samur. Elsku góði vinur minn hann Svenni afi. Orð fá því varla lýst hversu mikið mér þykir vænt um Svenna afa og hversu mikil áhrif hann hefur haft á mig. Duglegri og góðhjartaðri mann er erfitt að finna og á ég honum afa margt að þakka, afi kenndi mér marga hluti sem ég mun alltaf kunna að meta og nota í lífinu. Afi var sterkur maður með fallegt og gott hjarta. Það var alltaf Sveinn Sigurbjörn Garðarsson ✝ Sveinn Sigur-björn Garðars- son fæddist 7. októ- ber 1934. Hann lést 17. febrúar 2019. Útförin fór fram 2. mars 2019. hægt að treysta á hann og ef mann vantaði aðstoð við eitthvað gat maður sko alltaf hringt í Svenna afa. Afi kenndi mér það mikilvægasta í lífinu; að vera góður við aðra og alltaf rétta hjálparhönd ef eitthvað er, afi var maður sem vildi gera allt fyrir alla og lagði hart að sér við það, það sá ég alla daga. Mér þótti afar vænt um afa og hann mun allt- af fylgja mér. Ég veit að hann fylg- ist með mér og passar upp á mig og alla aðra sem honum þótti vænt um og það eru margir. Vertu sæll afi minn. Ég syrgi þig en góðu minningarnar og þakklæt- ið eru sorginni yfirsterkari. Þú hef- ur markað líf mitt sem og fjölda annarra og sá sem auðgar líf ann- arra hefur vissulega lifað góðu og þýðingarmiklu lífi. Takk fyrir sam- veruna, gleðina og umhyggjuna. Þín Valgerður Guðný. ✝ Bragi Þor-bergsson fædd- ist 7. júlí 1935 í Keflavík. Hann lést 25. febrúar 2019 á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi. Foreldrar hans voru Þorberg- ur Pétur Sigurjóns- son, f. 11. október 1904, d. 26. desem- ber 1975, og Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir, f. 20. október 1899, d. 14. febrúar 1990. Þau eignuðust fimm syni og komust fjórir þeirra á legg. Synir þeirra eru Gunnar, f. 7. nóvember 1929, d. 6. ágúst 2015, Freysteinn, f. 12. maí 1931, d. 23. október 1974, Bragi, f. 11. desember 1932, d. 1. maí 1935, Sigurjón, f. 17. janúar 1934, og Bragi. Fyrir átti Þor- bergur soninn Karl, f. 14. júlí 1929. Þorbergur og Jónína skildu og átti Þorbergur fimm börn með seinni konu sinni. Þau eru Ásmundur, f. 15. apríl 1945, d. 12. júlí 2013, Kristinn, f. 1. júní 1947, Einar, f. 8. nóvember 1950, d. 29. janúar 2014, Stefán, f. 23. ágúst 1956, og Guðrún Margrét, f. 5. maí 1961, d. 10. desember 1991. Bragi fór í fóstur þegar hann var ungbarn og ólst upp hjá fósturforeldrum. Fósturmóðir hans var Guðrún Sigurbergsdóttir, f. 25. september 1906, d. 7. janúar 1991, og fóstur- faðir Guðmundur Guðmundsson, f. 28. júlí 1900, d. 9. september 1991. Uppeldisbræður hans voru Ólafur Kristberg Guð- mundsson, f. 29. maí 1930, d. 27. júlí 2018, og Hörður Guðmundsson, f. 16. febrúar 1929. Bragi kvæntist Eddu Júlíu Þráinsdóttur. Dóttir þeirra er Dagný Þóra Bragadóttir, f. 7. september 1977. Fyrir átti Edda Þráinn Ólaf Jensson, f. 24. ágúst 1958, Melkorku Eddu Frey- steinsdóttur, f. 16. ágúst 1960, og Freydísi Jónu Freysteins- dóttur, f. 9. desember 1966. Bragi lauk BA-gráðu í ís- lensku, ensku og almennum málvísindum frá Háskóla Ís- lands árið 1970 og prófi í upp- eldis- og kennslufræðum árið 1971. Hann vann við landmæl- ingar hjá Orkustofnun á annan áratug en starfaði lengst af sem yfirkennari í Þinghólsskóla í Kópavogi. Útför Braga fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 6. mars 2019, klukkan 13. Mig langar að minnast míns góða vinar og trausta samstarfs- manns til margra ára, Braga Þor- bergssonar yfirkennara, með nokkrum orðum. Samstarf okkar í Þinghólsskóla var afar gott og mér fannst mjög traustvekjandi að vinna með honum. Hann var einn þeirra manna sem fóru ekki um með neinum látum, heldur vann sitt starf með hægðinni og mikilli nákvæmni. Hann var ljúfur og þægilegur í allri umgengni, en fastur fyrir er hann hafði myndað sér skoðanir á hlutunum og það var ekki auðvelt að fá hann til að skipta um skoðun þegar hann hafði tekið ákvörðun. Þetta eru kostir sem ég kunni vel að meta og þó að við hefðum ekki alltaf sömu sýn á hlutina gátum við alltaf talað okkur á sameiginlega niðurstöðu. Bragi var einstaklega nákvæmur í sínum verkum og mætti segja mér að þar hafi skákin hjálpað til. Hann var góður skákmaður og náði glæsilegum árangri í þeirri íþrótt ekki síst í bréfskák, en hann tók þátt í mörgum skákmótum á þeim vetfangi og stóð sig þar með mikilli prýði. Talandi um skák, þá er mér mjög minnisstætt hve auð- velt hann átti með að semja stundatöflur fyrir skólann á haust- in, en þar kom skákkunnáttan og rökhugsunin að góðum notum. Þar var Bragi á heimavelli og ég dáðist oft að því hvað hann gat allt- af fundið lausnir á málum sem mér fannst óleysanleg. Það var Braga mikið kappsmál að skila stunda- töflum þannig til kennara, að ekki væru neinar eyður í þeim og að þeir fengju samfelldan vinnudag eins og nemendurnir. Bragi var af- ar hlédrægur og kannski örlítið feiminn og ég fann fljótlega að hann vildi fremur sjá um ýmiss konar skýrslugerð heldur en að hafa skikk á nemendunum, enda sagði ég við hann að ég skyldi sjá um krakkana ef hann sæi um möppurnar. Þessi verkaskipting hentaði báðum og vorum báðir ánægðir. Ég kveð Braga með mik- illi virðingu og þakklæti um leið og ég þakka honum fyrir samstarfið og sendi fjölskyldu hans mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guðmundur Oddsson. Bragi Þorbergsson ✝ Þórólfur Frið-geirsson fædd- ist á Stöðvarfirði 4. febrúar 1935. Hann lést á Landspítal- anum í Fossvogi 22. febrúar 2019. Foreldrar hans voru Elsa Jóna Sveinsdóttir, f. 7. ágúst 1912 á Bæjarstöðum við Stöðvarfjörð, d. 20. desember 1978, og Friðgeir Þorsteinsson, f. 15. febrúar 1910 í Þorsteinshúsi við Stöðvarfjörð, d. 31. maí 1999. Systkini Þórólfs voru Guðjón, Örn, Sveinn Víðir, Guðríður og Björn Reynir, þau eru öll látin. Hinn 24. desember 1958 gengu Þórólfur og Kristín Lilja Halldórsdóttir frá Kroppstöðum í Önundarfirði, f. 19. ágúst 1933, í hjónaband. Foreldrar hennar voru Halldór Þorvalds- son, f. 25. september 1895, d. 24. janúar 1975, og Ágústa Páls- dóttir, f. 22. ágúst 1903, d. 8. apríl 1946. Dætur Þórólfs og Kristínar eru: 1) Ágústa Þór- ólfsdóttir, f. 28. ágúst 1959, ræna lýðháskólann í Kungälv 1953-54 og lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1958. Hann stundaði sérnám í dönsku og stærðfræði við Kennara- háskóla Íslands og Kennarahá- skólann í Kaupmannahöfn 1974- 75, auk þess að sækja fjölda starfsnámskeiða. Ásamt því stundaði hann sjómennsku á sumrin. Þórólfur kenndi við Grunn- skóla Vopnafjarðar 1958-59, var skólastjóri við Grunnskólann á Eiðum 1959-63, skólastjóri á Fá- skrúðsfirði 1963-75, kennari við Víghólaskóla í Kópavogi 1976- 79, yfirkennari við Kópavogs- skóla 1979-86 og síðast kennari við Breiðholtsskóla. Í lok starfs- ferils síns vann Þórólfur sem ræsir hjá Golfklúbbi Reykja- víkur og sem bústjóri hjá Korpuskóla. Þórólfur starfaði að málum kennara og skóla á Austurlandi og í Kópavogi. Sat t.a.m. í stjórn Kennarasambands Austurlands. Hann sat í stjórn Ungmennasambands Austur- lands, var stofnfélagi Lions- klúbba á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði, var formaður Leik- félags Fáskrúðsfjarðar ásamt því að sinna ýmsum öðrum félagsmálum. Útför Þórólfs fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 6. mars 2019, klukkan 13. maki Sveinn K. Guðjónsson, f. 1. júní 1960. Þeirra börn a) Þórólfur Sveinn Sveinsson, f. 25. maí 1980, maki Halla María Hall- dórsdóttir, f. 15. febrúar 1981, þeirra börn eru Ágústa María, Vig- dís Lilja og Valdi- mar Sveinn. b) Halldór Sveinsson, f. 5. maí 1988, sambýliskona Selma Rán Lima, f. 21. nóvember 1996. 2) Elsa Björg Þórólfsdóttir, f. 10. júní 1962, sambýlismaður Alfreð S. Kristinsson, f. 11. nóvember 1964. Börn Elsu eru a) Kristín Lilja Jónsdóttir, f. 1. apríl 1984, maki Hallur Ólafur Agnarsson, f. 9. mars 1982, þeirra börn eru Mikael Logi, Gabríel Snær, Agnar Nóel og Harpa Máney. b) Hildur Ýr Jónsdóttir, f. 28. apríl 1992, dóttir Alfreðs er Vaka, f. 21. febrúar 1994. Þórólfur ólst upp í foreldra- húsum á Stöðvarfirði. Hann lauk landsprófi frá Eiðaskóla 1952, stundaði nám við Nor- Elsku pabbi. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut, gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Hvíl í friði, þínar dætur Ágústa og Elsa Björg. Elsku Doddi, komið er að kveðjustund. Mikill er missir fjöl- skyldunnar og allra sem kynntust þér. Ég kom inn í fjölskylduna sem ung kona, kærasta Dodda nafna þíns, og eignaðist strax ann- að heimili hjá Dodda og Stínu. Hlýjan, gestrisnin og gleðin sem mætti manni í Holtagerði var svo áþreifanleg og umvafði mann. Doddi var svipsterkur, fallegur maður, beinn í baki, hnarreistur, brosmildur og með stríðnisglampa í augunum. Hann hafði góða nær- veru og einstakt lag á að láta feim- inni stúlku líða eins og á heima- velli. Doddi var næmur á fólk, lagði mikið upp úr samskiptum og að fjölskylda og vinir hittust reglu- lega. Hann var einnig stríðinn með eindæmum og höfðum við gaman af því að stríða hvort öðru góðlát- lega. Orkan sem fylgdi honum var með ólíkindum, það hefði verið hægt að virkja alla þessu orku, hann var alltaf eitthvað að brasa. Þó að hann væri hættur störfum var eins og hann ræki fyrirtæki. Það þurfti að sinna vorverkunum, setja niður kartöflur í Súðavík þar sem þau áttu sumarhús, tína tugi lítra af berjum og verka kjöt í frystikisturnar á haustin. Maður kom sko ekki að tómum kofanum í Holtagerði og alltaf var tekið á móti manni opnum örmum. Þakklæti er mér ofarlega í huga, fyrir að hafa verið tekið svona vel af afa og ömmu eigin- manns míns, fyrir að hafa fengið að kynnast Dodda, varið gæða- stundum með honum, fræðst af honum, ferðast með honum, skap- að ómetanlegar minningar, að börnin mín kynntust langafa sín- um sem var þeim svo undurgóður og blíður. Doddi var einn af þeim sem gefa mikið af sér með nær- veru sinni, hafði gildi sín og for- gangsröðun á hreinu í lífinu, ég tel mig vera ríkari að hafa fengið að vera samferða honum í þessi ár. Takk fyrir vináttuna. Elsku Stína, Gústa, Elsa, Doddi minn og öll Holtagerðisfjöl- skyldan, mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Halla María Halldórsdóttir. Elsku afi minn. margs er að minnast margs er að sakna Ég skírði þröst í höfuðið á þér hann datt úr hreiðrinu sínu ég gaf honum að borða kenndi honum að fljúga og gaf honum síðan frelsi til að þroskast og dafna hann kom alltaf aftur öll sumur og heilsaði upp á okkur hann þakkaði þér fyrir að kenna mér allt Ég hef bara átt einn afa, ég var bara svo heppin að eignast besta afa sem til er. Afa sem yfirgaf rúmið sitt svo ég gæti kúrt í afaholu. Afa sem bakaði fyrir mig vöfflur og eldaði heimsins bestu kjötsúpu. Afa sem gerði erfiðari stærðfræðidæmi svo ég gæti æft mig áður en ég færi að sofa svo ég væri tilbúin fyrir fyrsta bekk. Afa sem las yfir og lagaði fyrstu skáldsögu mína og hélt svo áfram að lesa yfir og laga skólaverkefnin í tugatali. Afa sem stríddi mér og kallaði mig gikk því ég vildi ekki borða augað úr svið- inu eða útrunna mjólk. Afa sem kenndi mér að veiða og sýndi mér hvernig best væri að tína ber eins og atvinnumaður. Afa sem tók mig út um nætur að tína orma fyrir næstu veiði. Afa sem gerði allt fyr- ir mig. Afa sem alltaf var stoltur af mér. Afa sem alltaf sýndi mér hversu mikið hann elskaði mig. Afa sem alltaf var afi minn. Gáfnafar og gæska, um gildir afa minn. eilíf andans æska, hið allra besta skinn. Þín, Hildur Ýr. „Hvar er Stína?“ segir afi, í annað eða þriðja skiptið, og ég rétt búinn að sitja hjá honum í stund- arfjórðung eða svo. „Eigum við að hringja í Stínu?“ bætir hann við og réttir mér símann sinn. Ég hlýði og hringi í ömmu Stínu og spjalla við hana stundarkorn. „Amma var bara nokkuð hress,“ segi ég og bæti við „hún er að koma bráðum, eftir svona hálftíma.“ Afi sest upp í rúminu og bara það virðist vera nokkuð erfitt, hann hóstar og er móður. „Nú, er það,“ segir hann og það leynir sér ekki á svipnum að hápunktur dagsins nálgast, þegar Stína kemur. Það er eins og öll þreyta og þrautir sem erfiðum veikindum fylgja hverfi eitt augnablik. Það er gott til þess að vita að afi á þessa upplyftingu vísa, því ekkert virðist stoppa ömmu í að heimsækja kallinn sinn. Við förum yfir það allra helsta, hvernig gengur í námi og tóm- stundum hjá Ágústu Maríu og Vigdísi Lilju, hvernig Höllu Maríu gengur með ritgerðina og hvort Valdimar litli sé ekki alltaf jafn fjörugur. Þegar ljóst er að lífið gengur sinn vanagang leggst hann aftur út af og dormar. Það skiptir hann máli að vita hvað fjölskyldan er að fást við, hann vill vera tilbú- inn að gleðjast og fagna litlum og stóru sigrum. Og styðja við þegar reynir á. Ég tek í höndina á hon- um og vil að hann finni að ég sé til staðar, eins og hann hefur verið fyrir mig alla tíð. Handartak mitt breytir því ekki að senn líður að leiðarlokum. Lík- ami hans er búinn að þola ýmislegt í gegnum tíðina, erfiða hjartabilun í áratugi, lungnateppu, sykursýki og fleiri áföll. Fram til þessa hafa þessar raunir látið í minni pokann fyrir lífsgleði og -vilja sem allt sigraði, nema tímann, sem rann upp 22. febrúar síðastliðinn. Doddi afi helgaði líf sitt skóla- málum, sem kennari og skóla- stjóri. Það var hægt að leita til afa ef það þurfti aðstoð í stærðfræði eða dönsku, og það var gott. En dýrmætasta kennslan fór fram jafnt og þétt í gegnum tíðina. Og megnið af þeirri kennslu fór fram í vesturbæ Kópavogs, á stað sem fjölskyldan kallar Holtagerðið. Sem barn fékk ég þar athygli og umhyggju, sem unglingur skilning og þolinmæði, sem ungmenni á krossgötum húsaskjól og góð ráð. Og nú sem fullorðinn maður með fjölskyldu stendur hið sama enn til boða fyrir mig og mína. Doddi afi kenndi mér ákveðin gildi, sem ég mun reyna að til- einka mér til að geta veitt þeim sem standa mér næst öryggi og hamingju. Amma Stína, sem nú syrgir eiginmann sinn til rúmlega 60 ára, var kjölfestan á heimilinu og treysti gildin. Og þau fluttu með þeim frá Holtagerðinu í Árskóga og líka til Súðavíkur þar sem þau áttu sitt annað heimili. Elsku amma, mamma og Elsa frænka, og allt Holtagerðisfólk, ég bið ykkur huggunar og styrks. Þórólfur Sveinn Sveinsson. Þórólfur frændi okkar, föður- og afabróðir, skilur eftir sig ljúfar minningar um myndarlegan mann með silfurhvítt hár og stríðnis- glampa í dökkum augum. Við mæðgin vorum svo gæfusöm að kynnast honum og fjölskyldu hans betur en ella þegar við bjuggum á Ísafirði í rúman áratug eftir að hann og Kristín kona hans keyptu sér hús í sumarbyggðinni í Súða- vík. Þar var engum í kot vísað og það lýsir honum kannski ágætlega að um leið og hann stríddi bróð- urdótturinni á því að vera í þykk- ara lagi var engin undankoma með að þiggja meira af veitingunum. Þessi góðlátlega blanda af stríðni og höfðingsskap einkenndi hann í öllum samskiptum. Hann lá ekki á skoðunum sínum en var alltaf til í að ræða málin og óhræddur við að sýna viðkvæmni ef svo bar undir. Við kveðjum góðan og hlýjan frænda með þakklæti í brjósti fyr- ir allar gæðastundirnar sem við áttum með honum og fjölskyldu hans. Elsku Stína, Gústa, Elsa og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Elsa Arnardóttir og Þorgeir Jónsson. Horfinn er kær vinur og félagi, Þórólfur Friðgeirsson, fyrrum skólastjóri. Þórólfur tók við störf- um skólastjóra í Búðahreppi 1963. Fljótlega hófust kynni okkar og hans ágætu konu, Kristínar Lilju Halldórsdóttur. Guðrún og Þórólf- ur höfðu kynnst áður í Eiðaskóla. Hafa þessi kynni staðið meira en hálfa öld með miklum ágætum. Á þessum árum var félagsheim- ilið Skrúður nýlega tekið í notkun. Opnuðust þá möguleikar á fjöl- breyttu félagsstarfi. Þórólfur var mikill félagsmálamaður og var hann fenginn til að vinna að því að koma á fót frekara félagsstarfi. Stofnað var leikfélag og varð brátt öflugt starf í tengslum við það, settar upp margar sýningar og farið í leikferðir um fjórðung- inn. Tók Þórólfur virkan þátt í að leiða þetta starf. Þórólfur var dug- legur að hafa samband við for- ráðamenn og kunningja sína á öðrum stöðum áður en farið var í leikferðir og hefur það átt stóran þátt í því að oft var aðsóknin góð. Lionsklúbbur var stofnaður og starfaði af miklum þrótti. Stofnað var tónlistarfélag og á vegum þess var tónlistarskóli, blandaður kór og kirkjukór á vegum kirkjunnar. Samkórinn heimsótti nágranna- byggðarlög. Þórólfur kom á fót unglingaskóla og ýmsu fleira sem til framfara horfði. Eftir að við fluttum suður höf- um við átt fastan miða í Þjóðleik- húsinu ásamt Guðjóni bróður Þórólfs og konu hans Ásdísi. Eftir sýningar var farið í kaffi og rabbað saman um sýninguna. Voru þetta góðar og ánægjuleg- ar stundir. Um árabil komu fjölskyldur okkar saman á gamlárskvöld og fögnuðu nýju ári. Eftir standa ógleymanlegar minningar. Á svona langri vegferð er margs að minnast, samveru og samvinnu sem aldrei féll skuggi Þórólfur Friðgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.