Morgunblaðið - 06.03.2019, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019
Stella Stefánsdóttir viðskiptafræðingur á 50 ára afmæli í dag.Hún er með MS-gráðu frá Viðskiptaháskóla Kaupmannahafnarog er núna doktorsnemi í opinni nýsköpun við Háskóla Íslands.
„Ég er núna aðallega að einbeita mér að doktorsritgerðinni sem er
um opna nýsköpun, þ.e. samstarf um vöruþróunarferli hjá stærri fyr-
irtækjum og hvernig utanaðkomandi aðilar koma inn í ferlið eins og
viðskiptavinir, birgjar, notendur, rannsóknarstofnanir og háskólar.“
Stella gefur sér þó tíma til að taka þátt sveitarstjórnarmálum í sín-
um heimabæ, en hún er varabæjarfulltrúi í Garðabæ og situr í skipu-
lagsnefnd og er formaður stjórnar Hönnunarsafns Íslands. „Það er
nóg að gera í skipulagsmálunum og við erum að fara að byggja ný
hverfi á Álftanesi, við Lyngás og í Vetrarmýri þar sem verður meðal
annars fjölnota íþróttahús. Svo eru margir spennandi viðburðir í
Hönnunarsafninu, Hönnunarmars verður í lok mánaðarins og ýmsar
uppákomur í kringum það.“
Áhugamál Stellu eru fjölskyldan, félagsmál, útivist og ferðalög, en
hún fór til Tansaníu í fyrra með fjölskyldunni. „Ég fer mikið á skíði,
bæði svigskíði og gönguskíði, er nýkomin heim úr skíðaferð í Kitzbü-
hel í Austurríki þar sem við vorum fjórar fjölskyldur saman og við
fjölskyldan eyddum vetrarfríinu á Akureyri í brakandi blíðu. Ég hef
einnig gaman af því að fylgjast með dætrunum í fótbolta og handbolta
og höfum við síðustu ár líka verið að elta landsliðin okkar í knatt-
spyrnu á stórmót.“
Eiginmaður Stellu er Sigsteinn Páll Grétarsson, forstjóri hjá Arctic
Green Energy, og dætur þeirra eru Sara Líf 21 árs, Kristín Sif 19 ára,
Sonja Lind 15 ára og Eva Sóley 12 ára. Stella hélt upp á afmælið um
síðustu helgi en ætlar að njóta dagsins með fjölskyldunni í dag.
Í Garðabæ Stella ásamt dætrum sínum við Vífilsstaðavatn.
Ný hverfi og nýtt
íþróttahús að rísa
Stella Stefánsdóttir er fimmtug í dag
H
allgrímur Kjartansson
fæddist 6. mars 1959 í
Reykjavík. „Fjöl-
skylda mín var búsett
í Grunnavík í Jökul-
fjörðum og þar bjó ég fyrstu þrjú ár
ævinnar eða til 1962. Þá tóku allir
íbúar sig saman og fluttust búferlum
úr Grunnavíkurhreppi, sem þar með
lagðist í eyði. Ég fluttist til Ísafjarð-
ar með fjölskyldu minni þar sem ég
gekk í grunnskóla og svo Mennta-
skólann á Ísafirði, sem þá var nýlega
stofnaður.“
Að loknu stúdentsprófi 1979 lá
leiðin í læknisfræði við Háskóla Ís-
lands. Þaðan útskrifaðist Hall-
grímur vorið 1986. „Ég starfaði á
ýmsum stöðum innanlands að námi
loknu en dvaldi einnig í eitt ár í Sví-
þjóð við lækningar. Um áramót 1991
var ég ráðinn héraðslæknir á Þing-
eyri við Dýrafjörð. Vorið 1994 hélt
ég svo til Noregs í framhaldsnám í
heimilislækningum og sneri heim
með sérfræðiréttindin upp á vasann
haustið 1997.“
Hallgrímur sneri aftur til Þing-
eyrar en sú heilsugæslustöð samein-
aðist síðan með fleirum í Heilbrigð-
isstofnunina, Ísafjarðarbæ. Þar var
hann yfirlæknir heilsugæslu til árs-
ins 2004. Eftir það lá leiðin til Nor-
Hallgrímur Kjartansson læknir – 60 ára
Fjölskyldan Ferming tvíburasonanna Hilmis og Huga vorið 2016. Fermt var í Holtskirkju í Önundarfirði.
Meðal síðustu íbúa í
Grunnavíkurhreppi
Drengjaflokkur Vestra Synir Hallgríms spila með félaginu en Hallgrímur
er liðsstjóri. Lengst t.h. er þjálfari liðsins, Nebosja Knezevic.
Hafnarfjörður Þórey Rut
er fædd 13. júní 2018 kl.
02.35 á Akranesi. Hún var
54 cm við fæðingu og
3.340 g. Foreldrar hennar
eru Róbert Leifsson og
Kristín Dögg Kristins-
dóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
SMÁRALIND – KRINGLAN
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is