Morgunblaðið - 06.03.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 06.03.2019, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú nýtur vinnunnar í dag. Gættu þess að dreifa ekki kröftum þínum um of því slíkt leiðir ekki til neins. Þér tekst að ná takmarki þínu með aðstoð að minnsta kosti þriggja ann- arra. 20. apríl - 20. maí  Naut Gerðu það upp við þig hvað það er sem þú raunverulega vilt en hlustaðu ekki bara á skoðanir annarra. Hafðu kærleikann og for- dómaleysið með í för. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Fylgstu náið með heilsufarinu svo að þú sért undir það búin/n að mæta áskorunum vikunnar. Láttu ekki koma þér úr skorðum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Lífið snýst um að leysa vandamál, og því er betra að þau liggi í augum uppi. Gríptu það sem er fyrir framan þig og notfærðu þér það. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vegna vaxandi vinsælda þinna þarftu að eyða meiri peningum á næstunni. Haltu áfram á sömu braut og hlustaðu ekki á öfundarraddir annarra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft á hvíld að halda. Leitaðu ham- ingjunnar bæði í einkalífi og í starfi og láttu ekkert trufla áætlun þína. Farðu varlega inn í nýjar aðstæður. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur lagt hart að þér að undanförnu og ættir að fara þér aðeins hægar í dag. Það getur skipt sköpum fyrir árangur þinn að þú flytjir mál þitt af festu og þannig að allir skilji. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er nú einu sinni svo að stund- um þarf að gera fleira en gott þykir. Ef þú færð tækifærri til að taka stjórnina í einhverju máli, gríptu þá tækifærið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert ekki í skapi fyrir sjálfsaga og sjálfsafneitun í dag og því langar þig meira til að skemmta þér en vinna. Þú munt að öllum líkindum fá nýja innsýn í hlutina í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Láttu því áhyggjurnar ekki hrannast upp held- ur gakktu strax í málin. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það getur verið gott að fá aðra í lið með sér þegar verkefnin gerast flókin. Láttu því slag standa áður en þú bognar undan álag- inu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ef þú kærðir þig um, gætir þú bókað vinnu eða einhvers konar félagslíf hverja ein- ustu stund dagsins. Njóttu ánægjunnar sem fylgir þessu. Á Boðnarmiði rifjar AntonHelgi Jónsson upp „blendin fagnaðarlæti úr gömlu limruk- veri“: Þegar ég rímurnar rappaði með rytmanum salurinn stappaði og barfólkið kátt það blístraði hátt en bara sá einhenti klappaði. Prentvillupúkinn er alltaf nálægur og því þykir mér rétt að byrja á „stafsetningarlimru“ eftir Ólaf Stefánsson: Hann Sigmundur skýri á Skaga, var skírður í eldgamla daga. Það skírt er og hreint; þó skorti óbeint, skýrslu,- en það mætti laga. Þessu skylt yrkir Hjálmar Frey- steinsson um „Málhelti og fl.“ á fés- bókarsíðu sinni: Hróbjartur hímir í bælinu, haltur á fæti og mælinu, nærsýnn og loppinn, nýlega sloppinn af náttúruleysingjahælinu. Hér talar Hjálmar um „kjöraðstæður f. kísilver“: Yfir Bakka er blágrá misturskán, ber við himinn reykjarskýið þykkt. En hitt er bæði happ og glópalán að Húsvíkingar finna ekki lykt. Allt er þegar þrennt er – enn yrk- ir Hjálmar: Í bönkunum annríkið alltaf vex. Mér illa líst á fjóra, ég held að við þyrftum svona sex seðlabankastjóra. Þorsteinn Gylfason yrkir: „Ég var eins og vera ber,“ mælti Vera. „En ekki hver? Fæst má nú gera“ Og fyrr má nú vera en vera eins og Vera ber. Og að lokum er „Megrun“ eftir Hólmfríði Bjartmarsdóttur: Það er gamanlaust um það að glettast og gárungar létu það fréttast. Hún var víst ekki klók þessi kona sem tók af sér hausinn, því hún vildi léttast. Þessi þingvísa Andrésar Björns- sonar er klassísk: Flokkurinn þakkar fögrum orðum fyrir það að gera nú, þetta sem hann þakkaði forðum að þá var látið vera. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Sigmundi, Hróbjarti og góðu fólki „TEKURÐU GAMLA UPP Í?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að selja sportbílinn þegar von er á erfingja. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ELSKA AÐ SJÁ ÁRSTÍÐASKIPTIN FRÁ SUMRI YFIR Í HAUST … EÐA, EINS OG ÉG KALLA ÞAÐ, FRÁ RJÓMAÍS YFIR Í NÝBAKAÐAR SMÁKÖKUR LEYNDARMÁLIÐ Á BAK VIÐ VELGENGNI ER ÚTHALD! ALDREI GEFAST UPP! Í TÍUNDA SKIPTIÐ, FARÐU ÚT MEÐ RUSLIÐ! ÉG OG MINN KJAFTUR! ENN ENGU NÆRUPPLÝSINGAR Víkverji hefur um nokkurt skeiðbeðið eftir þýsku sjónvarps- seríunni Babýlon Berlín, sem Rík- issjónvarpið hóf sýningar á um helgina. Þættirnir fjalla um lög- reglumanninn Gereon Rath, sem kemur frá Köln til Berlínar árið 1929 og þarf að glíma við ýmis mál. Þætt- irnir eru byggðir á flokki bóka sem fjalla um ævintýri Raths. Víkverji hefur lesið fyrstu bókina, sem heitir Nasser Fisch eða Blautur fiskur og mun vera lögreglumál í Berlín yfir lík sem ekki er hægt að bera kennsl á. Víkverji veit ekki hvort þetta orða- lag er líka notað í lögreglunni á Ís- landi. x x x Mikill kraftur var í Berlín á þess-um tíma. Borgin var deigla sköpunar á öllum sviðum og iðaði af lífi, ekki síst næturlífi. Hún átti sér líka skuggahliðar, glæpagengi skiptu henni upp á milli sín og mannslíf gátu verið lítils virði. Hún var einnig vettvangur pólitískrar baráttu og átaka. Kommúnistar fóru mikinn og stutt í land byltingarinnar. Á hinum ás stjórnmálanna voru nasistar að ryðja sér til rúms. Berlín á milli- stríðsárunum er því upplagt sögu- svið fyrir krassandi atburðarás. x x x Víkverji hafði heyrt þessum þátt-um hrósað og var nokkuð hrifinn af þeim fyrsta. Í það minnsta var ekkert hægt að finna að umgjörð- inni. Víkverji var reyndar ekki uppi á þessum tíma, en búningar og annað virkaði trúverðugt. x x x Hvað atburðarásina sjálfa snertirer of snemmt að fella dóm. Í fyrsta þættinum voru margir kynnt- ir til sögu og mörgum boltum hent á loft svo að erfitt var að henda reiður á öllu sem gerðist, hvað þá að halda því til haga í gljúpu heilatetri í heila viku þar til næsti þáttur verður sýndur. Af fyrsta þættinum að dæma er ljóst að menn kölluðu ekki allt ömmu sína í Berlín á þessum tíma og þeim sem muna skýrmælgina og sið- prýðina úr þáttunum um Derrick lögregluforingja gæti fallið allur ket- ill í eld. vikverji@mbl.is Víkverji En Guð minn mun uppfylla allar ykk- ar þarfir og láta Krist Jesú veita ykkur af dýrlegum auðæfum sínum. (Filippíbréfið 4.19)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.