Morgunblaðið - 26.03.2019, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 72. tölublað 107. árgangur
GÍMAFFINN
ER ÓSÝNILEG
LÍFRÆN EIND
MÁLAÐ
Í SVÖRTU
OG HVÍTU
UPPÖRVANDI
STJÓRNUNARSTÍLL
STEINUNNAR
ÞELDÖKKUR KLANSMAÐUR 33 YFIRMAÐUR ÁRSINS 12GÍMALDINSKÍFA 30
Baldur Arnarsson
Stefán E. Stefánsson
Kröfuhafar og skuldabréfaeigendur
WOW air funduðu í þriðja sinn í gær-
kvöldi. Markmiðið var að afla nægi-
lega margra undirskrifta vegna áætl-
unar um að umbreyta skuldum í 49%
hlutafjár.
Fulltrúi skuldabréfaeigenda sagði
söfnunina hafa gengið vel. Þó hafði
ekki tekist að afla tilskilins fjölda þeg-
ar Morgunblaðið fór í prentun. Taldi
heimildarmaðurinn að það tækist í
dag. Það tefur söfnunina að fylgja
þarf ströngum verkferlum. Munnlegt
samþykki dugir ekki.
„Það er verið að fá menn til að
kvitta undir viljayfirlýsingu. Næsta
skref er að fá menn til að undirrita
lagalega bindandi samninga um þessa
áætlun,“ sagði heimildarmaðurinn.
Fyrsti fundurinn fór fram á laug-
ardag. Um 40 hagsmunaaðilar sitja
við borðið. Erlendir aðilar eru í þeim
hópi. Ekki stendur til að umbreyta
skuld WOW air við Isavia í hlutafé.
Viðræður við Isavia eru ekki hafnar.
Ætlunin er að fá fjárfesti, eða hóp
fjárfesta, til að kaupa 51% hlut í félag-
inu fyrir 5 milljarða. Ef áætlunin
verður samþykkt munu kröfuhafar
ræða við fjárfesta um kaupin. Skúli
Mogensen, stofnandi WOW air, verð-
ur þá einn margra hluthafa en ekki
lengur ráðandi í viðræðum.
Spá gengisfalli og verðbólgu
Sérfræðingar á fjármálamarkaði
telja að krónan muni veikjast ef
WOW air hverfur af markaði.
Gústaf Steingrímsson, hagfræðing-
ur á hagfræðideild Landsbankans,
segir að gjaldþrot WOW air hefði svo
mikil áhrif á útflutningstekjur þjóðar-
búsins að krónan myndi án efa gefa
töluvert eftir.
„Til að koma á nýju jafnvægi í
utanríkisviðskiptum þyrfti krónan að
gefa töluvert eftir. Hversu mikið
verður að koma í ljós,“ segir Gústaf.
Hann telur ekki ólíklegt að gengi
krónunnar fari upp í a.m.k. 150
krónur fyrir hverja evru en gengið er
nú um 136-137 krónur. Það yrði um
10% veiking.
Samkvæmt útreikningum Reykja-
vík Economics myndi slík veiking
leiða til þess að verðbólga ykist um
3,3%. Verðbólgan er nú 3%. Gangi
spá Landsbankans eftir myndi verð-
bólgan því að óbreyttu fara yfir 5% í
fyrsta sinn frá sumrinu 2012.
Magnús Árni Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Reykjavík Economics,
segir aðspurður ekki ólíklegt að gengi
krónu muni veikjast um 5-10% með
brotthvarfi WOW air.
Verðbólgan muni að óbreyttu fara í
5-6%. „Þetta ræðst líka af því hvernig
kjarasamningar fara. Ef laun hækka
langt umfram innistæðu og hagnaður
fyrirtækja dregst saman gætum við
séð víxlverkun launa og verðlags, líkt
og á 9. áratugnum,“ sagði Magnús.
Með því mundi kaupmáttarstyrking
síðustu ára ganga til baka, þrátt fyrir
launahækkanir, líkt og gerðist á 9.
áratugnum.
Ásgeir Jónsson, forseti hagfræði-
deildar Háskóla Íslands, tekur undir
þetta og bendir á þátt ferðaþjónust-
unnar í styrkingu krónunnar. Með
lækkandi þjónustutekjum séu horfur
á veikari krónu og þá minni kaup-
mætti. Það sé ekkert nýtt – hagur
þjóðarinnar hljóti að ráðast af gengi
útflutningsatvinnuveganna.
Gæti fjölgað ferðamönnum
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Greiningar Íslandsbanka, telur
hins vegar ekki horfur á mikilli
gengisveikingu vegna mögulegs sam-
dráttar í flugi til Íslands.
Þá bendir hann aðspurður á að
gengisveiking geti haft þau áhrif að
hækka hlutfall tengifarþega sem
kjósa að koma inn í landið. „Það gæti
fljótlega skilað sér í töluverðri fjölgun
ferðamanna. Af því að það er af stóru
mengi að taka,“ segir Jón Bjarki.
Í greiningu sem Morgunblaðið hef-
ur undir höndum eru dregnar upp
þrjár sviðsmyndir þar sem lagt er
mat á hver áhrif rekstrarstöðvunar
WOW air gætu orðið á þá farþega
sem eiga bókað far með vélum félags-
ins eftir því hvenær dags sú stöðvun
ætti sér stað. Þannig yrðu um 1.500
farþegar strandaglópar á Íslandi og
um 500 Íslendingar fastir erlendis ef
stöðvunin ætti sér stað snemma
morguns. Þá gæti tekið um tvo daga
að koma erlendum ferðamönnum
héðan, en allt að fimm til sex daga að
fá þá Íslendinga sem væru fastir úti
heim.
Vilja umbreyta skuldum
Undirskriftasöfnun kröfuhafa og skuldabréfaeigenda sögð ganga vel Verðbólga gæti farið yfir 6%
hverfi WOW air af markaði Um 1.500 farþegar gætu orðið strandaglópar hér á fyrsta degi stöðvunar
MÓvissa um WOW air »2,6 og 16
Frönsku heimsmeistararnir léku íslenska karla-
landsliðið í knattspyrnu grátt á Stade de France
leikvanginum í útjaðri Parísar í gærkvöld og
unnu sannfærandi sigur, 4:0. Þetta var annar
leikur Íslands í undankeppni EM 2020 og liðið er
með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Frakkar og Tyrkir eru á toppi riðilsins með sex
stig hvor þjóð. Birkir Már Sævarsson lék sinn 90.
landsleik og er orðinn næstleikjahæsti leik-
maður landsliðsins frá upphafi en hér á hann í
höggi við Blaise Matuidi í leiknum í gærkvöld.
» Íþróttir
AFP
Leiknir grátt af heimsmeisturunum í París
Neðri deild
breska þingsins
samþykkti um
tíuleytið í gær-
kvöldi að hún
myndi efna til at-
kvæðagreiðslu á
miðvikudaginn til
þess að ákveða
næstu leiðir í
Brexit-málinu.
Greiddu 329
þingmenn atkvæði með ályktun þess
efnis en 302 á móti. Ríkisstjórn The-
resu May lagðist eindregið gegn
ályktuninni, og sögðu þrír ráðherrar
sig úr ríkisstjórninni svo þeir gætu
stutt ályktunina.
May hafði fyrr um daginn frestað
þriðju atkvæðagreiðslunni um um-
deilt samkomulag sitt við Evrópu-
sambandið um útgöngu Breta, sem
hefði annars farið fram á morgun,
eftir að ljóst var að norðurírski
DUP-flokkurinn myndi ekki styðja
málið.
Atkvæðagreiðslan á miðvikudag-
inn mun ekki binda hendur ríkis-
stjórnarinnar, en náist meirihluti í
deildinni um framhaldið gæti hann
reynt að binda þá leið í lög. Hefur
þar jafnvel verið rætt um að efnt
verði til annarrar þjóðaratkvæða-
greiðslu um útgönguna. sgs@mbl.is
Neðri deild-
in tekur ráð-
in af May
Theresa
May
Arnar Bjarnason, framkvæmdastjóri Íslenskra fjallaleið-
sögumanna, segir menn hafa miklar áhyggjur af stöðu
WOW air. „Yfirleitt hafa 50% viðskiptavina okkar í
ævintýra- og fjallaferðum verið Bandaríkjamenn. Það er
langstærsti viðskiptahópur okkar. WOW air hefur verið
stórt í flugi til Bandaríkjanna. Menn hafa því miklar
áhyggjur,“ segir Arnar um stöðuna.
Hann segir aðspurður upplýsingagjöf næstu daga
vera mjög mikilvæga. Hægt hafi á bókunum hjá fyrir-
tækinu en hann hafi ekki skýringar á því.
Sigurjón Þór Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Norrænu ferðaskrifstof-
unnar, segir fyrirtækið meðvitað hafa sneitt hjá WOW air. »6
Leiðsögumenn eru uggandi
MARGIR BANDARÍSKIR FERÐAMENN KOMA MEÐ WOW AIR
Við Leifsstöð.