Morgunblaðið - 26.03.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 26.03.2019, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019 Líftæknifyrirtækið Genis á Siglu- firði hefur undirritað styrktarsamn- ing við þýska handknattleiksliðið THW Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar. Haft er eftir Alfreð í tilkynningu frá Genis að samningurinn eigi sér þann aðdraganda að nokkrir leik- menn liðsins strýddu við þráláta lið- verki og stirðleika sem finna varð lausn á. Var ákveðið að þeir tækju inn fæðubótarefnið Benecta frá Gen- is í nokkra mánuði til að sjá hvort það ynni bug á vandanum. „Árangurinn er mjög góður, leik- mennirnir hafa náð sínum fyrri styrk og eru lausir við liðverkina. Það er í samræmi við þá reynslu sem fjöl- margir Íslendingar hafa af Benecta og var ástæða þess að ég vildi að mínir leikmenn prófuðu það,“ segir Alfreð, sem hefur áhuga á að kynna fleirum í þýsku íþróttalífi Benecta. Viðurkenning fyrir Genis „Benecta hefur fengið afar góðar móttökur meðal íþróttafólks og þeirra sem eru virkir í útivist. Alls neyta um tíu þúsund manns Benecta hér á landi þar sem okkar aðalmark- hópur hefur verið til þessa, enda Genis lítið fyrirtæki og enn að slíta barnsskónum. Þess vegna eru mót- tökurnar, sem Benecta hefur fengið meðal leikmanna Kiel, eins öflugasta íþróttafélags Þýskalands, mikil viðurkenning fyrir okkur. Við bind- um þess vegna miklar vonir við sam- starfið við Kiel og leikmenn Alfreðs Gíslasonar,“ segir dr. Hilmar Janus- son, forstjóri Genis, í tilkynningu frá fyrirtækinu. Einnig segir að Benecta hafi undirgengist lyfjapróf hjá Cologne List í Köln, leiðandi stofnun í eftirliti og rannsóknum á fæðubótarefnum með tilliti til heilnæmis og efnainni- halds. Genis styrkir lærisveina Alfreðs  Styrktarsamningur við THW Kiel EPA Handbolti Lærisvinar Alfreðs Gíslasonar hafa notað Benecta. Íbúum á Íslandi fjölgaði um 2,4% á síðasta ári en um áramót voru lands- menn 356.991 og hafði þá fjölgað um 8.541 frá sama tíma árið áður og nam fjölgunin 2,4%. Konum, sem um ára- mót voru 174.154 talsins, fjölgaði um 1,9% og körlum, sem voru 182.837 um áramótin, fjölgaði um 2,9%. Talsverð fólksfjölgun var á höfuð- borgarsvæðinu en íbúum þar fjölgaði um 5.747 í fyrra eða um 2,6%. Hlut- fallslega varð þó mest fólksfjölgun á Suðurnesjum, 5,2%. Einnig fjölgaði íbúum á Suðurlandi (3,2%), Austur- landi (2,1%), en minna á Vesturlandi (1,5%), Vestfjörðum (1,0%) og Norðurlandi vestra (0,4%). Hins veg- ar varð fækkun á Norðurlandi eystra (0,03%). Alls voru 72 sveitarfélög á landinu 1. janúar síðastliðinn og hafði þeim fækkað um tvö síðan á sama tíma ári fyrr. Það var annars vegar vegna sameiningar Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar undir nafni þess síðarnefnda, og hins vegar Sand- gerðis og sveitarfélagsins Garðs í Suðurnesjabæ. Í sjö sveitarfélögum bjuggu færri en 100 og 40 sveitar- félög voru með færri en 1.000 íbúa. Einungis tíu sveitarfélög voru með yfir 5.000 íbúa. 1. janúar voru 62 þéttbýlisstaðir á landinu með 200 íbúa eða fleiri og fjölgaði þeim um einn milli ára. Auk þeirra voru 35 smærri staðir með 50– 199 íbúa sem er fækkun um tvo frá fyrra ári. Í þéttbýli bjuggu 334.404 íbúar og í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu 22.587 manns. Kjarnafjölskyldur voru 83.358 1. janúar síðastliðinn en 82.102 ári áður. Til kjarnafjölskyldu teljast hjón og fólk í óvígðri sambúð, börn hjá þeim 17 ára og yngri, einhleypir karlar og konur sem búa með börnum 17 ára og yngri, segir á vef Hagstofu Íslands. Landsmönnum fjölgaði um 2,4%  Hlutfallslega varð mesta íbúafjölgunin á Suðurnesjunum á síðasta ári Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjanesbær Mikil fjölgun varð á Suðurnesjunum, sú mesta á landinu. Lögreglan á Suðurnesjum hef- ur á síðustu dög- um haft afskipti af allmörgum ein- staklingum vegna fíkniefna- mála. Karlmaður, sem færður var á lögreglustöð vegna gruns um fíkni- efnasölu, reyndist vera með fíkniefni innan klæða. Var hann með hnúa- járn og lyfseðilsskyld lyf í fórum sín- um, sem ekki hafði verið ávísað á hann, svo og myljara. Í húsleit fannst amfetamín og kók- aín. Tveir karlmenn voru hand- teknir og viðurkenndu þeir eign sína á efnunum, segir í dagbók lögregl- unnar á Suðurnesjum. Ökumaður sem ók bifreið sinni út af í Hvassahrauni reyndist vera með fíkniefni í vörslu sinni og var að auki grunaður um fíkniefnaakstur. Fimm ökumenn til viðbótar voru teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefna- akstur. Með fíkniefni, lyf, myljara og hnúajárn                                 "  #    $  % &         '       () & *            +   '  (  ,-.  /   0123456738961:89 ;< = >? @AB C@B@ D E5FF53GHIIJKL MN  Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Neskaupstað var kallað út í fyrrinótt vegna vélarvana báts. Fljótlega kom í ljós að báturinn var ekki vélarvana en að hluta raf- magnslaus og m.a. án siglingatækja. Var honum fylgt til hafnar og hann lagðist að bryggju í Neskaupstað um kl. 2 um nóttina. Þá voru björgunarsveitir á Suður- landi kallaðar til leitar að fólki á Langjökli í fyrrinótt. Aðstandendur fólksins, sem var á þremur jeppum, höfðu samband þar sem þeir voru farnir að óttast um það. Sjö jeppar voru sendir á Lang- jökul eftir tveimur leiðum en fljót- lega tókst að staðsetja fólkið ekki langt frá Þórisjökli sunnan Lang- jökuls. Um hálfáttaleytið sá björg- unarsveitarfólk til jeppanna og voru þeir töluvert sunnan Langjökuls, rétt norðan við Skjaldbreið. Björg- unarsveitirnar hjálpuðu jeppafólk- inu til byggða en ekki amaði neitt að því. Höfðu jepparnir bilað í ferðinni. Bátur í vanda og leit að þremur jeppum á hálendinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.