Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 16

Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Mjúkur innsóli úr leðri 2 riflásar Verð 7.995 Stærðir 36-41 Fly Soft inniskór Kíktu á verðið 26. mars 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 118.93 119.49 119.21 Sterlingspund 156.3 157.06 156.68 Kanadadalur 88.84 89.36 89.1 Dönsk króna 18.023 18.129 18.076 Norsk króna 13.958 14.04 13.999 Sænsk króna 12.851 12.927 12.889 Svissn. franki 119.45 120.11 119.78 Japanskt jen 1.076 1.0822 1.0791 SDR 165.49 166.47 165.98 Evra 134.52 135.28 134.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 162.48 Hrávöruverð Gull 1311.1 ($/únsa) Ál 1866.5 ($/tonn) LME Hráolía 67.76 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Mörg félög sem skráð eru á aðallista Kauphallar Íslands tóku talsverða dýfu á fyrsta viðskiptadegi vikunnar í gær. Heildarviðskipti á hlutabréfamarkaði nam 2,3 milljörðum króna. Lækkunar- hrinuna leiddu fasteignafélögin þrjú. Mest varð lækkun Regins eða 4,61% í 130 milljóna viðskiptum. Þá lækkaði Eik um 4,38% í 137 milljóna við- skiptum. Reitir fylgdu svo á eftir með 3,17% lækkun í 258 milljóna við- skiptum. Fjarskipta- og fjölmiðlafyrir- tækið Sýn lækkaði um 3,62% í 60 milljóna viðskiptum og Arion banki lækkaði um 3,15% í 125 milljóna við- skiptum. Tvö tryggingafélaganna lækkuðu einnig. Þannig lækkaði TM um 2,9% í 37 milljóna viðskiptum, VÍS um 2,33% í 33 milljóna viðskiptum. Bréf Sjóvár stóðu í stað. Það voru einungis bréf HB Granda sem hækkuðu í viðskiptum gærdagsins. Nam hækkun bréfa þess 2,2% í 134 milljóna viðskiptum. Mörg félög tóku dýfu í upphafi vikunnar STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Á sunnudagskvöld óskaði flugvéla- leigufyrirtækið Jin Shan 20 eftir því við forsvarsmenn flugvallanna í Montréal í Kanada og í Miami í Flór- ída að vélarnar TF-PRO og TF- NOW, sem WOW air hefur haft í rekstri, yrðu kyrrsettar og teknar af félaginu. Þar með missti flugfélagið tvær af 11 vélum sem það enn hafði í rekstri úr höndum sér. Á síðustu mánuðum hafa stjórn- völd teiknað upp sviðsmyndir af mögulegum afleiðingum þess að alls- herjar rekstrarstöðvun yrði hjá fé- laginu, eða allt frá því að ljóst var orðið að félagið glímdi við alvarlegan og viðvarandi lausafjár- og rekstrar- vanda. Þá staðfestir Bogi Nils Boga- son, forstjóri Icelandair Group, að félagið búi yfir viðbragðsáætlunum vegna slíks atviks, kæmi það upp. „Sem stórt fyrirtæki í jafn breyti- legu umhverfi og fluggeirinn er, eig- um við viðbragðsáætlanir við ýmsum mögulegum atvikum sem geta komið upp, bæði hjá okkur og í rekstrarum- hverfi okkar.“ Hann vildi þó ekki tjá sig nánar um í hverju þær áætlanir felast. Miðað við 11 véla flota Morgunblaðið hefur undir hönd- um sviðsmyndagreiningu þar sem mat er lagt á afleiðingar slíkrar alls- herjarstöðvunar og hvert umfangið á mögulegum flutningum strandaðra farþega yrði dagana á eftir. Áætlun- in miðast reyndar við 11 véla flota WOW air en áætlanir höfðu í gær ekki verið uppfærðar með tilliti til fregna af kyrrsetningu vélanna tveggja. Reyndar hefur kyrrsetning TF-NOW mun minni áhrif í þessa veru þar sem vélin hefur verið nýtt í leiguverkefni milli Kúbu og Banda- ríkjanna að undanförnu og því er ekki um tengifarþega að ræða í þeim tilvikum þar sem niðurfelling ferða þeirrar vélar hefur orðið að veru- leika. Þrjár sviðsmyndir á borðinu Þrjár sviðsmyndir hafa verið teiknaðar upp sem gera ráð fyrir ólíkri staðsetningu véla WOW air, allt eftir því hvenær dags kæmi að allsherjar rekstrarstöðvun þess. Fyrsta sviðsmyndin gerir ráð fyrir stöðu þar sem vélar félagsins væru staddar í heimahöfn, þ.e. á Kefla- víkurflugvelli. Það gerist tvisvar á dag, eða fyrir kl. 6.00 á morgnana og milli 13.00 og 16.00 síðdegis. Ef rekstur WOW myndi stöðvast snemma morguns myndi það þýða að um 1.500 farþegar væru strandaðir á Íslandi og um 500 Íslendingar í Evr- ópu kæmust ekki heim með félaginu þann daginn eins og þeir ætluðu sér. Ef reksturinn stöðvaðist hins vegar upp úr hádegi væru 700 farþegar strandaðir í Keflavík og um 150-180 Íslendingar í Norður-Ameríku kæm- ust ekki heim. Önnur sviðsmyndin gengur út frá því að rekstur myndi stöðvast í kjöl- far þess að vélar félagsins halda af stað til Evrópu eða eru ekki lagðar af stað frá áfangastöðum í álfunni. Þá væru um 400 Íslendingar strandaðir þar og um 700 erlendir ferðamenn staddir á Íslandi sem ekki kæmust í síðdegisflug sem þeir ættu pantað til Norður-Ameríku. Þriðja sviðsmyndin gerir ráð fyrir því að rekstur myndi stöðvast eftir að vélar félagsins halda á leið til Norður-Ameríku eða eru ekki farnar á loft frá áfangastöðum í álfunni að nýju. Í því tilviki má gera ráð fyrir að um 200 Íslendingar væru stranda- glópar víða í álfunni. Tæki fáa daga Sérfræðingur sem Morgunblaðið ræddi við, og unnið hefur að sviðs- myndagreiningunni sem hér er dregin upp, segir að það myndi alltaf taka nokkra daga að koma öllum þeim erlendu ferðamönnum sem hér dvelja og eiga pantað flug með WOW air til síns heima. Það ætti þó að leys- ast á um tveimur sólarhringum en að verkefnið myndi þó taka 5-6 daga að teknu tilliti til þeirra Íslendinga sem fastir væru á erlendri grundu. Það myndi fara eftir bókanastöðu þeirra flugfélaga sem hingað fljúga og hversu hratt væri hægt að bregðast við svo koma mætti farþegunum í ný flug. Meðal þess sem taka verður tillit til er að áhrifin virðast mest af því ef rekstrarstöðvun ætti sér stað snemma morguns. Fráflæðisvandinn sem skapast vegna stöðvunar magn- ast meira hér á landi en þar sem far- þegar væru stopp erlendis þar sem mörg flugfélög þjónusta flesta þá áfangastaði sem WOW flýgur á. Áætlunin sem hér er birt miðast aðeins við þann vanda sem skapast daginn sem að rekstrarstöðvun kæmi. Dagana á eftir myndi svo safnast upp hópur þeirra sem ekki gætu nýtt sér þjónustu félagsins eins og stefnt hefði verið að. Það er hins vegar minna áhyggjuefni því þeir einstaklingar munu hafa ráðrúm og tíma til að gera breytingar á sínum ferðaáætlunum. Strandaglópar ættu að geta komist fljótt til síns heima Morgunblaðið/Eggert Stöðvun Hökt kom í flugáætlun WOW í gær og fyrradag vegna kyrrsetninga.  Áætlanir eru til taks ef kemur að mögulegri rekstrarstöðvun WOW air Icelandair mun senda fulltrúa fé- lagsins á fund með bandaríska flug- vélaframleiðandanum Boeing í Renton í Washington-ríki Banda- ríkjanna á morgun. Þetta staðfesti Ásdís Pétursdóttir, upplýsinga- fulltrúi Icelandair Group. Að hennar sögn er fundurinn haldinn sérstak- lega vegna kyrrsetningar Boeing 737 Max 8 vélanna, en tvær slíkar vélar fórust með nokkurra mánaða millibili, í október á síðasta ári og nú í mars. „Við erum í nánu samstarfi við Boeing alla daga og sitjum reglu- lega fundi með þeim og þetta er liður í því. Fulltrúar okkar munu sitja þennan stöðufund,“ segir Ásdís í samtali við Morgunblaðið. Í frétt Seattle Times um málið segir að Boeing hafi haldið einn slík- an stöðufund á laugardaginn síðasta. Annar fundur er á dagskrá á mið- vikudag þar sem Boeing hefur boðið 200 flugmönnum, tæknimönnum og fulltrúum flugmálayfirvalda að því er fram kemur í vefútgáfu Seattle Times. Á fundinum hyggst Boeing veita flugfélögum og flugmálayfir- völdum upplýsingar um áætlun fyrirtækisins um að koma vélunum á öruggan hátt í loftið á ný. Í sérstakri tilkynningu frá John Hamilton, yfir- verkfræðingi Boeing, sagði hann rétt af Boeing að hafa selt sjálfvirkan ör- yggisbúnað vegna MCAS stýrikerf- isins sérstaklega í stað þess að gera það að skyldubúnaði í vélunum. Fram hefur komið að rekja megi slysin tvö að minnsta kosti að hluta, til galla í MCAS-stýrikerfinu. Ice- landair hefur staðfest að félagið var ekki með slíkan búnað í sínum vélum. Það hafi verið í skoðun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Boeing Icelandair starfrækti þrjár Max 8 vélar fyrir kyrrsetninguna. Á fund Boeing vegna Max-véla  Icelandair send- ir fulltrúa til Washington-ríkis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.