Morgunblaðið - 26.03.2019, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.03.2019, Qupperneq 36
Skáldsagnahöfundurinn Jane Smiley heldur fyrirlestur í Þjóð- minjasafni Íslands í dag kl. 16. Smiley hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir skáldsögu sína A Thousand Acres frá árinu 1991 og var gerð kvikmynd eftir henni nokkrum ár- um siðar. Smiley dvaldi á Íslandi sem Fulbright-styrkþegi árið 1976 og hafði sú dvöl mikil áhrif á skrif hennar og mun hún í fyrirlestri sín- um, „What I did in Iceland“, segja frá þeirri reynslu sinni. Jane Smiley fjallar um dvöl sína á Íslandi ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 85. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. „Kannski bárum við of mikla virð- ingu fyrir þeim. Þetta var illa tapað hjá okkur,“ sagði Aron Einar Gunn- arsson, landsliðsfyrirliði í knatt- spyrnu, eftir stórt tap Íslands gegn Frakklandi, 4:0, í undankeppni Evr- ópumótsins í París í gærkvöld. Hann segir að heimaleikirnir við Albaníu og Tyrkland í júní ráði öllu um möguleika íslenska liðsins. »1 Bárum kannski of mikla virðingu ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Íslandsmeistarar KR í körfuknatt- leik karla eru komnir á beina braut í einvíginu við Keflavík í átta liða úrslitunum eftir að hafa unnið öðru sinni í jafn- mörgum leikjum þegar liðin mætt- ust í Vesturbænum í gærkvöld. Tinda- stóll er líka kom- inn í 2:0 eftir sannfærandi útisigur á Þór í Þorlákshöfn og stefnir líka hrað- byri í undan- úrslitin. »2 KR og Tindastóll eru með góða stöðu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Nudd er dýrum oft nauðsyn. Rétt eins og við mannfólkið hafa þau vöðva og sinar sem þurfa hreyfingu og aðhlynningu eigi vel að vera. Raunar er vitundin um vellíðan dýr- anna stöðugt að aukast, sem er gleði- efni,“ segir Nanna Lovísa Zóphaní- asdóttir hundanuddari. Hún rekur nuddstofuna Hundar og kettir í versluninni Gæludýr á Smáratorgi í Kópavogi þangað sem fólk kemur með ferfætlinga sína. Eymsli af ýmsum toga Starfsemin, sem var ýtt úr vör árið 2011, fór rólega af stað enda nudd- þjónusta þessi þá algjört nýmæli á Íslandi. Í dag er hins vegar nóg að gera hjá Nönnu, sem lýsir starfi sínu sem því skemmtilegasta í heimi. „Eymsli skepnanna geta þá verið af ýmsum toga. Með stóru hundana kemur fólk til mín oft eftir vinnutarn- ir, til dæmis veiðitímabilið og fjár- leitir á hausti. Marga gamlingja með gigt er komið með reglulega til að halda þeim mjúkum, tíkur og læður eftir got, og þrífætt eða eineygð dýr sem hafa ekki sama jafnvægi í líkam- anum og á að vera. Einnig er stund- um komið hingað með blindrahunda í nudd; skepnur sem aldeilis hafa sannað gildi sitt við að vísa blindu og sjónskertu fólki veginn. Hins vegar eru hreyfingar slíkra hunda, sem gjarnan eru hafðir í ól og taumi, oft einhæfar og það gerir þjálfun nauð- synlega til dæmis fyrir þá vöðva sem ekki fá hreyfinguna sem þarf,“ segir Nanna. Margar stéttir vinna saman Hvað varðar svo litlu hundana hef- ur fólk þá mikið inni á heimilum og í búri og er á stundum kannski ekki eins meðvitað um að hreyfa þá nóg. „Litlu hundana þarf að liðka til með nuddi, en margir koma til mín með hvuttana eftir ábendingu frá dýralæknum,“ segir Nanna. „Sama máli gegnir um nudd á köttum, sem þurfa þó ekki jafn mikils með og hundarnir. Annars finnst mér alveg frábært hvað hinar ýmsu stéttir sem sinna velferð dýra vinna vel saman; til dæmis dýralæknar, atferlisþjálf- arar, sjúkraþjálfarar, hnykkjarar, og næringarfræðingar. Þetta er mjög ánægjuleg þróun,“ segir Nanna um starfsemi sína, sem fylgjast má með á facebooksíðunni Hundar og kettir. Með ráðum og dáð Nanna nam fræði nuddarans úti í Svíþjóð, það er í lotunámi sem tók tvö ár. Þegar því lauk setti hún aug- lýsingu í blöðin og kynnti þjónustu sína, en stofan er í sambýli við versl- unina Gæludýr á Smáratorgi „Fyrstu misserin fékk ég alls kon- ar skilaboð frá fólk sem fannst nudd- þjónusta fyrir hunda og ketti vera brandari. Viðhorfin til þess hafa breyst mikið. Og ég hefði varla kom- ist svo langt með reksturinn nema því aðeins að vinir mínir hér hjá Gæludýrum studdu mig með ráðum og dáð í byrjun. Þeim á ég mikið að þakka,“ segir Nanna, sem sjálf á fjóra hunda og jafn marga ketti. Eru þrír hundanna litlir, fallegir Coton de Tulear og einn Old English Sheep- dog. Kettirnir eru Ragdoll; allt þjálf- aðar skepnur og liðugar vel. Morgunblaðið/Eggert Hundanudd Eymsli skepnanna geta þá verið af ýmsum toga, segir Nanna Lovísa, hér með skjólstæðing í fangi sér. Nanna nuddar hunda  Vitund um vellíðan dýra eykst  Fyrir hunda og ketti HEYRNARSTÖ‹IN Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Hlustaðu á hjartað þitt Beltone Trust ™ Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafn- vel minnstu smáatriði – sem stundum reynast þau mikil- vægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnar- tæki lánuð til reynslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.