Morgunblaðið - 26.03.2019, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
SÍGILD HÖNNUN Í 50 ÁR
Fyrir 50 árum hannaði danski hönnuðurinn Arne Jacobsen fyrsta kranann fyrir Vola.
Æ síðan hefur hönnun og framleiðsla Vola verið í fremstu röð.
Anton Antonssonferðamálafrömuðurá 70 ára afmæli í
dag. Hann er frá Alsace-
héraði í Frakklandi en
kynntist snemma á áttunda
áratugnum íslenskri konu,
Ásdísi Pétursdóttur Blöndal
frá Seyðisfirði. Hann fluttist
með henni til Íslands og
gerðist kennari á Egils-
stöðum.
„Svo gerðist það að Úlfar
Jacobsen sagði við mig:
„Heyrðu, okkur í ferðaþjón-
ustunni vantar mann eins og
þig,“ en ég er tvítyngdur,
þýska var götumálið hjá
mér en franska bókmálið.
Hann réð mig í ferð fyrir sig
á hálendið, en á þessum
tíma voru aðallega Þjóð-
verjar í þeim ferðum. Ég
hélt að ég ætti bara að vera
túlkur en svo kom í ljós þeg-
ar ég mætti að ég yrði leið-
sögumaðurinn. Ég varð smástressaður og í ferðinni voru 45 manns af 13
þjóðum, en ég smitaðist og framtíðin var ráðin. Ég var kennari á veturna
og leiðsögumaður á sumrin.“
Anton stofnaði síðan sína eigin ferðaskrifstofu, Ferðamiðstöð Austur-
lands, og fékk umboð fyrir eina stærstu ferðaskrifstofu í Frakklandi.
Hann var síðan fyrstur hér á landi til að bjóða upp á hestamannaferðir
fyrir almenning. „Áður höfðu slíkar ferðir bara verið í boði fyrir hesta-
menn og hestaklúbba, en svo tóku Íshestar við af mér þegar ég hætti þess-
um ferðum. Ég segi stundum í gríni við Frakka að ef það hefði ekki verið
fyrir íslensku hestana þá hefði ég flutt aftur til Frakklands sem er mjög
flott land. En ég féll fyrir íslenska hestinum og íslenskri náttúru.“
Um áramótin settist Anton í helgan stein og elsti sonur þeirra Ásdísar,
Daníel, er tekinn við fyrirtækinu, en skipt var um nafn á því þegar þau
fluttu suður og heitir nú AD Travel. Anton hefur nú meiri tíma til að sinna
hestunum sínum og svo hefur hann gaman af því að taka ljósmyndir.
Anton og Ásdís búa í Mosfellsbænum og börn þeirra eru auk Daníels,
Pétur Atli sjálfstætt starfandi teiknari, Emilía danskennari með meistara-
gráðu í sviðslistum og Davíð sem er trommuleikari í hljómsveitinni Kaleo
og býr í Los Angeles. Barnabörnin eru orðin þrjú.
„Ég ætla að halda upp á afmælið með fjölskyldunni, ég er lítið fyrir stór
partí.“
Ferðamálafrömuður Anton rak ferða-
þjónustufyrirtæki í meira en 40 ár en
sonur hans tók við um áramótin.
Kom á hestaferðum
fyrir almenning
Anton Antonsson er sjötugur í dag
J
óhann Friðrik Friðriksson
fæddist 26. mars 1979 í
Reykjavík og ólst upp í
Keflavík. Hann spilaði
körfuknattleik með Kefla-
vík fram eftir aldri og varði sumrum í
sveit í Borgarfirði. Hann hóf snemma
að taka þátt í félagsstarfi og var for-
maður nemendafélags Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja á sínum námsárum.
Jóhann byrjaði sinn starfsferil
með námi eins og svo margir Suður-
nesjamenn í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, hjá Flugleiðum og um tíma í
öryggisgæslunni auk þess sem hann
vann sem blaðamaður að ýmsum
verkefnum auk margmiðlunar og
vefhönnunar.
Jóhann gekk í Holtaskóla í Kefla-
vík og Fjölbrautaskóla Suðurnesja,
fór síðar fór utan til náms ásamt
eiginkonu sinni, Erlu Hafsteins-
dóttur, lauk undirbúningsnámi við
Midlands Technical College í Suður-
Karólínu árið 2009, BA-námi árið
2011 og mastersnámi árið 2013 í lýð-
heilsuvísindum við Suður-Karólínu
háskólann, með áherslu á heilsuefl-
ingu, kennslu og hegðun.
Jóhann Friðrik Friðriksson, fagstjóri hjá Vinnueftirlitinu – 40 ára
Hjónin Keflvíkingarnir Erla og Jóhann kynntust árið 2007 og gengu í hjónaband 21. júní 2008.
Hóf snemma að taka
þátt í félagsstarfi
Í Suður-Karólínu Jóhann og Erla ásamt börnum sínum, Hafsteini Orra og
Matthildi Hönnu, í heimsókn síðasta sumar þar sem Jóhann dvaldi við nám.
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.