Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 29

Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þetta er fullkominn dagur til að breyta mataræði þínu og venjum í hreyfingu. Þú gerir ekkert í hálfkæringi. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér tekst yfirleitt að laða að þér hluti, í stað þess að eltast við þá. Gakktu hægt um gleðinnar dyr. Allt hefur sinn tíma, vertu ró- leg/ur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er margt sem hvílir á þér og þér finnst erfitt að einbeita þér. Reyndu að ná heildarsýn til þess að þú getir vegið og metið aðstæður. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samræður við náungann taka óvænta stefnu í dag. Hoppaðu út í óvissuna í stað þess að velta fyrir þér valkostunum um of. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Í dag ættir þú að reyna að verja tíma með góðum vinum. Að ná sér á strik ef jafn mikill hæfileiki og að hrasa aldrei. Taktu til í geymslunni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú gætir skrifað bók um hvernig á að njóta sín til fulls. Segðu færra og stattu við það. Þér er treystandi til að leiða stór verk- efni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Settu þér alltaf raunhæf takmörk og stefndu að þeim hvað sem tautar og raular. Mundu að öllum orðum fylgir ábyrgð, því er gott að telja upp að 10 áður en þú lætur orð falla. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur verið að velta fyrir þér umbótum í vinnunni og ert komin/n með nokkrar hugmyndir sem eru vel þess virði að hrinda í framkvæmd. Gefðu þér tíma til að slaka á. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það þýðir ekkert að berja höfðinu við steininn og ætla að breyta hlutum sem eru löngu liðnir. Þér finnst gaman að hitta fólk, gerðu meira af því. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ekki hafa áhyggjur af því hvað aðrir eru að hugsa. Aðrir geta ekki annað en fylgt þér að málum. Þú ert alltaf á undan þinni samtíð í hugsun. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú verður að komast yfir and- stöðu þína við breytingar því það hefst ekk- ert með því að hjakka í sama gamla farinu. Blandaðu þér ekki í vandamál annarra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Viljir þú kynnast nýju fólki er ágæt leið að finna sér nýtt áhugamál. Sláðu á kjaftaganginn áður en hann skemmir út frá sér. Ólafur Stefánsson skrifar á Leir:„Úr því að Vilhjálmur Hölter komst í Vísnahornið með sína ódauð- legu hringhendu „Veröld fláa“ sem allir kunna og syngja, má nefna eitt- hvað fleira um og frá karlinum. Höltersbær var kotbær á Hverfisgötu 41 og var móðir Vilhjálms Margrét, einstæð móðir, talin fyrir bænum, enda Vilhjálmur laus við og ekki tal- inn iðjumaður. Höltersnafnið kom eins og gefur að skilja, frá föðurnum Diðrik Hölter skóara, sem átti aðra konu, sem var stjúpa Vilhjálms. Ekki voru kærleikar milli Vil- hjálms og stjúpunnar, og orti hann um hana og heldur kalt. Mín er stjúpa músagrá mjög er illileg að sjá, hún er bráðum fallin frá, fjörgömul með rauðan skjá. Senn mun stjúpa lífið láta; leysast heimi frá. Vilhjálmur mun varla gráta, veislu fær hann þá. Jón Gissurarson yrkir: Hending fer um hugans tröð húmið tekur völdin Að bregða sér á Boðnarmjöð er býsna gott á kvöldin. Til að auka andans þrá eftir basl og vökur. Er þar líka unnt að sjá annarra manna stökur. Og Ingólfur Ómar Ármannsson svarar: Hending fer um hugans svið hrekur dapra vöku. Andinn leitar inn á við orðin mynda stöku. Það er skemmtileg skírskotun í þessari vísu Hallmundar Krist- inssonar: Vísurnar hefurðu ýmsar ort. Orðinn ríflega sextíu plús. En vinur minn góður, veistu hvort vex einhver jurt í þinni krús? Sveinbjörn Egilsson þýðir lauslega eftir Schiller: Hjá virðum sumum viskan dýr vegleg gyðja heitir. Öðrum er hún kostakýr, kálf og mjólk sem veitir. Og að lokum eftir Þórarin frá Dýrastöðum: Springur af reiði bylgjan breiða, brotsjó skeiðin sneiðir hjá, hættan seiðir, fjöllin freyða, farmenn leiði greiðu ná. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hölter og fleiri góðir hagyrðingar „ÉG SVER AÐ SEGJA SANNLEIKANN OG EKKERT NEMA SANNLEIKANN, SVO HJÁLPI #METOO.” „ÉG GET ALLTAF LAGAÐ AXLIRNAR SVO FREMI SEM MITTIÐ PASSAR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að lesa í milli línanna. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ER AÐ LÆRA SVO MARGT UM KONUR GRETTIR, ÞAÐ HEFUR OPNAÐ AUGU MÍN AÐ EIGA KÆRUSTU. AFSAKAÐU EN ÉG ER AÐ ÞVÍ! HJÁLP! HRÓLFUR BJARGAÐU MÉR! GET ÉG EITTHVAÐ GERT AÐ ÞVÍ AÐ HEITUR SANDURINN BRENNI MÍNAR VIÐKVÆMU TÆR? Víkverji brá undir sig betri fæt-inum þessa helgina og skellti sér í kvikmyndahús. Sú var tíðin að þær heimsóknir voru tíðar. Það hef- ur breyst og í dag eru kvikmynd- irnar sem Víkverji sér á stóru tjaldi afar fáar. Reyndar hefur þessum heimsóknum fækkað svo hin allra síðustu ár að Víkverji man varla hvaða „fullorðins-mynd“ hann sá síðast. Var það James Bond? Getur það verið? x x x Jæja, afköstin eru í það minnstasorgleg. En á móti koma stöku barnamyndir sem geta verið hin ágætasta skemmtun. Um helgina skellti Víkverji sér til að mynda að sjá Lego Movie 2 og hafði gaman af. Félagsskapurinn var átta og tíu ára börn og það er minnst helmingur skemmtunarinnar að fylgjast með því hvernig þau upplifa myndina. x x x Rétt er að hrósa því að nú erhægt að panta sér sæti áður en gengið er í salinn. Þar með liggur fyrir hvort þolanlegar aðstæður eru fyrir hendi. Og um leið að taka sér góðan tíma í sælgætissölunni, en þar verður sannarlega að vanda til verka. Víkverji veitti því athygli að á afgreiðsluborðinu lá staukur með pipardufti sem ætlaður var til að dreifa yfir poppið. Gjörsamlega galið! x x x En hvernig var svo myndin?Svona er henni lýst á metn- aðarlausri síðu kvikmyndahússins: „Fimm ár eru liðin frá síðustu mynd og nú vofir ný ógn yfir: LEGO DUPLO innrásarher frá annarri plánetu, sem fer um og eyðir öllu sem á vegi hans verður.“ Þar er ekki að finna upplýsingar um hvaða íslensku leikarar tala inn á myndina, en gaman hefði til að mynda verið að vita hver tók að sér að herma eftir Bubba Morthens sem birtist þarna í óvæntu auka- hlutverki. Nema að Bubbi hafi talað sjálfur því í ensku útgáfu myndar- innar fer Bruce Willis með hlutverk sömu persónu og er þar vísað í hlut- verk hans í Die Hard. Ekki leiðum að líkjast. vikverji@mbl.is Víkverji Elskið réttlætið, þér sem drottnið á jörðu. Hugsið til Drottins af alúð og leitið hans af einlægu hjarta. (Speki Salómons 1.1)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.