Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 6
„Að því gefnu að landið verði
áfram vinsælt hjá ferðamönnum
finnur sú eftirspurn sér farveg í
auknu framboði annarra flugfélaga.
Samband gengis og ferðaþjónust-
unnar er virkara en hjá öðrum út-
flutningsgreinum,“ segir Jón Bjarki.
Áður hafi heimsmarkaðsverð af-
urða í sjávarútvegi og síðar stóriðju
haft áhrif á gengið. Þegar heims-
markaðsverðið lækkaði hafi það
þrýst á gengislækkun en innlendar
aðstæður hins vegar ekki haft mikil
áhrif á gjaldeyristekjurnar.
Grunnstoðirnar að styrkjast
„Skammtímaáhrifin af framboðs-
skelli í fluginu gætu vissulega orðið
nokkur en þetta breytir ekki þeim
grunnstoðum sem hafa verið að
styrkjast mikið undir gengi krón-
unnar. Þ.e.a.s. bætta eignastöðu
gagnvart útlöndum, minni skuld-
setningu í hagkerfinu, stórauknum
gjaldeyrisforða og svo framvegis,“
segir Jón Bjarki sem bendir að-
spurður á að gengisveiking geti haft
þau áhrif að hækka hlutfall tengi-
farþega sem kjósa að koma inn í
landið.
„Það gæti fljótlega skilað sér í
töluverðri fjölgun ferðamanna. Af
því að það er af stóru mengi að taka.“
Fyrirtækið Reykjavík Economics
vann að beiðni WOW air álitsgerð
um efnahagsleg áhrif félagsins á ís-
lenskan þjóðarbúskap.
Fram kemur í
skýrslunni að
rekstur WOW air
hafi stutt við gengi
krónunnar og við
viðskiptajöfnuð.
„Ef til brottfalls
WOW air kæmi
eru allar líkur á að
krónan myndi
veikjast. Slík veik-
ing kæmi fram í
hækkun innflutningsverðs og aukinni
verðbólgu með tilheyrandi áhrifum á
verðtryggð lán heimila og fyrir-
tækja,“ segir þar m.a. Bent er á að
gjaldeyristekjur af ferðamönnum
hafi numið 501,5 milljörðum í fyrra og
þar af hafi WOW air skapað um 119
milljarða. Gjaldeyristekjur af neyslu
ferðamanna innanlands eru áætlaðar
397 milljarða kr. á árinu 2018 en hlut-
ur WOW er áætlaður 92 ma. kr. Til
samanburðar er áætlað að gjaldeyris-
tekjurnar verði 467,6 milljarðar í ár
og að hlutur WOW air í þeim tekjum
verið um 78,5 milljarðar króna.
Gæti veikst um 5-10%
Magnús Árni Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Reykjavík Econo-
mics, var annar skýrsluhöfunda.
Hann segir aðspurður ekki ólík-
legt að gengi krónu muni veikjast
um 5-10% með brotthvarfi WOW air.
Verðbólguáhrifin séu þriðjungur af
gengisfalli sem þýðir að slík veiking
skilar 1,7%-3,3% verðbólgu. Með því
myndi verðbólga, sem nú mælist um
3%, að öðru óbreyttu fara í 5-6%.
„Þetta ræðst líka af því hvernig
kjarasamningar fara. Ef laun hækka
langt umfram innstæðu og hagnaður
fyrirtækja dregst saman gætum við
séð víxlverkun launa og verðlags, líkt
og á 9. áratugnum,“ sagði Magnús
Árni, sem telur að Seðlabankinn
muni verja gengi krónunnar meðan á
kjaraviðræðunum stendur.
Gengi evru gagnvart krónu s.l. 3 ár
145
140
135
130
125
120
115
110
105
1.7. 2016 1.1.2017 1.7.2017 1.1.2018 1.7.2018 1.1.2019
Heimild: mbl.is
Gengi evru gæti farið í
150 krónur á næstunni
Sérfræðingar meta áhrif af mögulegu brotthvarfi WOW air
Jón Bjarki
Bentsson
Gústaf
Steingrímsson
Magnús Árni
Skúlason
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sérfræðingar á fjármálamarkaði
telja að gengi krónu muni gefa eftir
ef WOW air fer í gjaldþrot. Koma
þurfi til nýtt jafnvægi við gengis-
skráningu krónunnar.
Krónan gaf eftir í gær og fór mið-
gengi evru í 136,5 krónur. Það var til
samanburðar 134,9 krónur á föstu-
daginn var. Gengið hefur sveiflast
síðustu misseri og evran minnst
kostað 110 krónur í júnímánuði 2017.
Gústaf Steingrímsson, hagfræð-
ingur á hagfræðideild Landsbank-
ans, segir að gjaldþrot WOW air
hefði það mikil áhrif á útflutnings-
tekjur þjóðarbúsins að krónan muni
án efa gefa töluvert eftir.
„Til að koma á nýju jafnvægi í
utanríkisviðskiptum þyrfti krónan
að gefa töluvert eftir. Hversu mikið
verður að koma í ljós. Þar sem veik-
ing krónunnar mun endurspegla að-
lögun að nýju jafnvægi í utanríkis-
viðskiptum mun Seðlabankinn ekki
koma í veg fyrir veikingu hennar.
Hann gæti samt sem áður reynt að
draga úr því hversu skarpt veikingin
kemur fram. Væntanlega munum við
sjá verulega veikingu en þó ekki
veikingu að því marki sem varð í
hruninu,“ segir Gústaf, sem telur
ekki ólíklegt að gengi krónunnar fari
upp í a.m.k. 150 kr. fyrir hverja evru
en gengið er nú um 136-137 kr.
Spáir ekki mikilli veikingu
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Greiningar Íslandsbanka,
telur aðspurður ekki horfur á mikilli
gengisveikingu vegna mögulegs
samdráttar á flugi til Íslands.
„Auðvitað eru nokkrar líkur á slík-
um áhrifum en undanfarið höfum við
séð aðra krafta leika um markaðinn
sem hafa vegið töluvert þungt. Það
er að segja fjárfestingarflæðið til og
frá landinu. Ég tala nú ekki um ef
krónan veikist að ráði á næstu vik-
um, þá dregur það bæði tímabundið
úr vilja innlendra aðila til að fjár-
festa út úr landinu og eykur áhuga
erlendra aðila sem vilja fjárfesta
hérlendis. Það getur vel deyft þessi
áhrif og gengið í kjölfarið fundið sér
jafnvægi sem er kannski ekki langt
frá núverandi gengi, þótt auðvitað
séu áhrifin frekar til lækkunar en
hitt,“ segir Jón Bjarki.
Greining Íslandsbanka hafi verið
þeirrar skoðunar að flugmarkaður-
inn verði tiltölulega fljótur að bregð-
ast við með auknu framboði ef WOW
air hættir starfsemi.
6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
FYRIR BÍLINN
FJARLÆGIR
MENGUN
ÁHRIF
AUKA SKILVIRKNI HEMLUNAR
KREFST EKKI
AÐ TAKA Í SUNDUR
BREMSU
HREINSIEFNI
FYRIR BÍLA
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stjórnendur Íslenskra fjallaleið-
sögumanna unnu í gær að viðbragðs-
áætlun vegna mögulegs brotthvarfs
WOW air af markaði.
Arnar Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Íslenskra fjallaleiðsögumanna,
segir ljóst að brotthvarf WOW air
muni hafa töluverð áhrif á félagið.
Meðal annars hafi langflestir
bandarískir viðskiptavinir Íslenskra
fjallaleiðsögumanna komið með ís-
lensku flugfélögunum.
Viðbrögð annarra flugfélaga geti
mildað áhrifin af brotthvarfinu. Það
sé ekki sjálfgefið að orðið sé of seint
að bjarga ferðasumrinu.
„Yfirleitt hafa 50% viðskiptavina
okkar í ævintýra- og fjallaferðum
verið Bandaríkjamenn. Það er lang-
stærsti viðskiptahópur okkar. WOW
air hefur verið stórt í flugi til Banda-
ríkjanna. Menn hafa því miklar
áhyggjur,“ segir Arnar.
Finna fyrir samdrætti
Hann segir fyrirtækið lengi hafa
undirbúið aðlögun. Samruni við
Arcanum ferðaþjónustu hafi verið
hluti af því hagræðingarferli.
„Við höfum verið að aðlaga okkur
að breyttu rekstrarumhverfi en það
getur reynst erfitt að bregðast hratt
við þar sem vörur eru seldar langt
fram í tímann. Launakostnaður er
orðinn alltof hár en verð hafa ekkert
hækkað síðustu árin. Framlegðin
hefur minnkað stöðugt síðustu ár.
Þegar kjarasamningar bætast við
óvissuna kallar það á að menn þurfa
að sameinast mjög hratt.
Við höfum fundið fyrir samdrætti
frá Bandaríkununum og öðrum
mörkuðum. Við höfum hins vegar
náð okkar áætlunum hingað til. Við
erum mjög sátt með það. Það er
engu að síður gríðarleg óvissa og
hún þýðir að menn þurfa að vera til-
búnir að breyta mjög hratt, sem er
oft á tíðum mjög erfitt,“ sagði Arnar.
Hann segir fyrirtækið hafa fengið
fáar afbókanir. „Það hefur þó hægt á
bókunum sem við höfum ekki alveg
skýringar á. Við eigum eftir að sjá
hvað gerist. Við erum að mæla púls-
inn og reyna að átta okkur á stöð-
unni,“ segir Arnar. Hann segir að-
spurður að upplýsingamiðlun næstu
daga skipti mjög miklu máli.
Sneiddu hjá WOW air
Sigurjón Þór Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Norrænu ferðaskrif-
stofunnar, segir félagið ekki verða
fyrir miklu höggi ef WOW air hættir
starfsemi. Ferðaskrifstofan hafi
enda meðvitað bókað ferðir með
öðrum flugfélögum eftir að óvissan
um WOW air komst í hámæli.
Hins vegar muni ferðaskrifstofan
verða fyrir höggi eins og allir aðrir í
íslenskri ferðaþjónustu ef flug-
félagið fer í gjaldþrot.
„Það fá allir skell. Mismunandi
stóran. WOW air hefur átt stóran
þátt í vexti ferðaþjónustunnar síð-
ustu árin. Þetta er ekki gott mál,“
segir Sigurjón Þór, sem telur að fall
WOW air muni þó ekki hafa neikvæð
áhrif á ímynd og traust Íslands sem
ferðamannastaðar. „Verkföllin eru
mikla verra mál fyrir ímynd Ís-
lands,“ segir Sigurjón Þór.
Morgunblaðið/Heiddi
Á fjöllum Leiðsögumönnum hefur fjölgað á þessum áratug.
Fall WOW air
yrði mikið högg
Íslenskir fjallaleiðsögumenn eru
með marga bandaríska viðskiptavini
Sigurjón Þór
Hafsteinsson
Arnar
Bjarnason
Fari flugfélag í gjaldþrot geta kaup-
endur farmiða snúið sér til greiðslu-
kortafyrirtækisins sem tók við
greiðslunni og óskað endurgreiðslu.
Gangi sú leið ekki mun farmiðinn
mynda kröfu í þrotabú félagsins.
Þetta segir Þórhildur Elínar-
dóttir, upplýsingafulltrúi Sam-
göngustofu. Endurgreiðsluréttur
flugfarþega sé tíundaður í reglugerð
sem Samgöngustofa, líkt og önnur
flugmálayfirvöld í Evrópu, vinnur
eftir. Tilefnið er mikil óvissa um
afdrif WOW air.
Þórhildur bendir á að ef keypt
hefur verið alferð með ferðaskrif-
stofu beri skrifstofunni að útvega
farþegum nýtt flug. Alferð er sam-
ansett af a.m.k. tveimur eftirfarandi
atriðum: flutningi, gistingu og ann-
arri þjónustu við ferðamenn sem
tekur til verulegs hluta ferðarinnar.
Þórhildur segir aðspurð að ís-
lenska ríkið ábyrgist ekki að koma
flugfarþegum heim til Íslands ef
flugfélag fer í þrot. Það þurfi að
koma til sérstök ákvörðun stjórn-
valda til að slíkt flug sé tryggt.
Geri skriflega athugasemd
Handhafar Visa- og MasterCard
greiðslukorta sem keypt hafa flug-
miða hjá gjaldþrota flugfélagi geta
átt endurkröfurétt. Korthafar þurfa
að gera skriflega athugasemd við
færslu á vefsíðu útgáfubanka
kortsins, eða á vefsíðu Valitor.
Þetta kom fram í tilkynningu frá
Valitor vegna umfjöllunar á mbl.is
um réttindi flugfarþega.
Fulltrúi Valitors kom því á fram-
færi að tímafrestur til að gera
endurkröfu væri 120 dagar frá því
þjónusta átti að vera afhent.
„Meginreglan er að handhafar
Visa- og MasterCard-greiðslukorta,
bæði debet- og kreditkorta, eiga
endurkröfurétt þegar fyrirfram-
greidd þjónusta hefur ekki verið eða
verður ekki innt af hendi,“ sagði
fulltrúinn um þennan rétt.
Fram kemur á vef Samgöngustofu
að flugrekendur ábyrgist ekki að
farþegar sem staddir eru erlendis
komist heim sér að kostnaðarlausu,
eða endurgreiði þeim sem greitt
hafa farmiða að fullu, eða að hluta,
sé ferð ófarin.
Nánar er fjallað um þessi mál á
mbl.is. baldura@mbl.is
Geta átt endurkröfurétt
Farþegar geta mögulega fengið flugmiða endurgreidda
Óvissa um framtíð WOW air