Morgunblaðið - 26.03.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019
Styrmir Gunnarsson fjallar umvinnudeilur, sem beri engin
merki þess að samkomulag sé í
nánd, og fullveldis-
mál á heimasíðu
sinni og segir: „Það
fer ekki fram hjá
nokkrum manni, að
það ríkir uppnám á
vettvangi stjórn-
málanna um þessar
mundir. Það er
ekki hægt að nota vinsæl orð eins
og „festa“ og „stöðugleiki“ um það
ástand.“
Styrmir heldur áfram: „Svo virð-ist sem stjórnarflokkarnir séu
búnir að berja þingflokka sína
saman um yfirborðskennda fyrir-
vara vegna orkupakka 3 en það
þýðir ekki að það sama eigi við um
samfélagið allt.
Reyndar hefur tilhneiging for-ystusveita bæði Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks til
þess að gefa eftir í fullveldis-
málum á seinni árum valdið óróa í
báðum flokkunum. Opinber stefna
þeirra er sú að þeir eru andvígir
aðild Íslands að ESB, en þegar
þeir höfðu tækifæri til létu þeir
duga að aðildarumsóknin yrði
geymd í skúffu í Brussel en hún
var ekki dregin til baka með form-
legum hætti. Það auðveldar þeim
leikinn síðar meir sem vilja inn-
göngu í ESB.
Nú virðast forystusveitir flokk-anna með sama hætti vera
tilbúnar til að opna ESB leið til
yfirráða yfir einni af auðlindum
okkar, orku fallvatnanna. Hvers
vegna?
Allt mun þetta valda miklumumbrotum á sviði stjórnmál-
anna“ næstu vikur og mánuði og
ómögulegt að vita til hvers það
kann að leiða.
Styrmir
Gunnarsson
Hví að opna ESB
leið til orkuyfirráða?
STAKSTEINAR
Pappírsnotkun Alþingis hefur
minnkað jafnt og þétt á undan-
förnum árum, samkvæmt skriflegu
svari Steingríms J. Sigfússonar, for-
seta Alþingis, við fyrirspurn Björns
Levís Gunnarssonar, þingmanns
Pírata.
Segir í svarinu að til dæmis séu
fundargögn á nefndafundum ekki
lengur prentuð út heldur séu þau nú
aðgengileg rafrænt. Þá segir að Al-
þingi sé þátttakandi í Grænum
skrefum og því sé leitast við að
prenta ekki út efni að óþörfu. Þá hafi
prenturum verið fækkað og not-
endur hvattir til að prenta báðum
megin á blöðin til að spara pappír.
Í svarinu kemur jafnframt fram
að Alþingi hafi eytt 955.558 krónum
á síðasta ári í pappírskaup, og að
fjöldi keyptra blaða hafi verið
539.500. Þá er pappírsnotkunin
sundurliðuð eftir svæðum, og kemur
þar meðal annars fram að á prentara
sem staðsettur er hjá skrifstofum
Pírata hafi verið prentuð út 3.070
blöð, en tveir prentarar á skrif-
stofusvæðum Miðflokksins prentuðu
út samtals 11.949 blöð á síðasta ári.
sgs@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Dregið hefur verið úr pappírsnotkun þingsins jafnt og þétt.
Pappírsnotkun
þingsins minnkað
Tæp milljón í pappírskaup árið 2018
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
á sótthitabreytist eftir aldri?
Thermoscaneyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
27,3% þeirra sem leituðu aðstoðar
hjá embætti umboðsmanns skuldara
í fyrra voru á aldrinum 18-29 ára, en
árið 2012 var hlutfallið 5%. Þetta var
á meðal þess sem kom fram í erindi
Ástu Sigrúnar Helgadóttur, um-
boðsmanns skuldara, á ráðstefnu um
ungt fólk og lánamarkaðinn sem
haldin var á Grand hótel í gær-
morgun.
Vakti Ásta Sigrún í erindi sínu
sérstaka athygli á þætti svonefndra
„smálána“, en hún sagðist frekar
vilja kalla þau skyndilán. „Smálán er
ekkert smá lán. Það er bara stórt
lán,“ sagði Ásta meðal annars.
Umsóknum fjölgar milli ára
Í máli Ástu Sigrúnar kom fram að
umsóknum til embættisins væri aft-
ur tekið að fjölga eftir að þeim fækk-
aði jafnt og þétt á árunum 2012-2015.
Nú hafi umboðsmanni borist fleiri
umsóknir í ár en á sama tíma í fyrra,
og aukningin sé mest í yngsta
aldurshópnum.
Benti Ásta Sigrún á að árið 2012
hafi 6% þeirra sem leituðu til um-
boðsmanns skuldara verið með
skyndilán, en að árið 2018 hafi hlut-
fallið verið komið upp í 57%. „Það
eru viðvörunarljós farin að blikka og
við erum kannski bara að sjá toppinn
á ísjakanum,“ sagði Ásta, en hún
benti jafnframt á að tölur embættis-
ins næðu eingöngu yfir þá sem leit-
uðu þangað. „Við heyrum hins vegar
líka af foreldrum sem eru að borga
lán barna sinna, en þeir koma ekki
endilega til okkar.“
Ásta sagði nauðsynlegt að bregð-
ast við þessum vanda, og þörf væri á
miðlægum skuldagrunni til að hafa
yfirsýn yfir umfang skyndilánastarf-
semi hér á landi og hlutfall vanskila.
Hins vegar þyrfti að breyta lögum til
þess að draga úr líkunum á að farið
væri út í óábyrgar lánveitingar.
Smálánin eru ekki svo smá lán
Nokkur fjölgun umsókna til umboðsmanns skuldara 57% eru með „smálán“