Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 1

Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 7. M A R S 2 0 1 9 Stofnað 1913  73. tölublað  107. árgangur  DRAMATÍSK, DULARFULL OG SPENNANDI MÓSAÍK- MYNDIR GERÐAR UPP BÚSETI HÆKKAR LEIGUVERÐ MINNING VALTÝS, 30 VIÐSKIPTAMOGGINNSKUGGAHVERFI Í BÍÓ 33 H V ÍT A H Ú S IÐ / A c ta v is 7 1 1 0 3 0 Betolvex B-12 H Fæst án lyfseðils Baldur Arnarson, Stefán E. Stefánsson, Þóroddur Bjarnason og Pétur Hreinsson Skúli Mogensen, forstjóri og stofn- andi WOW air, fundaði um endur- skipulagningu félagsins í gærkvöldi. Fulltrúar WOW air vildu ekki tjá sig um viðræðurnar og efni þeirra. Félagið lofaði Morgunblaðinu við- tali við Skúla um miðjan dag í gær. Skömmu áður en blaðið fór í prentun var hins vegar tilkynnt að vegna annríkis yrði viðtalið að bíða. Upp úr hádegi í gær sendi WOW air frá sér tilkynningu um að félagið hefði náð samkomulagi við meiri- hluta skuldabréfaeigenda um fjár- hagslega endurskipulagningu þess. Haft var eftir Skúla á vef Vísis að næsta skref væri að semja við kröfu- hafa. Þeim viðræðum hefðu ekki verið gefin nein tímamörk. Friðrik Larsen vörumerkjasér- fræðingur segir vörumerki WOW air afar mikils virði. Félagið hafi kostað miklu til markaðssetningar á erlendum mörkuðum síðustu ár. Hann telur aðspurður að vöru- merkið hafi skaðast af umræðu um framtíð félagsins síðustu daga en vélar hafa m.a. verið kyrrsettar. Með því að halda uppi tíðni flug- ferða á næstunni geti félagið hins vegar unnið vissan varnarsigur. Skúli ekki lengur eigandinn Með samkomulaginu við skulda- bréfaeigendur er WOW air ekki lengur í hreinni eign Skúla. Hver eignarhluturinn verður til framtíðar mun ráðast af endurskipu- lagningu félagsins. Ingólfur Bender, aðalhagfræðing- ur Samtaka iðnaðarins, telur að flug- fargjöld þurfi líklega að hækka. „Vandræði flugfélaganna endur- spegla það að hluta að verð á flugfar- gjöldum hefur verið mjög lágt og samkeppnin mikil á flugmarkaði við félög með hagstæðari kostnaðarupp- byggingu en þau íslensku. Vandræði íslensku flugfélagana í þessu umhverfi eru sjálfstætt áhyggjuefni fyrir okkur sem ferða- mannastað í ljósi þess hvað þessi fé- lög eru umfangsmikil í flutningi far- þega til og frá landinu. Flugfargjöld þurfa líklega að hækka en það myndi eflaust hafa neikvæð áhrif á ferða- mannastrauminn hingað,“ segir Ing- ólfur. Yngvi Harðarson, framkvæmda- stjóri Analytica, er sama sinnis og bendir á sögulegt samhengi flugfar- gjalda og fjölda skiptifarþega. Verð flugmiða hafi í einhverjum tilvikum verið undir kostnaðarverði. Flugfélögin séu í erfiðri stöðu og geti ekki lengur selt miðana á því verði. Með því verði Ísland dýrari áfangastaður sem aftur geti hægt á vexti ferðaþjónustu á næstu árum. Halldór Þorkelsson, fram- kvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækis- ins Capacent, segir óvissu í efna- hagsmálum hafa dregið úr væntingum. Margt bendi til að það hafi haft marktæk efnahagsleg áhrif. „Við getum hikstalaust sagt að við finnum það víða í því sem við erum að fást við að sú óvissa sem verið hefur uppi, og þá einkum varðandi flugfélögin, hefur haft tilfinnanleg áhrif. Langvarandi óvissa er aldrei góð í rekstri. Þá til dæmis varðandi skipu- lag og hvernig fólk ætlar sér næstu skref inn í framtíðina,“ segir hann.  WOW air tjáði sig ekki um viðræðurnar við kröfuhafa í gærkvöldi  Hagfræðingar telja að flugmiðar þurfi að hækka í verði  Framkvæmdastjóri Capacent segir óvissuna í fluginu hafa haft marktæk áhrif MWOW »10 og ViðskiptaMogginn Víkurfréttir/Hilmar Bragi Trygging Ein af farþegaþotum WOW air, TF-GPA, sést hér í flugskýli 885 á Keflavíkurflugvelli. Vélin er sögð vera trygging fyrir skuldum hjá Isavia. WOW reynir að semja Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég er nú búinn að vera í mörgum nýbyggingum, hef tekið þátt í að smíða 20-30 skip, en hef aldrei séð neitt þessu líkt. Þetta hlýtur að vera vankunnátta. Menn bara haga sér ekki svona,“ segir Björgvin Ólafsson, umboðsmaður skipa- smíðastöðvarinnar Crist S.A. á Ís- landi, við Morgunblaðið, en skipa- smíðastöðin sér um smíði nýs Herjólfs í Póllandi. Vísar hann í máli sínu til þess hvernig Vegagerðin hefur haldið á málum varðandi afhendingu Herj- ólfs. Þegar menn hafi greint á um kostnað hafi ekki verið gerð nein tilraun til að ræða málin á yfirveg- aðan hátt og finna lausn. „Menn komu bara með lögfræðistóð frá Danmörku á fyrsta fund og það er auðvitað þeirra hagur að allt fari í háaloft. Það var enginn tæknimaður sem gat rætt málin,“ segir hann. Björgvin segir að Herjólfur hafi verið boðinn út með teikningum frá Vegagerðinni, gerðum í Noregi og þær kostað hundruð milljóna króna. „Og maður spyr sig í dag, vissu þeir sem gerðu teikningarnar af þeim vandamálum sem hafa verið með Herjólf?“ G. Pétur Matthíasson, upplýs- ingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir þá eiga í viðræðum við skipasmíða- stöðina um framhaldið. „Við reiknum með að það séu yfirgnæfandi líkur á því að við fáum skipið afhent þótt það gæti tafist eitthvað,“ segir hann. »18 Gagnrýnir framgönguna Ljósmynd/Vegagerðin Skipasmíðastöð Nýr Herjólfur sést hér á siglingu.  Aldrei séð neitt þessu líkt, segir umboðsmaður Crist S.A. „Þetta varstutt leit en löng björgun,“ sagði Jónas Guð- mundsson hjá Slysavarnafélag- inu Landsbjörg í samtali við Morgunblaðið og vísar í máli sínu til þess þegar björgunarsveitir björguðu átta manns og þremur jeppabifreiðum til byggða á mánu- dag. Hafði fólkið, sem þá var sunn- an Langjökuls, lent í ógöngum vegna slæmrar færðar. Tók að- gerðin yfir 20 klukkustundir. Þyrla gæslunnar tók einnig þátt og var um borð sérstakur GSM- leitarbúnaður. »11 GSM-leitarkerfi nýtt til björgunar LHG Þyrlusveit gæslunnar tók þátt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.