Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 4

Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Úrval af rafdrifnum hvíldarstólum Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Komið og skoðið úrvalið Veður víða um heim 26.3., kl. 18.00 Reykjavík 4 skýjað Hólar í Dýrafirði 3 skýjað Akureyri 5 léttskýjað Egilsstaðir 4 léttskýjað Vatnsskarðshólar 5 skýjað Nuuk -1 léttskýjað Þórshöfn 7 skýjað Ósló 5 skúrir Kaupmannahöfn 5 skýjað Stokkhólmur 4 léttskýjað Helsinki 2 heiðskírt Lúxemborg 8 skýjað Brussel 10 léttskýjað Dublin 12 skýjað Glasgow 9 alskýjað London 12 alskýjað París 12 heiðskírt Amsterdam 9 léttskýjað Hamborg 7 skúrir Berlín 8 léttskýjað Vín 9 heiðskírt Moskva 2 heiðskírt Algarve 18 léttskýjað Madríd 19 heiðskírt Barcelona 16 heiðskírt Mallorca 14 léttskýjað Róm 13 rigning Aþena 17 rigning Winnipeg -1 alskýjað Montreal -3 heiðskírt New York 3 heiðskírt Chicago 5 léttskýjað Orlando 24 heiðskírt  27. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:04 20:03 ÍSAFJÖRÐUR 7:06 20:11 SIGLUFJÖRÐUR 6:49 19:54 DJÚPIVOGUR 6:33 19:33 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Suðvestan 10-15 og éljagangur, en þurrt á Austurlandi. Hiti um frostmark. Á föstudag NV og V 3-8, en 8-13 A-lands. Él um landið N-vert og með SV-ströndinni. Frost 0-6 stig. Snýst í suðvestan 15-25 með éljum og kólnandi veðri, hvassast norðvestan til. Lengst af bjart- viðri eystra. Ómar Garðarsson Vestmannaeyjar „Skilaboðin eru mjög skýr,“ sagði Sindri Viðarsson, formaður Útvegs- bændafélags Vestmannaeyja og sviðsstjóri hjá Vinnslustöðinni, eftir fund í gær um stöðuna í Vestmanna- eyjum í kjölfar loðnubrestsins í ár. „Horfum til framtíðar, aukum rann- sóknir, reynum að minnka óvissu um það sem við erum að taka úr náttúr- unni og skilja það betur. Búum líka til rekstrarhæft umhverfi fyrir fyrir- tækin þannig að þau séu betur í stakk búin til að takast á við sveiflur í nátt- úrunni,“ sagði Sindri einnig. Á fundinum kom fram að brestur- inn er mikið fjárhagslegt högg fyrir samfélag eins og Vestmannaeyjar, fólkið, fyrirtækin og sveitarfélagið, sem eiga mikið undir loðnuveiðum og vinnslu loðnuafurða. Þingmönnum Suðurkjördæmis var sérstaklega boðið á fundinn og mættu Páll Magnússon, Ásmundur Friðriksson og Vilhjálmur Árnason frá Sjálf- stæðisflokki og Karl Gauti Hjaltason frá Miðflokknum. Áhrifanna strax farið að gæta Sindri var meðal frummælenda á fundinum ásamt Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra og Hrafni Sævaldssyni, nýsköpunar- og þrjóunarstjóra hjá Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Hrafn sagði að höggið fyrir Vest- mannaeyjar, sem hafa yfir að ráða um þriðjungi loðnukvótans, væri mik- ið og að áhrifanna væri strax farið að gæta. Benti hann á að sex skip hefðu stundað veiðarnar frá Vestmanna- eyjum og eitt þeirra, Álsey VE í eigu Ísfélagsins, væri nú til sölu. „Sjó- menn á þessum bátum standa uppi án atvinnu og uppsjávarfrystihúsin tvö í Vestmannaeyjum standa ónotuð í sjö til átta mánuði á árinu. Í fyrra gaf loðnan af sér 18 milljarða og sex í Vestmannaeyjum. Það verður því minna fjármagn í umferð og það tapa allir,“ sagði Hrafn. Íris sagði að loðnubresturinn bitn- aði á öllum Eyjamönnum. Bæjar- sjóður verður af 4,2% útsvarstekna, 100 milljónum króna og hafnarsjóður af 8,3% sinna tekna, sem eru um 40 milljónir. „Svo kemur þetta við fjölda fólks, bæði beint og óbeint,“ sagði Íris. „Það eru um 200 manns sem vinna við vinnslu loðnunnar í landi og 85 sjómenn eru á loðnuskipunum. Þetta er mikið högg og það kemur ekkert í staðinn fyrir þetta fólk,“ sagði Íris. Krefst Íris þess að gerð verði út- tekt á áhrifum loðnubrestsins sem all- ir í Vestmannaeyjum finni fyrir með einum eða öðrum hætti. „Við þurfum ekki að endurskoða fjárhagsáætlun núna, reksturinn er á pari en hvort við þurfum að horfa á framkvæmdahlið- ina kemur í ljós þegar líður á árið,“ sagði Íris en fyrirhugaðar eru stórar framkvæmdir á vegum bæjarins, bygging slökkvistöðvar og íbúðir fyrir fatlaða. „En það sem skiptir máli núna er að við beitum okkur fyrir því að unnin verði greining og skýrsla um áhrif loðnubrests á sveitarfélag eins og Vestmannaeyjar,“ sagði Íris að end- ingu. Sindri kom víða við erindi sínu, og setti meðal annars fram kröfu um frekari rannsóknir og bætta sam- keppnisstöðu fyrir greinina. „Þetta eru þættirnir sem munu hafa áhrif á okkur eftir fimm ár, tíu ár og fimmtíu ár,“ sagði Sindri. Benti hann á að ríkisstjórin gengi þvert á stjórnar- sáttmálann um að auka samkeppnis- hæfni sjávarútvegs og að síðasta út- spilið hefði verið hækkun á kolefnis- gjaldi. Sindri benti líka á hversu lítið er vitað um loðnu og göngur hennar. Brá hann upp frétt úr blaði frá 2001 þar sem sagt var frá árangurlausri loðnu- leit. „Hvað gerðist þá?“ spurði Sindri og hélt áfram. „Eftir tíu daga storm kemur öll loðnan upp í Víkurálnum fyrir vestan og það er gefinn út kvóti upp á milljón tonn. Árið 2015 fannst lítið en haldið var áfram að leita. Það voru leyfð 160 þúsund tonn og útflutn- ingsverðmæti 15 milljarðar og þar af fimm milljarðar til Vestmannaeyja.“ Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Loðnubrestur Mikill áhugi var á erindunum í Vestmannaeyjum. Bresturinn högg fyrir samfélagið  Verða af 100 milljónum króna „Ég get ekki dæmt um það,“ segir Eyjólfur Guðjónsson, skipstjóri á Ísleifi VE með áratuga reynslu af uppsjávarveiðum, þegar hann er spurður að því hvort hann teldi að gefa hefði átt út loðnukvóta í ár. „Ég held að það þyrfti að vera ein- hver lágmarkskvóti svo menn fari af stað og það auðveldar mönnum að vakta loðnuna.“ Eyjólfur segist ekki geta sagt til um hvort stofninn sé í lágmarki en bendir á að ef gefinn er út kvóti fái Færeyingar og Norðmenn alltaf sinn hlut. „Þeir fá að geyma á milli ára sem við fáum ekki að gera. Norðmenn fá alltaf sitt þó það hafi ekki verið veidd loðna í norskri lögsögu áratugum saman. Samt er þessi kvóti.“ Eyjólfur segir ástandið skelfi- legt því það sé ekki í neitt annað að fara. Hann telji að stofninum hafi hnignað eftir að byrjað var að nota troll við loðnuveiðar. „Við höfum dæmið frá 2017 þegar við fórum ekki af stað fyrr en eftir verkfall. Þá gekk loðnan eins og í gamla daga, enginn búinn að trolla í henni. Í fyrra, svipaður kvóti, búið að hræra í henni með trolli fyrir austan land og veiðar í nót urðu ekki svipur hjá sjón,“ sagði Eyjólf- ur að endingu. Telur að ekki hefði átt að trolla LOÐNUSTOFNINN Áhorfendapallar í borgarstjórnar- sal Ráðhúss Reykjavíkur voru þétt- setnir í gær þegar Reykjavíkurráð ungmenna sat fund borgarstjórnar. Reykjavíkurráð ungmenna kem- ur með tillögur um málefni sem á þeim brenna og segja frá því sem betur má fara í borginni. Í tilkynningu frá Reykjavíkur- borg kemur meðal annars fram að fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar sé orðinn að ár- vissum viðburði og er þessi fundur sá átjándi í röðinni. Markmið með starfsemi ráðsins er m.a. að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og til- lögum á framfæri. Ungmenni fjölmenntu í Ráðhúsið Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.