Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Hin árlega Boðsundskeppni grunn-
skólanna var haldin í Laugardals-
laug um hádegisbilið í gær. Ríkti
þar mikil gleði og góð stemmning
meðal keppenda, en þetta var í
sjötta sinn sem keppnin var haldin.
Ingibjörg Helga Arnardóttir,
framkvæmdastjóri Sundsambands
Íslands, segir að þetta sé stærsta
keppnin sem haldin hafi verið til
þessa, en 648 sundkappar úr 41
skóla létu til sín taka að þessu sinni.
Keppt er í tveimur aldurs-
flokkum og varð Hraunvallaskóli
hlutskarpastur í flokki 5.-7. bekkj-
ar, en keppendur skólans komu í
mark á tímanum 1:59,37.
Hagaskóli varð svo efstur í flokki
8-10. bekkjar með sundtímann
1:46,94 en þetta var þriðja árið í röð
sem Hagaskóli vinnur til gull-
verðlauna á mótinu.
Ingibjörg segir að keppendur
hafi verið mjög ánægðir með mótið
í ár, og keppnin sé klárlega komin
til að vera. Þetta hafi verið byggt
upp jafnt og þétt á síðustu sex árum
og sífellt bætist fleiri skólar í hóp
þeirra sem taki þátt.
Líf og fjör í Laugardalslauginni í Reykjavík
Boðsundið
komið til
að vera
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sundkeppni Áhuginn var mikill, innan laugar sem utan, á því sem fram fór í Boðsundskeppni grunnskólanna í gær og spenna á sundlaugarbakkanum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Kjarasamningsviðræður eru hafnar
hjá aðildarfélögum okkar og þeim
miðar ágætlega. Hins vegar er auð-
vitað horft til þess hvað gerist á al-
menna markaðnum. Markmiðið er
alltaf að kjarasamningur taki við af
kjarasamningi en það er ólíklegt að
það hafist úr þessu. Það hefur hins
vegar verið lagður aukinn þungi í
viðræðurnar og við höfum haldið
góðum takti,“ segir Sonja Ýr Þor-
bergsdóttir, formaður BSRB.
Kjarasamningar fjölmargra opin-
berra starfsmanna renna út um
helgina. Um 21 þúsund félagsmenn
eru innan BSRB og er því mikið
undir. Auk viðræðna aðildarfélaga
BSRB við viðsemjendur, ríki, borg
og Samband íslenskra sveitarfélaga,
hefur BSRB verið falið að semja um
ýmis mál. Þar á meðal er stytting
vinnuvikunnar, jöfnun launa milli
markaða og launaþróunartrygging.
„Síðan erum við að horfa til starfs-
umhverfisins í heild sinni. Það sýnir
sig að veikindafjarvera og kulnun er
meiri á opinbera markaðnum en
annars staðar, þótt þetta sé reyndar
landlægt. Ástæður þess má að
mörgu leyti rekja til starfsumhverf-
isins og aðstæðna. Við krefjumst
þess að gripið verði til aðgerða til að
fyrirbyggja þann vanda. Það má til
að mynda gera með því að skoða
mönnun á vinnustöðum. Það er
mikilvægt að vinnustaðir séu ekki
alltaf reknir á lágmarksmönnun,“
segir Sonja Ýr.
„Við höfum tekið þátt í þessu sam-
tali vinnumarkaðarins við stjórn-
völd. Það hefur sitthvað gagnlegt
komið út úr því sem sátt er um, til að
mynda um félagsleg undirboð, um
lengingu fæðingarolofs og um hús-
næðismál. Við hjá BSRB og ASÍ höf-
um hins vegar lagt áherslu á að það
komi annað og meira fram í skatta-
tillögunum. Við viljum að breytingar
þar gagnist betur þeim launalægstu,
að þær fari ekki upp allan stigann.“
Þórunn Sveinbjarnardóttir, for-
maður BHM, sem hefur yfir 14 þús-
und félagsmönnum að ráða, segir að
fulltrúar félagsins séu byrjaðir að
funda með viðsemjendum. „Það er
gangur í fundarhöldum en of
snemmt að segja til um hvaða ár-
angri það skilar. Við erum ekki kom-
in það langt,“ segir hún.
Þórunn segir enn fremur að nú
sem fyrr sé aðalkrafa BHM og
aðildarfélaga að háskólamenntun sé
metin til launa.
Aukinn þungi lagður í viðræðurnar
Morgunblaðið/Hari
Allir um borð Kjarasamningar á opinbera markaðnum losna brátt, en margir samningar renna út um helgina.
Kjarasamningar á opinbera markaðnum renna út um mánaðamót Viðræður hafnar hjá BSRB og
BHM en horft er til þess hvað gerist á almenna markaðnum Um 21 þúsund félagsmenn innan BSRB
„Þetta gefur mönnum von um að botn-
inum sé raunverulega náð og skinnin
muni ef til vill halda áfram að hækka.
Verðið er samt enn langt undir fram-
leiðslukostnaði,“ segir Einar Eðvald
Einarsson, formaður Sambands ís-
lenskra loðdýrabænda. Loksins kom
líflegt uppboð hjá Danska uppboðshús-
inu þar sem íslenskir minkabændur
selja skinn sín, eftir langvarandi mark-
aðsbrest.
Marsuppboðinu lauk í gær. Margir
kaupendur komu, fleiri en á síðustu
uppboðum, og öll framboðin skinn seld-
ust. Er það mikil breyting því uppboðs-
húsið hefur ekki náð að selja upp á síð-
ustu uppboðum. Verðið er að meðaltali
um 3% hærra en á uppboðinu í janúar.
Skýringin á líflegra uppboði er að
heimsframleiðsla á minkaskinnum
hefur minnkað mikið og telja kaup-
endur í Asíu og víðar hættu á að þeir
fái ekki öll þau skinn sem þeir þurfa í
framleiðsluna. Haft er eftir Jesper
Lauge Christensen, forstjóra upp-
boðshússins, að uppboðið nú sé fyrsta
merki um viðsnúning á markaðnum.
Hrun í minkarækt
Verðlækkun og erfiðleikar á
skinnamörkuðum hefur haft mikil
áhrif hér á landi. Greinin hefur hrunið.
Nú eru aðeins 10 minkabú eftir með
um 15 þúsund læður sem er þriðjung-
ur af því sem var fyrir fimm árum.
helgi@mbl.is
Telja líkur á að botninum
í skinnaverði sé loks náð
Öll skinn seldust og 3% verðhækkun á danska uppboðinu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Uppboð Meiri stemning er nú í upp-
boðssalnum í Kaupmannahöfn.