Morgunblaðið - 27.03.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
Barátta Wow, upp á líf og dauða,er þungbær þeim sem fylgjast
með úr fjarlægð og hvað þá fyrir
mannskapinn sem í eldlínunni
stendur og þá sem eiga afkomu sína
undir. Jafnvel þeir, sem iðuðu af til-
hlökkun vegna verkfalla í ferða-
þjónustu, ungri grein og brot-
hættri, virtust fá örtengingu við
veruleika lífsbarátt-
unnar, um skamma
hríð.
Sú rann þó fljóttaf, afgreidd
með yfirlýsingu um
að erfiðleikar „kap-
ítalskra“ fyrirtækja
væru annarra mál.
Sú veruleikafirring veit ekki á gott
fyrir ólánsama umbjóðendur for-
ingjanna. Afkoma launamanna
ræðst af því hvort fyrirtækin séu
réttum megin við strikið í rekstr-
inum.
Verkföll geta ekki knúið Wow tilað fljúga eða hækka laun. Það
hefur ekki farið fram hjá fólkinu í
landinu að launþegafélögum stjórn-
ar nú fólk sem áttar sig ekki á hvað-
an það fé kemur sem endar í launa-
umslaginu. Þeirra haldreipi eru
frasar sem algengir voru um miðja
síðustu öld og reyndust öllum til
bölvunar.
Fari Wow um koll missa um1.000 manns vinnuna eins og
hendi sé veifað. Og í kjölfarið munu
störf enn stærri hóps verða ótrygg.
Hótanir um verkföll og til-hlökkun yfir því ástandi hafa
þegar grafið undan og flýtt fyrir
efnahagslegum afturkipp og
minnkandi kaupmætti á næstu
árum.
Dægrastytting þessara „forystu-manna“ er þegar orðin dýr-
keypt og fer dagversnandi.
Kexruglaðar klisjur
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Matvælastofnun hefur, í samvinnu
við Lyfjastofnun, kært vef með ís-
lensku léni til lögreglu og farið
fram á að vefnum verði lokað. Á
vefnum eru auglýst til sölu bæði
ólögleg fæðubótarefni og lyf að því
er fram kemur í frétt á vef MAST.
Rétthafi lénsins er skráður í
Mið-Ameríku, en vefleit gefur til
kynna starfsemi í Ástralíu. Varar
MAST í fréttinni við viðskiptum
við vefinn www.roidstop.is, sem og
neyslu fæðubótarefna og lyfja sem
vefurinn segist selja. Er neytend-
um jafnframt bent á að vera ávallt
á varðbergi er kemur að kaupum á
fæðubótarefnum og lyfjum á net-
inu.
Á vef roidstop eru til sölu hættu-
leg efni, s.s. DNP og Nootropics.
Nýlega féll dómur í Bretlandi
vegna dauða ungrar stúlku sem
neytt hafði DNP og hlaut sölu-
maðurinn sjö ára fangelsisdóm fyr-
ir manndráp af gáleysi. Þá leikur
grunur á að nýlegt andlát einstak-
lings hér á landi megi rekja til inn-
töku á Noontropics (tianeptine).
MAST barst ábending um vefinn
í gegnum hraðviðvörunarkerfi
Evrópu um matvæli og fóður
(RASFF).
MAST kærir sölu fæðubótarefna
Rétthafi lénsins roidstop.is skráður í
Mið-Ameríku en starfsemi í Ástralíu
Fæðubótarefni Vefsíðan roid-
stop.is hefur verið kærð til lögregl-
unnar af MAST og Lyfjastofnun.
Liðnar eru þrjár vikur frá síðasta
hugsanlega smiti og telur sótt-
varnalæknir að líklegast hafi tekist
að stöðva faraldurinn að þessu
sinni, að því er fram kemur á vef
landlæknis.
Fjórir einstaklingar hafa greinst
með staðfesta mislinga og þrír aðrir
með svokallað væga mislinga (e.
modified measles), en það eru bólu-
settir einstaklingar sem hafa kom-
ist í tæri við smitaðan einstakling.
Þessir einstaklingar fá vanalega
væg einkenni og smita ekki aðra.
Einnig hafa nokkrir einstaklingar
greinst með væg mislingalík ein-
kenni í kjölfar bólusetninga en slík
einkenni eru ekki alvarleg og þessir
einstaklingar smita ekki aðra.
Börn bólusett aftur
Börn verða bólusett aftur sam-
kvæmt fyrri áætlun við 18 mánaða
og 12 ára aldur. Ekki er talin
ástæða nú til að bólusetja börn
yngri en 18 mánaða nema við sér-
stök tilefni, eins og þegar ferðast
skal til landa þar sem tíðni mislinga
er há. Óbólusettir einstaklingar á
aldrinum 18 mánaða til 49 ára eru
áfram hvattir til að láta bólusetja
sig.
Þær aðgerðir sem ráðist var í til
að stöðva útbreiðslu mislinga hér á
landi tókust mjög vel þökk sé
starfsmönnum heilbrigðisstofnana
og almenningi. Frá því að fyrsta til-
fellið greindist hér á landi um miðj-
an febrúar hafa um það bil 6.749
einstaklingar verið bólusettir, 3.415
eru á aldrinum 0-17 ára, þar af
2.718 börn undir 18 mánaða aldri,
og 2.572 á aldrinum 18-49 ára.
Hætta á mislinga-
smiti líklega að baki
Fjórir með stað-
festa mislinga og
þrír með vægt smit
Morgunblaðið/Hari
Bólusetning Líklega er mesta
hættan liðin hjá með mislingasmit.