Morgunblaðið - 27.03.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 27.03.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 Gs import ehf | S. 892 6975 | www.gsimport.is Frábær ending Léttvínsglös úr hertu gleri Baldur Arnarson baldura@mbl.is Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica, segir vísbendingar um að verð flugmiða til og frá Íslandi muni hækka á næst- unni. Afkoma Icelandair og einkum WOW air bendi enda til að verð flug- miða hafi verið ósjálfbært. Yngvi segir greiningu Analy- tica benda til að hærra flugmiða- verð muni hafa marktæk áhrif á eftirspurn eftir ferðum til og frá Íslandi. Vegna þessara áhrifa sé útlit fyrir mun hægari vöxt ferða- þjónustu en á síðustu árum. Vegna vægis ferðaþjónustu í hagkerfinu sé líklegt að framlag greinarinnar til hagvaxtar á næstu árum verði því minna en verið hefur. Hagkerfið sé að fara í hægari vöxt. Greining á millilandafluginu Analytica vann í haust greiningu á áhrifum farmiðaverðs í flugi á eftir- spurn í millilandaflugi. Greiningin var birt sem viðauki með skýrslu starfshóps á vegum samgönguráðuneytisins um framtíð innanlandsflugs á Íslandi. Nánar tiltekið mat Analytica áhrif flugfargjalda á eftirspurn eftir milli- landaflugi um Keflavíkurflugvöll. Fyrirtækið skoðaði áhrif flugfar- gjalda á fjölda skiptifarþega og fjölda erlendra ferðamanna sem heimsækja landið. Benti greiningin til að flugfargjöldin hefðu mikil áhrif á þessar tvær stærðir. Hækki flug- fargjöldin fækkar skiptifarþegum og erlendum ferðamönnum og öfugt. Þetta gerist þó ekki samstundis heldur með nokkrum tímatöfum. Telur Yngvi að áhrifin eigi eftir að koma fram. Greiningin er rifjuð upp í tilefni af rekstrarerfiðleikum Icelandair og WOW air. Telur Yngvi tíðindi síð- ustu vikna renna stoðum undir að verð flugmiða hafi í einhverjum til- vikum verið undir kostnaðarverði. Með hliðsjón af erfiðri stöðu flug- félaganna muni þau ekki lengur geta selt flugmiða á slíku verði. Með því verði Ísland dýrari áfangastaður. Á móti komi að veiking krónu geti gert ferðalagið til Íslands hagstæð- ara í erlendri mynt en áður var. Það geti meðal annars stuðlað að því að eitthvað fleiri „tengifarþegar“ eigi hér stutta dvöl. Yngvi bendir á að næmi erlendra farþega fyrir hækkandi farmiða- verði sé meira en hjá innlendum far- þegum. Erlendir farþegar geti enda valið önnur flugfélög á leið yfir hafið. Innlendir farþegar séu hins vegar háðari íslensku flugfélögunum um samgöngur til og frá landinu. Hærra flugmiðaverð muni slá á eftirspurn  Framkvæmdastjóri Analytica bendir á söguleg gögn Flugfargjöld og fjöldi skiptifarþega* Ársbreyting í fjölda skiptifarþega og fl ugfargjöld 24 mán. áður** 60% 40% 20% 0 -20% -40% 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Fjöldi skiptifarþega Flugfargjöld *Í millilandafl ugi um Kefl avíkurfl ugvöll **Jafnað með sk. Hodrick-Prescott síu Heimild: Analytica Yngvi Harðarson Ingólfur Bender, aðalhagfræð- ingur Samtaka iðnaðarins, segir að flugfargjöld þurfi líklega að hækka. „Sérstaða ferðaþjónust- unnar hér á landi í samanburði við slíka starfsemi í öðrum lönd- um er hvað hún reiðir sig mikið á flug. Sjálfstæð uppspretta fjölg- unar ferðamanna hér á landi síð- ustu ár hefur því verið tíðari flug- ferðir til fleiri áfangastaða í heiminum. Hins vegar hefur það verið að ferðamenn geti flogið hingað á hagstæðu verði. Þessir þættir skipta miklu máli í ákvörð- unum ferðamanna um að koma hingað. Vandræði flugfélaganna endurspegla það að hluta að flug- fargjöld hafa verið mjög lág og samkeppnin mikil á flugmarkaði við félög með hagstæðari kostn- aðaruppbyggingu en þau íslensku … Flugfargjöld þurfa líklega að hækka en það myndi eflaust hafa neikvæð áhrif á ferðamanna- strauminn hingað.“ Verðið skiptir miklu máli AÐALHAGFRÆÐINGUR SI BENDIR Á ÁHRIFAÞÆTTI þess að ákvörðunum er frekar frestað. Þannig að við höfum fundið fyrir því að það er ákveðin fælni við að taka stærri, skuldbindandi ákvarðan- ir vegna þessarar óvissu. Við höfum orðið vör við það,“ segir Halldór, sem telur þetta hafa haft markverð áhrif á fjárfestingu að undanförnu. – Hvers vegna hafa væntingar svona mikil áhrif? „Væntingar eru skrýtið fyrirbæri. Við getum stundum talað okkur inn í eitthvert ástand og markaðurinn tekur síðan allur undir það og til verð- ur ástand sem leiðir af sér ákvarð- anafælni. Hversu rökrétt það er hverju sinni er síðan umdeilanlegt. Stemningin verður til þess, að þeir sem standa frammi fyrir því að taka ákvarðanirnar finna að markaðurinn er ákvarðanafælinn og þá smitar það út frá sér.“ – Hvenær fóru áhrifin að birtast? „Við fórum að greina áhrif þessa undir lok síðasta árs að einhverju leyti,“ segir Halldór. Halda frekar að sér höndum Ingólfur Bender, aðalhagfræðing- ur Samtaka iðnaðarins, tekur undir að væntingar hafi mikil áhrif. „Fyrir það fyrsta er óvissa til þess fallin að fjárfestar og lánveitendur haldi frekar að sér höndum og geri hærri ávöxtunarkröfu. Þetta dregur úr umfangi og vexti fjárfestinga í hag- kerfinu. Nokkuð hefur dregið úr at- vinnuvegafjárfestingu undanfarið en aukning hefur verið í íbúðafjárfest- ingu og fjárfestingu hins opinbera,“ segir Ingólfur. „Það myndi því hafa jákvæð áhrif að draga úr þessari óvissu. Langvar- andi óvissa dregur úr vextinum. Þetta hefur líka áhrif á einkaneyslu heimila. Þau eru enda líklegri til að halda að sér höndum þegar óvissa er um fram- tíðartekjur og eignir. Þegar svona óvissuástand varir í lengri tíma getur það því haft neikvæð áhrif á hagvöxt,“ segir Ingólfur. Hann segir aðspurður ekki hægt að fullyrða að búið sé að verðleggja óvissu á eignamörkuðum. „Óvissan er enda búin að vera svo sveiflukennd og síbreytileg frá degi til dags. Það er því ekki hægt að segja að búið sé að verðleggja hana. Ný tíðindi berast á hverjum degi, nánast.“ Óvissa hefur dregið úr eftirspurn  Framkvæmdastjóri Capacent segir óvissu í efnahagsmálum undanfarið hafa dregið úr væntingum  Dregið hafi úr fjárfestingu  Aðalhagfræðingur SI segir óvissu geta dregið úr útlánum banka Morgunblaðið/Eggert Við Leifsstöð Mikil óvissa hefur verið í fluginu síðustu mánuði. Tvísýnt hefur verið um framtíð WOW air. Halldór Þorkelsson Ingólfur Bender BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Óvissa í efnahagsmálum að undan- förnu hefur dregið úr væntingum. Vísbendingar eru um að sú þróun hafi haft marktæk efnahagsleg áhrif. Meðal annars er ákvörðunum og þar með fjárfestingu slegið á frest. Þetta segir Halldór Þorkelsson, framkvæmdastjóri ráðgjafarfyrir- tækisins Capacent á Íslandi. Kemur þar m.a. til óvissa í kjara- málum og varðandi flugfélögin. Capacent er með víðtæka starf- semi. Það sinnir einkamarkaði og opinberri starfsemi og veitir margs- konar ráðgjöf. „Við getum hikstalaust sagt að við finnum það víða í því sem við erum að fást við að sú óvissa sem verið hefur uppi, og þá einkum varðandi flug- félögin, hefur haft tilfinnanleg áhrif. Langvarandi óvissa er aldrei góð í rekstri. Þá til dæmis varðandi skipu- lag og hvernig fólk ætlar sér næstu skref inn í framtíðina. Minni óvissa er því ávallt æskileg.“ Ákvörðunum frekað frestað – Hvernig hefur sú þróun birst á marktækan hátt? „Heilt yfir hafa þessi mál orðið til

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.