Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019
VELDU ÚR MEÐ SÁL
www.gilbert.is
Magnús M. Norðdahl, lögfræðingur
ASÍ, hefur verið kjörinn í stjórn Al-
þjóða vinnumálastofnunarinnar
(ILO), fyrstur Íslendinga. Magnús
var tilnefndur af norræna verkalýðs-
sambandinu, NFS, studdur af al-
þjóðasambandi verkafólks, ITUC,
og kjörinn af fulltrúum alþjóðlegrar
verkalýðshreyfingar til þessa emb-
ættis, segir í frétt frá ASÍ.
Magnús hefur verið fulltrúi ís-
lenskrar verkalýðshreyfingar á
þingum ILO síðastliðin 20 ár og tek-
ið þátt í fjölmörgum samninga-
nefndum á vettvangi stofnunar-
innar. Hann leiddi meðal annars
slíka nefnd fyrir hönd verkafólks á
árinu 2016.
ILO var stofnuð 1919 á grundvelli
Versalasamninganna og varð við
stofnun Sameinuðu þjóðanna fyrsta
sérstaka stofnun þeirra. Ísland hef-
ur átt aðild að Alþjóðavinnumála-
stofnuninni síðan 19. október 1945.
Hlutverk ILO er annars vegar
setning alþjóðalaga á sviði vinnu-
réttar og félagsmála og eftirlit með
framkvæmd þeirra laga. Hins vegar
snýr hlutverk þess að aðstoð við að-
ildarríki stofnunarinnar við fram-
kvæmd þessara laga. Umfangsmikið
eftirlitskerfi er rekið af stofnuninni
og sérstök sjálfstæð níu manna
nefnd, Félagafrelsisnefndin, starfar
til þess að taka við og úrskurða kær-
ur um brot gegn alþjóðlega viður-
kenndu og vernduðu félagafrelsi og
kjarasamningsrétti.
Stjórn ILO kaus Magnús hinn 25.
mars, samkvæmt tilnefningu verka-
fólks, sem aðalfulltrúa í þessa nefnd
en Ísland hefur aldrei áður átt full-
trúa í henni.
Magnús fyrstur
Íslendinga í ILO
Lögfræðingur ASÍ tilnefndur í stjórn
Ljósmynd/ASÍ
Verkalýðsmál Magnús M. Norðdahl
á stjórnarfundi hjá ILO í vikunni.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Björgunarsveitir Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar björguðu á mánu-
dag átta manns og þremur jeppum
til byggða. Fólkið hafði lent í ógöng-
um sunnan Langjökuls í slæmri færð
og litlu skyggni. Björgunaraðgerð-
irnar tóku yfir 20 klukkustundir.
„Þetta var stutt leit en löng björg-
un,“ sagði Jónas Guðmundsson hjá
Landsbjörg. Aðstandendur ferða-
langanna óskuðu eftir aðstoð um
miðnætti á sunnudagskvöld. Sjö
hópar björgunarsveitarmanna af
Suðurlandi fóru af stað til að byrja
með.
GSM-leitarbúnaði beitt
Lögreglan hafði samband við
Landhelgisgæsluna og bað um þyrlu
til leitarinnar. Þyrlan fór frá Reykja-
vík kl. 02.03 og var starfsmaður frá
Rögg með sérstakan GSM-leitar-
búnað um borð. Þyrlan var komin á
svæðið þar sem talið var að fólkið
væri, eftir um hálftíma flug. Búið var
að ná sambandi við fólkið með GSM-
leitarkerfinu kl. 02.34. „Sá sem rætt
var við sagði hópinn vera staddan við
Slunkaríki, þar væru allir bílarnir og
allir væru heilir á húfi. Hópurinn
óskaði eftir að einhver kæmi til móts
við hann og myndi leiða hópinn til
byggða,“ að sögn Landhelgisgæsl-
unnar.
Margir eru með neyðarsenda
Jónas sagði að ýmis tækni hjálpaði
við að staðsetja týnda ferðamenn.
„Við erum með hugbúnað sem sendir
SMS í GSM-síma. Móttakandi ýtir á
hlekk í SMS-inu og þá fáum við til
baka staðsetningu hans,“ sagði
Jónas. „Ef ferðamaðurinn er ekki á
þjónustusvæði farsíma ætti hann að
vera með neyðarsendi og margir eru
með þá.“
Jónas sagði að þrjár gerðir
neyðarsenda væru algengastar. Þeir
senda boð og staðsetningu um gervi-
hnetti.
Í fyrsta lagi nefndi Jónas SPOT-
tæki. Þau geta sent staðsetningu á
Facebook-síðu eða vefsíðu og allir
sem hafa aðgang að síðunum geta
séð hvar ferðamaðurinn er hverju
sinni. Einnig er hægt að senda ein-
föld skilaboð eða neyðarbeiðni og
fylgir staðsetning með. Kaupa þarf
áskrift að þjónustunni.
Í öðru lagi eru PLB-neyðarsendar
sem nota sama kerfi og neyðar-
sendar skipa og flugvéla. Margir
eiga slík tæki og eins er hægt að
leigja þau hjá Safetravel.is. PLB
senda neyðarboð með staðsetningu.
Þriðja gerðin er Garmin InReach-
tækin. Jónas sagði að margir erlend-
ir ferðamenn væru búnir þeim. Þau
sameina GPS, SPOT og PLB. Með
InReach er hægt að senda texta-
skilaboð, skrá ferla á vefsíðu eða
samfélagsmiðla og taka á móti texta-
skilaboðum. Kaupa þarf áskrift að
þjónustunni.
„Kosturinn við Garmin InReach
er að við getum skipst á skilaboðum
við fólkið. Samskiptamöguleikarnir
eru takmarkaðir en það er hægt að
fá upplýsingar um hvers vegna t.d.
hjálparbeiðni eða neyðarboð eru
send,“ sagði Jónas.
Neyðarsendar af öllum þessum
gerðum hafa verið notaðir til að
senda hjálparbeiðnir hér á landi. Slík
tilvik hafa verið 2-5 á ári, að sögn
Jónasar. Hann sagði að göngumenn
eða skíðafólk þveri hálendið í nær
hverri viku. Þau eru yfirleitt með
eina eða tvær gerðar af neyðar-
sendum og skrá ferla og senda skila-
boð.
Ferðaáætlun og neyðarsendir
„Flestir fara um Vatnajökuls-
þjóðgarð og við höfum rætt það við
þjóðgarðinn að fólk sem fer gang-
andi eða á skíðum um óbyggðir að
vetri verði skyldað til að skilja eftir
ferðaáætlun og að vera með neyðar-
sendi,“ sagði Jónas. Reglur í þessa
veru gilda t.d. í þjóðgörðum í Banda-
ríkjunum. Í Grænlandi og í Ölpunum
er áskilið að ferðamenn utan alfara-
leiða séu einnig með leitar- og björg-
unartryggingu. Jónas sagði að því
fylgdi sá ókostur að fólk dragi að
kalla eftir aðstoð til að sleppa við að
borga sjálfsábyrgð tryggingarinnar.
„Hjá okkur er leitar- og björg-
unarþjónusta í boði án endurgjalds.
Í örfáum tilvikum höfum við reynt að
sækja tryggingabætur vegna kostn-
aðar við leit og björgun en það er
mjög þungt og hefur ekki svarað
kostnaði. Bæði innlendir og erlendir
aðilar sem við höfum bjargað hafa
sýnt þakklæti sitt og gefið peninga
eða keypt af okkur Neyðarkalla,“
sagði Jónas. Hann sagði að útköll
vegna erlendra ferðamanna væru
ívið fleiri en vegna Íslendinga á ári,
en útköllin vegna útlendinga væru
yfirleitt minni og auðleystari. Útköll
vegna Íslendinga væru oft mun
stærri. En hvað ráðleggur Jónas
þeim sem ætla að ferðast um
óbyggðir að vetrarlagi?
Ekki yfirgefa bílinn
„Í fyrsta lagi að skilja eftir ferða-
áætlun. Það er hægt að gera hjá
Safetravel.is á auðveldan hátt. Í öðru
lagi að vera með fjarskiptatæki fyrir
þær slóðir sem ferðast er um, síma
og VHF-talstöð. Auk þess að vera
með neyðarsendi sem virkar þar sem
ekki næst símasamband, ef eitthvað
kemur upp á. Síðast en ekki síst að
hafa nóg eldsneyti, aukaföt og nóg
nesti. Svo á ekki að yfirgefa bílinn
nema í algerri neyð og alls ekki ef
eitthvað er að skyggni og veðri.“
Tæknin auðveldar leitarstörf
Hópur týndra jeppamanna fannst með GSM-leitarkerfi frá Rögg Margir ferðamenn eru með
neyðarsenda sem skrá ferla Mikilvægt að leggja inn ferðaáætlun og vera vel búin til fjallaferða
Ljósmynd/Svavar Jónsson
Björgun Björgunarsveitarmenn fóru á snjóbíl og jeppum í björgunina. Átta manns var bjargað til byggða á mánudag og einnig voru jepparnir þrír sóttir.