Morgunblaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 13
vaxtar og viðhalds. Þeir starta því
niðurbrotsferlinu.“
Höfum ekki tíma til að bíða
„Það er ótrúlega lítið vitað um
sveppi í heiminum, þekking mann-
kyns á sveppum er lítil miðað við
náttúrufræðiþekkingu yfirleitt. Til
dæmis er talið að aðeins sé búið að
finna og kortleggja sjö prósent af
svepparíkinu. Þá eru 93 prósent
órannsökuð, enda eru sveppir oft í
felum, við sjáum yfirleitt ekki sveppi
fyrr en þeir fjölga sér, en þá sjáum
við æxlunarfærin. Sveppir eru frá
náttúrunnar hendi lífverur sem sjá
um niðurbrot á öllum lífrænum efn-
um. Það hefur svo komið í ljós að
þeir eru færir um að brjóta niður
þrávirk efni sem safnast upp í um-
hverfinu af manna völdum. Þar má
nefna efni eins og díoxín, efni sem
myndast þegar við brennum rusl við
ófullkomnar aðstæður og önnur
krabbameinsvaldandi efni. Sveppir
geta líka eytt öllum olíuefnum, skor-
dýraeitri, efnavopnum og fleiru sem
við höfum búið til og dreift út í nátt-
úruna. En til að sveppirnir geti eytt
þessum efnum, þá þurfa þeir að
komast í tæri við þau, og verkefnið
mitt Heilun jarðar, gengur út á að
finna réttan svepp fyrir tiltekna
gerð af mengun. Koma honum fyrir
á mengaða svæðinu svo hann geti
unnið sitt verk. Þannig getum við
flýtt fyrir því að hið náttúrulega
ferli niðurbrots fari í gang, því það
gerist á endanum, en það getur tek-
ið nokkur hundruð ár. Við höfum
ekki tíma til að bíða, eins og meng-
unarmálum er háttað í dag.“
Þeir vinna lygilega hratt
Sigrún segir að vitað sé um
nokkrar sveppategundir sem þekkt-
ar eru fyrir að brjóta niður ákveðin
efni.
„Sumir sveppir brjóta niður en
aðrir soga til sín, til dæmis þung-
málma. Ef það er til dæmis þung-
málmamengun í jarðvegi á
ákveðnum stað, þá geta þeir sveppir
sogað málmana til sín og þannig
hreinsað jarðveginn,“ segir Sigrún
og bætir við að þetta sýni hversu
sveppir séu magnað fyrirbæri.
„Ég er fyrst og fremst að
kynna þessi mál fyrir fólki, sýna
fram á þennan raunverulega mögu-
leika. Ég ætla til Bandaríkjanna í
vor og hitta gúrúinn minn í þessum
efnum, Paul Stamets, en hann hefur
rannsakað sveppi í þrjátíu ár. Það
þarf að byggja upp þekkingu, og
helst hratt. Hugmyndin hjá mér er
að búa til sveppaþekkingarbanka,
sem hægt er að leita til þegar til
dæmis verður umhverfisslys eins og
olíumengun á landsvæði, þá gætum
við brugðist við með því að vita
hvernig við ættum að koma svepp-
um þar fyrir á þeim tiltekna stað, og
hvaða sveppum. En þeim þarf að
búa lífsskilyrði svo þeir geti unnið
vinnuna sína við að brjóta niður.
Þegar þeir eru komnir í gang með
að brjóta niður þá geta þeir verið
ótrúlega fljótir að vinna á mengun-
inni, þó auðvitað fari það eftir magni
og umfangi, en þeir vinna lygilega
hratt.“
Sveppir brjóta niður krabba-
meinsvaldandi efni
Sigrún segir að þeir sveppir
sem vitað er að eru hvað öflugastir
við að eyða eiturefnum, séu helstu
matsveppirnir sem við þekkjum.
„Til dæmis ostrusveppur, hann
er mikið ræktaður til manneldis, en
hann er einn öflugasti eiturefna-
baninn. Hann er þekktur fyrir að
brjóta niður öll helstu krabbameins-
valdandi efni sem við finnum í nátt-
úrunni af mannavöldum. Kóng-
sveppur, sem vinsælt er að tína í
skógum landsins, hann sogar til sín
blý og kvikasilfur. Ullserkur eða
ullblekill er matsveppur sem sogar í
sig blý, en fólk kannast við hann á
túnum og sem sveppahrúgur með-
fram Sæbrautinni í Reykjavík til
dæmis.“
Sigrún segir að sveppirnir finni
sitt verkefni sjálfir, og að á end-
anum muni þeir vinna á öllum þeim
eiturefnum sem við mannfólkið höf-
um pumpað út í náttúruna.
„En það verður kannski ekki
fyrr en löngu eftir daga mannkyns.
Við getum flýtt fyrir því með því að
koma réttum sveppum fyrir á rétt-
um stöðum. Hér á Íslandi er víða
land sem er ónýtilegt sökum meng-
unar, til dæmis gamlir ruslahaugar,
mikið af landsvæðum sem herinn
skildi eftir sig óhreinsuðum og fleiri
svæði. Og nú þegar til stendur að
fara í orkuskipti í samgöngum, þá
verður öllum bensínstöðvum lokað
og þá þarf að hreinsa þau svæði.
Einu aðferðirnar sem notaðar eru
núna er að moka jarðveginum í
burtu, færa hann annað þar sem
hann er urðaður. En mengunin
hverfur ekki við að færa hana til.
Sveppirnir gætu mögulega verið
leiðin til að eyða mengun þar sem
hún er.“
Morgunblaðið/Ómar
Ullserkur Líka kallaður ullblekill og býr yfir þeim hæfileika að soga í sig blý, sem nýtist til hreinsunar. Hann er
fyrirtaks matsveppur en vaxi hann í vegkanti er hætta á mengandi þungmálum sem gera hann óhæfan til neyslu.
Einu aðferðirnar sem
notaðar eru núna eru að
moka jarðveginum í
burtu, færa hann annað
þar sem hann er urðað-
ur. En mengunin hverfur
ekki við að færa hana
til. Sveppirnir gætu
mögulega verið leiðin.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019
VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA og ÁREIÐANLEIKI
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík - Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
VÍKURVAGNAR EHF.
MIKIÐ ÚRVAL AF KERRUM
FYRIR IÐNAÐARMENNOGVERKTAKA