Morgunblaðið - 27.03.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.03.2019, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Færst hefur ívöxt að fólkhafi þurft að leita sér hjálpar vegna kannabis- neyslu á Norður- löndunum á undan- förnum tveimur áratugum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Norræna velferðar- ráðsins um kannabisneyslu og meðferðir við henni á Norður- löndum. Samkvæmt skýrslunni er neyslan mest í Danmörku og Finnland í öðru sæti. Jákvætt við skýrsluna er að kannabisneysla á Íslandi og í Noregi og Svíþjóð er með því minnsta sem gerist í Evrópu. Neyslan er mest hjá ungu fólki, en fátíð meðal þeirra, sem eru eldri en 45 ára. Hvað sem því líður getur regluleg neysla verið afdrifa- rík. Í frétt um skýrsluna í Morgunblaðinu í gær segir að kannabis sé helsta neysluefni yfir þriðjungs þeirra, sem leita sér aðstoðar vegna fíknar. Í skýrslu ráðsins segir að hvorki ungir neytendur, for- eldrar þeirra né skólastarfs- fólk þekki áhrif kannabisefna á líkamann og hugann nægilega vel. Á vefsíðu tímaritsins The Economist var í vikunni fjallað um áhrif kannabis. Þar kemur fram að styrkur virka efnisins í vímuefninu, tetrahýdró- kannabínol, fari vaxandi og nú megi finna afbrigði þar sem styrkurinn fari yfir 25%. Þar er vitnað í rannsókn, sem birt var í þessari viku í læknatímaritinu Lancet, um áhrif efnisins. Rann- sóknin leiðir í ljós að fari styrkurinn yfir 10% fimmfaldist hættan á geðræn- um vandamálum með reglu- legri notkun. Ef styrkurinn er minni þrefaldast hættan. Í greininni í The Economist segir að með auknum rann- sóknum hafi vísbendingum fjölgað um að notkun á kanna- bis sé á bak við geðheilbrigðis- vandamál í Evrópu. Vandinn sé sennilega mestur í Amster- dam og London þar sem mest sé um efni með miklu magni tetrahýdrókannabínols. Í Bandaríkjunum og Kanada er nú verið að rýmka reglur og lögleiða almenna neyslu víða. Ekki er ljóst hvaða áhrif lög- leiðing mun hafa á geðheil- brigði almennings. Má segja að búin hafi verið til rann- sóknarstofa og niðurstöðurnar verði kynntar síðar. The Eco- nomist vitnar í ónefndan vís- indamann, sem hafði á orði að tilraunadýr væru dýr leið til að öðlast skilning á hættum kannabisnotkunar, en íbúar Norður-Ameríku væru ókeyp- is. Það er kaldhæðnisleg af- staða en undirstrikar hversu varasamt er að fara út í slíkar æfingar þegar heilbrigði ungs fólks er annars vegar. Kannabisneysla get- ur margfaldað hætt- una á geðrænum vandamálum} Vanmetin hætta Vakið hefurverulega at- hygli að meirihluti Breta telur, sam- kvæmt niður- stöðum nýrrar skoðanakönnunar (sem Mbl. hefur sagt frá), að breska þingið sé staðráðið í því að koma í veg fyrir útgöngu Bretlands úr ESB í andstöðu við vilja meirihluta kjósenda í þjóðar- atkvæðagreiðslunni. Daily Telegraph segir á vef sínum að 55% Breta séu þessarar skoðunar. Færri en 19% eru ósammála því að þingið sé að reyna að stöðva útgönguna. Meirihluti Breta, eða 54%, er einnig þeirrar skoðunar að viðleitni þingmanna, sem vilja að Bretland verði áfram innan ESB, og annarra sem tilheyra stjórnkerfi landsins, til þess að stöðva útgönguna hafi skaðað samningsstöðu Breta, en 24% eru ósammála því. Rúmlega 40% telja að í stað þess að fresta útgöngunni úr ESB ættu Bretar að yfirgefa sambandið án útgöngusamn- ings en 28% eru ósammála því. Fimmtungur kjós- enda segist aldrei ætla að kjósa aft- ur ef þingmenn koma í veg fyrir útgöngu Bret- lands úr ESB. Þessar niðurstöður eru ekki síst athyglisverðar vegna þess að mjótt var á munum í þjóðaratkvæðinu, en almenn- ingur sé heilli í afstöðu sinni en atvinnustjórnmálamenn- irnir, sem vilja eyðileggja málið. Könnunin sýnir einnig að hræðsluáróður elítunnar um ógurlegar afleiðingar þess að fara úr ESB án samnings um hvert smáatriði virkar ekki. Slíkur áróður misheppn- aðist einnig í Icesave. Hér eru stjórnmálamenn sem reyndust án tengsla við fólkið í Icesave að undirbúa sama leikinn, nú með útúrsnúningum og áherslum á aukaatriði þess, og haldlausar „túlkanir búró- krata“ en ekki grundvallar- atriðin. Vonandi fær sú við- leitni makleg málagjöld. Stjórnmálamönnum gefst æ oftar illa að líta á almenning sem auðblekkt fífl – það er fagnaðarefni} Höggvið í sama knérunn É g mælti fyrir þingsályktunar- tillögu í 22 liðum í desember síðastliðnum um hvernig megi styrkja stöðu íslenskrar tungu. Aðgerðirnar snerta ólíkar hliðar þjóðlífsins en markmið þeirra allra ber að sama brunni; að tryggja að ís- lenska verði áfram notuð á öllum sviðum samfélagsins. Ferðaþjónustan er mikilvægur sam- starfsaðili okkar á því sviði að snúa vörn í sókn fyrir íslenskuna og á dögunum kynntu Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Samtök ferðaþjónustunnar framtak undir yfirskrift- inni „Orðin okkar á íslensku“ sem miðar að því að auka fræðslu til erlends starfsfólks um íslenskt mál. Um er að ræða orðalista á íslensku, ensku og pólsku sem tengist fjöl- breyttum störfum í ferðaþjónustu. Markmið þessa fagorðalista er að efla samskipti og auka íslensku- kunnáttu á vinnustöðum. Orðalistarnir eru aðgengi- legir á vefnum, þar sem einnig má hlusta á framburð orða og hugtaka á íslensku, og á veggspjöldum sem dreift verður til ferðaþjónustuaðila. Ég fagna þessu framtaki en það mun bæta þjón- ustu og stuðla að betri samskiptum. Íslenskan er okkar mál og þetta framtak er kærkomin hvatning fyrir fleiri til þess að vekja athygli á tungumálinu og hvetja fleiri til þess að læra það. Við kynntum í vetur vitundarvakningu undir merkjum slagorðsins Áfram íslenska og það gleður mig að ferðaþjónustan svari því kalli og taki virkan þátt með þessum hætti. Vitundarvakningunni er ætlað að minna okkur á að framtíð tungumálsins er og verður á ábyrgð okkar allra, íslenskan er lifandi samskiptatæki og okkar sjálf- sagða mál. Jákvætt viðhorf til íslensku og aukin meðvitund um mikilvægi tungumálsins skiptir sköpum svo aðrar aðgerðir til stuðnings henni skili árangri. Uppbyggileg umræða og fræðsla í samfélaginu um fjöl- breytileika íslenskunnar er líka mikilvæg fyrir nýja málnotendur og auka þarf þolin- mæði gagnvart íslensku með erlendum ein- kennum. Ég vona að sem flestir muni nýta sér fjölbreytta möguleika sem felast í notkun fagorðalista ferðaþjón- ustunnar og að mínu mati gæti þetta verkefni Hæfni- seturs ferðaþjónustunnar og Samtaka ferðaþjónust- unnar vel orðið hvatning fyrir fleiri geira atvinnulífsins til þess að stíga viðlíka skref. Orð eru til alls fyrst. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Orðin okkar á íslensku Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen loft. Það var enginn tæknimaður sem gat rætt málin.“ Björgvin segir að Herjólfur hafi verið boðinn út með teikningum frá Vegagerðinni. Umræddar teikningar voru að hans sögn gerðar í Noregi og kostuðu Vegagerðina hundruð millj- óna króna. „Og maður spyr sig í dag, vissu þeir sem gerðu teikningarnar af þeim vandamálum sem hafa verið með Herjólf? Það var byrjað að vinna út frá þessum teikningum hjá Crist en síðar kemur í ljós að þær standast ekki. Teikningarnar voru bara ónýtar og útboðsgögnin þar af leiðandi ekki fullnægjandi. Stöðin ákvað að hanna þetta skip upp á nýtt en að það yrði samt sambærilegt. Það voru allir sammála um það og farið var af stað. Síðan vildi Vega- gerðin lengja það og gerður var samningur um það. Síðan ákváðu þeir að fara með rafmagn í það. Þá er þetta í raun orðið skip númer þrjú, þó þeir hafi getað notað skrokkinn.“ Björgvin Ólafsson segir að yfir- lýsingar sé að vænta frá skipasmíða- stöðinni vegna málsins. „Þeir ætla annars ekki að ræða þetta í fjöl- miðlum en hafa sent bréf á ráðherra þar sem þeir óska eftir fundi um málið.“ Er það rétt að Crist íhugi að seinka afhendingu skipsins eða hætta jafnvel við hana? „Skipið er búið að vera tilbúið í tíu daga en forsvarsmenn Crist eru nýbúnir að framlengja allar ábyrgðir í þrjá mánuði. Þeir vilja ræða málin en þeir eru tilbúnir að fara í hart ef með þarf.“ Skipasmiðir tilbúnir að fara í hart um Herjólf Ljósmynd/Vegagerðin Herjólfur Ekki er ljóst hvenær eða hvort ný ferja verður tekin í notkun. SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Við eigum í viðræðum viðstöðina um áframhaldið –við reiknum með að þaðséu yfirgnæfandi líkur á því að við fáum skipið afhent þótt það gæti tafist eitthvað,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsinga- fulltrúi Vegagerðarinnar. Vegagerðin tilkynnti í gær að skipasmíðastöðin Crist S.A. í Pól- landi, sem smíðar nýjan Herjólf, hefði skyndilega á lokametrum verksins krafist viðbótargreiðslu. Nemi greiðslan nærri þriðjungi af heildarverði skipsins. Telur Vega- gerðin að engin stoð sé í samningi aðila fyrir þessari kröfu skipa- smíðastöðvarinnar. Hefur Vega- gerðin af þeim sökuð leitað til dönsku lögfræðistofunnar Gorrissen Federspiel til að annast málið. Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að í upphafi hafi verið samið um að smíði Herjólfs myndi kosta 26.250.000 evrur. Síðar hafi bæst við aukaverk að upphæð 3.492.257 evrur, svo sem rafvæðing Herjólfs, en skriflegir samningar séu um öll þessi aukaverk. Því hafi það komið á óvart að skipasmíða- stöðin geri nú kröfu upp á heildar- verð sem nemur 38.430.000 evrum eða ríflega 5,2 milljörðum íslenskra króna. Krafan um viðbótargreiðslu hljóðar upp á um 8,9 milljónir evra eða ríflega 1,2 milljarða íslenskra króna. „Teikningarnar voru ónýtar“ „Ég er nú búinn að vera í mörg- um nýbyggingum, hef tekið þátt í að smíða 20-30 skip, en hef aldrei séð neitt þessu líkt. Þetta hlýtur að vera vankunnátta. Menn bara haga sér ekki svona,“ segir Björgvin Ólafs- son, umboðsmaður Crist S.A. á Ís- landi. Björgvin hefur haft milligöngu um smíði Þórs og Árna Friðriks- sonar og hefur unnið áður með pólsku skipasmiðunum. Björgvin vísar í máli sínu til þess hvernig Vegagerðin hafi haldið á málum varðandi afhendingu Herj- ólfs. Þegar menn hafi greint á um kostnað hafi ekki verið gerð nein til- raun til að ræða málin á yfirvegaðan hátt og finna lausn. „Menn komu bara með lögfræðingastóð frá Dan- mörku á fyrsta fund og það er auð- vitað þeirra hagur að allt fari í háa- Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, hefur óskað eftir því að mál nýs Herjólfs og dýpkun Landeyja- hafnar verði rædd á fundi hjá um- hverfis- og samgöngunefnd. Greint hefur verið frá því að beiðni um fundinn sé til komin vegna umræddra frétta af kröfu Crist S.A. um viðbótargreiðslur vegna smíði ferjunnar og vegna gagnrýni á dýpkunarfram- kvæmdir í Landeyjahöfn. Vil- hjálmur hefur lýst því yfir að hann vilji fá svör um upphæð kröfu skipasmíðastöðvarinnar og af hverju hún komi svo seint til. Áhyggjur hans lúti þó ekki síður að dýpkun Landeyjahafnar, en fram- kvæmdum við dýpkun átti að ljúka í febrúar. Áhyggjur af stöðu mála ÓSKAR EFTIR FUNDI Vilhjálmur Árnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.