Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 19

Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 19
Reiðtúr við sjónarrönd Enn er landið víða þakið snjó þótt komið sé fram yfir jafndægur á vori. Við ströndina, svo sem í Víkurfjöru, er þó jafnan snjólausa ræmu að finna til útreiðar. Kristinn Magnússon 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 Hægt er að nálgast hlutina með ýmsum hætti. Sumir sjá alltaf hálftómt glas en aðrir horfa á hálffullt glasið og líta til tækifæranna. Svo eru þeir til sem þurfa aðeins nokkrar klukkustundir til að leggja mat á yfir 470 blaðsíður – með þéttum texta, töflum og grafík – til að átta sig á að þar standi ekki neitt. Við hinir þurfum lengri tíma og á stundum lesa texta oftar yfir en einu sinni og liggja yfir töflum, línu- ritum, súlum og skífum. Ég hef ákveðinn skilning á því að liðsmenn stjórnarandstöðunnar (sem hraðast lesa) beini athyglinni fyrst og síðast að því sem þeir telja neikvætt í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2020 til 2024. Það er öruggt að fjár- málaáætlun stjórnarandstöðunnar liti allt öðru vísi út en sú sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti um helgina. Á tekjuhliðinni væri örugglega fylgt þeirri hug- myndafræði að ríkissjóður eigi aldrei að „afsala sér tekjum“ og að lækkun skatta sé aðeins til þess fallin að „veikja“ tekjustofna. Fyrirmyndina sækir stjórnarandstaðan til póli- tískra bræðra og systra í Ráðhúsinu við Tjörnina. Með hugmyndafræði stjórnarandstöðunnar væri ríkis- sjóður ekki vel í stakk búinn til að mæta hugsanlegum áföllum. Framtíðin er alltaf óviss Fjármálaáætlunin er ekki hafin yf- ir gagnrýni. Það er augljóst að óvissa er um efnahagslegar forsendur. Áætlunin styðst hins vegar við fyrir- liggjandi hagspá enda ekki hægt að byggja á öðru. Hagþróun á næstunni er háð mikilli óvissu vegna bæði innri og ytri þátta. „Alþjóðlega ríkir óvissa til skemmri tíma vegna pólitískra umbreytinga og átaka um umgjörð alþjóðaviðskipta,“ segir meðal ann- ars í fjármálaáætluninni. Bent er á óvissu sem hefur skapast vegna rekstrarerfiðleika WOW air en einn- ig vegna mikillar samkeppni á flugi yfir Norður-Atlantshaf. „Flugfar- gjöld eru lág og þyrftu líklega að hækka til að styðja við rekstur félag- anna. Hætt er við að hærri fargjöld hafi neikvæð áhrif á eftirspurn eftir íslenskri ferðaþjónustu, enda er verðteygni fargjalda yfir Atlants- hafið há.“ Loðnubrestur setur einnig strik í reikninginn. Órói á vinnumarkaði og kjaradeilur hjálpa ekki til við að meta hagþróun komandi mánaða og miss- era. Þar með er óvissa meiri um verð- bólgu, gengi krónunnar, þróun vaxta og einkaneyslu – raunar flestar hag- stærðir. Slaki í hagkerfinu er að myndast. Vísbendingar eru um að innlend framleiðsla sé í harðari samkeppni við erlenda framleiðslu en áður. Taki kjarasamningar ekki mið af þessum veruleika má reikna með að störfum fækki – atvinnuleysi aukist. Þeir sem sjá aldrei annað en hálftómt glas eru uppteknir af því að benda á hugsanlegan „forsendubrest“ en forðast að leggja fram hugmyndir um hvernig bregðast skuli við. Vilja þeir lækka ríkisútgjöld (hvaða útgjöld, til hvaða málaflokka og hversu mikið)? Eða eru þeir á því að grípa til skatta- hækkana? (Við vitum hvaða áhrif hærri skattar hafa á efnahagslífið, ekki síst þegar það blæs á móti). Sterk staða Eitt meginmarkmið hagstjórnar á hverjum tíma er að búa svo um hnút- ana að hagkerfið sé tilbúið til að tak- ast á við það óvænta, ekki síst efna- hagslega erfiðleika. Íslenskt þjóðar- bú og ríkissjóður sérstaklega hefur ágætt bolmagn til að glíma við áföll. Segja má að allt frá 2013 hafi bóndinn í fjármálaráðuneytinu verið duglegur við að safna korni í hlöður til að mæta mögrum árum. Hann hefur ekki fallið í þá freistingu að eyða búhnykk og hvalrekum í stundargaman. Staða ríkissjóðs hefur gjörbreyst á nokkrum árum. Í lok árs 2011 námu skuldir ríkissjóðs um 86% af vergri landsframleiðslu. Við lok síðasta árs var hlutfallið komið niður í 28%. Í fjár- málaáætluninni er gert ráð fyrir að heildarskuldir ríkissjóðs verði komnar undir 20% af landsframleiðslu í árslok 2020 og 12,1% árið 2024. Hreinn vaxtakostnaður ríkissjóðs var 3,1% af vergri landsframleiðslu árið 2013. Þetta sama hlutfall verður um 1,7% á þessu ári. Með öðrum orðum: Ríkið hefði þurft að greiða um 43 milljörðum meira í vaxtakostnað á yfirstandandi ári en það gerir ef hlut- fall vaxtakostnaðar væri það sama af landsframleiðslu og 2013. Lægri vaxtakostnaður jafngildir um 480 þúsund krónum á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Sparnaðurinn er átta milljörðum meiri en nemur fram- lögum til allra framhaldsskóla á land- inu. Mikill vöxtur útgjalda Flest hefur verið okkur Íslend- ingum hagfellt á síðustu árum. Gríðar- leg lækkun skulda ríkisins – þar sem búið er í haginn fyrir framtíðina og dregið er úr vaxtagjöldum – hefur gert það kleift að auka útgjöld, ekki síst til velferðarmála, lækka skatta en um leið halda ágætum stöðugleika. Á síðustu fimm árum hafa ramma- sett útgjöld aukist um rúmlega 206 milljarða króna að raunvirði eða um 36% frá árinu 2014. Framlög til heil- brigðismála hafa hækkað um 65 millj- arða (37%) og til félags-, húsnæðis- og tryggingamála um 66,5 milljarða (48%). Áherslan hefur verið á vel- ferðarmál. Öllum hefur mátt vera ljóst að gríðarleg raunaukning útgjalda ríkis- ins til allra málaflokka getur ekki haldið endalaust áfram. Aukningin er ekki sjálfbær til lengri tíma litið. Fjármálaáætlunin til 2024 ber þess merki. Gengið er út frá því að vöxtur útgjalda verði minni á komandi árum og á síðari hluta tímabilsins verði aukning frumútgjalda minni en áætl- aður hagvöxtur. Þótt ætlunin sé að hægja á vexti út- gjalda munu framlög til velferðar- mála halda áfram að vaxa. Sam- kvæmt fjármálaáætlun verða út- gjöldin tæplega 57 milljörðum hærri árið 2024 en fjárlög yfirstandandi árs gera ráð fyrir. Mest verður raun- aukningin til heilbrigðismála eða nær 27 milljarðar króna. Útgjöld til vel- ferðarmála verða í lok tímabilsins um 60% af rammasettum útgjöldum ríkisins að frádregnum varasjóði. Útgjöldin halda því áfram að hækka á komandi árum. Rammasett útgjöld til málefnasviða verða um 94 milljörðum króna hærri í lok tíma- bilsins en á þessu ári, á föstu verðlagi. Þá eru ótalin útgjöld utan rammans; lífeyrisskuldbindingar, Jöfnunar- sjóður sveitarfélaga, framlög til At- vinnuleysistryggingasjóðs, ríkis- ábyrgðir, tapaðar kröfur og tjóna- greiðslur. Og ekki má gleyma vaxta- greiðslum. Í höndum þingsins Ríkisstjórnin hefur lagt fram fjár- málaáætlun til ársins 2024. Þingið hefst nú handa við að fjalla um áætl- unina og setja sitt mark á hana. Þeir þingmenn sem hafa mestar áhyggjur af þeim forsendum sem liggja að baki áætluninni hljóta að leggja fram ít- arlegar tillögur um hvernig þeir telja best að standa að verki við stjórnun ríkisfjármála á komandi árum. Fjármálaáætlunin er viðamikið plagg og þar eru miklar tölulegar upp- lýsingar. Þar eru einnig útlistuð áform í einstökum málaflokkum – stefnan mörkuð eins skýrt og aðstæður leyfa. Útgjöldin eru eitt en tekjuöflunin er annað. Fyrirhugaðar eru ýmsar breytingar á sköttum og gjöldum. Flest af því er til bóta en ekki allt. Sumt getur sá sem þetta skrifar ekki stutt en meira um það síðar. Útgjöldin halda áfram að hækka Eftir Óla Björn Kárason » Þótt ætlunin sé að hægja á vexti út- gjalda halda framlög til velferðarmála áfram að vaxa – verða tæplega 57 milljörðum hærri árið 2024 en á þessu ári. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Þróun útgjalda ríkissjóðs 2018 til 2024 til velferðarmála Í milljónum króna á verðlagi ársins 2019 FJÁRLÖG FJÁRMÁLAÁÆTLUN 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 Heilbrigðismál Sjúkrahúsþjónusta 95.643 100.682 106.617 113.722 116.258 115.443 111.808 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa 49.995 53.397 54.932 56.748 58.875 61.177 62.987 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta 49.691 50.847 54.890 57.964 58.227 58.482 52.623 Lyf og lækningavörur 24.548 25.657 26.348 26.971 28.190 29.397 29.908 Heilbrigðisþjónusta alls 219.877 230.583 242.787 255.405 261.550 264.499 257.326 Málefni aldraðra og öryrkja – almannatryggingar Örorka og málefni fatlaðs fólks 64.112 68.678 72.066 74.023 75.887 77.806 79.776 Málefni aldraðra 79.075 79.927 82.425 84.891 87.430 90.046 92.740 Samtals 143.187 148.605 154.491 158.914 163.317 167.852 172.516 Fjölskyldumál og vinnumarkaður Fjölskyldumál 32.472 37.332 39.260 41.557 43.340 44.107 44.723 Vinnumarkaður og atvinnuleysi 5.526 6.346 6.570 6.625 6.676 6.772 6.769 Húsnæðisstuðningur 13.397 13.412 13.245 13.045 12.945 10.845 10.745 Samtals 51.395 57.090 59.075 61.227 62.961 61.724 62.237 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála 9.203 10.298 10.906 10.983 11.418 11.416 11.313 Samtals 423.662 446.576 467.259 486.529 499.246 505.491 503.392 Heimild: Fjármála- áætlun 2020 til 2024 Hækkun útgjalda til velferðarmála Frá fjárlögum 2019 til ársins 2024 skv. fjármálaáætlun (milljónir kr.) 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 Heilbrigðismál Fjölskyldumál og vinnumarkaður Lýðheilsa og stjórn- sýsla velferðarmála Samtals hækkun 56.816 milljónir kr. 26.743 23.911 5.147 Málefni aldraðra og öryrkja – almannatryggingar 1.015 Heimild: Fjármála- áætlun 2020 til 2024

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.