Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 24

Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 ✝ Guðjón Valdi-marsson fædd- ist í Reykjavík 20. ágúst 1949. Hann lést á Egilsstöðum 7. mars 2019. Guðjón var einkabarn foreldra sinna, þeirra Valdi- mars Þ. Einarsson- ar skipstjóra, f. 12.9. 1923, d. 1.4. 2006, sonar Einars Kr. Þorbergssonar og konu hans Sigríðar Valdimarsdóttur á Ísa- firði, og Maríu Svövu Jóhannes- dóttur, húsmóður, f. 20.8. 1914, d. 24.8. 1995. Hún var dóttir Jó- hannesar Bjarnasonar, bónda í Grundarkoti í Skagafirði og Bjargar Sigfúsdóttur, konu hans. Guðjón var kvæntur Grétu R. Snæfells, f. 13.3. 1953, þau skildu. Dóttir þeirra er María Svava, f. 21.3. 1979, fyrrv. eigin- fjölmörgum úthafs- og frystitog- urum, sem bátsmaður og stýri- maður. Fór svo til starfa um borð í rækjutogurum á vegum Ocean Prawn Ltd., danskri út- gerð sem framleiðslustjóri. Starfaði einnig um skeið á veg- um Íslenskra sjávarafurða og UTRF í Rússlandi, sem fiskiskip- stjóri og gæðastjóri á úthafs- skipum, við veiðar í Barentshafi og við Kamsjatka austast í Rúss- landi. Fór einnig í verkefni í Namibíu um skamman tíma. Eftir að hann hætti á sjónum um aldamótin flutti hann til Hvera- gerðis og vann þar við ýmis verkleg störf, enda hagur mjög, m.a. hjá föðurbróður sínum Braga í Eden og í vinnuhópi við smíðar og innréttingar fyrir ýmsa aðila. Síðustu árin var hann búsettur austur á Héraði þar sem hann starfaði hjá Þráni Lárussyni, góðvini sínum, á Hót- el Hallormsstað, sem húsvörður en hafði jafnframt með höndum stjórn á og eftirlit með fram- kvæmdum á vegum fyrirtækja hans þar á staðnum og niður á Egilsstöðum. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. maður hennar er Emil Örn Viðars- son, f. 13.1. 1976, og börn þeirra Alma, f. 30.10. 1999, og Valdimar Örn, f. 4.4. 2001. Seinni kona Guð- jóns var Sólveig Pétursdóttir, f. 28.8. 1949, d. 2011, þau slitu sam- vistum. Guðjón fór að vinna fyrir sér strax að loknu skyldunámi. Reri fyrst til fiskjar með skipstjór- anum föður sinum 12 ára á vél- bátnum Blakk RE 335. Var síðan í skiprúmi á ýmsum neta- og nótabátum og togurum. Útskrif- aðist úr Stýrimannaskólanum 1979 og öðlaðist skipstjórnar- réttindi. Lauk einnig sérnámi í verkun sjávarafurða og aflaði sér réttinda sem fiskmatsmaður. Var síðan til lengi tíma til sjós á Guðjón var Stóri frændi, með stórum staf, og það eru engin smámenni í augum ungra drengja. Þegar hann var að koma í heimsókn kannski 12-13 ára en ég var ennþá sex eða sjö þá fylltist maður hreinlega lotn- ingu; hann settist gjarnan og teiknaði fyrir mig skipamyndir, enda var hann afbragðs teiknari og vann í samkeppnum ungs fólks á því sviði. Þegar ég var á tíunda árinu og mamma lenti um sinn á spítala var mér á meðan komið fyrir á Kleppsveg- inum hjá Svövu, Valda og Guð- jóni og átti þar konunglega daga; maturinn var frábær hjá Svövu enda dugði ekkert minna en eitthvað kjarnmikið fyrir þau heljarmennin feðgana. Guðjón á sextánda árinu og sagðist vera því guðfeginn að losna senn úr skóla til að geta farið að gera eitthvað af viti, stefndi á sjóinn eins og faðir hans og búinn að fá pláss sem beið hans sem messa- gutti á olíuskipinu Hamrafelli. Að auki var Guðjón frændi búinn að ná sér í miða á væntan- lega Kinkstónleika í Austur- bæjarbíói og fræddi mig virðingarfullan drengstaulann um að þá myndu nú menn sletta úr klaufunum og súpa ærlega á. Í gegnum síðustu áratugina höfum við svo ekki hist oft, nema þá í fjölskyldusamhengi þegar eitthvað hefur borið við, en jafn- an hefur þá verið fagnaðarfund- ur og mikið gaman að heyra sög- ur af hans ævintýralega lífi og flakki til Afríku eða Kamtsjatka. Í fljótu bragði gæti Guðjón hafa virst vera fremur óheflaður, hann var ekki fíngerða týpan, og hann gat verið kjarnyrtur í tali, en hinsvegar var aldrei vafi á að þar færi góður drengur, eins og hann átti ættir til. Einar Kárason. Enginn má sköpum renna. Það var sorglegt að frétta af skyndilegu fráfalli míns kæra vinar og bróðursonar fyrir nokkru þegar þau dapurlegu tíð- indi bárust að hann Guðjón okk- ar hefði orðið bráðkvaddur við störf þá fyrr um daginn austur á Egilsstöðum. Nokkru áður, er ég var í sambandi við hann, lét hann þó vel af sér eins og jafnan og var spaugsamur að vanda, enda maður ekki kvartsamur. Kvaðst lítt vera farinn að hugsa fyrir sjötugsafmæli sínu á hausti komanda. En maðurinn með ljáinn er samur við sig og gerir ekki boð á undan sér né fer í manngreinar- álit frekar en fyrri daginn. Guð- jón var fyrsti afa- og ömmu- strákurinn svo það var látið dálítið með hann fyrir vestan þegar hann kom þangað sem ungur sveinn til sumardvalar hjá fólkinu sínu þar, sem og eins í Skagafirðinum hjá móðurfjöl- skyldu sinni. Guðjón fór snemma að vinna fyrir sér og lengi vel átti sjó- mennskan hug hans allan. Á langri sjómannsævi steig hann ölduna víða um höf á fjöldamörg- um skipum, allra tegunda, bæði innlendum og erlendum, og saup Guðjón Valdimarsson Elsku afi, ótrú- lega erum við barnabörnin rík að hafa átt þig svona lengi. Það er ekki hægt að óska sér betri afa, þú ert ljúfasti og hlýlegasti maður sem við höfum kynnst. Við munum alltaf búa að yndislegum minningum af Skólavörðustígnum að fylgjast með þér vinna, spjalla um fólk- ið sem gekk framhjá, heilsa upp á nágrannana, skjótast fyr- ir þig að kaupa rækjusamloku í Bónus og mandarínur í Vísi og fá að eiga afganginn. Takk fyr- ir allar heimsóknirnar til Hol- lands, allt spjallið í búðinni, skíðaferðirnar til Austurríkis og sumrin á Stokkseyri. Takk fyrir að segja okkur sögur. Takk fyrir að gefa okkur kakó á Mokka. Takk fyrir að gefa bestu faðmlög í heimi. Það reynir á að kveðja þig, en það er gott að vita að þú sért nú kominn til ömmu. Ásta Karen, Lilja Dögg og Haukur Steinn. Elsku tengdapabbi. Með Helgi H. Sigurðsson ✝ Helgi H. Sig-urðsson fædd- ist 5. febrúar 1934. Hann lést 16. mars 2019. Útför Helga fór fram 22. mars 2019. þakklæti í hjarta sit ég nú og færi þér þessa kveðju. Ég þakka þér fyrir hversu góður tengdafaðir þú reyndist mér alltaf, alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd. Maður kom aldrei að tómum kofunum hjá þér, hvort sem þú tókst að þér barnapössun, málningarvinnu, hjálpa mér í garðinum, heim- ilisstörfin. Frá öllum þessum verkefn- um og samveru eru endalaust margar góðar minningar. Þú varst duglegur að samgleðjast okkur og veita mér ungri móð- ur, með þá þrjú lítil börn, hvatningu og hrós sem komu sér svo sannarlega vel og veittu manni orku og gleði í hjarta. Þegar við fluttum til Íslands með unglingana okkar eftir 10 ára búsetu erlendis, áttu börnin okkar mjög mikla stoð í afa Dassa. Þau þá í menntaskólum og vinnu í miðbænum. Þau gátu alltaf gengið að afa sínum vís- um í búðinni. Fengið faðmlag, bros og hvatningu, hvort sem dagar voru auðveldir eða erfiðir. Þetta var þeim og okkur fjöl- skyldunni mjög mikils virði og mikill stuðningur við börnin okkar sem voru að fóta sig í ís- lensku samfélagi. Alltaf hef ég minnt þig á, elsku tengdapabbi, hversu dýrmætur þú hefur ver- ið okkur. Með þakklæti í hjarta kveð ég þig nú, megir þú hvíla í friði. Fjóla Grétarsdóttir. Þegar veturinn með skamm- degismyrkri sínu, hretum og kulda, sem hefur lamandi áhrif á allt sem andar, lífið, er á för- um, kveðjum við Helga Sig- urðsson. Hann lærði ungur úrsmíði, starfaði lengst við Skólavörðu- stíginn og setti svip sinn á borgina. Kynni okkar byrjuðu þegar ég fór að æfa sund með Sundfélaginu Ægi. Þar mynd- aðist stór og samhentur hópur drengja. Helgi var frábær sundmaður og varð t.d. tvisvar í þriðja sæti á Norðurlanda- meistaramóti í sundi. Helgi var farsæll í lífinu, átti góða for- eldra, eiginkonu og börn. Tíminn líður og við eldumst, kunningjar og vinir deyja. Áður var talað um að þreyja þorrann og góuna. Í dag hefur þorrinn mildari ásýnd. Tímarnir breyt- ast. Ég kveð góðan dreng og sendi fjölskyldu Helga mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guðjón Sigurbjörnsson. Faðir minn og Helgi voru kollegar í úrsmiðastéttinni og fékk ég það hlutverk í æsku að sendast eins og títt var í þá daga, faðir minn hafði með inn- flutning á Pierpoint-úrum að gera ásamt úrsmíðinni. Oft fór ég því með varahluti og vörur til Helga sem var þá í Vestur- veri og svo á Vesturgötu og síð- ast á Skólavörðustíg. Síðar tók ég til starfa með föður mínum og tók síðan við rekstrinum og hef því verið í samskiptum við Helga í tæp 60 ár. Fyrir þann tíma er ég þakklátur því vænni mann og traustari er erfitt að finna. Verslunin hans á Skóla- vörðustíg var ábyggilega minnsta úrsmiðaverslun á Ís- landi og vinnuplássið fyrir við- gerðir rétt rúmur fermetri. Það var alltaf sérstakt að líta inn um litla gluggann innan úr búð- inni á vinnuborðið hans þar sem verkfærum og rafhlöðu- pökkum var haganlega fyrir komið og allt afar snyrtilegt. Helgi var góður fagmaður, útsjónarsamur og vildi öll vandamál leysa hratt og vel fyrir sína viðskiptavini. Hann var félagslyndur, hláturmildur og fagnaði sínum viðskiptavin- um við komu og tók þá jafnan tali, steig stundum fram á gólf- ið og lagði olnbogana á rekk- verkið sem lokaði af gluggann og fylgdist með umferðinni um leið. Oftar en ekki var einhver gangandi á ferð sem veifaði og brosti til hans. Helgi gæddi þessa frábæru götu sínum per- sónutöfrum og hlýju, var smart í tauinu, djarfur oft í litavali sem var listræna hliðin á honum! Edda var aldrei langt undan en Helgi og hún voru afar sam- rýnd og eignuðust fimm vænleg börn. Þau fengu mikla athygli hvar sem þau sáust á mannamótum fyrir glæsileika sinn. Kollegar Helga, Björn Örvar og Ingvar Benjamínsson, hófu fyrstir inn- flutning á Citroën-bílum og var Helgi með þeim fyrstu til að panta eðalbílinn DS Pallas. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar Elskuð móðir, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG I. STEPHENSEN, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold sunnudaginn 17. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristbjörg Stephensen Björn H. Halldórsson Ragnheiður Stephensen Lilja Þóra Stephensen og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma, dóttir, tengdamóðir og systir, ANNA ELÍN SVAVARSDÓTTIR ljósmyndari, lést sunnudaginn 24. mars. Fyrir hönd fjölskyldunnar, François Heenen Kristín Ninja Guðmundsd. Hilmar Gunnarssson Sóley Heenen Bjarki Þ. Ingason Emilía Heenen Kristín Pálmadóttir Kristinn Þ. Bjarnason Berglind Svavarsdóttir Matteo Mornata Þóra Kristinsdóttir Arnar Gunnarsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGI SIGURÐSSON málarameistari, Lundi 2, Kópavogi, lést á líknardeild LSH í Kópavogi sunnudaginn 24. mars. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 1. apríl klukkan 13. Stefanía Sigmarsdóttir Guðríður Helgadóttir Mikael R. Ólafsson Sigurður Helgason Snædís Xyza Mae Jónsdóttir Helga Mikaelsdóttir Ágústa Mikaelsdóttir Ólafur Mikaelsson Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og sonur, MAGNÚS ÞRÁNDUR ÞÓRÐARSON, lést á heimili sínu í San Jose, Kaliforníu, þriðjudaginn 19. mars. Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts hans. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Helga Þorvarðardóttir Ragnhildur Magnúsdóttir Illugi Magnússon Michele Kitagawa Pétur Gautur Magnússon Stella Luna Powers Anna Hjaltested Þórður B. Sigurðsson Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HREFNA MAGNÚSDÓTTIR frá Hellissandi, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 23. mars. Útför hennar fer fram frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn 30. mars klukkan 14. Ari Skúlason Jana Pind Hulda Skúladóttir Drífa Skúladóttir Viðar Gylfason börn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÁSBJÖRN EGGERTSSON, Höfnum, síðast til heimilis í Miðgarði 5, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 11. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Jarðsett var í Kirkjuvogskirkjugarði. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samtök lungnasjúklinga. Þökkum auðsýnda samúð. Jenný Karitas Ingadóttir Sigríður Ásta Ásbjarnard. Edward Morthens Guðný Sóley Ásbjarnardóttir Ingi Eggert Ásbjarnarson Anna Tabaszewska Ásbjörn og Auður Morthens

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.