Morgunblaðið - 27.03.2019, Qupperneq 25
marga fjöruna, eins og títt er
sagt.
Kannski passa lýsingarnar og
lagið um Gauja Valdason eftir
Ása í bæ að hluta til við hann á
hans yngri árum eða brot úr
ljóðinu „Minning um mann“ eftir
Gylfa Ægisson, en þá lifði hann
stundum hátt. Og þá ekki síður
lýsingarnar á sjómannslífinu í
bókum Einars Kárasonar
frænda hans, nú síðast í Storm-
fuglum. Enda var frændi okkar
afar hress náungi, góður sögu-
maður, orðheppinn og dró síst af
þegar hann var kominn á flug í
litríkum og viðburðaríkum frá-
sögnum sinum.
Guðjón var vinamargur og vel
látinn af öllum sem fengu að
reyna mannkosti hans, góðvild
og greiðvikni. Gat þó verið nokk-
uð þrjóskur og þykkjuþungur ef
honum fannst á sig hallað. Hann
var eljusamur og verkmaður
góður og laghentur mjög og því
eftirsóttur til smíða og annarrar
verklegrar vinnu, eftir að hann
hætti til sjós upp úr aldamótum.
Hann var dýravinur góður og
hafði mikla ánægju af veiðiskap,
enda náttúrubarn í eðli sínu,
hafði yndi af því að renna fyrir
lax eða silung, en var minna fyr-
ir skotveiði þó að hann gengi
stundum til gæsa. Fór m.a. á
hverju sumri upp í Veiðivötn,
hvernig sem viðraði, til að renna
fyrir lónbúann, oftast með góð-
vini sínum Magnúsi Þór Sig-
mundssyni.
Guðjón tók virkan þátt með
föður sínum sáluga í að koma
upp sumarhúsinu Bakkaseli,
austur í Fljótshverfi á Síðu, í
landi Maríubakka, nær Lóma-
gnúpi, þar sem eyðisandi var
breytt í fagran gróðurreit og
skógarlund á síðustu áratugum
liðinnar aldar með stórtækum
aðgerðum og glæsilegum ár-
angri. Þangað var ljúft á koma á
árum áður.
Hann Guðjón minn skilur eftir
sig gefandi minningar margra
góðra stunda sem lengi muni
ylja vinum hans og frændfólki
um hjartarætur.
Góður drengur er genginn –
blessuð sé minning hans.
Einar S. Einarsson.
Tókst fjölskyldan á hendur ferð
til að sækja bílinn og setja í
skip.
Þegar til verksmiðja Citroën
í Frakklandi var komið gekk
Helgi með syni sína Sigurð og
Grétar út á bílaplanið ásamt
fulltrúa Citroën, þar sem
hundruð bíla voru, og þegar
þeir koma að Pallas-bílunum í
löngum röðum, þá bendir Helgi
úr fjarlægð á einn bílinn og
segir við strákana „þarna er
hann“, sem gerði strákana for-
undrandi!
Jú, Helgi þekkti sinn bíl, því
hann hafði pantað toppgrind á
gripinn og var þetta eini bíllinn
með „original“ toppgrind á
svæðinu.
Helgi þjónustaði einnig við-
gerðir á úrum til margra ára
fyrir Píexið, þ.e. verslun
Varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli, og fórst vel úr hendi.
Þótti það góð búbót og að fá að
sitja einn að þeim viðskiptum.
Á Skólavörðustíg voru
löngum fjórar úra- og skart-
gripaverslanir, þ.e. Sigurður
Tómasson sem var gegnt Þjóð-
viljanum, Kornelíus, Carl A.
Bergmann og Helgi Sig. Allir
höfðu nóg fyrir sig og sam-
skiptin góð.
Í seinni tíð voru nágranna-
samskiptin við Ófeig gullsmið,
Óla í G.Þ. og Pétur í Banka-
stræti. Á föstudögum fékk ég
oft símtal frá Helga sem
spurði:
„Verður þú innfrá í fyrra-
málið?“ Honum þótti gott að
koma til að versla á laugar-
dagsmorgnum, þiggja kaffi-
sopa, eiga spjall og ég naut
ríkulega á móti. Ástvinum votta
ég samúð mína.
Þormar Ingimarsson.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 25
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bridgestone 4 sumardekk til sölu
Notuð aðeins síðasta sumar.
16 tommu. 195/50 R 16
Verð aðeins 50 þús.
Upplýsingar í síma 698-2598
Ný Bridgstone ónotuð 4
sumardekk til sölu
18 tommu, 225/40 R 18,
Verð aðeins 70 þús.
Upplýsingar í síma 698-2598.
Hjólbarðar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hvalseyjar, Borgarbyggð, 50% í jörð og 50% í íbúðarhúsi og
vélageymslu, fnr. 211-2490, 211-2492 og 225-9424, fnr. 136012 , þingl.
eig. db. Guðmundur Helgason, gerðarbeiðandi Arion banki hf.,
þriðjudaginn 2. apríl nk. kl. 11:00.
Borgarvík 24, Borgarbyggð, fnr. 211-1157 , þingl. eig. Þórunn Björg
Bjarnadóttir, gerðarbeiðandi Borgarbyggð, þriðjudaginn 2. apríl nk. kl.
12:30.
Ásvegur 3, Borgarbyggð, fnr. 211-0735 , þingl. eig. Oddur Magnússon,
gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 2. apríl nk. kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
26 mars 2019
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Foreldramorgnar kl. 9,
allir velkomnir. Jóga 60+ með Grétu kl. 12.15 og 13.30. Söngstund
með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15.20. Bókaspjall með Hrafni kl. 15.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund i kirkjunni kl. 12. Opið hús í safnaðar-
heimili kirkjunnar kl. 13 til 16. Stólaleikfimi að vanda með Öldu Maríu,
föndrum fyrir páskana, kíkjum í blöðin og spjöllum. Kaffi og með því
á eftir í boði kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir.
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl.
13-16. Ganga um nágrennið kl. 13. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur
kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
S. 535-2700.
Boðinn Harmonikkuspil og söngur kl. 13.30. Handavinnustofa opin
frá kl. 9-15, leiðbeinendur í handavinnu mæta kl. 13.30. Vatnsleikfimi
kl. 14.30. Leshópur kl. 15.
Bólstaðarhíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Yngingarjóga með
hláturívafi kl. 9-9.50. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Botsía kl. 10.40-11.20.
Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur kl. 13. Kaffibrúsakarlar kl. 13.
Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Qi-gong kl. 17.30-18.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Myndlist með
Margréti Zophoníasd. kl. 9. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Botsía kl. 10.40-
11.20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl.
14.30-15.15.
Breiðholtskirkja Eldri borgara starf ,,Maður er manns gaman" kl.
13.15. Handavinna, spjall og spil. Allir hjartanlega velkomnir.
Bústaðakirkja Félagstarfið verður á sínum stað frá kl. 13-16 Gestur
okkar í dag verður Þórey Dögg framkvæmdastjóri eldri borgara ráðs
Reykjavíkurprófastdæmanna. Hún mun verða með erindi um Kathar-
ínu frá Bora. Einnig mun hún kynna sumardvöl á Löngumýri í Skaga-
firði. Kaffið góða frá Sigurbjörgu verður á sinum stað. Allir velkomnir.
Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. 9, samverustund frá Laugar-
neskirkju kl. 14.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Opin listasmiðja kl. 9-12. Ljóðahópur Soffíu kl. 9.30-
11.30. Línudans kl. 10-11.15. Hádegismatur kl. 11.30. Tálgun með Val-
dóri kl. 13.30-16. Aðalfundur Hollvina kl. 13.30-14.30. Síðdegiskaffi kl.
14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Botsía kl. 13.30.
Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9-13, postulínsmálun kl. 9-
12, tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10-11, bókband kl. 13-17, frjáls spila-
mennska kl. 13-16.30, myndlist kl. 13.30-16.30, dansleikur með Vita-
torgsbandinu kl. 14-15. Verið öll velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59,
sími 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi Sjálandi .
kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Brids í Jónshúsi
kl. 13. Leir í Smiðju Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-12. Línudans kl. 11-12. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-
11.30. Útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist
kl. 13-16. Döff félag heyrnalausra. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, opinn hópur, kl. 9.30 glerlist,
kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun / kvennabrids / silfursmíði
kl. 13. Línudans fyrir lengra komna kl. 16, fyrir byrjendur kl. 17.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Botsía kl. 10-11. Útskurður með leiðbeinanda, kl. 9-12, 500 kr. skiptið,
allir velkomnir. Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hraunsel Kl. 10 aðra hverja viku bókmennta klúbbur, kl. 11 línudans,
kl. 13 bingó, kl. 13 handverk, kl. 16 Gaflarakórinn.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10, sam-
verustund með grunnskólabörnum kl. 10.30 og hádegismatur kl.
11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl.
13.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Langholtskirkja Samvera eldri borgara á miðvikudögum í Lang-
holtskirkju og safnaðarheimili. Samveran hefst í kirkjunni kl. 12.10
með stuttri helgistund, að henni lokinni er í boði hádegisverður gegn
vægu gjaldi. Stutt söngstund að hádegsverði loknu,m því næst er spi-
lað, brids og vist og spjallað fram að miðdegskaffi. Verið velkomin.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, tölvukennsla kl.
16. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Gler og glerbræðsla neðri hæð félagsheimilisins kl. 9
og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía salnum Skólabraut kl. 10. Kaffi-
spjall í króknum kl. 10.30. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handa-
vinna á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl 18.30.
Ungmennaráð mun verða með boccia í salnum á Skólabraut í kvöld
kl. 20.00. Fólk hvatt til að fjölmenna.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt-
ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl.
10, kaffi og rúnstykki eftir göngu. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30,
stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Félagslíf
Fjáröflunarsamkoma
Kristniboðsfélags kvenna kl. 20 í
Kristniboðssalnum. Karlakór
KFUM, happdrætti, hugvekja:
Halla Jónsdóttir. Allir velkomnir.
Smá- og raðauglýsingar
Ævintýralegu lífi tengdaföður
míns, Arnar Erlingssonar, er
lokið. Lítill drengur sem vaknaði
og sofnaði við öldugjálfur og brim
í Garðinum, lék sér í fjörunni og
smíðaði skip úr spýtum, vissi
snemma hvert hugurinn stefndi.
Barnungur vann hann sér inn
aura, sparnaðurinn var settur í
útgerð og þar með var hann að
formi til orðinn útgerðarmaður.
Þrátt fyrir hvatningu til lengra
bóknáms, sjóveiki og að fátt væri
um góð pláss á bátum á þeim tíma
hélt hann sínu striki. Lífið var til
þess að lifa því og taka áhættu.
Hann varð sér úti um pláss, klár-
aði Stýrimannaskólann og varð
skipstjóri ungur að árum. Þau
Begga, kraftmikil og lífsglöð
bæði, stofnuðu fjölskyldu á sama
tíma og ungi skipstjórinn varð
fullgildur og virkur þátttakandi í
þeirri tæknivæðingu og framþró-
un í veiðarfærum og útgerð sem
gekk yfir. Þegar síldin hvarf á
sjöunda áratugnum bauðst Örra
starf hjá Matvæla- og landbún-
aðarstofnun SÞ (FAO) og hélt til
Busan í Kóreu. Sjómenn í Busan
nutu kennslu og leiðsagnar Örra í
um þrjú ár. Begga hélt utan um
synina tvo heima uns þau eltu
Örra út og lífið hélt áfram í Asíu.
Daglegt líf fjölskyldunnar
gjörbreyttist við flutninginn en
þau löguðu sig að framandi að-
stæðum með útsjónarsemi og
dugnaði. Á slóðum nemenda Örra
í Busan er í dag hinn þekkti Ja-
galchi fiskmarkaður, einn hinn
stærsti í Austur-Asíu, og glitr-
andi skýjakljúfar hafa risið á milli
Örn Erlingsson
✝ Örn Erlingssonfæddist 3. febr-
úar 1937. Hann lést
13. mars 2019.
Útför Arnar fór
fram 26. mars
2019.
Vegna mistaka í
vinnslu féllu niður
nokkrar setningar í
grein Elínar í blað-
inu í gær og er
greinin því birt hér
aftur í heild sinni. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
hæðanna þar sem
Örri og Begga
bjuggu. Þegar fjöl-
skyldan stækkaði
enn á ný fylgdi Örri
Beggu og stráka-
hópnum heim í faðm
stórfjölskyldunnar í
Keflavík. Sjálfur
lauk hann sínu verki
í Busan áður en
hann fluttist heim á
vit nýrra verkefna.
Þau skapaði hann sér sjálfur með
góðri blöndu af eðlisávísun, skyn-
semi og kjarki. Í hönd fór tími at-
hafna og verðmætasköpunar á
öllum vígstöðvum, barnauppeldis
og útgerðar. Kynni okkar Örra
voru varla hafin þegar hann bauð
mér á þorrablót á heimili sínu,
þar upplifði ég fyrst hið glaða og
hispurslausa viðmót væntanlegr-
ar tengdafjölskyldu, fjörið og há-
vaðann, ættarsvipinn sterka.
Ekki var laust við að rólegur
landkrabbi færi svolítið hjá sér í
návist Örra. Þegar barnabarna-
hópurinn stækkaði var indælt að
finna mjúkan og forvitinn afa fyr-
ir innan skelina hörðu. Afinn var
boðinn og búinn þegar til hans
var leitað, þá kom hann brunandi
til að klípa í lítil nef, stríða góðlát-
lega og gæta barnanna. Aldurinn
dró ekki úr athafnagleði og frum-
kvöðulskrafti Örra en áhugamál
eins og golf, lax og heimshornaf-
lakk toguðu einnig í hann og aldr-
ei var setið auðum höndum.
Minningarnar frá Kóreu tendr-
uðu glampa í augum og frábært
var að heyra Örra tala kóreskuna
með tilþrifum við kóreska vin-
konu okkar á góðri stund. Örri
hugsaði stórt en þekkti þó öðrum
betur smæð mannsins, ferðaðist
víða þótt ræturnar djúpu í Garð-
inum væru hluti af honum
sjálfum.
Hrjúfur var hann og meyr í
senn, sjálfstæður og djarfur, ger-
andi í sínum ævintýrum. Við er-
um hljóð og hugsi yfir ævistarfi
litla drengsins á sjávarkambinum
í Garðinum og lífinu framundan
án hans. Guð blessi minningu
Arnar Erlingssonar.
Elín Guðjónsdóttir.
Mig langar í
nokkrum orðum að
minnast míns fyrri
nágranna Einars
Runólfssonar. Árið 2003 kaupi ég
mína fyrstu íbúð á jarðhæð á
Digranesvegi 36 í þriggja hæða
húsi. Á miðhæðinni bjuggu Einar
og Vilborg, og átti ég eftir að
kynnst því hve mikið sómafólk
þar var að finna. Vilborg lést árið
2005 en Einar bjó áfram uppi af
miklum sómaskap og hélt öllu í
röð og reglu þrátt fyrir að vera
kominn á níræðisaldur. Hann
studdi mig heilshugar í öllum
þeim ákvörðunum og fram-
kvæmdum sem ungur maður
vildi gera á nýjum stað enda dug-
legur og vildi hafa hlutina í lagi.
Ég minnist þess oft þegar við
slógum limgerðið, hann vildi
klippa það frekar neðarlega og ég
sættist á það, því hann sagðist sjá
um að binda það í knippi, „við
skyldum skipta verkum“. Oft
ræddum við saman í þvottahús-
ganginum um það sem þyrfti að
gera, hvor sem það var að slá
grasið, fúaverja gluggana eða
þakkantinn. Ávallt var hann
tilbúinn í framkvæmdir, við
skyldum bara standa saman og
hann gæti þó allavega borgað í
Einar Runólfsson
✝ Einar Runólfs-son fæddist 25.
desember 1918.
Hann lést 10. mars
2019.
Einar var jarð-
sunginn 21. mars
2019.
því. Hann hvatti
ungan mann áfram,
aldrei var hann letj-
andi og ávallt gátum
við rætt hlutina,
hvort sem það var
um framkvæmdir,
Landeyjahöfn eða
nágrannann á efri
hæðinni. Eftir að
fjölskyldan stækk-
aði þá þurftum við
að finna stærri íbúð
og fluttum við á Álfhólsveginn ár-
ið 2008. En oft varð mér litið
heim á Digranesveg 36 er ég átti
leið hjá og stundum stoppaði ég
til að sjá hvernig Einar hefði það.
Ég kveð hann í dag og hugsa
hvað við fjölskyldan vorum hepp-
in að hafa kynnst honum, betri
nágranna var vart hægt að finna.
Við Hanna sendu ættingjum
Einars kærar samúðarkveðjur.
Guðjón S. Magnússon.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar