Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019
SCREEN- OG RÚLLUGARDÍNUR
Henta vel þar sem sól er mikil en þú vilt geta séð út
Láttu sólina ekki trufla þig
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnae@mbl.is
Skuggahverfið, Shadowtown á
ensku, heitir væntanleg kvikmynd
hjónanna og kvikmyndagerðar-
mannanna Jóns Gústafssonar og
Karolinu Lewicka sem stefnt er að
því að frumsýna hér á landi í haust
en kvikmyndin var meðal þeirra
verka í vinnslu sem kynnt voru á
Stockfish-kvikmyndahátíðinni 5.
mars síðastliðinn.
Hinn heimskunni velski leikari
John Rhys-Davies fer með eitt af að-
alhlutverkum myndarinnar en hann
hefur meðal annars leikið í kvik-
myndunum um Hringadróttinssögu
og myndunum um fornleifafræðing-
inn Indiana Jones en auk hans fara
með aðalhlutverk vesturíslenska
leikkonan Brittany Bristow, Kol-
beinn Arnbjörnsson, Atli Óskar
Fjalarsson og Inga María Eyjólfs-
dóttir.
Bristow leikur unga konu í Kan-
ada sem erfir hús ömmu sinnar í
Reykjavík, ömmu sem hún þekkti
ekki og vissi ekki að væri til. „Í
trássi við vilja móður sinnar leggur
hún í ferðalag til að ná skilningi á
sársauka fortíðarinnar, en með
þeirri ákvörðun veldur hún uppnámi
og róti sem hún kemst ekki lifandi
frá nema með aðstoð látinna for-
feðra og -mæðra,“ segir um sögu-
þráðinn í kynningarefni frá Stock-
fish.
Óskýrar línur
Jón segir myndina komna á klipp-
ingarstigið og að verið sé að semja
tónlist við hana. „Þetta er „low
budget“ mynd,“ segir hann og að
kvikmyndin sé dramatísk, dularfull
og spennandi. „Við erum markvisst
og meðvitað að búa til óskýrar línur
milli hins raunverulega og hins yfir-
náttúrulega,“ útskýrir Jón. Þau
hjónin nálgist með sínum hætti ís-
lensku drauga- og tröllasögurnar,
sögur af hinu yfirnáttúrulega sem
allir þekki.
„Þetta er á einhverju millibili sem
erfitt er að útskýra. Við þekkjum
fólk sem hefur sagt okkur sögur af
upplifunum þeirra af draugum en
get ég sem menntaður nútímamaður
trúað því að það séu til draugar? Ég
get ekki afneitað því heldur,“ segir
Jón.
Hann segir að unga konan í mynd-
inni, Maya, komi til Reykjavíkur og
gisti í húsinu og strax fyrstu nóttina
fari hún að fá skilaboð sem bendi til
þess að einhver sé að fá hana ofan af
því að selja húsið. Hún fer að tefja
fyrir sölu á húsinu og sá sem gert
hefur tilboð í það tekur að ókyrrast.
„Það er einhver að reyna að benda
henni á slys sem varð fimmtíu árum
áður og hefur áhrif á hana ennþá í
dag,“ segir Jón og að í grunninn
fjalli sagan um það sem við erfum og
þá ekki aðeins eignir og peninga
heldur eitthvað miklu meira. „Við
erfum líka genin okkar og sumir
segja að við erfum hugsanir og aðrir
að við erfum áföll fortíðarinnar,“ út-
skýrir Jón og nefnir að Íslendingar
hafi á síðustu öld misst fjögur þús-
und manns í sjóslysum. Og sú sorg-
lega staðreynd tengist efni myndar-
innar, að hans sögn. Best að skemma
ekki frekar hið óvænta fyrir væntan-
legum bíógestum.
Ljósmyndiri/Gunnar Freyr Steinsson
Aðalleikararnir John Rhys-Davies á langan feril að baki sem leikari og sést hér við sjávarsíðuna í Reykjavík í kvik-
myndinni Skuggahverfi. Brittany Bristow er öllu minna þekkt en hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta.
Leikstjórarnir Jón Gústafsson og Karolina Lewicka leikstýra myndinni.
Á milli tveggja heima
Skuggahverfið nefnist kvikmynd Jóns Gústafssonar og Karolinu Lewicka
John Rhys-Davies meðal leikara Dramatísk, dularfull og spennandi
Hrollvekjan Us eftir leikstjórann
Jordan Peele sló met um síðustu
helgi í Bandaríkjunum þar sem hún
var frumsýnd á föstudegi, eins og á
Íslandi. Engin frumsamin hroll-
vekja (þ.e. ekki endurgerð á eldri
hrollvekju) hefur skilað jafnmiklu í
miðasölu þar í landi, eða um 70
milljónum Bandaríkjadala. Fram-
leiðslukostnaður myndarinnar var
20 milljónir dollara og gróðinn því
strax orðinn mikill.
Fyrsta kvikmynd Peele, Get Out,
sló óvænt í gegn árið 2017 og virð-
ist Us ætla að gera það líka. Get
Out hlaut Óskarsverðlaun fyrir
besta frumsamda handrit í fyrra.
Með aðalhlutverk í Us fara Lupita
Nyong’o og Winston Duke og segir
í myndinni af hjónum sem ætla að
hafa það náðugt í fríi á sólarströnd
með börnum sínum en þá fara
dularfullir tvífarar að gera þeim líf-
ið leitt.
Hrollvekja Peele
sló met í miðasölu
Frumsýning Leikstjórinn Jordan Peele, leikkonan Lupita Nyong’o og
leikarinn Winston Duke á frumsýningu Us í New York 20. mars.
AFP
Kvikmyndaleik-
stjórinn Larry
Cohen, sem
gerði á ferli sín-
um költ-myndir
á borð við Black
Caesar, It’s Alive
og Q: The
Winged Serpent,
er látinn, 77 ára
að aldri. Cohen
naut mikillar hylli hjá afmörkuðum
hópi kvikmyndaunnenda og var
einn af lykilmönnum hinna svoköll-
uðu „exploitation“ kvikmynda 8. og
9. áratugarins sem í kvikmynda-
fræðum hafa verið kallaðar æsi-
myndir. Þá var hann einnig hand-
ritshöfundur og samdi sögur fyrir
sjónvarpsþætti á borð við The Fugi-
tive og Columbo. Eftir dágóða fjar-
veru frá Cohen aftur með kvik-
myndinni Phone Booth árið 2002
sem gerist nær öll í símaklefa.
Leikstjórinn Larry
Cohen látinn
Larry Cohen
Fyrirtækið
Apple kynnti í
fyrradag nýja
áskriftarveitu
sína að kvik-
myndum og sjón-
varpsþáttum,
Apple TV+ sem
mun að öllum lík-
indum veita
streymisveitunni
Netflix harða samkeppni. Meðal
þeirra frægðarmenna sem tóku
þátt í kynningunni voru leikstjórinn
Steven Spielberg og leikkonurnar
Reese Witherspoon og Jennifer An-
iston. Spielberg framleiðir þætti
veitunnar Amazing Stories sem
byggðir eru á 93 ára gömlu vís-
indaskáldskapartímariti sem veittu
honum innblástur og Witherspoon
og Aniston kynntu þættina The
Morning Show sem þær leika í sam-
an. Hvort veita Apple reynist raun-
veruleg ógn við Netflix mun tíminn
einn leiða í ljós en veitan hefur
göngu sína í maí. Sjá má af umfjöll-
unum hinna ýmsu fjölmiðla að
menn eru mishrifnir og dagblaðið
Guardian spáir því að veitan muni
hafa lítil sem engin áhrif á Netflix.
Stjörnur kynna
Apple TV+
Jennifer Aniston