Morgunblaðið - 29.03.2019, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019
Njóttu þess að hlakka til
Krít – 10 nætur
frá 137.900 kr.
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
í íbúð með morgunverði.
Oscar Suites & Village
Sumarhvellur
★★★★
GILDIR Í
VALDAR BROTTFARIR
Í JÚNÍ, JÚLÍ OG ÁGÚST
Frábær verð í sumar og sól
Veður víða um heim 28.3., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Hólar í Dýrafirði 2 alskýjað
Akureyri 0 snjókoma
Egilsstaðir 1 léttskýjað
Vatnsskarðshólar -1 skýjað
Nuuk -3 skýjað
Þórshöfn 7 súld
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 13 heiðskírt
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 13 léttskýjað
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 16 heiðskírt
Glasgow 11 heiðskírt
London 14 léttskýjað
París 13 alskýjað
Amsterdam 10 skýjað
Hamborg 11 skýjað
Berlín 9 súld
Vín 11 skúrir
Moskva 2 heiðskírt
Algarve 19 heiðskírt
Madríd 10 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 16 heiðskírt
Aþena 10 súld
Winnipeg -1 léttskýjað
Montreal 4 alskýjað
New York 5 heiðskírt
Chicago 14 léttskýjað
Orlando 23 léttskýjað
29. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:57 20:09
ÍSAFJÖRÐUR 6:59 20:17
SIGLUFJÖRÐUR 6:42 20:00
DJÚPIVOGUR 6:26 19:39
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag
Hæg vestlæg átt, víða léttskýjað og kalt í veðri. Suð-
vestan 5-10 m/s síðdegis með éljum á Suður- og
Vesturlandi.
Allhvöss vestanátt austanlands fram yfir hádegi, annars talsvert hægari vindur. Él, einkum á
Norðurlandi, en bjartviðri suðaustantil. Frost víða 0 til 5 stig.
Gjaldþrot WOW air
ferðaþjónustu finna fyrir samdrætti.
Jafnframt muni eftirspurn á íbúða-
markaði minnka og fjöldi Airbnb-
íbúða verða settur í sölu. Sú þróun
geti aftur haft áhrif á íbúðaverð.
Kynnisferðir sögðu upp 59 starfs-
mönnum í gær. Þá sagði auglýsinga-
stofan Pipar\TBWA upp fimm
starfsmönnum í kjölfar falls WOW.
Síðasta haust var unnin greining
fyrir stjórnvöld á mögulegum áhrif-
um gjaldþrots WOW air á íslenska
hagkerfið. Trúnaður hefur ríkt um
þessa greiningu og fékkst hún ekki
afhent hjá fjármálaráðuneytinu í
gær. Hins vegar birti Fréttablaðið
frétt upp úr greiningunni en þar
sagði að gjaldþrot WOW air gæti
þýtt að landsframleiðsla drægist
saman um 2 til 3 prósent í ár.
Taka á móti starfsfólki WOW
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
Vinnumálastofnunar, hvetur starfs-
fólk WOW air til að afla sér upplýs-
inga á vef stofnunarinnar. Sótt sé um
atvinnuleysisbætur rafrænt.
„Öll stofnunin er með þetta undir.
Það mæðir mest á Reykjavík og Suð-
urnesjum. Það hefur aldrei gerst að
svo stór vinnustaður hafi orðið gjald-
þrota á Íslandi,“ segir Unnur.
Nánar er rætt við hana á blaðsíðu
12 í Morgunblaðinu í dag.
Stofnunin sendi frá sér tilkynn-
ingu í gær þar sem starfsfólki WOW
air var leiðbeint um næstu skref,
m.a. varðandi atvinnuleysisbætur.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, segir það þumal-
fingursreglu að hvert prósentustig í
hagvexti fjölgi störfum um 0,5-0,8
prósentustig. Miðað við að áhrifin
séu 0,6 prósentustig og 200 þúsund
manns á vinnumarkaði ætti það að
samsvara 1.200 störfum. Áhrifin
virka í báðar áttir. Því ætti 1% sam-
dráttur að leiða til þess að störfum
fækki um 1.200. Af því leiðir að 2-3%
samdráttur gæti fækkað störfum um
2.400 til 3.600. Á móti kemur að
WOW air skar niður reksturinn í
desember og hafa áhrifin af því
þegar birst að hluta í hagkerfinu.
Þær upplýsingar fengust hjá
Landsbankanum að bankinn myndi
ekki birta spá um atvinnuleysi vegna
brotthvarfs WOW air.
Atvinnuleysið aukist um 1,7%
Arion banki kynnti í fyrradag
sviðsmyndir vegna mögulegs sam-
dráttar í ferðaþjónustu. Þá fyrst og
fremst vegna brotthvarfs WOW air.
Erna Björg Sverrisdóttir, sér-
fræðingur á greiningardeild Arion
banka, segir deildina áætla að at-
vinnuleysi aukist um 1,7 prósentu-
stig. Með því muni atvinnuleysi
aukast úr að meðaltali 2,7 prósentu-
stigum í fyrra í 4,4 prósentustig í ár.
Það samsvari 2.000 til 2.500 störfum í
ferðaþjónustu. Að meðtöldum öðrum
óbeinum störfum geti störfum mögu-
lega fækkað um 2.500 til 3.000 í ár.
Til samanburðar kemur fram í
skýrslu Vinnumálastofnunar að
atvinnuleysi mældist 3,1% í febrúar.
Að jafnaði 5.690 manns voru þá á
atvinnuleysisskrá.
Erna segir aðspurð að greiningar-
deild Arion banka áætli að atvinnu-
leysið verði ívið meira á næsta ári,
eða 4,7%, í kjölfar samdráttar í
ferðaþjónustu. Hún bendir á að
mörg störf í ferðaþjónustu hafi verið
hálfgerð vertíðarstörf. Þá hafi marg-
ir starfsmenn komið gagngert til
landsins í atvinnuleit. Með hliðsjón
af þessum hreyfanleika sé óvíst
hvernig samdrátturinn mælist í at-
vinnuleysi. „Einhverjir gætu séð hag
sínum betur borgið með því að fara
úr landi og vinna annars staðar.“
Gangi til baka í lok ársins
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Greiningar Íslandsbanka,
segir að til skemmri tíma litið sé lík-
legt að vegna brotthvarfs WOW air
aukist atvinnuleysi á Íslandi um
hálft til eitt prósentustig. Við þá
áætlun styðjist hann m.a. við upplýs-
ingar um að þúsund störf muni tap-
ast hjá WOW air og um 700 störf á
Suðurnesjum. Við það bætist ýmis
önnur afleidd störf. Því sé raunhæft
að ætla að í kring um tvö þúsund
störf tapist á komandi mánuðum.
„Fjöldinn ræðst af því hvernig
gjaldþrot WOW air smitast yfir á
aðra tengda aðila, þjónustuaðila
WOW air og fleiri í ferðaþjónstunni,
og hvaða bjargir þeir sem missa
starf sitt núna vegna gjaldþrots
WOW air hafa til að finna önnur
störf. Til lengri tíma litið held ég að
áhrifin á íslenskan vinnumarkað
verði ekki veruleg. Hins vegar er
óhjákvæmilegt að það verði meira
atvinnuleysi en ella á næstu vikum
og mánuðum. Þegar komið er fram á
síðasta fjórðung er vonandi farið að
sjá fyrir endann á mestu áhrifunum
af þessu. Það byggjum við á reynslu
annarra landa þar sem komið hefur
áþekkt högg á ferðaþjónustu. Og
með hliðsjón af því hvað vinnumark-
aður okkar og hagkerfi er sveigjan-
legt. Hagkerfið hefur áður sýnt
mikinn viðnámsþrótt við svona
skell,“ segir Jón Bjarki. Námsmenn
og fólk sem vinnur hlutastörf muni
finna fyrir samdrætti á íslenskum
vinnumarkaði næstu mánuði.
Hefur neikvæð áhrif á hagvöxt
Seðlabankinn lætur reglulega
vinna sviðsmyndir vegna mögulegra
áfalla í hagkerfinu. Bankinn tjáir sig
hins vegar ekki um möguleg áhrif af
falli einstakra félaga. Þó var fjallað
um vanda WOW air með almennum
hætti í síðustu Peningamálum.
Aðalfundur bankans fór fram í
gær. Við það tilefni rifjaði Már Guð-
mundsson, seðlabankastjóri, upp að
Seðlabankinn hefði sl. haust metið
áhrifin af mögulegu falli WOW air
miðað við stærð og umsvif WOW
árið 2017. Gróflega megi áætla að
þau hafi verið orðin um helmingi
minni þegar félagið fór í þrot. „Eigi
að síður er ljóst að fall Wow mun
hafa neikvæð áhrif á hagvöxt, sér-
staklega á þessu ári,“ sagði Már m.a.
Minnst 2.000 verða án atvinnu
Fráfarandi starfsmannastjóri WOW air segir milli 900 og 1.000 hafa misst vinnuna hjá flugfélaginu
Fleiri félög segja upp fólki Sérfræðingar telja að störfum í hagkerfinu muni fækka um 2-3 þúsund
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Starfsfólkið farið Starfsmenn WOW air í höfuðstöðvunum í Bríetartúni
yfirgáfu vinnustaðinn í síðasta sinn eftir fund með forstjóra félagsins.
5%
1.450
7%
2.030
10%
3.000
2.000
2.900
2.000
12%
3.480
15
4.350
Möguleg áhrif af falli WOW air á vinnumarkaðinn
A B C D E
CA B D E
Miðspá
Miðspá
Atvinnuleysi innan ferðaþjónustu og tengdra atvinnugreina
Fækkun starfa/fjöldi atvinnulausra, sviðsmyndir
Mismunandi sviðsmyndir
samkvæmt spá Reykjavík
Economics
Spá Íslandsbanka
Spá Reykjavík Economics
Spá Arion banka
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sérfræðingar áætla að með brott-
hvarfi flugfélagsins WOW air fækki
störfum á íslenskum vinnumarkaði
um minnst 2 þúsund. Um þúsund
manns misstu vinnu hjá WOW.
Jónína Guðmundsdóttir, fv. fram-
kvæmdastjóri mannauðssviðs WOW
air, hafði verið vakandi í einn og hálf-
an sólarhring þegar Morgunblaðið
náði tali af henni um fimmleytið í
gær. Höfðu stjórnendur félagsins þá
róið lífróður til að bjarga því. Þeirri
baráttu lauk í gærmorgun.
Að sögn Jónínu missa 900 til 1.000
manns vinnuna hjá WOW air. Gróft
á litið séu þetta 200 flugmenn, 400
flugliðar, 50 flugvirkjar og starfsfólk
í Keflavík og höfuðstöðvunum.
Áður hafi félagið sagt upp um 110
fastráðnum starfsmönnum í desem-
ber og verktökum og lausráðnum
starfsmönnum, alls um 350 manns.
Jónína sagði aðspurð að eftir að
starfseminni var hætt hefði félagið
haft samband við Vinnumálastofnun
og verkalýðsfélög starfsmanna.
Jónína sagði starfsfólkið mundu
halda hópinn. „Þetta hefur verið
miklu meira en vinnustaður. Þetta er
meira eins og fjölskylda,“ sagði Jón-
ína um andann hjá félaginu.
Isavia hyggst byrja á að fækka
sumarfólki (sjá viðtal við forstjórann
á blaðsíðum 10-11 hér í blaðinu).
Störfum fækki um 2.900
Samkvæmt greiningu Reykjavík
Economics (RE), sem unnin var
fyrir WOW air og birt í síðustu viku,
mun störfum fækka um 1.450 til
4.350 vegna brotthvarfs WOW air.
Magnús Árni Skúlason, fram-
kvæmdastjóri RE og annar skýrslu-
höfunda, segir aðspurður að miðspá-
in, 2.900 störf, sé líklegust.
Þar komi í fyrsta lagi til um þús-
und störf hjá WOW air og nokkur
hundruð tengd störf, ekki síst hjá
Airport Associates, þjónustuaðila fé-
lagsins á Keflavíkurflugvelli.
Um 400 manns starfa nú hjá Air-
port Associates og áætlar forstjóri
félagsins, Sigþór Kristinn Skúlason,
að um 50% af starfseminni hafi verið
vegna þjónustu við WOW air.
Í öðru lagi bendir Magnús Árni á
að störfum muni fækka hjá fjölda
ferðaþjónustufyrirtækja sem byggt
hafa afkomu sína að hluta á
farþegum sem komu með WOW.
Til dæmis séu margar bílaleigur
skuldsettar og því horfur á endur-
skipulagningu og samruna bílaleiga.
Þá muni hótelrekendur, leiðsögu-
menn, veitingamenn og fleiri aðilar í