Morgunblaðið - 29.03.2019, Page 11
11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Verð áður 12.990
Verð nú 9.090
30%
afsláttur
af úlpum
um á Keflavíkurflugvelli 2019 yrðu
WOW farþegar. Nú hefst vinnan við
að kanna hvað aðrir flugrekendur geti
komið með af farþegum til landsins til
viðbótar. Þá er sumartíminn sá tími
árs þegar flest erlend flugfélög fljúga
til og frá Keflavíkurflugvelli. Það er
ljóst að brotthvarf WOW air mun
hafa áhrif en við erum ekki komin
með endanlegt svar um þau áhrif á
þessari stundu,“ segir Björn Óli.
Samkvæmt ársskýrslu Isavia 2018
störfuðu þá að meðaltali 1.430 manns
hjá fyrirtækinu. Það var 5,9% fjölgun
starfa hjá félaginu milli ára.
Fram kom í fréttaskýringu um
áform Isavia sem birtist í Morgun-
blaðinu 15. nóvember síðastliðinn að
áformað var að rúmlega tvöfalda
byggingarmagnið á flugvellinum í
Keflavík á næsta áratug. Þá fyrst með
gerð tengibyggingar milli norður- og
suðurbyggingar sem mögulega yrði
tekin í notkun 2022-23.
Guðmundur Daði Rúnarsson,
framkvæmdastjóri tækni- og eigna-
sviðs Keflavíkurflugvallar, taldi raun-
hæft að þessar framkvæmdir hæfust í
lok þessa árs. Áætlaður kostnaður
væri 25-30 milljarðar. Mögulegt yrði
að áfangaskipta hluta verkefnisins ef
ástæða þætti.
Morgunblaðið/Hari
Leifsstöð Tómlegt var um að litast í gær við innritunarborð WOW air.
Stefán E. Stefánsson
Pétur Hreinsson
Farþegaþotur eru meðal dýrmætasta
lausafjár sem fyrirfinnst. Það sem
gerir þær sérstæðar er sá mikli hreyf-
anleiki sem þær hafa miðað við önnur
verðmæti af svipaðri stærðargráðu.
Vél sem kostar 10 milljarða getur tek-
ið á loft frá flugvelli á Íslandi og verið
komin hinum megin á hnöttinn á inn-
an við hálfum sólarhring.
Þessi sérstaða veldur því að sér-
stakar reglur gilda um meðferð flug-
véla og kyrrsetning er eitt þeirra úr-
ræða sem beita má gagnvart
flugfélögum sem brotið hafa skilmála
í samningum við lánardrottna sína.
Kyrrsetning miðar ætíð að því að lág-
marka hættuna á því að eigandi kröfu
verði fyrir tjóni þar til öðrum úrræð-
um, fyrir dómstólum, verður við kom-
ið.
Að aftra för flugfars
Kyrrsetningarheimildir ná til fleiri
tegunda verðmæta en flugvéla en lög
um loftferðir, ásamt alþjóðasamn-
ingum þar um, ganga lengra en al-
menn ákvæði laga um kyrrsetningu.
Þannig geta t.d. rekstraraðilar flug-
valla aftrað för loftfars af flugvelli uns
gjöld eru greidd af viðkomu viðkom-
andi vélar eða trygging sett fram fyr-
ir greiðslu þeirra. Þá geta leigusalar
flugvéla einnig beitt kyrrsetningu
gagnvart vélum sem eru í höndum
leigutaka, hafi ekki verið greitt af
leigusamningum er þær varða. Slík-
um ákvæðum hefur nú verið beitt
gegn WOW air og þar koma við sögu
leigusalar fyrirtækisins og Isavia ohf.
sem um mánaðaskeið hefur séð skuld-
ir WOW air vegna lendingargjalda
hlaðast nær stöðugt upp. Atburðarás í
þá veru hófst á sunnudagskvöld þegar
flugvélaleigufyrirtækið Jin Shan, sem
er í eigu BoComm, lét kyrrsetja tvær
vélar í sinni eigu sem WOW air var
með í förum milli Íslands og Kanada
annars vegar og hins vegar í leigu-
verkefnum milli Kúbu og Flórída-
fylkis í Bandaríkjunum. Þær vélar
hafa ekki tekið á loft frá 24. mars síð-
astliðnum.
Nokkrir dagar liðu frá því að Jin
Shan greip til þeirra úrræða en í fyrri
nótt létu svo þrjú flugvélaleigufyr-
irtæki til skarar skríða. Annars vegar
ALC sem lét kyrrsetja fjórar vélar
sem héldu til Norður-Ameríku síð-
degis í fyrradag og lentu í Toronto,
Montréal, Detroit og Baltimore um
kvöldmatarleytið þann dag. Hins veg-
ar létu tvö félög, sem eru í eigu Gos-
hawk, kyrrsetja tvær vélar í þeirra
eigu sem lentu í Boston og New York
um kvöldmatarleytið í fyrradag.
Þetta eru félög sem reyndar bera
nöfn sem áhugamenn um íslenskar ár
ættu að tengja við: Sog Aviation
Leasing Limited og Tungnaa Av-
iation Leasing Limited.
Isavia grípur inn í
En þá eru aðeins taldar átta af
þeim flugvélum sem WOW air hafði
til umráða þar til um liðna helgi. Um
nokkurt skeið var það verst geymda
leyndarmál íslenska fluggeirans að á
milli WOW air og Isavia hafði um all-
langt skeið verið í gildi samkomulag
um að á Keflavíkurflugvelli væri ætíð
ein vél „til taks“ vegna skuldar fé-
lagsins við flugvöllinn. Þannig
tryggði WOW á hverjum tíma að
Isavia gæti, ef nauðsyn krefði, kyrr-
sett viðkomandi vél til tryggingar
þeim himinháu skuldum sem safnast
höfðu upp á undanförnum misserum
vegna vangoldinna lendingargjalda.
Í tilkynningu frá Isavia í gær sagði
að þegar fréttir hefðu borist af því að
vélarnar sem haldið höfðu til Am-
eríku í fyrradag myndu ekki skila sér
til baka hefði Isavia beitt stöðv-
unarheimild á grundvelli loft-
ferðalaga til að stöðva flugvél WOW
air. Og þar varð fyrir barðinu vélin
TF-GPA sem er í eigu ALC en hún
hefur frá 18. mars staðið óhreyfð á
Keflavíkurflugvelli og í panti hjá
Isavia.
Einn fyrir alla
Þannig situr ALC í súpunni eftir
gjaldþrot WOW air. Skv. reglum sem
í gildi eru hér hefur Isavia allsherj-
artak í vél félagsins gagnvart skuld-
unum sem leigutakinn hefur safnað
upp. Það verður því stór reikningur
sem ALC þarf að punga út til að losa
vélina af Keflavíkurflugvelli. Víðast
hvar um heiminn gilda þær reglur að
flugvellir hafi aðeins tak í vélum
gagnvart þeim lendingargjöldum
sem safnast hafa upp vegna viðkom-
andi véla. Hin rúma heimild sem er í
gildi hér, rétt eins og í Bretlandi, er
m.a. talin ástæða þess að ALC og aðr-
ir leigusalar ákváðu að kyrrsetja vél-
ar sínar fjarri íslenskum flug-
brautum.
Þá voru eftir tvær
Tvær vélar eru enn ótaldar í þessu
samhengi. Í fyrsta lagi vélin TF-
NOW sem flogið var til Ljubliana í
Slóveníu þann 21. mars vegna við-
haldsskoðunar. Hún er í eigu ALC og
er nú komin úr höndum WOW air
einnig. Önnur vél félagsins, TF-SKY
kom til Íslands frá Kaupmannahöfn í
fyrrakvöld en hún hefur ekki verið
kyrrsett af Isavia og mun því ALC að
öllum líkindum koma henni af landi
brott við fyrsta tækifæri og leigja
hana öðru félagi, rétt eins og unnið
verður að í tilfelli hinna vélanna sem
nú standa óhreyfðar.
Allar vélarnar á jörðu niðri
Áhafnir WOW air strandaglópar líkt og farþegarnir Vélum WOW beint til annarra leigutaka
Staðsetning véla WOW air
TF-NEO
Í viðhaldsskoðun
í Ljubliana frá 21.
mars,*
TF-GMA
Síðasta fl ug frá
Kefl avík til Toronto
þann 27. mars.
Lenti 19:22.*
TF-WIN
Síðasta fl ug frá
Kefl avík til Detroit
þann 27. mars.
Lenti 19:04.*
*Eigandi: ALC.
**Eigandi: Sog Aviation
Leasing Limited.
***Eigandi: Tungnaa
Aviation Leasing Limited.
****Eigandi: Jin Shan 20.
TF-NOW
Síðasta fl ug frá
Santa Clara á
Kúbu til Miami
24. Mars. Lenti kl.
21:20.****
TF-JOY
Síðasta fl ug
frá Kefl avík til
Montréal þann 27.
mars. Lenti 18:04.*
TF-PRO
Síðasta fl ug frá
Reykjavík til
Montréal þann
24. Mars. Lenti kl.
18:00.****
TF-DOG
Síðasta fl ug frá
Kefl avík til Boston
þann 27 mars.
Lenti kl. 18:39.**
TF-DTR
Síðasta fl ug
frá Kefl avík til
Baltimore þann
27. mars. Lenti kl.
17:48.*
TF-CAT
Síðasta fl ug frá
Kefl avík til New
York þann 27.
mars. Lenti kl.
17:43.***
TF-GPA
Síðasta fl ug frá
Kaupmannahöfn
til Keflavíkur
þann 18. mars.
Lenti 13:46.*
TF-SKY
Síðasta fl ug frá
Kaupmannahöfn
til Keflavíkur
þann 27. mars.
Lenti kl. 22:23.*
Morgunblaðið/Hari
Kjurt Þegar vélar eru kyrrsettar hefur það yfirleitt víðtæk áhrif eins og
sannast hefur rækilega síðustu daga. Engin véla WOW air fór í loftið í gær.