Morgunblaðið - 29.03.2019, Side 13

Morgunblaðið - 29.03.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Tilraun neðri deildar breska þings- ins til þess að taka fram fyrir hend- urnar á ríkisstjórninni í Brexit-mál- inu fór út um þúfur þegar þingmenn höfnuðu í fyrrakvöld öllum valmögu- leikunum átta sem lagðir höfðu verið fram. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hyggst leggja fram sam- komulag sitt við Evrópusambandið í þriðja sinn í dag, en þá rennur út sá tímafrestur sem leiðtogar sam- bandsins höfðu gefið Bretum til þess að samþykkja það. Gangi það eftir munu Bretar yfirgefa sambandið 22. maí næstkomandi, en annars verður útgangan 12. apríl. John Bercow, forseti þingsins, veitti heimild í gær til að málið yrði lagt fram á ný, þar sem ríkisstjórnin hafði aðskilið samkomulagið frá póli- tískri viljayfirlýsingu sem áður var hluti af frumvarpi May. Fulltrúar Verkamannaflokksins gagnrýndu hins vegar ríkisstjórnina, og sögðu að án viljayfirlýsingarinnar, sem set- ur fram hvernig samskipti Bretlands og Evrópusambandsins eiga að vera eftir útgönguna, væri þingið í raun að samþykkja „Brexit í blindni“. Dugar loforð May? Theresa May lofaði þingmönnum Íhaldsflokksins á miðvikudagskvöld- ið að hún myndi fara frá ef sam- komulagið yrði samþykkt, þannig að annar leiðtogi Íhaldsflokksins myndi sjá um næstu skref útgöngunnar. Loforð May, ásamt því að þingið samþykkti engan annan kost á mið- vikudagskvöldið, varð til þess að sannfæra suma af helstu andstæð- ingum hennar innan Íhaldsflokksins, um að samkomulag hennar væri betra en hinir valkostirnir sem væru í boði. Boris Johnson, fyrrverandi ut- anríkisráðherra, ákvað til dæmis að styðja samkomulagið eftir ákvörðun May. Þingmenn norðurírska DUP- flokksins ítrekuðu hins vegar að and- staða þeirra við samkomulagið væri óbreytt, en þeir óttast að það muni reka fleyg milli Norður-Írlands og hinna þriggja ríkjanna innan Stóra- Bretlands. AFP Brexit Eigandi þessara hunda mótmælti við breska þinghúsið í gær. Öllum valkost- unum hafnað  Samkomulagið borið upp í þriðja sinn Forsvarsmenn Boeing-flugvéla- verksmiðjanna lofuðu í fyrrinótt að þeir myndu gera allt sem í valdi þeirra stæði til þess að koma í veg fyrir frekari flugslys eins og þau tvö sem 737 MAX 8-vélar fyrir- tækisins lentu í með skömmu milli- bili á síðastliðnu misseri. Félagið kynnti um leið breyt- ingar á hugbúnaði MAX-vélanna, sem á að koma í veg fyrir að svo- nefnt MCAS-kerfi bili, en það á að koma í veg fyrir að flugvélin ofrísi. Rannsóknir flugslysanna í Eþíópíu og Indónesíu hafa hins vegar beinst í síauknum mæli að bilun í búnaðinum, sem hafi ýtt vélunum niður á við á meðan flugmennirnir reyndu að halda þeim á lofti. Boeing hefur meðal annars kom- ið í veg fyrir að MCAS-kerfið reyni ítrekað að laga flug vélarinnar þeg- ar flugmaður hennar reynir að ná stjórn á henni á ný, auk þess sem að það á að slökkva á sér ef tveir skynjarar, sem eiga að nema loft- streymi í kringum vélina, eru ekki á einu máli um það hver mælingin sé. Þá mun flugfélögum bjóðast að fá viðvörunarljós í flugstjórnarklef- ann sem láti vita þegar skynjararn- ir eru ekki samstiga. Að lokum mun fyrirtækið endurskoða þjálf- unarferil flugmanna sem hafa lært á 737, svo að þeir skilji betur hvernig 737 MAX-vélarnar virki. Segir ferlið ítarlegt Dan Elwell, starfandi forstjóri bandarísku flugumferðarstofnunar- innar, FAA, sat fyrir svörum öld- ungadeildarþingmanna, en spurn- ingar hafa vaknað um þátt FAA við eftirlit með öryggisþáttum þegar MAX-vélarnar voru hannaðar. Hafnaði Elwell ásökunum þess efnis að FAA og Boeing hefðu átt í of „nánum“ samskiptum varðandi þróun vélarinnar og sagði að ör- yggisprófanir á MCAS-kerfi vél- arinnar hefðu verið bæði ítarlegar og nákvæmar. Segjast hafa lagað gallann  Boeing kynnir nýjan hugbúnað fyrir 737 MAX AFP Kyrrsettar Boeing 737 MAX vélar fá ekki að fljúga þessa dagana. T Í S K A & L Í F S S T Í L L S k ó l a v ö r ð u s t í g 1 6 a Op i ð v i r k a d a g a 11 -18 / l a u g a r d . 11 -17 / Sk ó l a v ö r ð u s t í g u r 16 a , 10 1 Re y k j a v í k / S ím i 5 6 2 0 0 16 Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar Haga hf. 2019 Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn 7. júní 2019. fleim hluthöfum sem vilja eiga fundmeð tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við tilnefningarnefnd í aðdraganda aðalfundar 2019 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en kl. 16:00 Þann 12. apríl nk. á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. fleim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórnHaga hf. er bent á að tilkynna Það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en kl. 16:00 Þann 29. apríl 2019 á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað sem finnamá á vefsíðuHaga en Þar Þarf meðal annars að upplýsa um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk Þess að gera grein fyrir hvernig frambjóðandi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við Samkeppniseftirlitið frá september 2018. Framboðseyðublað og nánari upplýsingar um viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendummá finna á vefsíðuHaga hf., www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur. Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar Þann 15. maí nk. Tilnefningarnefnd Haga hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.