Morgunblaðið - 29.03.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 29.03.2019, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019 Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is Blár vinur í stofunni, yndislegur litur sem nýtur sín vel í flestum rýmum. Skoðaðu litaúrvalið okkar á slippfelagid.is Notalegur Nú virðist sem for- ysta Sjálfstæðisflokks- ins hafi einsett sér að keyra áfram undarlegt samevrópskt reglu- gerðarfargan á sviði orkumála með innleið- ingu á svonefndum þriðja orkupakka Evr- ópusambandsins. Inn- leiðing þriðja orku- pakkans gengur þvert á síðustu landsfundarsamþykktir Sjálfstæðisflokksins. Á landsfund mæta hátt í tvö þús- und kjörnir fulltrúar víðsvegar af landinu og ákveða stjórnmálastefnu flokksins. Vald landsfundar til stefnumörkunar er bundið í lög flokksins og með þessu skipulagi hefur skapast hófleg valddreifing innan flokksins. Flokksforystan, sem einnig sækir umboð sitt til landsfundar, getur vissulega með vísan í hitt og þetta virt að vettugi landsfundarsam- þykktir og hagað sinni stefnu eins og hún vill en við skulum nú samt hafa það alveg á hreinu að slík framganga hefur afleiðingar. Á landsfundinum árið 2010 álykt- aði fundurinn gegn uppgjöf í Icesave deilunni með eftirfarandi samþykkt: „Við [sjálfstæðismenn] segjum hins vegar NEI við löglausum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave mál- inu.“ Hið mikilvæga traust sem ríkir á milli forystu og flokksmanna rofnaði þegar forystan fór á sveig við þá samþykkt. Það má í raun leiða að því líkur að farvegurinn fyrir kosninga- sigur Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar árið 2013 hafi einmitt skapast vegna þess að Sig- mundur stóð fast í fæt- urna í því máli en á sama tíma upplifðu margir kjósendur Sjálfstæðisflokksins sig sem svikna. Fram- sóknarflokkurinn undir forystu Sigmundar fékk 35% fylgi í þremur kjördæmum af sex í þeim kosningum á meðan Sjálfstæð- isflokkurinn náði að- eins yfir 30% fylgi í einu kjördæmi. Það var salt í sárið að heyra tals- menn forystunnar reyna að telja flokksmönnum trú um að landsfund- arsamþykktin hefði verið eitthvað annað en hún var og að ekki væri verið að ganga gegn samþykktinni. Þótt tíminn lækni flest sár situr sú framganga enn í flokksmönnum. Sagan virðist ætla að endurtaka sig með hinum þriðja orkupakka. Á síðasta landsfundi voru línurnar lagðar með eftirfarandi samþykkt: „Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frek- ara framsali á yfirráðum yfir ís- lenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.“ Samþykkt- inni var beint gegn þriðja orkupakk- anum. Þeir sem halda því fram að þessi samþykkt hafi verið sett fram af einhverju handahófi og tengist ekki þriðja orkupakkanum skulu skýra sitt mál. Efnislega hafa engin rök verið lögð fram um að þessi þriðji orku- pakki sé hagstæður fyrir Íslendinga og margt bendir til að með innleið- ingu á honum sé verið að afsala sér valdi yfir málaflokknum með ófyr- irsjáanlegum afleiðingum. Jafnvel flutningsmenn frumvarpsins hafa í raun viðurkennt valdaframsalið og leggja fram frumvarpið með fyr- irvörum. Það er þó alveg á krist- altæru að fyrirvarar hafa litla sem enga þýðingu þegar kemur að dóms- valdinu í Brussel. Þegar EES-samningurinn var samþykktur var það grundvall- aratriði að Íslendingar fengju að halda í innflutningshöft sín á land- búnaðarafurðum sökum þess að bú- fjárstofnar landsmanna hefðu búið við langvarandi einangrun og væru viðkvæmir fyrir farsóttum. Þetta má m.a. lesa í athugasemdum lagafrum- varpsins. Þetta grundvallaratriði var nýlega dæmt óheimilt með vísan í flókna og fyrirferðarmikla evrópska lagabálka sem höfðu verið innleiddir. Rétt eins og með þriðja orkupakkann sam- þykktu ráðamenn einhverja laga- flækju frá Brussel sem endaði svo með einhverju allt öðru en lagt var upp með. Það má spyrja sig á hvaða vegferð evrópska samstarfið er komið þegar slík grundvallaratriði breytast án þess að löggjafinn geri sér grein fyr- ir því. Það hlýtur að þurfa að horfa til þess máls við innleiðingu á þriðja orkupakkanum. Erum við að festa í lög eitthvert evrópskt reglugerðarf- argan sem getur gert grundvall- arbreytingar á hagsmunum þjóð- arinnar og vilja löggjafans með dómsúrskurði? Gæti sem dæmi eftir nokkur ár fallið dómur um að ríkið þyrfti að brjóta upp Landsvirkjun og selja hana? Gæti komið upp eitthvað ófyrirsjáanlegt í tengslum við orku- framleiðslu og dreifingu því menn ákváðu að samþykkja einhvern orkupakka sem ekki einu sinni flutn- ingsmenn hans virðast skilja? Ekki einn einasti stuðningsmaður frumvarpsins hefur stigið fram og lagt fram rök um að pakkinn sé góð- ur. Ekki einu sinni þeir sem styðja pakkann. Bara einhverjar flækjur og uppgjafartal um að þetta þurfi á grundvelli EES samningsins. Notast er við setninguna „við eigum engra kosta völ“. en sama setning var not- uð í Icesave-deilunni. Annað kom heldur betur á daginn! Uppgjafarstefna Eftir Viðar Guðjohnsen »Efnislega hafa engin rök verið lögð fram um að þessi þriðji orku- pakki sé hagstæður fyr- ir Íslendinga og margt bendir til að með inn- leiðingu á honum sé ver- ið að afsala sér valdi yfir málaflokknum. Viðar Guðjohnsen Höfundur er lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður. Það dylst fáum að staða mála í við- ræðum um kjara- samninga á almenn- um vinnumarkaði er flókin um þessar mundir. Verkfalls- aðgerðir eru hafnar eða í undirbúningi af hálfu Eflingar, VR og fleiri verkalýðsfélaga. Þær beinast fyrst og fremst beint að fyrirtækjum sem starfa í ferðaþjónustu. Fólk sem hyggur á ferðalög er mjög kvikur hópur sem tekur ákvarðanir út frá mörgum sjónarmiðum. Því er lík- legt að fyrirhugaðar aðgerðir hafi áhrif á hve áhugavert Ísland er sem valkostur í hinu stóra sam- hengi í augum ferðafólks. Staðan í kjarasamningum Eðlilegt er að leitað sé leiða til lausna á þeirri stöðu sem upp er komin eftir því sem þær eru til- tækar. Af hálfu viðsemjenda í við- ræðunum hefur verið lögð þung áhersla á að ríkisvaldið þurfi að beita sér fyrir ákveðnum aðgerð- um sem lið í að ná niðurstöðu í samningaviðræðunum. Í því sam- bandi hefur helst verið rætt um aðgerðir í húsnæðismálum og skattamálum. Umræða um að sveitarfélögin í landinu ættu að beita sér fyrir að- gerðum í því skyni að greiða fyrir samningum á almennum vinnu- markaði hefur skotið upp koll- inum. Vandséð er hvernig það get- ur gengið upp. Gerð skal tilraun hér til að skýra þá afstöðu nánar út. Á Íslandi eru tvö stjórnsýslu- stig, ríki og sveitarfélög. Sveit- arfélögin eru nú samtals 72. Íbúa- fjöldi þeirra er afar mismunandi eða frá um 50 íbúum upp í um 126 þúsund íbúa. Hvert og eitt sveitar- félags er sjálfstæð stjórnsýsluein- ing sem starfar eftir gildandi lög- um út frá aðstæðum á hverjum stað. Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga Verkaskipting milli ríkis og sveitarfélaga er í stórum dráttum þannig háttað að ríkisvaldið (Al- þingi) setur lög í landinu. Sveit- arfélögin annast framkvæmd þeirra laga sem ríkið hefur sett og varðar þau sérstaklega. Ríkið ákveður með lagasetningu skyldur sveitarfélaga, verksvið þeirra, verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga og setur sveitarfélögunum tekjustofna. Einstök ráðuneyti setja síðan reglugerðir sem útfæra nánar framkvæmd einstakra laga. Ríkisvaldið hefur síðan eftirlit með því hvernig sveitarfélögin fram- kvæma þær skyldur sem ríkið hef- ur sett þeim. Í mörgum tilvikum hefur ríkið sett viðurlög ef eitt- hvað bregður út af í þeim efnum. Á sama hátt hefur ríkisvaldið eft- irlit með fjármálum sveitarfélaga og fylgist grannt með að farið sé eftir gildandi reglum þar um þannig að hvorki rekstur þeirra né skuldsetning fari umfram gildandi viðmið. Þar er gripið inn í af festu ef eitthvað fer öðruvísi en á að vera. Kostnaðarmat Samband sveitarfélaga hefur um áraraðir barist fyrir því að bæði lög og reglugerðir séu kostn- aðarmetin fyrir gildistöku þeirra. Slíkt vinnulag myndi bæta stjórn- sýsluna mikið. Það er í samræmi við gildandi regluverk í öðrum norrænum ríkjum. Þar er lögð áhersla á að viðkomandi ráðuneyti verði að leggja fram upplýsingar um hvern- ig líklegur kostnaðar- auki fyrir sveit- arfélögin vegna lagasetningar eða eft- irfylgjandi reglugerða verði fjármagnaður. Í Danmörku er t.a.m. unnið eftir svo stífum reglum í þessu sambandi að ef eitthvert ráðuneyti getur ekki gert grein fyrir hvernig kostn- aðarauki fyrir sveitarfélögin, sem hlýst af nýrri reglugerð, verði fjármagnaður, þá hefur ráðuneytið ekki heimild til að leggja reglu- gerðina fram. Staða sveitarfélaga Fjárhagsleg staða sveitarfélag- anna er mjög misjöfn, bæði hvað varðar rekstrarlega afkomu og/eða skuldsetningu. Tekjustofnar þeirra eru einnig mjög mismunandi sterkir. Einnig eru lýðfræðilegar og landfræðilegar aðstæður þeirra afar mismunandi. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga er ákveðið örygg- isnet til að tryggja sveitarfélögum í landinu lágmarkstekjur til að standa undir starfsemi sinni. Jöfn- unarsjóður sveitarfélaga leggur áherslu á að forsenda fyrir fullum framlögum úr sjóðnum sé að sveit- arfélögin fullnýti tekjustofna sína. Enda þótt eitt og eitt sveitarfélag telji sig geta lagt eitthvað af mörkum í tengslum við kjara- viðræður, þá er það fjarri því að hægt væri að yfirfæra slíka aðgerð á öll sveitarfélög í landinu. Ef eitt þeirra myndi taka ákvörðun um slíkt þá kæmi krafan á öll þau sem eftir eru að gera slíkt hið sama, óháð fjárhagslegri stöðu þeirra eða öðrum aðstæðum. Allar slíkar aðgerðir verður því að ræða og taka ákvörðun um hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, heildar- samtökum sveitarfélaga í landinu. Eitt atriði má þó benda á í þessu sambandi. Þegar harðnað hefur á dalnum hjá okkar norrænu ná- grönnum hafa ríki og sveitarfélög sammælst um að kanna allar fær- ar leiðir til að draga úr rekstr- arkostnaði sveitarfélaga. Þannig væri hægt að opna möguleika fyrir einhverja lækkun á rekstrarkostn- aði sveitarfélaganna sem gæti síð- an skilað sér til skattgreiðenda í lækkuðum álögum. Það væri verð- ugt samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga að takast á við slíkt verkefni. Það er hins vegar mjög erfitt að sjá hvernig sveitarfélögin í heild sinni geta haft aðkomu að því að greiða fyrir kjarasamn- ingum á almennum vinnumarkaði að óbreyttum þeim skyldum sem ríkið hefur ákvarðað þeim. Aðkoma sveitarfé- laga að kjaravið- ræðum á almenn- um vinnumarkaði Eftir Gunnlaug Júlíusson Gunnlaugur Júlíusson »Enda þótt eitt og eitt sveitarfélag telji sig geta lagt eitthvað af mörkum í tengslum við kjaraviðræður er það fjarri því að hægt sé að yfirfæra slíka aðgerð á öll sveitarfélög í land- inu. Höfundur er sveitarstjóri í Borgarbyggð. gunnlaugura@gmail.com Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.