Morgunblaðið - 29.03.2019, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 29.03.2019, Qupperneq 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 S V E F N S Ó F I Einnig fáanlegur án arma kr. 159.900 extra þykk og góð springdýna svefnflötur 140x200 cm f r o d e KR. 189.900 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökum vel á móti ykkur Húðfegrun mælir með: – Einstakt tilboð sem gerir þína húð tilbúna fyrir vorið. Þessi tvíþætta meðferð styrkir og byggir upp þína húð, gefur húðinni aukinn raka, jafna áferð og samstundis aukinn ljóma. Nýverið átti ég þess kost að heim- sækja höfuðstöðvar blindrasamtakanna í Barcelona og er það í annað sinn sem ég fæ slíkt tækifæri en áður hafði ég heimsótt samskonar samtök í Kaliforníu, þ.e. tæknideildina þeirra. Heimsóknin nú til blindrafélagisns í Barcelona (en umráðasvæði er allt Katalóníufylki) var afar ánægjuleg og ekki hvað síst fróðleg. Sam- tökin heita, ONCE – Organización Nacional de Ciegos Españoles. Mig langar að deila upplifun minni af heimsókninni með ykkur. Á móti mér og spænskri vin- konu minni tók blindrakennari og yfirmaður stofnunarinnar. Mikil öryggisgæsla er í húsinu og kemur það til út af hryðjuverkaógn sem víða vofir yfir. Við áttum u.þ.b. tveggja klukku- stunda samtal um starfsemi fé- lagsins og stöðu blindra og sjón- skertra á Spáni en þar í landi eru félagsmenn blindrafélagsins um 72.000 talsins og eru um 65% þeirra yfir sextugsaldri. Ólíkt því sem er hérlendis er blindrafélagið og þjónustu- miðstöðin starfrækt sem ein heild og um sjálfseignastofnun er að ræða. Þau eru í stóru og rúmgóðu húsnæði á fjórum hæðum og á götuhæðinni starfrækja samtökin kaffihús sem býður upp á drykki og léttan mat og þar vinna blindir jafnt sem alsjáandi. Þarna koma allir saman blindir sem sjáandi og umhverfið er afskaplega notalegt. Blindrafélagið á Spáni starf- rækir stærsta lottóið þar í landi þar sem dregið er vikulega og sumar vikurnar oftar en einu sinni í viku, sérstaklega í kringum svo- kallaða rauða daga. Blindrafélagið er með sölubása úti um allt á Spáni og margir blindir og sjón- skertir vinna við að selja lottómiða í básunum og víðar. Blindrafélagið nýtur mikils velvilja á Spáni og nánast hvert einasta mannsbarn þekkir að einhverju leyti til starf- semi þess og er það ekki síst lottó- inu og framgöngu og frumkvæði félagsins að þakka hvað sýnileika varðar. Félagið hefur komið sér upp neti sjálfboðaliða sem skipta þús- undum sem vilja hjálpa til. Sem dæmi, ef Jón á Seltjarnarnesinu í Katalóníu óskaði eftir því að ein- hver myndi aðstoða sig við að komast til læknis á morgun, þá sendir blindrafélagið tölvupóst/ skilaboð til allra sjálfboðaliða sem búa á Seltjarnarnesinu í nágrenni við Jón, og að þeirra sögn hefur þetta sjálfboðaliðakerfi reynst afar þýðingarmikið og skapað mikið ör- yggi í því umhverfi. Einnig hafa blindrasamtökin átt frumkvæði að því, í samvinnu við borgaryfirvöld, að koma fyrir hljóðnemum í öll umferðarljós við gangbrautir í Barcelona þar sem viðkomandi blindur eða sjón- skertur einstaklingur fær úthlutað lítilli fjarstýringu sem hann getur virkjað umferðarljósin með, nem- inn fer í gang og gefur frá sér tvö mismunandi tíðnihljóð, annað fyrir grænt ljós og hitt fyrir rautt. Í dag er þessi tækni sett inn í öll ný umferðarljós og verið er að klára að setja þau inn í öll gömul um- ferðarljós við gangbrautir í borg- inni. Að fara um sem blindur eða sjónskertur einstaklingur í mið- borg Reykjavíkur er stór- hættulegt, raunar lífshættulegt, þar sem svo lítið er um hljóðmerki við gangbrautir. Sem dæmi má nefna að frá og með Hlemmi og niður í miðbæ eru nánast engin hljóðmerki sem blindir og sjónskertir geta reitt sig á. Fram- angreint hefur bæði vakið furðu mína og reiði því það er ekki eins og blindir og sjónskertir séu að nema land í fyrsta skipti í Reykjavík eða að borgin séað stinga niður fyrsta götuvit- anum ofan í jörðu. En mér skilst á umferðardeild Reykjavíkurborgar að þetta horfi vonandi til betri vegar. Blindrasamtökin í Barcelona hafa einnig staðið fyrir því að und- anförnu í samvinnu við lest- arkerfið að koma fyrir dúkarenn- ingum og bólum á brautarpallana og víðar á lestarstöðvunum svo blindir eigi auðveldara með að rata þar um. Einnig hafa þeir komið aukahljóðmerki inn í lestarkerfið sem gefur til kynna ákveðinn tíma, þ.e. hversu langt er í að lest- arhurðin loki o.s.frv. Þeir eru með ýmislegt á prjónunum til að auka og bæta umferli blindra og sjón- skertra þar í landi. Forstöðukona stofnunarinnar sem ég átti fund með er blind og notast við leiðsöguhund. Yfirmann- eskja blindrakennaranna er blind, einn af þremur sálfræðingunum er blindur og það sama á við um fé- lagsfræðinga stofnunarinnar. Lífs- reynsla skiptir máli þegar takast þarf á við raunveruleg áföll og læra af þeim sem reynsluna hafa. Blindrasamtökin í Barcelona skipta þörfum blindra og sjón- skertra upp í aldurshópa sem ég ætla ekki að tíunda hér en eitt af forgangsmálum stofnunarinnar er atvinnuþátttaka blindra og sjón- skertra sem eru á vinnualdri og hafa til þess starfsgetu. Mikil áhersla er að virkja og koma ný- blindum og blindum og sjón- skertum út á vinnumarkaðinn og hefur það gengið vel þar sem fé- lagið nýtur mikils velvilja í sam- félaginu þrátt fyrir þónokkurt at- vinnuleysi á Spáni. Blindir og sjónskertir fá laun frá fyrsta degi eftir að þeir eru komnir til vinnu og fylgir blindrakennarinn þeim úr hlaði og öll eftirfylgni er forgangs- atriði. Þessu er algerlega öfugt farið hérlendis en ég tala út frá minni reynslu hér á landi auk þess sem viðkomandi fær engin laun fyrstu mánuðina ef hann fer í vinnuprufu hjá Virk, fólk þarf að borga með sér (aksturskostnað) sem er fjarri því að vera upp- byggjandi, þvert á móti er það nið- urlægjandi fyrir viðkomandi. Blindir og sjónskertir starfa í flestöllum greinum atvinnulífsins allt frá því að starfa við jógúrt- framleiðslu, bókhald og lög- fræðistörf en einn þekktasti lög- fræðingur Barcelona er blindur. Hjá félaginu starfar viðburða- stjóri sem sér um að skipuleggja alls kyns viðburði og útvega góð kjör og sinnir því sem þarf að gera og græja. Hann sér um að skipuleggja ferðir í leikhús, á tón- leika, í ferðalög til útlanda o.fl. Það var minnst á það við mig að það hefði um 30 manna hópur haft hug á því að koma til Íslands en þau hefðu hætt við vegna verðlags og þess í stað farið til Rússlands. Ég bauðst til þess að vera þeim innan handar með skipulagningu og kanna verðtilboð og afslátt- arkjör ef þau hefðu ennþá hug á að koma til Íslands og tóku þau vel í það. Að lokum var mér boðið að skoða öll þau hjálpartæki sem þau hafa til sölu í verslun sinni á jarð- hæð hússins og var þar margt áhugaverðra hluta sem gagnast blindum og sjónskertum við dag- leg störf sín. Það var ekki fyrr en síðastliðið haust sem ég komst að því að Blindrafélagið í Hamrahlíð 17 hefði ýmis hjálpartæki til sölu en þá hafði ég verið lögblindur fé- lagsmaður þess í 4. ár. Ég benti á þetta í grein innan blindra- samfélagsins fyrir hálfu ári og að lífsnauðsynlegt væri að kynna úr- valið fyrir blindum og sjónskertum hérlendis. Barcelona-heimsókninni lauk síðan á því að félagsmenn sýndu mér og sögðu frá íþróttaaðstöð- unni sem þau hafa í húsinu þar sem blindir og sjónskertir geta komið saman og stundað líkams- rækt, jóga og margt fleira undir handleiðslu einkaþjálfara og ann- arra kennara, allt þeim að kostn- aðarlausu. Þegar einn kennir þá læra tveir. Hvað eru hinir að gera? – Blindir og sjónskertir á Spáni Eftir Svavar Guðmundsson Svavar Guðmundsson » Félagið hefur komið sér upp neti sjálf- boðaliða sem skipta þús- undum sem vilja hjálpa til. Höfundur er sjávarútvegsfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.