Morgunblaðið - 29.03.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.03.2019, Blaðsíða 27
Reykjavík 1986-2016 þegar hann lét af störfum. Bragi hefur ásamt Jóni Torfasyni, Sverri Tómassyni, Örnólfi Thorssyni og Bergljótu S. Kristjánsdóttur o.fl. unnið að útgáfu fornsagna, Íslend- ingasagna og þátta (1985-86, 1987, 2018), Sturlungu (1988 og 2010) og Heimskringlu (1991) auk skóla- útgáfna fornsagna með Knúti Haf- steinssyni (Fóstbræðra sögu 1995 og Íslendingaþátta 1999). Með honum gaf Bragi einnig út Ljóðamál (1994 og síðar) og með honum og Ólafi Oddssyni Orminn langa (2004 og síð- ar). Þessar kennslubækur eru mikið notaðar á framhaldsskólastigi. Ásamt Sverri Tómassyni og Einari Sigurbjörnssyni gaf hann út Heil- agra karla sögur árið 2007. Einnig gaf Bragi út Ævintýri frá miðöldum árið 2016. „Helsta áhugamál mitt er skák og ég hef frumsamið tvær bækur um skák, Heimsbikarmót Stöðvar 2 1988, og ásamt Helga Ólafssyni og Jóni Torfasyni bókina Benóný 1999 sem er um skákmeistarann Benóný Benediktsson. Auk þess hef ég þýtt allnokkrar bækur um skák eftir m.a. Tal, Bronstein, Averbak og Hort.“ Á skáksviðinu hefur Bragi um tíð- ina hlotið ýmsar viðurkenningar, m.a. Norðurlandameistaratitil í hrað- skák 1971, sigur á móti blaðamanna á ólympíuskákmótinu í Luzern 1982 og hann var liðsstjóri íslenska liðsins á ólympíuskákmótinu í Haífa 1976. Sex sinnum tefldi hann í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands og er þá fátt eitt nefnt. Á yngri árum tefldi hann tví- vegis fyrir Íslands hönd á heims- meistaramótum stúdenta í sveita- keppni. „Næsta verkefni á skák- sviðinu er þátttaka í heimsmeistara- móti öldungasveita 65 ára og eldri á Ródos í apríl næstkomandi.“ Bragi starfaði nokkuð að félags- málum kennara, var m.a. í stjórn HÍK og lengi formaður kjörstjórnar KÍ. Fjölskylda Eiginkona Braga er Anna Ragn- hildur Ingólfsdóttir, f. 18.9. 1946, kantor og þýðandi. Foreldrar: Hjón- in Ingólfur Jónsson, f. 25.6. 1920, d. 13.1. 2015, framkvæmdastjóri í Reykjavík, og Ingibjörg Björgvins- dóttir, f. 30.9. 1924, húsmóðir í Reykjavík. Fyrri eiginkona Braga er Kristín Þorvaldsdóttir, f. 31.10. 1942, hárgreiðslukona. Dóttir Kristínar og Braga er Hrefna, f. 14.7. 1981, myndlistar- maður og háskólakennari í Bourne- mouth á Englandi. Börn Kristínar: Þorvaldur S. Arnarson, f. 28.4. 1967, verkfræðingur í Reykjavík, og Sif Arnardóttir, f. 18.8. 1977, tölvu- sérfræðingur, bús. í Auckland á Nýja-Sjálandi, sonur Sifjar: Ryan, f. 2010. Börn Önnu eru: Linda Vil- hjálmsdóttir, f. 7.9. 1971, verkefnis- stjóri í HR, dætur Lindu: Þórdís Anna Sigtryggsdóttir, f. 2009, nemi, og Ingbjörg Lára Sigtryggsdóttir, f. 2015; Þrúður Vilhjálmsdóttir, f. 31.3. 1973, leikkona og flugfreyja, sonur Þrúðar: Róbert Vilhjálmur Ásgeirs- son, f. 1999, nemi; Ingólfur Vil- hjálmsson, f. 15.3. 1976, klarinettu- leikari í Berlín. Systkini Braga: Oddný, f. 2.1. 1942, d. 10.7. 1997, tækniteiknari og skrautskrifari; Halldóra, f. 19.2. 1943, d. 10.7. 1997, smurbrauðsdama, og Hreinn, f. 5.1. 1945, húsasmíða- meistari í Reykjavík. Foreldrar Braga voru hjónin Hall- dór Benediktsson, f. 21.7. 1912, d. 7.3. 1984, verkstjóri í Reykjavík, og Þór- unn Sigurbergsdóttir, f. 19.3. 1919, d. 30.11. 2004, húsmóðir í Reykjavík. Úr frændgarði Braga Halldórssonar Bragi Halldórsson Stefanía Jónsdóttir húsfreyja á Eyri Þorsteinn Lúðvíksson Kemp hreppstjóri á Eyri Oddný Þorsteinsdóttir húsfreyja á Eyri í Fáskrúðsfirði Þórunn Sigurbergsdóttir húsmóðir í Reykjavík Sigurbergur Oddsson útvegsbóndi á Eyri, síðar verkamaður í Rvík Þórunn Björnsdóttir húsfreyja í Hvammi Oddur Oddsson útvegsbóndi í Hvammi í Fáskrúðsfirði Oddur Sigurbergsson kaupfélagsstjóri í Vík og á Selfossi Margrét Oddsdóttir dagskrárstjóri hjá RÚV Karl G. gurbergsson skipstjóri og þm. í Keflavík Si al Bjarni Frímann Karlsson ektor í HÍl Bjarni Frímann Bjarnason aðstoðarhljóm- sveitarstjóri SÍ Katrín Jakobsdóttir húsfreyja á Valdastöðum Halldóra Jakobína Guðmundsdóttir húsfr. í Miðengi og formaður Sambands sunnlenskra kvenna Guðmundur Sveinbjarnarson bóndi á Valdastöðum í Kjós Benedikt Einarsson bóndi í Miðengi í Grímsnesi, áður kennari og bústjóri á Lágafelli (Mos.) og í Fífuhvammi (Kóp.) og frkvstj. á Álafossi, fósturfor.: Guðmundur Sveinbjarnarson og Katrín Jakobsdóttir Halldóra Sveinbjarnardóttir húsfreyja á Elínarhöfða Einar Jónsson bóndi og sjósóknari á Elínarhöfða á Akranesi Halldór Benediktsson verkstjóri í Reykjavík Árni M. Mathiesen aðstoðarforstj. FAO og fv. ráðherra Þorgils Óttar Mathiesen handboltakappi Þorgils Guðmundsson kennari í Reykholti og gjaldkeri á Fræðslumálaskrifst. Rvíkur Þorgils Óttar Þorgilsson starfsm. NATO í Brussel Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri Sigrún Þorgilsdóttir Mathiesen húsfr. í Hafnarfirði ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019 Guðrún Þ. Stephensen fæddist íReykjavík 29. mars 1931.Foreldrar hennar voru hjón- in Dóróthea Breiðfjörð, f. 1905, d. 2001, húsfreyja og starfsmaður á Þjóðminjasafni Íslands og Þorsteinn Ö. Stephensen, f. 1904, d. 1991, leik- ari. Guðrún lauk prófi frá Leiklistar- skóla Þjóðleikhússins árið 1954. Hún hóf strax að námi loknu að leika hjá Leik-félagi Reykjavíkur þar sem hún starfaði í tvo áratugi. Meðal minn- isstæðra hlutverka hennar hjá LR má nefna Madge í Tíminn og við, Marinu í Vanja frænda, Magdalenu í Húsi Vernörðu Alba, Marisku í Það er kominn gestur, og tvær kostulegar konur í leikritum Jökuls Jakobs- sonar, Dómínó og Kertalogi. Hún var síðan fastráðin við Þjóð- leikhúsið um árabil og lék þar á fimmta tug hlutverka. Meðal eft- irminnilegra persóna sem hún lék þar eru kerlingin í Gullna hliðinu, Soffía frænka í Kardemommubæn- um, Sólveig í Lúkasi, Stella í Sól- arferð, og Valborg í Valborgu og bekknum. Á síðari árum lék Guðrún meðal annars bangsamömmu í Dýr- unum í Hálsaskógi, tengdamóðurina í Blóðbrullaupi, Doris í Kirkjugarðs- klúbbnum og Anfísu barnfóstru í Þremur systrum. Síðasta hlutverk Guðrúnar við Þjóðleikhúsið var Fríða í hinni geysi- vinsælu sýningu Manni í mislitum sokkum, en þar lék hún meðal annars með öðrum þekktum leikurum af sinni kynslóð. Hún sat um árabil í þjóðleik- húsráði, starfaði við barnakennslu meðfram leiklistinni, lengst af í Kárs- nesskóla, leikstýrði hjá áhuga- leikhópum víðsvegar um landið og lék í fjöldanum öllum af hlutverkum í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Má þar nefna Löggulíf, Kristnihald undir jökli og Benjamín dúfu. Eiginmaður Guðrúnar er Haf- steinn Austmann, f. 19.7. 1934, mynd- listarmaður. Dætur þeirra: Dóra, f. 1954, d. 2019, og Kristín, f. 1956. Guðrún lést 16. apríl 2018. Merkir Íslendingar Guðrún Þ. Stephensen 95 ára Sigurbjörn Ágústsson 90 ára Guðmundur Óskarsson 85 ára Jóhanna Vernharðsdóttir Sigrún Ámundadóttir 80 ára Anna Margrét Jóhannsdóttir Anna Þorgrímsdóttir Árni H. Kristinsson Ólöf Guðríður Sigursteinsdóttir Sigurður Jón Kristjánsson 75 ára Guðrún Hólmfríð Ólafsdóttir Katrín Lovísa Magnúsdóttir Stefán Árnason Vilborg Ásgeirsdóttir Þorgrímur Björn Björnsson Þórir Valgeir Baldursson 70 ára Bragi Halldórsson Guðleifur M. Kristmundsson Ingimundur B. Garðarsson Margrét Gústafsdóttir Ragnheiður Brynjólfsdóttir Svanhildur Guðmundsdóttir 60 ára Arnar Hilmarsson Fanney Ísfold Karlsdóttir Guðný Óskarsdóttir Guðríður Jónasdóttir Helga S. L Bachmann Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir Rosa Hermiena Leixo Sigríður Kristín Gísladóttir Tryggvi Edwald 50 ára Arnar Kristinsson Gheorghe Neagu Guðlaug Einarsdóttir Hildigerður M. Gunnarsd. Laufey Einarsdóttir Ófeigur Fanndal Birkisson Sóley Halla Möller Þórður Aðalsteinsson 40 ára Antonio Costanzo Eurico M. Duarte Amorim Gunnar Þorkelsson Inga Sóley Kristjönudóttir Jón Tryggvi Arason Júlía Bjarney Björnsdóttir Kári Jóhann Sævarsson Logi Sigurjónsson Margrét Hreinsdóttir María Bjarkadóttir Ottó Björgvin Óskarsson Sigurður Bjarni Sigurðsson Sindri Guðjónsson Sunna Björk Bragadóttir Theodór Guðmundsson 30 ára Andrea Matejovicová Brynjar Guðjónsson Daniela Bejcková Elva Ósk Jónsdóttir Hlíf Berry Jón Rúnar Jónsson Martyna Zawadzka Mateusz Mateja Mathias Valentin Jensen Pálmar Magnússon Rakel Gunnarsdóttir Sigrún Ella Helgadóttir Sigurgeir Búi Daníelsson Teitur Ingi Sigurðsson 40 ára Gunnar er frá Mel á Mýrum en býr á Þor- finnsstöðum í Vesturhópi. Hann vinnur við smíðar. Maki: Kristbjörg S. Birg- isdóttir, f. 1982, rekur Hótel Hvítserk. Börn: Hallbjörn Gísli, f. 2005, Hjalti, f. 2007, Silja, f. 2011, og Trausti, f. 2014. Foreldrar: Þorkell Guð- brandsson, f. 1952, og Guðrún Jónasdóttir, f. 1955, bús. á Furumel á Mýrum. Gunnar Þorkelsson 40 ára Sunna er Dalvík- ingur, hún er menntaður sjúkraliði en rekur ferða- þjónustufyrirtækið Berg- menn ehf. Maki: Jökull Bergmann, f. 1976, ferðaleigsögu- maður. Börn: Ísól Anna, f. 2006, Úlfur Berg, f. 2009, og Álfgrímur Bragi, f. 2012. Foreldrar: Bragi Jónsson, f. 1941, og Ragnhildur Jónsdóttir, f. 1944, d. 2013. Sunna Björk Bragadóttir 30 ára Jón Rúnar er Reyk- víkingur, hann er mennt- aður félags- og markaðs- fræðingur og er framkvæmdastjóri Bækl- ingadreifingar. Maki: Kolbrún Halla Guð- jónsdóttir, f. 1993, iðju- þjálfanemi. Bræður: Ingi Björn, f. 1979, og Ólafur Bragi, f. 1981. Foreldrar: Jón Sigurðs- son, f. 1950, og Sólrún Ástþórsdóttir, f. 1953, d. 2015. Jón Rúnar Jónsson Til hamingju með daginn KANNAÐUVERÐ OG ÚRVAL AF RÚLLUPLASTI HJÁ OKKUR . HÁGÆÐAVÖRUR SEM BÆNDURTREYSTA ! www.fodur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.