Morgunblaðið - 29.03.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 29.03.2019, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019 Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Wave stólar Fáanlegir í mörgum litum Verð: 12.900 kr. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Viljirðu komast hjá óþægindum skaltu ekki blanda saman starfi og leik. Ekki vera með hjartað í buxunum þó þér hafi orðið á í messunni. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú veist öðrum betur hvað þér er fyrir bestu svo vertu óhrædd/ur við að fara þínar eigin leiðir. Gættu þess að ganga ekki um of á orku þína. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur engar efasemdir varðandi markmið þín og átt því auðveldara með að fá fólk til samstarfs við þig. Haltu öllum kvitt- unum til haga. Það getur margborgað sig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú þarftu að taka þér tak í fjármál- unum. Reyndu að eyða einhverjum tíma í ein- rúmi og safna kröftum. Hugmynd vinar fer í hundana. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér verður boðið í partí, á listviðburð eða eitthvað af því tagi alveg óvænt og þar hittir þú áhugaverða persónu. Með samúð þinni og samkennd gerir þú heiminn betri. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef þú setur þér of stífa dagskrá er hún dæmd til að mistakast. Mundu að oft er skammt milli hláturs og gráts. Þér fallast hendur yfir draslinu heima hjá þér, taktu til í einu herbergi í einu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú ertu loks tilbúinn til að gera þær breytingar sem staðið hafa fyrir dyrum um nokkurn tíma og þú færð hrós fyrir. Ekki láta neinn eiga hönk upp í bakið á þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú munt eiga mikilvægar sam- ræður við yfirmenn í dag. Gefðu þér tíma til að greiða úr flækjunni í ástamálunum og þá leysast allir hlutir auðveldlega. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert að velta fyrir þér flutn- ingum eða breytingum í vinnu. Þú veist hvað klukkan slær þegar þú færð boð frá yf- irmanninum um að mæta á fund. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er að mörgu að hyggja þegar samningar eru gerðir. Með því að tala um þig og þín innstu mál uppskerðu djúpan skilning. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú átt erfitt með að einbeita þér að hlutunum og dettur auðveldlega í dag- drauma. Njóttu kvöldsins meðal þinna bestu vina. 19. feb. - 20. mars Fiskar Farðu varlega í að kaupa hluti að óat- huguðu máli. Þig langar að víkka sjóndeild- arhring þinn, skráðu þig á námskeið eða lestu fróðlegar bækur. Víkverji veit eiginlega ekki hvaðsnýr upp og niður þessa dagana og tekur þátt í rússíbanareið þjóð- arinnar. x x x Kjaradeilur fylla einn vagn rússí-banans. Þar er allt í hnút eina klukkustundina og verkföll yfirvof- andi. Þá næstu er búið að fresta verk- föllum þar sem nýr tónn er fundinn. Víkverji er ánægður með það og veit að það liggur í hlutarins eðli í kjara- samningum að þar skipast veður skjótt í lofti. x x x WOW air er í öðrum rússíbana-vagni. Legið hefur fyrir í nokk- urn tíma að vandræði voru í rekstri flugfélagsins. Það kemur við fjölda fólks þegar stórt fyrirtæki eins og WOW hættir rekstri. Það má segja að í baráttu WOW við að haldast á floti hafi veður skipast afar skjótt í lofti. x x x Indigo kemur að borðinu, Indigo fer.Icelandair kemur að borðinu, Ice- landair fer, kemur aftur og fer. Fjár- mögnun tryggð, fjármögnun ekki tryggð. Samið við kröfuhafa og allir anda léttar. Í gærmorgun vaknaði Víkverji, leit í fjölmiðla og sá að öllu flugi hafði verið aflýst hjá WOW meðan verið væri að klára fjárfest- ingar og fá nýjan eigendahóp að fé- laginu. Víkverji settist við eldhús- borðið og var að setja upp í sig fyrstu skeiðina af hafragrautnum þegar hljómaði í útvarpinu að WOW væri hætt rekstri. Víkverja brá og það fyrsta sem honum datt í hug var að hann hefði eitthvað misskilið frétt- irnar, svo skjótt skipuðust veður í lofti í það sinn. x x x Víkverji er bjartsýnn að eðlisfari.Stuðningur starfsmanna WOW við fyrirtækið og stjórnanda þess er ljós í myrkinu. Samhent átak lands- manna til að koma í veg fyrir misl- ingafaraldur er ljós í myrkrinu. Unga fólkið okkar sem stendur upp og læt- ur í sér heyra í umhverfismálum er ljós í myrkrinu. Það er ljós í myrkrinu að öll él birt- ir upp um síðir. vikverji@mbl.is Víkverji Og Jesús sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér. (Lúk: 9.23) Jón Gissurarson skrifaði eftirlandsleikinn á mánudaginn: „Ís- lenska landsliðið í knattspyrnu spil- aði landsleik við heimsmeistara Frakka fyrr í kvöld. Þrátt fyrir góðan sigurvilja Íslendinganna fyr- ir leikinn virtist franska landsliðið eiga allskostar við það íslenska og sigruðu Frakkarnir með fjórum mörkum gegn engu.“ Fyrir leikinn breitt við brostum burðugt var þá okkar fas, en franska liðið fór á kostum fengum því að lúta í gras. Sigurlín Hermannsdóttir orti á þriðjudag: Þessi vísa er varla spes veit ei hvar mun enda. Á Boðnarmjöðinn bókar fés best er hana’ að senda. Á Boðnarmjöðinn bókar fés Bragi stundum lítur. Oft þar vondar vísur les er visku sumra þrýtur. Bjarni Gunnlaugur Bjarnason svaraði: Viska mín er varla nein Þar vísur lítt úr bæta En mér finnst gott ef ein og ein Einhvern nær að kæta Og Ingólfur Ómar Ármannsson bætti við: Allt er hjal mitt einskinsvert oft hef beðið krísur. Verst að aldrei get ég gert gáfulegar vísur. Ekki er að furða þótt illa liggi á kettinum Jósefínu Meulengracht Dietrich út af veðrinu: Fólkið mitt er flogið burt mér finnst það vera ansi hart og vildi að það væri kjurt og vorið kæmi hlýtt og bjart. Og enn mjálmar kötturinn: Ég þefa upp í heiðið hátt og horfi á skýin ósköp mædd því loftslagskvíðinn leikur grátt litla kisu og ég er hrædd. Sigurlín Hermannsdóttir kveður: Ég reyni oft að yrkja smá en ekkert gengur. Það er alveg af og frá ég yrki lengur. Hreinn Guðvarðarson svarar: Ef þú hefur ekki lengur af því gaman Þú eflaust hættir, elskan mín eða færð þér brennivín. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af landsleik og gáfulegum vísum Í klípu „EF ÞÚ VILT HYSJA ÞÁ VEL UPP MYNDI ÉG VELJA HNJÁSOKKA.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN, PABBI.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hlakka til að rekast aftur á hvort annað. JÁ ODDI, ÍKORNAR ERU VÆGÐARLAUSIR ÉG VIL GANGA Í LIÐIÐ!! GETURÐU FYLGT SKIPUNUM? HEFURÐU ÚTHALD? ÉG HEF VERIÐ KVÆNTUR Í TÍU ÁR! SKRIFAÐU UNDIR HÉRNA! SOKKAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.