Morgunblaðið - 29.03.2019, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019
Ný heimildarmynd um sænsku söng-
og leikkonuna Josefin Nilsson hefur
vakið mikla athygli í Svíþjóð. Mynd-
in, sem nefnist Älska mig för den jag
är, var frumsýnd í SVT Play á föstu-
dag og verður sýnd í SVT2 í kvöld
kl. 19. Nilsson, sem var bæði þekkt
og ástsæl listakona í heimalandi
sínu, lést 46 ára 2016, en banamein
hennar var ofskömmtun lyfseðils-
skyldra lyfja. Í myndinni kemur
fram að Nilsson hafi á tíunda ára-
tugnum orðið fyrir ítrekuðu og al-
varlegu ofbeldi af hendi þáverandi
sambýlismanns síns, sem markaði
djúp spor í heilsu hennar. Að sögn
systur hennar, Marie Nilsson-Lind,
jafnaði Josefin Nilson sig aldrei á því
andlega og líkamlega ofbeldi sem
hún varð fyrir.
Áður en Nilsson lést var hún byrj-
uð að skrifa bók um reynslu sína og
byggist myndin að stórum hluta á
gögnum frá henni, m.a. bréfum og
símsvaraskilaboðum frá sambýlis-
manninum þar sem hann hótar
henni öllu illu. Þau gögn voru á sín-
um tíma lögð fram í málaferlum
gegn manninum, en 1997 hlaut hann
þriggja mánaða skilorðsbundinn
dóm fyrir ofbeldið. Hvorki nafn
mannsins, sem er þekktur leikari í
Svíþjóð, né dómurinn var á vitorði
almennings þá og nafn hans hefur
ekki verið birt í fjölmiðlum í yfir-
standandi umfjöllun. Í sænskum fjöl-
miðlum kemur
fram að mað-
urinn hefur verið
á samningi hjá
sænska þjóðleik-
húsinu, Dramat-
en. Í kjölfar sýn-
ingar myndar-
innar hófust
hávær mótmæli í
fjölmiðlum, á
samfélagsmiðlum og við Dramaten,
en þúsundir skrifuðu undir heit þess
efnis að sniðganga leikhúsið meðan
maðurinn starfaði þar.
Í kjölfarið ákváðu stjórnendur að
hætta sýningum á verki sem hann
lék í. Félag leikara við húsið krefst
þess nú að stjórnendur tryggi
öruggt vinnuumhverfi, en síðla árs
2017 var hætt við aðra sýningu sem
hann átti að vera í þegar fram komu
ásakanir um ofbeldi hans í garð sam-
starfsfélaga. Menntamálaráðherra
Svíþjóðar fundaði í vikunni með
stjórnendum leikhússins og krafðist
þess að tekið yrði á málum. Í gær til-
kynnti Eirik Stubø leikhússtjóri að
maðurinn yrði ekki ráðinn í fleiri
verkefni hjá Dramaten.
Sænskir fjölmiðlar hafa síðustu
daga rifjað upp að tvær aðrar fyrr-
verandi sambýliskonur mannsins,
Ewa Fröling og Lena Olin, hafa tjáð
sig um ofbeldi fyrrverandi sambýl-
ings án þess að nefna hann á nafn.
Ný heimildarmynd
vekur hörð viðbrögð
Josefin Nilsson
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal
þótti hálfgert töfrabarn í tónlistinni
þegar hún, tæplega tvítug, kom fram
á sjónarsviðið með fyrstu sólóplöt-
una sína árið 2003. Strax árið eftir
fékk hún Íslensku tónlistar-
verðlaunin fyrir bestu plötuna og
var jafnframt valin besta söng-
konan. Síðan hefur hún fjórum sinn-
um hampað fyrrnefndum verðlaun-
um og jafnoft verið tilnefnd.
Samhliða námi í klassískum píanó-
leik, djasssöng og djasspíanóleik –
og æ síðan – hefur Ragnheiður verið
áberandi í íslensku tónlistarlífi og
komið fram á fjölda tónleika hér
heima og erlendis. Nýlega sendi hún
frá sér sína níundu sólóplötu, Töfra-
börn, og efnir af því tilefni til útgáfu-
tónleika kl. 20 í Gamla bíói á sunnu-
daginn kemur, 31. mars.
Eitt lagið af níu er samnefnt plöt-
unni, hin eru „Mannshjörtu“,
„Amma“, „Freyja“, „Fótfesta“,
„Bláa blómið“, „Sléttuúlfur“, „Allt-
umkring“og „Móðuraflið“. Þegar
Ragnheiður er beðin að lýsa tónlist-
inni á plötunni segir hún hana bræð-
ing af þjóðlagatónlist og tilrauna-
poppi. „En ég mun aldrei yfirgefa
djassinn, áhrifa hans gætir í öllu sem
ég geri. Ég er djasssöngkona í hjart-
anu,“ segir hún með áherslu og held-
ur áfram:
Tilraunagleðin ræður ríkjum
„Ég hef lengi haft þessa sýn að
bræða saman öll þau ólíku áhrif sem
ég hef orðið fyrir í tónlist í gegnum
tíðina. Ég hef fengist við marga stíla
og hlustað mikið á alls konar tónlist
úr öllum áttum. Þótt tónlistin hafi
verið minn besti vinur nánast alla
ævi finnst mér í fyrsta skipti veru-
lega erfitt að lýsa tónlistinni á þess-
ari plötu.“
Má kannski segja að kveði við
annan tón hjá þér?
„Ég myndi ekki beinlínis kalla
þetta annan tón því platan er í raun-
inni framhald af mörgu sem ég hef
verið að gera. Lögin hafa orðið til á
síðustu fimm árum, eða um það bil
frá því síðasta plata mín kom út árið
2014. Töfrabörn tók tvö ár í vinnslu
og var unnin í London með upp-
tökustjóranum Gerry Diver ásamt
fleiri tónlistarmönnum. Diver, sem
stjórnaði upptökunum, setur mjög
sterkan svip á verkið og ber ábyrgð
á því að við ákváðum að láta til-
raunagleðina ráða ríkjum og leit-
uðumst við að skapa spennandi og
kannski pínu óvenjulegan hljóm.“
Spurð hvers vegna hún lét taka
plötuna upp þar ytra segist hún
hreinlega hafa átt erfitt með að
koma sér að verki hér heima og
klára hugmyndir. „Síðan fékk ég
stuðning frá góðu fólki, sem segja
má að hafi ýtt verkefninu úr vör með
því að fá mig til að ráða mér upp-
tökustjóra í London.“
Auðmjúkur farvegur
Þótt Ragnheiður vilji ekki fara
djúpt ofan í saumana á lögunum og
textunum telur hún að í þeim sé
óhjákvæmilega eitthvað af henni
sjálfri. Enda búi listamaðurinn jafn-
an til tónlist til að melta eitthvað
sem hann hefur orðið fyrir og komi
því í orð og tóna sem verða síðan að
sjálfstæðri heild.
„Ég vil helst bara halda þessum
lögum þannig að leyfa fólki að túlka
þau á sinn hátt. Mér finnst ég vera
að setja tónlistina á lægra plan með
því að vera of sjálfdramatísk – ég er
aðeins auðmjúkur farvegur fyrir
fegurð,“ segir Ragnheiður, en dreg-
ur þó ekki dul á að með laginu
„Amma“ hafi hún viljað þakka
ömmu sinni fyrir allt sem hún stóð
fyrir og skildi eftir sig.
„Mig langaði bara til þess að búa
til lag til að heiðra minningu og ævi
kvenna af eldri kynslóðum, sem
bjuggu ekki við sömu tækifæri og
konur af minni kynslóð,“ bætir hún
við.
Er eitthvert lag á þessari nýju
plötu þér hjartfólgnara en annað?
„Mér finnst mjög erfitt að gera
upp á milli þeirra, þau hafa öll sinn
karakter. Líkt og plöturnar mínar,
sem hafa allar svipað tilfinningalegt
gildi og þýðingu fyrir mig. Ég er
hægt og rólega að komast nær mín-
um eigin kjarna. Smám saman hefur
mér farið að standa æ meira á sama
um viðtökur og þvíumlíkt og það gaf
mér mikið og kærkomið frelsi í
þessu plötuferli. Annars er ég bara
eins og aðrir listamenn; alltaf hrifn-
ust af því nýjasta sem ég er að búa
til.“
Þróa lögin áfram
Ragnheiður tekur fram að hún sé
ekki eini aðstandandi Töfrabarna,
fleiri hafi lagt þeim lið, þar á meðal
unnusti hennar, Guðmundur Pét-
ursson, en hann og Diver sáu mest-
megnis um hljóðfæraleikinn. Töfra-
og listakonan Martyna Daniel bjó til
myndefni fyrir alla plötuna sem
varpað verður á skjá á tónleikunum
til að ýta undir áhrif tónlistarinnar.
„Einnig kemur við sögu á plötunni
strengjakvartettinn Santiago Quart-
et, bróðir minn kær, Haukur Grön-
dal, slagverksleikarinn Claudio
Spieler og söngkonurnar Ingibjörg
Fríða Helgadóttir og Rakel Páls-
dóttir.“
Hins vegar verða ekki alveg sömu
tónlistarflytjendur á útgáfutónleik-
unum. Matthías Hemstock verður til
dæmis á trommum og Kjartan
Valdemarsson spilar á hljómborð.
„Við reynum eftir fremsta megni að
endurskapa hljóðheim og stemningu
plötunnar. Ég legg samt upp með að
tónleikarnir standi sem heild og þar
kemur djassinn og spuninn inn. Ég
vil ekki reyna að líkja fullkomlega
eftir einhverjum augnablikum sem
eru horfin heldur vera á tánum og
þróa lögin áfram í lifandi flutningi.“
Ekki þarf að undra að Ragnheiður
segist elska að syngja góð lög. Hún
veit að hennar styrkleikar liggja í að
syngja tónlist með góðum textum og
innihaldi, en hvorki játar né neitar
þegar hún er spurð hvort henni finn-
ist skemmtilegra að syngja eigin lög
eða annarra. „Sjálf er ég meira fyrir
að hlusta á upprunalega útgáfu laga.
Aðallega finnst mér þó nauðsynlegt
að tengja við innihald laga sem ég er
að flytja og finna þörf hjá mér til að
deila því með öðrum – og gera þau
þannig að mínum,“ segir Ragnheið-
ur að lokum.
Djasssöngkona í hjartanu
Ragnheiður Gröndal heldur útgáfutónleika í Gamla bíói á sunnudagskvöld Töfrabörn er níunda
sólóplatan Bræðingur af þjóðlagatónlist og tilraunapoppi Lögin urðu til á síðustu fimm árum
Morgunblaðið/Hari
Á æfingu „Við reynum eftir fremsta megni að endurskapa hljóðheim og stemningu plötunnar,“ segir Ragnheiður,
en leggur samt upp með að tónleikarnir standi sem heild og þá skerist djassinn og spuninn í leikinn.
:
Glæsilegt páskablað
fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 13. apríl
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 – kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir þriðjudaginn 9. apríl
–– Meira fyrir lesendur
MATUR – HEFÐIR – FERÐALÖG – VIÐBURÐIR
SÉRBLAÐ