Morgunblaðið - 29.03.2019, Qupperneq 36
Arnhildur Valgarðsdóttir organisti
og Katherine Wren víóluleikari
koma fram á tónleikum í Fella- og
Hólakirkju í kvöld kl. 20. Á efnis-
skránni eru m.a. Farewell to Strom-
ness eftir Peter Maxwell Davies,
Qaanaaq, sónata eftir Adrian Ver-
non Fish, og Kvinnan fróma eftir
Oliver Kentish. Tónleikarnir eru
hluti af verkefni Wren sem nefnist
Nordic Viola, þar sem hún leikur
verk tengd eyjum í Norður-
Atlantshafi.
Tónleikar í Fella- og
Hólakirkju í kvöld
FÖSTUDAGUR 29. MARS 88. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Keflvíkingurinn Davíð Snær Jó-
hannsson sló í vikunni 25 ára leikja-
met Eiðs Smára Guðjohnsen og
Vals Fannars Gíslasonar. Þetta
gerði Davíð Snær þegar hann spil-
aði sinn þrítugasta leik fyrir U17-
landslið Íslands. Eyjamærin Clara
Sigurðardóttir sló sömuleiðis
tveggja ára gamalt met yfir leikja-
fjölda í U17-landsliði stúlkna. »1
Davíð Snær sló met
Eiðs Smára og Vals
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Aðstandendur sýningarrýmisins
Open á Grandagarði 27 fagna eins
árs afmæli með opnun Skartvagns-
ins í kvöld kl. 19. Open hefur tekið
upp á arma sína gamlan purpura-
litaðan skartvagn sem fannst í
annarlegu ástandi úti á Granda,
lappað upp á hann og boðið átta
manneskjum að sýna verk í hon-
um. Sýnendur eru Brynhildur Páls-
dóttir, Carl Boutard, Elín
Hansdóttir, Kristján
Guðmundsson, Pétur
Már Gunnarsson, Re-
becca Erin Moran,
Valgerður Sig-
urðardóttir
og Þór
Sig-
urþórs-
son.
Skartvagninn opnaður
í sýningarrýminu Open
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þjóðræknisþing Þjóðræknisfélags
Íslendinga í Norður-Ameríku
(INLofNA) verður haldið í 100.
sinn í vor. Félagið var stofnað
1918 og fyrsta þingið fór fram í
Winnipeg í Manitoba í Kanada 25.
mars 1919. Afmælisþingið verður í
sömu borg 16.-19. maí nk. og er
gert ráð fyrir um 275 þátttak-
endum. Íslensku forsetahjónin,
Guðni Th. Jóhannesson og Eliza
Reid, verða sérstakir heið-
ursgestir.
Íslendingafélagið Frón í Winni-
peg sér um skipulagningu í sam-
starfi við stjórn INL. Susan
Hjalmarson er í stjórn Fróns og
formaður undirbúningsnefnd-
arinnar ásamt Serenu Goebel. Hún
segir að nú séu 245 manns skráðir
og fleiri eigi eftir að bætast í hóp-
inn. „Við gerum ráð fyrir um 275
manns og um 75 manns að auki í
hátíðarkvöldverðinn,“ segir hún.
Lengi vel var þingið alltaf í
Winnipeg, síðan bættust fleiri bæ-
ir og borgir í Kanada við sem
þingstaðir og 2002 var þingið í
fyrsta sinn í Bandaríkjunum. Þar
hefur það verið fjórum sinnum,
tvisvar í Minneapolis (2002 og
2015), í Seattle 2013 og Grand
Forks 2017.
Susan Hjalmarson segir að
þingið í ár verði með hefð-
bundnum hætti í grunninn. „Engu
að síður verður þetta sérstakt
þing haldið undir einkunnarorð-
unum Honour, Celebrate, Build,“
segir hún og leggur áherslu á að
tímamótanna verði sérstaklega
minnst með ýmsum hætti. Fögn-
uður og gleði verði í fyrirrúmi.
„Nú þegar eru 45 manns frá Ís-
landi skráðir og þátttaka forseta-
hjónanna lyftir þinginu á enn
hærri stall.“
Íslensk menning mikilvæg
Fólk af íslenskum ættum í
Norður-Ameríku hefur haldið
tryggð við arfleifðina með ýmsum
hætti og þar leikur INL stórt
hlutverk. Undir hatti Þjóðrækn-
isfélagsins starfa deildir víða í
Kanada og Bandaríkjunum og
samskiptum við Ísland og Íslend-
inga hefur verið haldið við á marg-
an hátt og böndin treyst. Susan
Hjalmarson bendir á að INL og
félög innan samtakanna vinni
markvisst að því að vernda ís-
lenska menningu í Vesturheimi og
efla samskiptin við föðurlandið.
„Við tökum mið af þessu við skipu-
lagningu afmælisþingsins með því
að minnast þess sem liðið er, njóta
nútíðarinnar og efla starfið með
framtíðina í huga.“
Susan Hjalmarson segir að sú
staðreynd að INL hafi starfað eins
lengi og raun ber vitni sýni
trausta stöðu félagsins. Það byggi
á því sem vel hafi verið gert í
hundrað ár og félagsmenn horfi
björtum augum til framtíðar með
það að leiðarljósi að öll þjóðrækn-
isþing séu mikilvæg. Það sé góður
vettvangur til þess að bera saman
bækur sínar, skiptast á hug-
myndum og vinna saman að sam-
eiginlegum markmiðum. „Þjóð-
ræknisþingið í ár er líka mikilvægt
fyrir þjóðræknisfélagið Frón í
Winnipeg, því það fagnar einnig
100 ára afmæli,“ segir hún.
Winnipeg Susan Hjalmarson er í stjórn Fróns og formaður undirbúnings-
nefndar þjóðræknisþingsins í maí ásamt Serenu Goebel.
Þjóðræknisþing árlega
í Vesturheimi í 100 ár
Íslensku forsetahjónin sérstakir heiðursgestir í Winnipeg